Haust.

Já það er greinilegt að haustið er komið.  Það var fallegur dagur í dag, en ég er viss um að það verður næturfrost í nótt.

IMG_8953

Fjörðurinn minn í sínum fegursta skrúða.

IMG_8954

Og hér er dálítið annað sjónarhorn. Þarna má sjá snæfjallaströndina hvíta af snjó.

IMG_8955 

Já þetta er við flugvöllinn.

IMG_8956

Fallegur fjallahringurinn.  Séð inn í Tunguskóg, þar sem ísfirðingar eiga sumarhúsin sín.  Þeir sem eiga heima í miðbænum, færa sig inn í Tunguskóg þegar sumrar og eru þar allt sumarið.

IMG_8957

Sést betur hér, og svo er þetta nýja byggingarhverfið. 

IMG_8958

Og gamla Holtahverfið.

IMG_8959

Góustaðir og Úlfsá og fleiri sem hér voru bóndabæir áður. 

IMG_8961

Hér sést vel að lyngið er orðið eldrautt, og kallast á við snjóinn sem kom um daginn.  En sólin hefur brætt hann að mestu.

IMG_8962

Hér sést hvernig fjörðurinn kúrir undir fjöllum á alla vegu.  Þess vegna eigum við þetta dýrðar koppalogn svo oft á kvöldin. Hér sést Snæfjallaströndin betur.

IMG_8965

Og nú er komið kvöld, og geislar sólarinnar leika sér í skýjunum.

IMG_8966

Það er fallegt sjónarspil.

IMG_8964

Svo er litla skottið hún Evíta Cesil, svona broshýr, en amma var að passa hana og bróður hennar Aron Mána í dag.  Svona til að fá ekki fráhvarfseinkenni hehehehe...


Meira svona.

Dularfullur skilaboðahöfundur hafði skilið eftir miða á bifreiðum Patreksfirðinga í morgun.
Dularfullur skilaboðahöfundur hafði skilið eftir miða á bifreiðum Patreksfirðinga í morgun.

bb.is | 14.09.2007 | 09:29Dularfullur skilaboðahöfundur á Patreksfirði

Óvæntur glaðningur beið Patreksfirðinga er þeir héldu til daglegra starfa í morgun en þá tóku flestir þeirra eftir litlum miðum undir rúðuþurrkunum á bifreiðum þeirra. Á þessa litlu miða var búið að prenta falleg orð um lífið og mynd af hjarta. „Hvort þetta er upphafið af ástarviku á Patreksfirði skal ekki segja en ljóst er að þessi dularfulli skilaboðahöfundur hefur fengið okkur öll til að íhuga lífið og tilveruna í morgunsárið“, segir á heimasíðu Vesturbyggðar. Á miðunum stendur: Lífið er fegurð, dáðu hana. Lífið er auðlegð, varðveittu hana. Lífið er tækifæri, gríptu það. Lífið er söngur, syngdu hann.

thelma@bb.is

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=105620

 

Það mætti vera meira af svona uppákomum.  Þetta er fallegt og gott inn í daginn.


Þá er það komið í ljós, sem margir héldu, en fæstir trúðu.

Já þá liggur ljóst fyrir að Madelein lilta var drepin af foreldrum sínum, sjá blogg Þorleifs Ágústssonar

http://tolliagustar.blog.is/blog/tolliagustar/#entry-311618, Ég setti fram kenningu um þessa lausn í einhverju svari fyrir mörgum dögum síðan.  Það var það fyrsta sem mér datt í hug, að börnunum hefi verið byrlað svefnlyf, og að skammtur Madelein litlu hefði verið of stór. 

Þetta er rosalegt mál alveg.  Og gott að upp komst, læknar sem haga sér svona eru hættulegir sjúklingum sínum sem og fjölskyldu. 

Ég sagði einhversstaðar að fólk sem yfirgefur börn sín til að fara út að skemmta sér, sé alveg eins til þess fallið að gefa börnunum svefnlyf.  Um leið og ég heyrði að það hefði ekki verið blóð sem fannst heldur hár og aðrir líkamsvessar, varð ég viss í minni sök. 

Vonandi fá þessi hjón viðeigandi refsingu fyrir viðbrögðin og verknaðinn.  Ég hef enga samúð með foreldrum sem haga sér svona.  Og ég ætla rétt að vona að þau vísi lögreglunni á líkið af barninu, svo hægt verði að jarðsetja það, þar sem það á heima. 


Bloggfærslur 14. september 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband