Kvöldverður með góðu fólki.

Kvöldverðurinn gekk mjög vel og fólkið mitt át með bestu lyst.  En málið er að ég komst að því, að þau hafa aldrei bragðað skyr í þau sex ár sem þau hafa verið hér.  Ég bauð þeim upp á skyr, aðalbláber og rjóma í eftirrétt, og þá kom í ljós að þeim hafði aldrei dottið í hug að smakka skyrið, og mér hafði aldrei dottið í hug að bjóða þeim upp á skyr.  En þau fengu sér öll þrisvar á diskinn, svo það var greinilegt að skyrið sló í gegn í kvöld.

IMG_7645

Aðalbláber nammi namm.

IMG_7646

Og krækiber nammi namm.

IMG_7647

Ketið skorið. Pabbi gamli var í góðum félagsskap.

IMG_7654

Jamm það var margt spjallað á spænsku og íslensku og svo bara fingramáli.

IMG_7656

Tengslin liggja víða.

IMG_7664

tími til að kveðja, ég vona að Mirna fari með góðar minningar heim og huggun til fjölskyldunnar úti í El Salvador um að fjölskyldan hennar hafi það gott uppi á hinu kalda Íslandi.  Hún sagði að mest hafi komið á óvart hve innilega gott fólkið er á Íslandi.

 


Vil benda ykkur á auglýsingu.

Sem ég sá í Fréttablaðinu í dag.  Þetta er eina auglýsingin á minni ævi sem hefur komið kökki upp í hálsinn á mér af hrifningu.  Þvílík hetja hér á ferð.  En auglýsingin hljóða svona:

 

Aðstoðarfólk óskast! 

Ég er 21 árs ung kona með hreyfihömlun sem leitar eftir aðstoðarfólki sem fyrst til að gera notið sjálfstæðs lífs.

Ég bý eins og er í foreldrahúsum í Garðabæ.

 

Ég þarfnast aðstoðar við allar athafnir daglegs lífs, m.a. við hreinlæti, klæðnað, keyrslu, tiltekt, vinnu, skóla og fl.  Einnig til að auka og viðhalda lífsgæðum mínum svo ég geti lifað eins og hver önnur ung manneskja í íslensku samfélagi.

 

Ég sækist eftir því ða hverjum degi að láta drauma mína rætast, gera vel úr því sem ég hef í höndunum og njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.

 

Þar getur þú komið sterk til leiks.

Á allan hátt mun fjölbreytileiki einkenna starfið, enginn dagur er eins hjá mér, frekar en hjá þér.

 

Umsækjandi þarf að vera á aldreinum 20 – 30 ára, reyklaus og með bílpróf sem er nauðsyn.  Jákvæðni, virðing og samvinna er lykill að farsæld í starfi sem þessu því með þér hef ég tækifæri til að lifa með reisn.

 

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband á netfangið; freyja@forrettindi.is  eða í síma 6912722.

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist einnig á freyja@forrettindi.is

 Ráðningardagsetning:

Sem allra fyrst.

Vinnutímabil:

Framtíðarstarf.

Vinnuhlutfall:

Fullt starf, sveigjanlegur vinnutími.

Laun:

Góð laun í boði.

 Forréttindi:

Aðstoð – frelsi – lífsgæði.

Fötlun þarf ekki að vera hindrun.

Ég vil hvetja fólk til að lesa þetta og ef þarna er einhver úti sem vill takast á við kvenhetju, þá er hér framtíðarstarf í boði.  Ég hef svo sem grun um að hér sé á ferð sú unga stúlka sem fór fræðsluferð um landið í vor.  En ég vil óska henni alls hins besta og óska henni þess að hún finni förunaut sem verður henni hægri hönd á komandi tímum.  Þvílík hetja.  Heart  Og þvílík afstaða til lífsins.  Ég segi nú ekki margt. 


Nýtt líf, himnagallerí og Vínarfyrirsæta.

Eitt af þeim lögum sem mér þykir vænst um af plötunni minni er Nýtt líf.  Það er um meðgönguna.

 

http://www.malefnin.com/mp3/CD_cesil/Nytt_lif.mp3

En svo eru hér myndir síðan í gær af skýjum og undursamlegri litasamsetningu alheimsljóssins.

IMG_7631

IMG_7633

IMG_7641

IMG_7642

IMG_7644

Svo er það lítil Vínardama, hún er smá feimin en alveg yndisleg litla Hanna Sól. Takið eftir írisblóminu í barminum.  Þú mátt ekki slíta upp blómin hennar ömmu, sagði afi.  En í þetta sinn er það allt í lagi, ég set það í barminn, þá verður amma glöð yfir því hve þú ert fín. 

IMG_7634

IMG_7635

IMG_7636

IMG_7638

IMG_7639

IMG_7640

Vonandi eigið þið góðan sunnudag.  Fólki mitt frá El Salvador kemur í mat í kvöld, þau fóru reyndar á súpudaginn á Dalvík, en ég ætla að gefa þeim ekta íslenskt lambalæri, það er eitt af því besta sem þau fá, en elda ekki sjálf.  Ein dóttir þeirra er í heimsókn frá El Salvador, og ég hlakka til að gefa henni að smakka. 

IMG_7332

Svo er ég farin út í sólina, ætla að hunskast til að reita smá arfa. Heart


Bloggfærslur 12. ágúst 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband