4.8.2007 | 15:01
Mýrarbolti.
En fyrst smá ljúflingssaga.
Litla frænka mín hringdi áðan og spurði hvort stubburinn væri ekki að koma í afmælið sitt. Það væri sko byrjað. Hann hafði gleymt að segja mér frá því að hann væri boðin, og ég gleymt henni í öllu umstanginu. Svo nú voru góð ráð dýr, klukkan orðin eitt og sennilega allt lokað. Jú það passaði, en þar sem ég er stödd í bænum að vandræðast, og fyrir framan Gullauga, sem er gull og gjafavöruverslun, sé ég útundan mér að kemur maður labbandi, ég horfi á fætur mannsins, og sé ekki betur en hann sé í brúnum sokkabuxum og stuttbuxum, örugglega útlendingur hugsa ég, en um leið heyri ég sagt hressilega, góðan daginn Ásthildur, þú ert auðvitað að fara að brullaupast í dag, er þetta þá ekki Örn Torfason eigandi Gullauga, já sagði ég, en í augnablikinu þá er ég að vandræðast með afmælisgjöf handa 12 ára frænku minni. Bíddu aðeins, sagði hann, ég ætla að á í lykilinn, þú finnur örugglega eitthvað hjá mér. Svo opnar hann búðina og ég kaupi þessa fínu eyrnalokka með ágúststeinum, ein besta gjöf sem ég hugsanlega gat gefið henni. Þar sem ég er að kaupa lokkana, kemur ástfangið par inn um dyrnar, þau fara að skoða hringa. Svo sennilega hef ég þarna stuðlað að einhverju fallegu ofan á gjöfina. En Örn var þá með fótleggina brúna af drullu komandi beint úr mýrarboltanum.
Og þá að Mýrarboltanum. Hann er haldinn ár hvert hér á Ísafirði, að því mér skilst er það eini staðurinn á landinu.
Mætti þessum ungu galvösku drengjum í "pásu" í miðbænum í morgun.
Taktu frekar mynd fyrir framan Langa Manga sögðu þeir hehehe
Þetta er kjörið veður í Mýrarbolta. Hér er lögreglan komin til að fylgjast með, þarna var líka bæði RUV og Stöð2. Mikið fjör og mikið grín.
Magt fólk að fylgjast með líka.
Ísfirskar blómarósir eru líka meðal keppenda.
Þetta er einhverskonar teygjutog drulluteyja, það á að fara með þennan svarta fána eins langt og hægt er, hér keppa saman strákar og stelpur. Þetta er hún Eygló óbeisluð, kempan sú.
Búms, fánin komin niður og maður hlunkast á botninn.
Getur ekki fótað sig, og ekki staðið upp hehehe.
Ef þetta er ekki sönn íslensk valkyrja þá veit ég ekki hvað. Þegar ég fór hafði hún komist lengst af keppendum.
Hálfdán Bjari (Dáni slimm) einn af aðalsprautunum, þurfti að draga hana að landi. En það voru gífurleg fagnaðarlæti yfir Eygló.
Þessi ætluðu ekki heldur að láta sitt eftir liggja, þau voru næst í röðinni.
Allir tilbúnir, þetta er sko fjör.
Einn litli stubburinn minn var á leiðinni í Mýrarbolta með mömmu og besta vini.
Hér er svo yfirlitsmynd yfir svæðið. Það á eftir að fjölga verulega þegar á daginn líður.
Þannig er nú það. Þetta var í morgun, það var byrjað kl. 10 og þaða verður haldið áfram í allan dag, og sennilega á morgun líka.
Þetta er alveg örugglega heilmikil útrás, og heilbrigð skemmtun.
Bæti þessari mynd inn, hún er úr BB, bæjarins besta.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
4.8.2007 | 00:40
Fullt að gera á stóru heimili.
Það er mikið að gera á stóru heimili. Það var von á gestum og við Hanna Sól bökuðum pizzu.
Gott að hafa svona hjálparkokk við pizzubaksturinn. Við gerðum þrjár svona stórar pizzur, tvær með hakki, skinku, pepperoni ólífum, sveppum öðru grænmeti og osti. Og eina með túnfiski.
Og það voru amma og afi frá hinni hliðinni sem komu í heimsókn.
Auðvitað vegna skírnarinnar.
Svo er að undirbúa að fara í giftingarveisluna á morgun.
Búin að pakka inn gjöfinni, og svoleiðis.
Og svo koma tvær skírnir á sunnudag og mánudag. Það er líka komið vel á veg með undirbúning.
Jamm hehehe... skírnarskórnir hennar Hildar Cesil. Og svo flottur skírnarkjóll, sem þið fáið örugglega að sjá seinna.
En ég vil taka fram að ég er þakklát þeim á hagstofunni fyrir að breyta nafninu mínu þannig að það er skrifað rétt sem sagt Cesil, en ekki Secil. (sem minnir mig alltaf á stencil, eitthvað ofan á brauð, eða þannig, gamalt pappírsdót og prentsverta) Því það þýðir að litlu stúlkurnar mínar geta fengið að heita í hausinn á ömmu sinni.
Spurningin er bara, hvenær hef ég tíma til að lesa Harrý Potter. Er rétt að byrja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 4. ágúst 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar