7.8.2007 | 15:15
Systur......
Ég fékk mjög skemmtilega upphringingu áðan. Er eiginlega rosalega montin.
Í símanum var stúlka, sem spurði hvort ég hefði ekki samið texta við lagið Systur. Ég hvað það vera. Hún sagði að þær væru nokkrar saman að æfa upp kvennaband fyrir giftingu vinkonu sinnar, og spurði hvort hún mætti nota þetta lag, það væri uppáhaldslag brúðarinnar tilvonandi. Ég hélt nú það. Já sagði hún, þessi plata er líka ein af uppáhaldsplötunum mínum.
Mér þótti alveg óskaplega gaman að heyra þetta. Hún vildi fá textan uppskrifaðan, og þar sem ég skrifaði hann upp ákvað ég að setja hann hér inn líka.
Gjörið svo vel:
Systur.
Systur, systur!
Við stöndum allar saman.
Systur, systur!
Við tökum höndum saman.
Hjálpumst að svo lífið verði þolanlegt á jörð,
lífið þolanlegt á jörð.
Systur, systur!
Við höfum verk að vinna.
Systur, systur!
Ungviði okkar að sinna.
Hjálpumst að og eyðum allri tortryggni,
ósamlyndi, vantrausti.
Bælum niður græðgi, öfund, valdafíkn.
Löðum fram drengskap, sáttfýsi.
Látum engan lítinn svelta af ástleysi,
eða fyllast mannhatri.
Systur, systur!
Við lyftum merki friðar.
Systur, systur!
Þá okkur áfram miðar.
Hjálpumst að svo lífið verði þolanlegt á jörð,
lífið þolanlegt á jörð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
7.8.2007 | 08:59
Tvær skírnir, fjölskylda og ættarbönd
Það var mikið um að vera hjá mér þessa helgi. Fyrst var það giftingin hjá Sunnevu frænku minni, og síðan skírn litlu barnabarnanna minna.
Fyrir sunnudaginn var bara til ein Ásthildur Cesil í heiminum, en nú eru þær orðnar tvær. Já, nefnilega, hún litla Hildur Cesil var nefnilega skírð í hausinn á henni ömmu sinni, og nafnið er Ásthildur Cesil. Það átti að að vera leyndó og koma mér á óvart. Svo kom bakarinn með tertuna og á henni stóð Ásthildur Cesil. Ég er náttúrulega rígmontinn. Ég veit ekki með Evítu Cesil, hvort það finnst önnur slík, efast samt um það.
Hér eru þær þessar fallegu mæðgur, tilbúnar í veisluna.
Og gestirnir streyma að, hér má sjá Alejöndru litlu og fjölskyldu.
Ég hélt nöfnu minni undir skírn, yndisleg stund.
Hún fékk svo hjálp við að taka upp pakkana. Þeir voru opnaðir með sinni aðferð hehehe...
En það voru fleiri sem hlutu skírn þennan dag, því Zorró var líka baðaður upp úr vigðu vatni.
Sunnudagurinn var bjartur og fagur, og gestirnir gátu setið úti.
En um kvöldið lögðum við svo af stað inn í Ísafjarðardjúp, þar sem litla Evíta Cesil átti að fá sinn dag, daginn eftir.
Hér er hún, þetta var líka yndisleg athöfn í einni fegurstu kirkju hér, Unaðsdalskirkju.
Stóra systir spilaði á orgelið, og hún spilaði líka frumsamið lag, sem hún samti til litlu systur sinnar. Hún spilaði líka yesterday og fleiri falleg lög. Sannarlega efnileg tónlistarkona þar á ferð.
Mamma þeirra hafði bakað margar sortir af kökum og heitum réttum, svo sannarlega dugleg og myndarleg húsmóðir hún Matthildur.
Hér sjáum við inn að Kaldalóni, Drangajökull blasir þarna við. Afskaplega falleg sjón.
Við fórum inn að lóninu, þar er mikið af fallegum steinum. Þessi er nú samt of stór í hringinn.
Eftir frábæra veislu var komin tími til að halda heim á leið.
Við komum við í Reykjanesinu og fórum þar í laugina
Þar sáum við þessa elsku, hún er með síli í goggnum, og á hreiður þarna rétt hjá. Hún er víst að nota heita vatnið til að steikja fiskinn hehehehe....
Hér áðum við og steiktum okkur silung og krakkarnir fengu aðeins að rétta úr fótunum.
Svona leit svo Ísafjörður út í morgun, Ísafjarðarlognið eins og það gerist best.
Ég er afskaplega stolt kona eftir þessa frábæru helgi. Tvær litlar nöfnur og yndisleg fjölskylda sem ég á.
Svo ég segi bara, hlúðu að kærleikanum í brjósti þínu, og þú færð það tíu sinnum til baka
Ræktaðu böndin við fjölskylduna þína, og þú ert aldrei einmana.
Gefðu vinum þínum tíma og hann kemur margfalt til þín aftur.
Við sköpum okkar eigin stað í tilverunni, látum hann liggja í faðmi þeirra sem við elskum mest.
Eigið góðan dag.
Bloggar | Breytt 8.8.2007 kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfærslur 7. ágúst 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar