Ömmuhelgi og Þorrablót.

 

Húsið er undirlagt að barnabörnum frá 3ja til 10 ára.  Eins og er hafa þau hertekið svefnherbergið mitt, og eru með X-faktorkeppni þar inni.  Þá er frekar hljótt í öðrum hlutum hússins á meðan.  Annars elska ég að hafa þau hér yfir nótt.  Glaðværð og kátína um allt húsið.  En svo er líka hljótt og notalegt þegar þau fara heim til sín þá getum við hjónin slakað á og notið þess að sitja saman með kertaljós og mala. 

 

En í kvöld er það þorrablótið. Sléttuhreppsblótið.  Hér áður fyrr tók undirbúningurinn langan tíma.  Hangiketið var soðið daginn áður og sviðahausarnir.  Í dag er ekki hægt að tala um sviðahausa eða kjamma því enginn sviðalykt eða bragð er af þeim, heldur eru þeir settir í einhverskonar sýru, og svo eru eyrun klippt af af einhverjum óskiljanlegum ástæðum.  Ég elska að bryðja eyrun.  Svið á að svíða og láta síðan bíða í nokkra daga, þá er hægt að tala um svið.

Nú er hægt að kaupa niðursneitt soðið hangiket í Samkaupum svo það er óþarfi að sjóða það daginn áður.  Svo er bara notuð sviðasulta. Meira að segja er hægt að kaupa tilbúna rófustöppu.

Súru hrútspungarnir standa þó enn fyrir sínu og hákarlinn.  Og svo blessaður harðfiskurinn frá honum Finnboga.  Besti fiskur á Íslandi.  Smérið verður líka ómengað íslenskt smjör.

Því  miður er súri hvalurinn búin og rengið líka, mikið rosalega var gott að fá að smakka hann aftur, og þar hafði ekkert gleymst.  Nammi namm.

Hér áður stóð maður lika sveittur við eldavélina og bjó til rúgkökur og hveitikökur, nú kaupir maður bara flatkökur út í búð. 

Jamm stússið kring um matinn á þorrablótið hefur minnkað mikið.  En það er ef til vill bara ekki eins skemmtilegt, því undirbúningurinn var stór hluti af dæminu. 

Ég á þó ennþá trogið mitt góða. 

Svo er Félagsheimilið ekki með vínveitingaleyfi við verðum því að taka mjöðinn og brennivínið með.  Það stóð gjarnan í auglýsingunum “munið að hafa sokkinn með”, því upphátt mátti ekki tala um að hafa vínið með sér.  Eflaust var meiningin að fela búsið í sokknum. 

Ég er ekki í skemmtinefndinni núna var það síðast.  Og er ekki einu sinni í Sléttuhreppskórnum þetta árið, vegna þess að ég dvaldi um einn og hálfan mánuð úti í vín nú um áramótin.  Þannig að nú get ég bara slakað á og skemmt mér, og það ætla ég mér að gera svo sannarlega. 


Bloggfærslur 17. febrúar 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.7.): 14
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2023478

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband