1.7.2007 | 21:36
Að kolefnisjafna af hugsjón.
Þessi dagur er eins og aðrir góðir sumardagar. Dagurinn byrjaði með því að góður vinur okkar droppaði við í morgunkaffi eða þannig, reyndar drekkur hann bara te.
Það var nú ekki amarlegt, og við fengum ferðasögu beint í æð, frá Kína og Tíbet, svo ljóslifandi að það var eins og við hefðum fengið að fara með í ferðina. Hann var hér að skoða Act alone hátíðina, en annars kemur hann alltaf við í morgunmat, þegar hann kemur með konsert og er alltaf gleðigjafi.
Nýtt sjónarhorn hjá mér.
Reyndar höfum við hjónin verið að planta trjám undanfarin ár, og í dag eftir að Hörður fór, fórum við í göngutúr um trjáræktina okkar.
Þar kennir margra grasa.
Ilmurinn er yndæll og bragðið eftir því.
Þetta er svona yfirlits mynd yfir hluta af skóginum okkar.
Sum trén orðin ansi há.
Eins og sjá má.
Sum bara nokkuð flott.
Hér fara að myndast ber, sem týna má seinna í sumar.
Hér er myndarleg ösp.
Furur hafa komið vel út í vor.
En púkarnir okkar voru ýmislegt að bralla á meðan, meðal annars fundu upp nýjan leik sem er að renna sér á svefnpoka niður kúluna, rosalega skemmtilegur leikur.
Vííí en gaman.
Strákarnir mínir sáu um matinn í kvöld, og það var svo sannarlega flottur matur.
meðal annars var grillaður camenbert ostur, sem er algjört sælgæti snæddur með bláberjasultu.
Nammi namm.
Svo bara að slaka á og njóta þess sem eftir er af helginni. Stubburinn er niður við höfn að veiða, með frænda sínum og afa hans. Þeir eru örugglega rosalega ánægðir.
Og svo erum við líka hjónin. Knús til ykkar allra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
1.7.2007 | 02:54
Við uppskerum eins og við sáum.
Jamm ég er með smámóral yfir hve lítinn tíma ég hef til að rækta sambandið við bloggvinina mína, en það er bara svo mikið að gera hjá mér, og ég hef ekki næga orku til að sinna því sem sinna þarf. Vona að mér fyrirgefist það. En hér eru nokkrar myndir frá því í dag svona sem sárabót.
Gallerí himin, flottur að venju.
Það er svo ótrúlega fallegt samspil milli skýja og himins, hið fullkomna samspil.
Stubbur og hundurinn hans, hann fékk snyrtingu hjá Siggu dýralækni, og er mjög flottur. Það er að segja hundurinn Zorrow.
Afi og stubbur að slá lóðina.
Hey og svo kom ísbíllinn, þá þurfti að fara og kaupa ís, auðvitað. Dingalinga ling.
Jamm og allir fengu ís, nema Zorrów, en hann fékk samt að sleikja upp það sem niður fór.
svo þurfti náttúrulega að leika sér í heyinu.
Og leika sér í tjörninni.
Viðl hljónin skruppum til Önundarfjarðar á fund, um málefni Flateyrar og minningargarðins þar.
Fórum í kaffi til þessarar kempu, og þó mér líki ekki pólitíkin, þá erum við systkin í gróðri. Og hér er karlinn stoltur við hlyn sem ég seldi honum fyrir nokkrum árum, sem plummar sig aldeilis fínt á Sólbakka.
Já hann hefur aldeilis gróðursett, og hefur græna putta þessi ágæti maður.
Himininn var líka fallegur yfir Flateyri.
Eins og sjá má. og Sara mín, ég sá meira að segja lundinn ykkar, hann er bara flottur að sjá svona úr fjarlægð.
Þetta er vinnumaður að vinna sko !
Og svo fundu þeir rabbabara, og komu með heim
Og stubburinn var kosin rabbabarakóngurinn.
Og enn er gallerí himin opinn.
Og strákar leika sér, þannig er bara lífið. Ærsl og læti eru þeirra ær og kýr, þannig er að vera strákur í dag.
Hmm strákar, þessi er ögn stærri, en það er ekki óalgengt að sjá menn á sjóskíðum á pollinum, og lengi vel var stökkpallur þar sem menn gátu þreytt sig við að stökkva, veit ekki hvað varð af þeim palli. Mætti alveg endurnýja hann.
En Stubbarnir hennar ömmu vildu tjalda og fara í útilegu, og hvað er betra og öruggara en að tjalda upp á lóð.
Jamm og ein svona himna mynd í viðbót, meðan drengirnir og afi tjalda.
Þetta er alveg að koma, og allir hjálpast að.
Og enn ein falleg himnamynd.
Já og þá er ekkert eftir annað en að flytja inn, með sængur dýnur og svefnpoka, vitandi að afi og amma í kúlu vaka yfir þeim og vernda.
Jamm það átti nefnilega að setja svona flottar dýnur inn í tjaldið, en þær voru of stórar. Svo það varð að skila þeim til baka.
Málið er að það er ævintýri að vera hjá ömmu og afa í kúlu. Og þar getur allt gerst.
En nú er þessi dýrðar dagur til enda runninn, og bara eftir að fara í holuna sína og sofna, eins og litlu ungarnir í tjaldinu og afi sem nú þegar kúrir og steinsefur í sinni holu.
Hvað lífið er ljúft og gott, ef maður vill hafa það þannig, og skapar sér það andrúmsloft að það bara verði þannig. Eins og vinkona mín Katrín Snæhólm er svo oft að segja. Og Steina og fleiri. Við ráðum ótrúlega mikið yfir okkar eigin sálar heill og hamingju. Bara með þvi að bregðast rétt við lífinu, eins og það er. Gefa kærleika, og fá hann tífalt til baka, það er enginn galdur, eða kaupmennska, bara einföld sálarfræði, það sem við sendum frá okkur fáum við tífalt til baka. Bara spurningin um hvað við viljum senda frá okkur og fá til baka. Svari því hver fyrir sig, en við uppskerum eins og við sáum. Það er staðreynd sem ekki verður hrakinn á neinn hátt.
Og ég segi bara góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Bloggfærslur 1. júlí 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar