Vetrarsólstöður og Gleðileg jól.

dag eru vetrarsólstöður, stysti sólargangur, myrkasti dagurinn.  Á morgun fer svo að birta á ný.

IMG_0903 

Það er ljós yfir Kubbanum mínum, ef til vill ljós engils sem gætir okkar hér.

IMG_0904 

Og dísirnar dansa í Naustahvilftinni.  Blæjudans fyrir þá sem vilja sjá og skynja. 

 IMG_0900

Og ömmustubbar spá í framtíðina.

Svo langar mig til að þakka ykkur samfylgdina þetta árið, það er ótrúlegt hve maður getur kynnst og þótt vænt um fólk sem maður hefur aldrei séð.  En sennilega kynnist maður sálinni betur svona við að lesa það sem fólk skrifar.  Þar leynist manns innri maður í hverjum stafkrók. Hér eru margir sem mér er farið að þykja mjög vænt um.  Og hlakka til að fá að fylgjast með áfram á næsta ári.  Oft þarf svo lítið til að geta glatt svo mikið.  Að maður trúir því ekki fyrr en maður upplifir það sjálfur.

o0o 

Hér er smásaga. Ungi maðurinn hafði fengið nóg af lífinu.  Hann var ákveðin í að enda þetta allt.  Og þennan dag skyldi látið verð af því.  Hann gekk þungum þönkum niður eftri götunni í átt til sjávar. Þá mætti hann gamalli konu.  Hún brosti til hans, og spurði hvort hann gæti mögulega hjálpað sér að bera pokana sem hún hélt á í kræklóttum höndum. Ég er svo slæm af gigt, sagði hún, og pokarnir eru þungir. Hann hugsaði með sér að tíminn skipti ekki máli, til eða frá, og tók af henni pokana og bar þá út að bílnum hennar.  Þetta var gamall Citroen.Æ hvaða hvaða sagði konan, nú hef ég gleymt lyklunum mínum inn í búðinni þarna.  Ekki viltu vera svo vænn að hlaupa fyrir mig og ná í þá ?Ég er fljótari í förum en hún, hugsaði hann og fór og náði í lyklana. Ég er nefnilega svo slæm af gigtinni sagði gamla konan.  Mikið varstu nú vænn, ég vildi óska að ég gæti gert eitthvað fyrir þig í staðinn. Hann stóð þarna og virti hana fyrir sér, gamla dálítið hokna, í snjáðum fötum við þennan gamla bíl, en það var einhver friður yfir henni samt, og hann horfði inn í augu sem voru full af ástúð og gleði.Og þá allt í einu sá hann hve heimskulegar áætlanir hans voru.  Hann rétti úr sér og brosti, fyrst komu viprur í munnvikin sem breiddust út yfir allt andlitið.  Í dag hefur þú gefið mér þá stærstu gjöf sem ein manneskja getur gefið annari, sagði hann hlýlega.  Hann tók utan um gömlu konuna og faðmaði hana að sér.  Svo gekk hann rösklega til baka, þaðan sem hann hafði komið. Þar sem ekkert er nytt undir sólinni, þá hefur þetta örugglega gerst einhversstaðar.  Svo langar mig til að setja hér inn smá kveðskap.

Jól.

 

Ég hugsa oft er herðir frost,

Og hel dimm nóttinn nálgast oss.

Með skammdegi og skugga,

er skylda okkar að hugga.

Þann sem ekki á neinn að

einskis barn, við skiljum það,

að þá er þörfin brýna

að þekkja vitjun sína.

 

 

Með kærleikann sem leiðarljós

lifir best vor sálarrós,

það blómið blítt sem dafnar

og birtu andans safnar.

Allt sem innnra áttu nú

elsku þína von og trú,

vert er gaum að gefa.

grát og sorgir sefa.

 

 

Dreyfðu ást um byggð og ból

þá bestu áttu gleði jól.

Gott er lífið sitt á því að byggja,

að sá sem gefur öðrum, allt mun þiggja.

 

 

 

 

Jólahugvekja.

 

 

Hátíð ljóss og lita,

Lýsir dimma jörð.

Það vinur skaltu vita

að völt er mannsins gjörð.

 

Í djúpi morgundagsins

ef drungi í sálu býr,

Af sorgum sólarlagsins

þá löngur áfram knýr.

 

 

Að vilja vaka og vinna

og verja fast sitt leg.

Því sókarfæri sinna

að sækja fram á veg.

 

Í miðju drungans dapra,

er dásemd – jólaljós.

Sem eyðir nístingsnapra

norðri – frostsins rós.

 

Og lætur blíða bera

oss blessun yfir hjörð,

Þá von mér viltu gera,

að vekja Ísafjörð.

 

Rosir

Gleðileg jól öll sömul og takk fyrir að vera til. Heart


Bloggfærslur 22. desember 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband