Að eta það sem úti frýs og daðra þar á ofan.

MEYJA 23. ágúst - 22. september
Nú er mál að safna í sarpinn. Af hverju að vera vandfýsinn? Éttu allt. Einstæðir: Verið á meðal fólks, æfið ykkur í daðri og farið á stefnumót.
Vá og ég sem var að spá í að fara í megrun.  Á maður ekki að taka svona alvarlega ? Cool
Guði sé lof fyrir að þar á ofan með þetta að éta allt, þarf ég ekki að fara á stefnumót og daðra hehehe...

Öfgahópar og hryðjuverkamenn, hvað er hægt að gera ?

Ekki  verður þetta til að auka hróður Islam.  Þó þessar ágætu konur megi svo sem alveg vera siðprúðari fyrir minn smekk, með tilliti til þess hvaða áhrif þær hafa á ungar stúlkur.  Svona roll model, þá eru svona yfirlýsingar út í móa, og sýna svo ekki verður um villst umburðarleysi ofsatrúarmanna, hvaðan sem þeir koma.  En sennilega er málið líka að fólk frá þessum heimshluta metur líf sitt og annara minna en í hinum vestræna heimi.  Því þeir trúa því að með því að gerast dómarar yfir lífi þeirra sem þeir telja ekki lifa lífinu samkvæmt þeirra reglum, verði þeir verðlaunaðir þegar þeir koma yfir.  Rétt eins og víkingar töldu að með því að deyja í bardaga kæmust þeir til Valhallar, það væri eina leiðinn.  Lengra hefur nú ekki siðmenninginn skilað sumum enn þann dag í dag.

En þetta verður meira æpandi af því að bara í gær ... eða fyrradag var viðtal við konu sem kemur frá landi múslima, þar sem hún talar um harðræði og áþján kvenna úr þeim heimi. 

Hvað er til ráða ? hvernig eiga menn að bregðast við svona drápsvélum.  Þessi ágæta kona ásamt Salman Rustie eru á dauðalista hjá öfgamönnum, og þeim er full alvara.  Á þeim lista eru líka blaðamenn frá Danmörku.  Fólk þarf að fara huldu höfði, og vera  með batterí í kring um sig til að fá að lifa.  Er þetta hægt ?


mbl.is Hótar að hálshöggva Britney og Madonnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kveðjustund.

Allt fram steymir endalaust,

Ár og dagar líða.

Nú er komið hrímkalt haust,

horfin sumarblíða.

Einhvernveginn svona er ljóðið sem er í sálu minni núna.  Það er ótrúlega erfitt að segja bless við ástvini sína.  Nú var dóttir mín að leggja af stað suður til Reykjvíkur með litlu dæturnar.  Húsið verður tómlegt, sem betur fer er stubburinn hér og mun halda okkur við efnið, með glaðværð og athygli.  Svo veit ég að hin litlu barnabörnin mín verða áfram duglega að koma hingað.  Svo það þarf ekki að kvíða, neinu, en samt, þar er bara erfitt að segja bless.

IMG_8922

Sem betur fer er sólin að brjótast fram, þá verður ekki eins erfitt að ferðast, og ef það væri hellirigning eða snjókoma.

IMG_8923

En himininn brosir við okkur öllum og segir, eilífðin er bara eitt andartak og það líður fljótt.

IMG_8924

Svona eru fjöllin mín í dag.

IMG_8945

Og haustlitirnir að myndast.

IMG_8946

Já, þetta er að lagast og sólin er kominn.

IMG_8949

IMG_8950

Eins og sjá má.

IMG_8925

Þá er að skrifa í gestabókina, allt orðið klárt til brottfarar.

IMG_8932

Amma vill fá að taka mynd áður en stelpurnar hennar fara.

IMG_8943

Allir klárir í slaginn.  Og amman með kökk í hálsinum. 

Mér verður víst ekki mikið úr verki í dag, vil helst skríða upp í rúm og breiða yfir haus.  Hér er nú samt hann Kristján Logi litli, hann er í pössun, vegna þess að mamma hans er í skólanum, og hann var veikur.  Það er svo sem alltaf eitthvað til að draga mann út úr sjálfinu sínu. 

Ég veit að ég ætti að sökkva mér niður í gróðurinn úti, eða fara í góðan göngutúr.  En ég bara kem mér ekki að neinu núna.  Smile


Bloggfærslur 13. september 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband