Tími rósanna....

Í garðinum mínum er tími rósanna núna. 

IMG_7508

Dornrósin er bæði falleg og harðgerð.

IMG_7509

Það er Hyrdalsrósin reyndar líka.

IMG_7510

Hvíta Hansarósin það er bjart yfir henni.

IMG_7513

Búin að týna nafninu á þessari en hún er stammrós sem kölluð er, þ.e. á háum stöngli.

IMG_7517

Þessi brosir líka fallega.

IMG_7512

Þetta er Hawairós trjákennd en hún er í garðskálanum.

IMG_7511

Hvítþinurinn minn er með myndarlega köngla.  Glæsilegur.

IMG_7530

Gallerí himin leit svona út í gær, hann er svipaður í dag reyndar.

IMG_7539

Þessar elskur fylgja líka blómunum, þó eru þær mest vitlausar í varablómin hjá mér, til dæmis kattarblómin nepeda, og silfurtvítönn. meðan hungangsflugan vill heldur knautía eða systrablómið.

IMG_7532

Sumar velja líka mig hehehe... við horfumst í augu og gerum samning um engar stungur takk. Heart gegn því að enginn innrás verði gerð í búin þeirra af minni hálfu.

IMG_7514

Hér eru svo þýsku vinir okkar  Britt og Leon að byggja úr Geomic uppáhalds leikföngum hér Hanna Sólin talar auðvitað reiprennandi þýsku að vísu með Austurrískum hreim.  En þau geta svo vel skeggrætt.   


Ömmuhelgi í kúlunni.

Já það var yndislegt veður í gær, og tilvalið að koma í heimsókn í kúluna.  Reyndar sváfu þau nokkur hérna, þ.e.a.s. fimm í tjaldi og þrjú inni. 

IMG_7522

Mary Poppins, nei Ásthildur Cesil.

IMG_7525

Maður er nú flott pæja sko !

IMG_7528

Þetta er Júlíana stóra frænka mín.

IMG_7542

Afastubbur.

IMG_7554

Kveikt upp í grillinu.  Það á að grilla í svona góðu veðri.

IMG_7573

Tveir bræður.

IMG_7576

Þetta eru líka tveir bræður.

IMG_7585

Nýjasta módelið... nei þetta er hún Sóley Ebba.

IMG_7593

Já þau eru flott kúlubörnin sko !  Þetta er hún Natalía. 

IMG_7595

Kunna sig fyrir framan myndavélina, á hvaða aldrei sem þau eru heheheh....

IMG_7601

Vinarkoss.  Eða frænku/frændakoss.

IMG_7604

Þrjár flottar.

IMG_7617

Það er samt betra að vera oní pottinum en ofan á honum.

IMG_7624

Og hvað komast svo margir í pottinn hennar ömmu ?

IMG_7628

Eða fyrir framan sjónvarpið ?Heart

 

 


Bloggfærslur 11. ágúst 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband