Mig vantar nafn á plöntu. Einhver garðyrkjumaðurinn eða áhugamaður um blóm.

Mig vantar nafn á plöntu, er hér að gera myndaskrá yfir plönturnar mínar, en hef týnt nafnið á þessari elsku.  Held helst að þetta sé einhver allium.  Helst ef einhver veit latneska nafnið.

IMG_1921

Blöðin eru oddmjó og frekar stinn dálítið hærð. 

Laukur

Með fyrirfram þökk.


Vorverkinn og snjór í byggð.

Já hér eru nokkrar myndir frá Ísafirði núna.  Þær virka kuldalegar, en það er ekki frost, og alls ekki kalt.  Set þær inn fyrir hann Bjarna Dýrfjörð. 

IMG_5019

Þetta sjónarhorn er ekki eins algengt á kúlunni.

IMG_5021

Snjórinn hlífir gróðrinum, svo þetta er ekki svo slæmt eftir allt. Betra en þurra næðingur.

IMG_5022

Þessar elskur láta snjóinn ekkert á sig fá.  Þeir halda bara áfram og þegar hlýnar springa þeir út.

IMG_5018

En sólin er þarna uppi, það er enginn spurning um það sko !

En við þurfum að fara að gera vorverkinn.  Eitt af þeim helstu er að skipta um vatn og hreinsa tjörnina.  Börnin eru ólm í að fá að vera með.

IMG_2060

Áhuginn leynir sér ekki.

IMG_2061

Hana grípa !!

IMG_2062

Æ litlu greyin.  Það verður gott að komast aftur í tjörnina þegar hún er orðin hrein og fín. 

IMG_2087

Svo að lokum tveir ömmusnúllar í grasi bara til að minna okkur á sumarið. 


Bloggfærslur 22. maí 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband