14.2.2007 | 17:19
Hvað ef ???
Meira um litla barnabarnið mitt og fæðingu þess.
Oft er spurt hvað ef ? stundum getur það verið eitthvað sem ekki skiptir máli, en stundum er það bara dauðans alvara.
Ég var viðstödd fæðingu barnabarnsins míns í gær. Barnið var fyrirburi, átti eftir mánuð af meðgöngu, en legvatnið hafði farið, svo ákveðið var eftir nokkra daga að koma móðurinni af stað eins og ég gat um hér áður.
Allann daginn og fram yfir miðnætti var hún með miklar hríðar og kvaldist eins og við vitum sem höfum gengið í gegnum slíkt.
Eftir miðnættið var svo ljóst að það varð að taka barnið með keisaraskurði.
Þannig háttar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði að fæðingardeild og aðrar sjúkradeildir eru á annari hæð, en skurðstofa á jarðhæð, sjúkrabílar og slíkt hefur svo aðkomu í kjallara.
Þegar hér var komið sögu og móðirin búin að þjást í um 15 tíma, og búið var að undirbúa hana undir uppskurð með tilheyrandi slöngum allstaðar kom í ljós að lyftan í húsinu var biluð.
Já ég segi biluð.
Aðal samgöngutæki innanhúss á sjúkrahúsinu lyftan var biluð. Móðirin þurfti því að labba niður stigana niður á fyrstu hæð með allar slöngur og tól og aðstoðarlið í kring um sig, eftir allan þennan erfiða tíma með hríðar og tilheyrandi.
Ekki tók svo betra við þegar uppskurði var lokið og koma þurfti henni aftur upp í sjúkrastofu og til barnsins sem hafði verið komið á vöggudeildina, því lyftan var náttúrulega ennþá biluð, og það þurfti að kalla út sjúkraflutningamenn til að bera hana upp stigana og inn í sjúkrarúmið.
Segjum svo að það hefði verið ákveðið að bíða lengur og sjá til, þar sem barnið var fyrirburi og talið nauðsynlegt að það færi þess vegna hina hefðbundnu leið út í heiminn ?
Hvað ef konan hefði ekki verið svo hörð af sér eftir allan þennan tíma að hún treysti sér til að labba sig niður á skurðstofuna ?
Hvað ef þarna hefði skapast ástand að fóstrinu hefði skyndilega verið hætt ? Svo grípa þyrfti til bráðaaðgerða?
Eða bara segjum að einhver sjúklingur upp á deild hefði fengið hjartaslag eða eitthvað akút sem þyrfti að fara í skyndi á skurðstofuna.
Lyftan biluð ?
Mér var tjáð að það væri nú þegar búið að hanna nýja lyftu sem á að þjóna sjúkraflutningum innanhúss og öðru slíku, og meira að segja fjármagna hana, en það stendur á einhverjum fáránlegum deilum um hvort lyftan eigi að fara tvær eða þrjár hæðir.
Nú vil ég taka fram að hér á Ísafirði er frábært starfsfólk og hér var hárrétt brugðist við öllum aðstæðum af starfsfólki og allt fór vel fram. Allir voru einhuga um að gera sem best úr þessu öllu og allir stóðu sem einn maður. Alveg frá ömmu upp í yfirlækninn sem var þarna líka sem betur fer.
En það er bara einfaldlega ekki nóg. Hér er á ferðinni mál sem er dauðans alvara, og hér hafa heilbrigðisiyfirvöld brugðist all svakalega.
Þið ættuð að skammast ykkar sem hafið tafið þetta brýna mál. Og þið ættuð strax í dag að sjá til þess að nýja lyftan komi og verði sett upp án tafar.
Að meira persónulegu. Litla daman sem þarna kom í heimin er ástarbarn svo sannarlega.
Fyrir utan ást foreldra sinna, þá fæddist hún á degi Valentínusar, og ljósmóðirin heitir því fallega nafni Ásthildur, amman reyndar líka. Hún var spræk og dugleg og lét þetta umstang ekkert á sig fá.
Og barnabörnin mín eru að mínu mati yndislegustu börn í heimi
Flutningur undirbúin.
Þröngt er að fara.
Hamingjusöm fjölskylda.
Því miður eru sumar myndirnar ekki góðar, því maður var orðin þreytt eftir margra tíma yfirsetu.
En amman er bálreið út í heilbrigðisyfirvöld og segir HVAÐ EF ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bloggfærslur 14. febrúar 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.7.): 14
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 2023478
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar