Haustlitir, ber og nýpur.

Við hjónin vorum að dunda okkur upp á lóð í dag, í góða veðrinu.  Ég setti nokkrar kartöflur niður í rimlakassa í vor, og við settum þær inn í gróðurhúsið í dag, því ég ætla að taka þær upp smátt og smátt, til að borða glænýjar kartöflur, þetta er sniðugt, mér sýnist að þær ætli að vera fínar, set ef til vill mynd af þeim inn síðar.

En við vorum að mæla hæstu trén í garðinum.  Hæsta tréð var ösp sem ég kalla Birgir, eftir bankastjóra Landsbankans, en ég tók græðling af tré í garðinum hans fyrir nokkrum árum, Birgir er nú orðin 7.50 m. 

En ég tók líka myndir af nokkrum runnum sem hafa fallega haustliti og líka berjum og nýpum, hér er smásýnirhorn.

IMG_8978

Þetta er úlfarunni. 

IMG_8979

Þessi elska heitir drekakvistill.

IMG_8980

Jamm þetta eru sólber, þessi runni heitir Jänkisjärvi, finnsk tegund, afar bragðgóð.

IMG_8981

Svo eru rifsberin.

IMG_8984

Stikilsberin.

IMG_8985

Hvít sólber, ég á líka hvít rifsber.

IMG_8987

Nýpur eru fallegar og þær má nota í te.  Þetta eru nýpur meyjarrósarinnar.

IMG_8989

Hér eru ber Úlfareynisins, en þau eru nú bara fyrir fuglana á þessum bæ.  Nema til frætöku og sáningar.

IMG_8990

Sama á við um yllinn, nema í þessu góða árferði, þá flytja fuglarnir endalaust fræ af honum um allar trissur og hann er að verða illgresi.

IMG_8991

Virginíuheggurinn fær skemmtilegan brúnan lit á haustin, meðan blóðheggurinn er rauðbrúnn allt sumarið.

IMG_8992

Hér er birkikvisturinn, sem verður svona eldrauður við fyrsta frost.  Svoleiðis er líka glansmispillinn.

IMG_8993

Þetta er svo bersarunninn, sem er alltof sjaldgæfur, fallegur og harðgerður runni.

IMG_9020

Hvítþinur, þessi fræ verða sko tekin og sáð þegar þau eru orðin þroskuð.

IMG_9023

Garðskskraut þarf ekki alltaf að kosta mikið.  Svona gömul heyvinnslutæki geta verið hið besta garðskraut.

IMG_9025

Ein að lokum af krúttinu honum Sigurjóni Dag.  Hann elskar bíla og gröfur.  Heart 


Stundum eru vegir mannsins órannsakanlegir.

Þð gerðist dálítið skemmtilegt í gær, eiginlega kraftaverk í anda Leyndarmálsins.  En maðurinn minn hefur lengi rætt um að hann þyrfti að fá mann í vinnu, það er mikið að gera og erfitt að fá góða menn.  Hann hafði fengið loforð um að fá pólskan mann í vinnu í múrverk, en þegar til átti að taka, þá var hann kominn í vinnu annað.  Við erum að ræða þetta við eldhúsborðið, í því er í fréttunum sagt að margir pólverjar hafi verið sendir út landi fyrr í vikunni, því að starfsmannaleigan sem þeir voru ráðnir hjá hafði ekki tilskilinn leyfi. 

Við vorum að vorkenna þessum pólsku mönnum og ég segi við hefðum ef til vill getað ráðið einhvern af þeim, þá er bankað og ungt par stendur fyrir utan, erindið var, að spyrja hvort manninn minn vantaði ekki mann í vinnu, hann er pólskur og talar að vísu ekki orð í íslensku, en er mjög duglegur, sögðu hjónin og hann er múrari. 

Við litum hvort á annað, og hugsuðum þetta var einmitt það sem var í huga okkar beggja, og svo kemur bara svona tilboð upp í hendurnar. 

Unga fólki er pólskt og talar ágæta íslensku, þau voru með litla stúlku með sér Júlíu, 6. mánaða.

IMG_8972

Hér er hún Júlía litla, svona falleg og myndarleg.

IMG_8974

Þau búa í Bolungarvík og falla algjörlega inn í okkar íslenska samfélag.  Mjög sennilega er Júlia litla íslenskur ríkisborgari. 

IMG_8969

Þessar hnátur komu lika í heimsókn í gær. 

IMG_8971

Og Sigurjón litli líka, hér kveðjast þeir bræðurnir. 

IMG_8967

Annars var veðrið gott í gær, svolítið villtur himininn.

IMG_8968

En við vorum lengi hugsi yfir því hvernig umræður okkar voru og síðan að þau skyldu koma hingað á sama tíma og bjóða fram mann, sem passaði alveg inn i það sem við vorum að ræða um.  Það er ef til vill öðruvísi að lesa svona um það.  En í raun og veru var þetta eins og kraftaverk, í upplifun. 


Bloggfærslur 16. september 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband