Ef ísfirðingar fara ekki til útlanda.....

Kemur útlandið til Ísafjarðar...... eða þannig.

 

En fyrst fjölskyldan.  Hér eru Cesiljarnar mínar báðar tvær.  Þær verða báðar skírðar núna á helginni, önnur á sunnudaginn og hin á mánudaginn, og amma fær heiðurinn af því að halda þeim báðum undir skírn.

 IMG_7160

IMG_7168

Svo eru það skyldustörfin, hænurnar þeim gefið að borða og síðan egginn sótt.  Hér er fullt af eggjum hjá stubbnum og litlu Hönnu Sólinni hennar ömmu.

IMG_7175

Svo er rætt um landsins gagn og nauðsynjar eins og gengur.

IMG_7181

 

Og svo auðvitað vaskað upp  hehehe.....

IMG_7185

Það þarf að passa litlu börnin líka.

IMG_7188

Baka köku, auðvitað úr öllum þessum eggjum.  Hanna Sól var að baka með frænkum sínum Möttu og Sóley Ebbu. Það er bara eftir að setja kremið á.  Nammi namm.

IMG_7191

Falleg kvöldmynd síðan í gær.

IMG_7194

En í morgun sáust skipakomur, eins og ég sagði ef að ísfirðingar fara ekki til útlanda, sem við gerum auðvitað ekki þegar veðrið leikur svona við okkur......

IMG_7196

Þá koma útlöndin bara til okkar.

IMG_7199

Enginn smádallur þetta.

IMG_7200

Eða þessi.  Höfnin er full. 

IMG_7203

Það verður nóg að gera á Ísafirði í dag, eins gott að sólin skín og veðrið er glimrandi gott.

Ein smá saga í lokin.  Tvö barnanna minna bjuggu nokkur ár út í Danmörku, þau voru að koma heim, og krakkarnir sem bjuggu hér heima, höfðu skreytt húsið að utan í tilefni af komu þeirra, skrifuðu heilmikil spjöld sem stóð á velkomin og slíkt, og hengdu það utan á anddyrið.  En það voru aðrir gestir að koma í heimsókn, þýskt skemmtiferðaskip.  Og fólkið sem gekk fram hjá húsinu og sá þessi skilti komu auðvitað öll til að skoða hvað væri um að vera hehehe... það var gestagangur í lagi.  Annars koma hingað margir, og fá að kíkja inn um skáladyrnar. 


Bloggfærslur 2. ágúst 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband