17.9.2007 | 20:45
Eitthvað hlýtt og notalegt, þó það séu bara minningar.
Já það er búið að vera rosalega kalt í dag. Ég byrjaði daginn á fundi með bæjarstjóranum og yfirmanni tæknideildar, og tæknifræðing, þar var líka mættur Árni Steinar, umhverfisstjóri í Fjarðarbyggð. Þeir höfðu beðið hann um að taka út svæðin hér í Ísafjarðarbæ, með tilliti til útboðs og ýmsar ráðleggingar utanaðkomandi. Við fórum svo skoðunarferð um alla byggðarkjarnana. Veðrið var hundleiðinlegt, ískalt og rigning. Ég var köld i gegn þegar ég kom heim. Svo mér datt í hug að setja smá lit og hlýju inn á bloggið mitt.
Hér er sölutorg í litlu indíjánaþorpi í suður Mexíco. Í kirkjunni getur maður fengið heilun, með því að kveikja á kerti eða slátra hana.
Þessi er ansi liðtæk við að prjóna.
Búningarnir eru ansi skrautlegir og hver kynstofn hefur sinn eigin búning.
Fórum í heimsókn inn á þetta heimili. Hér eru stúlkubörn gefin eiginmanni þegar þær eru um 7 - 8ára gamlar. Þessi maður átti 7 konur, og svo tók hann að sér systur einnar líka. Hann spókar sig meðal karlanna í þorpinu en þær vinna.
Þær virðast ánægðar með hlutskifti sitt, þekkja ekkert annað.
Við vorum dubbaðar upp í búninga, en þær eru svo miklu minni en við, bæði á lang- og þververg.
Karlarnir eru jafnvel ennþá skrautlegri í klæðaburði.
Hér er eldhúsið, og það er verið að baka tortillur, auðvitað var okkur boðið upp á slíkar.
Svona eru mótin hjá þeim.
Þessi ágæti leigubílstjóri er alveg stálheiðarlegur. Við höfðum tekið leigubíl, og föttuðum svo nokkru seinna að við höfðum gleymt myndavélinni í bílnum. Þar sem við gengum aðalgötuna kallaði hann til okkar að við hefðum gleymt myndavélinni í bílnum hans. Við vorum ekki einu sinni farin að sakna hennar. Bíðið augnablik sagði þessi öðlingur, ég fór með hana niður á stöð, ég sæki hana eftir augnablik. Og það stóð. þess vegna eru þessar myndir til.
Hér erum við komin að landamærastöð Guatemala. Ætlum yfir sundið.
Þessi ungi maður var í rútunni sem við ferðuðumst með, hann var 7 ára, og fór margra kílómetra ferðalag í næsta þorp til að sækja nagla, hann var að hjálpa pabba sínum að smíða. En hann fór samt nokkra klukkutíma á dag í skólann.
Á inkaslóðum í Guatemala.
Hér er í komin til Belize, á eyju sem heitir Caye Caulker. MM heitt og notalegt, hreinn sjór. Hér meira að segja eru kórallarnir alfriðaðir, þeir stúta þeim ekki eins og við gerum.
Svo snorkar maður, hér voru hákarlar og skötur, þau voru gæludýr, það fór samt svolítið um mig þegar ég renndi mér niður til þeirra.
Hér er sko ekkert verið að pakka appelsínunum inn í neytendapakkningar.
Jamm hér ríður maður á hesti. Við fórum upp í 3400 metra hæð yfir sjávamáli til að skoða fiðrildi sem eru alfriðuð í heiminum. Hér í Mexícó þar sem við erum er einn af örfáum griðarstöðum þeirra. Þau koma fljógandi alla leið frá Candada og lifa í 8 mánuði, sem er met hjá fiðrildum.
Þau eru þarna í milljónavís, en hefur fækkað gríðarlega vegna mengunar.
Hér er svo ströndin í Mazatlán, í Mexico, hér var fiskimaður sem fór út á hverjum morgni og kom með ferskar ostrur upp á ströndina, þar var hægt að kaupa þær spriklandi fyrir 1 pesó.
Æ það er ágætt að rifja upp suðlægari slóðir þegar kári kuldaboli ræðst á mann óforvarendis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.9.2007 | 17:59
Hinn svarti dagur dómaranna.
Hinn svarti dagur dómaranna.
Látum nöfnin þeirra standa í svörtu í allan dag á bloggsíðum okkar. Þau tala fyrir sig sjálf verkin þeirra. Og við erum með þögla yfirlýsingu um hvað okkur finnst um þau.
Það voru hæstaréttardómararnir; Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Ingibjörg Benediktsdóttir, Markús Sigurbjörnsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson sem sáu ástæðu til að milda dóm nauðgarans úr 4 ár sem var dómur héraðsdóms í 3 1/2 ár.
Hvar stendur þjóð sem skynjar ekki réttlæti sitt og traust á þeim sem eiga að fylgja því eftir???
Ég ætla að láta þessi nöfn og spurningu mína standa hér í dag með stórum svörtum stöfum. Vona að fleiri geri slíkt hið sama á sinni bloggsíðu undir yfirskriftinni
Hinn svarti dagur Dómaranna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.9.2007 | 08:56
Hinir herskáu.
Þetta er mikið vandamál, og spurning um hvað sé til ráða. Það er örugglega erfitt að berjast við svona hugmyndafræði, og finna út hvar skemmdu eplin eru. Þetta er eins og að sofa á jarðsprengju, aldrei að vita hvenær upp úr sýður. Dönum og öðrum norðurlandabúum, er sannarlega vandi á höndum.
Þetta eru trójuhestar nútímans.
![]() |
Hópur Dana lítur á sig sem liðsmenn alþjóðlegra hryðjuverkasamtaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfærslur 17. september 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar