31.8.2007 | 15:00
Í minningu Kristjáns Sverrissonar.
Í dag er til moldar borin Kristján Sverrisson. Kristjáni kynntist ég fyrir nokkrum árum, þegar hann fór að vinna hjá Ásel. Kristán reyndist hinn besti vinur og hann var alltaf fyrstur til að bjóða fram hjálp sína. Hann var kátur og skemmtilegur maður.
Ég man það svo vel, þegar hann tilkynnti okkur að hann væri með illkynja æxli í höfði. Í allri þeirri baráttu var hann bjartsýnn og vongóður. Það var hann sem alltaf var að hughreysta alla í kring um sig. Þegar hann var rétt að ná sér, sló honum niður aftur, en alltaf hélt hann ró sinni og gleði. Hann var hreint ótrúlegur þessi drengur. Maður lærir margt af því að fá að umgangast og kynnast fólki eins og honum.
En því miður sigraði meinið, og hann varð undan að láta. Þar féll góður drengur frá langt fyrir aldur fram.
Ég man þegar ég handleggsbrotnaði í fyrra, og hafði boðið fólki í mat. Hann sat hér og ég var að vandræðast hvað skyldi til bragðs að taka. Hvað ertu tala um, sagði Kristján strax, þú ert hér með mann sem kann að elda. Þetta verður ekkert mál. Ég sé um þetta allt alveg frá A til Ö.
Og það gerði hann svo sannarlega. Ég sem gat ekki gert neitt, þurfti bara að slaka á og meðan hann var að útbúa matinn, smitaði hann mig og allt í kring um sig af gleði og kátínu. Það var svo framreidd dýrindismáltíð fyrir gestina mína og okkur öll hin. Ég bara gleymi þessu aldrei. En svona var Kristján. Aldrei neitt vesen, bara að leysa hlutina.
Þessi mynd var tekin við það tækifæri, því miður er hann ekki á henni, því að öllum líkindum hefur hann tekið myndina fyrir mig.
Yndislegur maður hann Kristján, mig langaði bara að minnast hans með nokkrum orðum. Ég mun aldrei gleyma honum, og hjálpsemi hans við okkur hér.
Elsku Anna mín þetta hefur verið þér erfiður tími, þar sem litli drengurinn ykkar hefur haft nauman tíma til að kynnast föður sínum. Þú hefur staðið eins og hetja algjörlega við hlið hans. Aldrei æðru orð frá þér á neinn hátt.
Ég votta þér börnum ykkar og öllum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda. Minning um góðan dreng mun lifa lengi hér á þessu heimili. Stórt knús til þín og þinna.
Ó, Faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefur villst af leið.
Ó, Faðir, gjör mig blómstur blítt,
sem brosir öllum mót
og kvíðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
Ó, Faðir, gjör mig ljúflingslag,
sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag,
en svæfir storm og bál.
Ó, Faðir, gjör mig styrkan staf
að styðja hvern sem þarf,
unz allt það pund, er Guð mér gaf,
ég gef sem bróðurarf.
Ó, Faðir, gjör mig sigursálm,
eitt signað trúarlag, sem afli blæs í brotinn hálm
og breytir nótt í dag.
Guð veri með þér vinur minn allt til enda veraldar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
31.8.2007 | 12:04
Hvurju ertu nú búin að koma af stað Jenný !
Las það í Fréttablaðinu nú rétt í þessu. Ellý búin að læsa blogginu sínu. Það er ekki nokkur spurning sko, það er þér að kenna, það stendur nefnilega líka í blaðinu að þú hafir sett fram spurningu um hvort hún væri ekki komin heldur langt í lýsingunum, og urðu fjörugar umræður á blogginu hennar Jennýjar.
Jamm maður trúir nú öllu sem stendur í blöðunum, og aumingja Ellý varð svo sjokkeruð að hún sagði bara lok lok og lær og allt í stáli. Nú verða menn bara að bíta í það súra að fá lykil til að komast inn.
Ég segi nú ekki margt. Það er alls ekki víst að allir fái lykil í hendurnar hjá henni Ellý. Og þar með minnkar heimagangurinn hjá henni allverulega.
Þetta er nú bara sett inn sem grín.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
31.8.2007 | 11:22
Hið daglega líf á Ísafirði.
Síðasta stóra skemmtiferðaskipið lagðist að bryggju hér í gær, enginn smásmíði þar á ferð. Ótrúlegt að svona stór skip geti lagst að bryggju.
Þið sjáið að veðrið var muskulegt í gær, en það var samt hlýtt.
Enginn smásmíði.
Þessi ungu myndarlegu menn voru örugglega af skipinu, einhverskonar messaguttar sennilega.
Dularfullur Ísafjörður. Hann getur líka verið fallegur í þoku fjörðurinn minn.
Dularfullur garður líka
Oh boy, lítur skringilega út hehehehe...
Dóttir mín eldaði dýrindis kjúklingarétt í gær og bauð bróður sínum, barnsmóður og börnum. En her eru þau systkinin að föndra með börnunum.
Smakkaðist rosalega vel.
Börnin þurftu svo auðvitað sinn tíma í leik, eins og gengur.
Og út í garðskála barst leikurinn auðvitað. Stubburinn var samt í tölvunni eins og sjá má ef vel er að gáð.
Svo er voða notalegt að fá sér bað svona eftir á áður en farið er í rúmið.
En það er bjartara yfir núna. Og ég ætla mér að vera dugleg upp á lóð að sinna plöntunum mínum.
Eigiði góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 31. ágúst 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar