Meira af Alejöndru og hennar fólki. Himnamyndir og lífið og tilveran fyrir Vestan.

Meiri umfjöllun um málefni litlu Alejöndru og er bara af hinu góða fyrir fjölskylduna:

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=103260

Og flott mynd sem fylgir sem tekinn er í kúlunni fyrir nokkrum árum.

Alejandra2

Svo nokkrar himnamyndir.

Júlí 2007 002

Júlí 2007 003

mbl07

Jamm og svo stubbur þetta er sko næsti Tiger Woods hehehe

Júlí 2007 006

Myndarlegur ungur maður ekki satt ?

Júlí 2007 008

Skrapp í Samkaup í gær sem er ekki í frásögur færandi í sjálfu sér, nema undanfarið hefur borið á því að kassarnir hafa þagnað og biðraðir myndast.  Ein stúlkan sagði mér að kerfið væri samtengt um allt land, og þegar mikið álag væri á Suðvesturhorninu þá færi allt í stopp á útkjálkum.  Reynar var biðin um 20 mínútur og náðist ekki einu sinni samband við fyrirtækið fyrir sunnan.  Hér biðu fullt af þýskum ferðamönnum, veiðimönnum sem höfðu dvalið hér í viku við veiðar, og áttu að fara í flug.

Þeir ásamt öðrum ferðamönnum og ísfirðingum sýndu fádæma biðlund meðan ástandið varði, sem var allt að 20 mínútum eða hálftíma.

Júlí 2007 009

Og stelpugreyin á kössunum, það hefur ekki verið auðvelt fyrir þær að sitja þarna og brosa allan tímann, en satt að segja þá held ég að hluti af rólegheitunum hafi veri hve elskulega og svo sætar þær voru, að enginn kvartaði eða sagði styggðaryrði.  Flottar bara.

Júlí 2007 010

Ég fékk svo góða heimsókn í morgun, tvær bandarískar háskólastúdínur sem ætla að taka orkumálin í gegn hjá mér, partur af námi þeirra.  Elskulegar ungar stúlkur, það var virkilega gaman að kynnast þeim.´

I got two lovely girls visiting my home this morning, students from U.S.A.  I enjoyed there company very much.  They are going to do something about my use of electrity, and lower my costs.  This is for them becouse I´m sure they will have a look at my blog.  Hello girls, loved your visit. Heart And don´t hesitate to call me.

Júlí 2007 011

Svo hrundi skjárinn af heimatölvunni minni.  Sem er keypt hjá BT fyrir um það bil tveimur árum.  Ábyrgðin er tvö ár.  Ég þarf að snúa húsinu við til að leita að kvittuninni, það sorglega er að ég er viss um að ég greiddi tölvufjandann með peningum.  En umboðsmaðurinn hér lofaði að tala við þá stóru fyrir sunnan og vita hvort þeir finna eitthvað út úr því.  Málið er að ég man að ég keypti tölvuna um sumarið, hvenær veit ég ekki.  En ég er stór kúnni hjá fyrirtækinu, og þeir opnuðu verslunina hér áramótin 2004-5. Svo ég vona að þeir bæti mér upp skjáinn. 

Ég fór með hana til sérfræðinga og þeir sögðu mér að sennilega væri skjárinn gallaður.  Allt í einu varð hann bara svartur, og ég slökkti og kveikti aftur, og eftir smátíma varð hann aftur blank.  Þetta sama gerðist hjá Netheimum, þar sem ég fór með hann í tékk.  Sé til með þetta.  En það er meira en að segja það hvar ég hef sett ábyrgðarskírteini fyrir tæpum tveimur árum síðan.  En ég get náttúrulega sannað að ég keypti tölvulna hjá þeim, vitnið er sölumaðurinn, og svo að verslunin opnaði á þessum tíma.  Ef þið eruð að lesa BT menn, þá hugsið til mín hehehehe.....


Leiðandi og meiðandi fyrirsögn.

Ég hef nú ekki  mikið vit á hvernig eftirliti á flugvélum er háttað.  En ég er nokkuð viss um að að vélar eru ekki skoðaðar þó þær millilendi einhversstaðar.  Þess vegna er þessi frétt sett upp á þann máta að fólk er látið halda að það sé vegna slælegrar aðstöðu á Ísafirði að slys varð.

Þetta hefði örugglega gerst sama hvar vélin hefði millilent.  Enda fylgir fréttinni síðar að vélin hefði þá þegar millilent á Grænlandi.  En dæmigerður fréttaflutningur til að skapa úlfúð og æsing. 

Héðan var um tíma flug til Grænlands sem gekk áfallalaust, ekki veit ég allavega betur.   Það var svo vegna 9/11 voru gerðar meiri varúðarreglur m.a. hér.  Og þar með missti Ísafjörður af þessu flugi.  Alveg eins og það þurfti að víggirða höfnina.  Þetta er náttúruleg bölvað bull og vitleysa að hlaupa svona eftir einhverju utan úr heimi, eins og terroristar tækju upp á að koma hér og sprengja allt í tætlur. 

Ég segi nú bara, fólk ætti að taka fyrirsagnir með fyrirvara, því þær geta verið leiðandi og meiðandi.  Þetta slys hefur að mínu áliti ekkert með millilendingu vélanna á Ísafirði að gera. 


mbl.is Þyrla sem nauðlenti fékk sérstakt leyfi til brottfarar frá Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. júlí 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband