Nýjir fjölskyldumeðlimir í kúlunni.

Við þrifum tjörnina í dag.  Ástæðan var tvíþætt, í fyrsta lagi þá er hún yfirleitt þrifinn á þessum tíma, en svo var líka að ég kom heim með nýja fjölskyldumeðlimi úr Reykjavikurferðinni.  Nýja Koja.  Vegna sviplegs fráfalls nokkurra þeirra í vetur. 

Það verður að segjast eins og það er að enginn var jafn spenntur fyrir fiskunum og Brandur.  Hann vomaði yfir fötunni sem þeir voru í og gott ef hann sleikti ekki út um.  En hann vissi að þetta var tabú mál, gaf mér bara skrýtið auga og labbaði burt með reisn, og gaf mér svo aftur hornauga þegar hann nálgaðist útidyrnar.  Ha!!!  ég hef svo sem engan áhuga á þessum kvikendum, hugaði hann með sér.  Fyrst maður má ekki éta þá, þá eru þeir einskis virði. 

IMG_5071

Hér eru gömlu brýnin.  Þar má sjá Prakkaran þarna til hægri figubolluna þá hehehe.

IMG_5073 

IMG_5081 

Hér er svo hluti af litlu krílunum sem voru að eignast nýtt heimili.  Þeir virka ef til vill svipaðir á stærð og bollurnar.   En þeir eru bara pínkupons litlir.  Svona eins og hausinn á þeim stóru.  Ég vona að þeir eigi góða daga í tjörninni, og það er eitt sem víst er.  Ef þeir tímgast eðlilega og eru hraustir, þá munu þeir lifa minn dag.  Því þeir geta orðið 50 - 60 ára.  Ég býð þá bara velkomna í tjörnina.

Reyndar eru þarna mjög flottir fiskar, nokkrir svartir og aðrir gylltir, og svo líka nokkrir gullfiskar.  Þetta er gott samfélag.  Og það sem skiptir mestu máli, tjörnin er hrein og fín.  Mikið sullerí búið að vera í dag.  Jamm vorið er í kúlunni.  Ekki spurning um það LoL


Ferðalag, vinátta og Skýjaglópur.

Ég lagði land undir fót, eða hjól núna og skrapp í örferð til Reykjavíkur.  Tilefnin voru tvö.  Annað var að vinkona mín til margra ára, sem búsett er erlendis er hér í heimsókn hjá dóttur sinni, og svo þurfti ég að versla inn fyrir garðplöntustöðina, áður en ég opna.

 Við erum þrjár vinkonur sem höfum þekkst frá því 1962-3.  við unnum allar saman í SÍS í Austurstræti og með okkur myndaðist þá strax góð vinátta.  'Eg fór síðan sem aupair til Glasgow, og þær báðu mig að kíkja eftir slíkri vinnu fyrir þær líka.  Þær komu svo út á eftir mér, og við áttum skemmtilegan tíma í Glasgow.  Unnum m.a. í Diskoteki, sem plötusnúðar, fatahengjur eða í gossölunni.  Í þeirri vinnu höfðum við meira fyrir kvöldið en alla vikuna í vasapeninga hjá fjölskyldunum sem við vorum hjá.  Við ákáðum svo að fara saman á puttanum í ferðalag niður allt Bretland og fórum niður til Frakklands. Þetta var ævintýraleg ferð.  Við Alley önnur vinkona mín lögðum af stað tvær, en Obba hin vinkonan ætlaði að hitta á okkur í Stratford upon Avon. 

Við Alley höfðum með okkur tjald í upphafi, en það týndist smátt og smátt frá því græjurnar.  Fyrst tíndum við tjaldhælunum, því næst tjaldsúlum.  Þá notuðum við bara greinar.  Loks var það skilið eftir á kornakri í Frakklandi, þar sem við tjölduðum seint um kvöld, og vissum ekki að þetta var kornakur.  Þóttumst góðar að laumast í burtu áður en bálreiður bóndi kæmi.  En þessi saga verður sögð einhverntímann. Blush

Hvað um það við höfum alltaf haldið góðu sambandi.  Þær urðu báðar eftir í útlöndum, þegar ég fór heim.  Alley giftist þýskum manni, og hefur búið með honum víðsvegar um heiminn.  Obba mín, giftist skota sems var af gyðingaættum.  Þau bjuggu lengi í Bretlandi, en fluttu síðan til Ísrael.  Hún flutti svo heim fyrir nokkrum árum. 

IMG_5045

Þrjár stelpu/kerlur.

IMG_5055

Hér vorum við á Kaffi Sólon.  Snæddum saman hádegisverð í gær.

IMG_5053

Þetta er svo vinkonuknús eins og það gerist best.  Sum vinátta bara er.... og varir..... alltaf.

IMG_5028

Nokkrar skýjamyndir sem ég tók á leiðinni. 

IMG_5032

IMG_5067

Og sjórinn lít líka sjá sínar æstu hliðar. 

En ég verð víst að þjóta núna.  Fer blogghringinn seinna í dag.  Eigið góðan dag mín elskuleg. 


Bloggfærslur 25. maí 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband