21.12.2007 | 17:33
Hitt og þetta.
Það birti svolítið til eftir hádegið, og himnagalleríið opnaðist smástund.
Alltaf skemmtilegt þegar það gerist.
Þá veit maður alla vega að sólin hefur ekki yfirgefið okkur alveg.
Heldur aðeins brugðið sér í smá vetrarfrí eins og svo margir íslendingar.
Þetta er hann Grettir ungur labrador sem hefur eignast yndislegan húsbónda og gott heimili, og er algjör kelirófa.
Svo er hann lika alveg til í smá piparkökuleik.
en það voru sem sagt litlu jólin hjá Ásel steypustöðinni og allir glaðir, pólverjarnir sem nýlega hafa komið, komast ekki heim, en hafa getað sent fjölskyldum sínum glaðning, og eru sáttir með það. Svo fengu þeir góðar gjafir frá fyrirtækinu. Portúgalarnir eru farnir heim í jólafrí.
Það var glatt á hjalla, og fín veisla.
Og þessi bátur er örugglega á leið í sína hinstu ferð inn í fjörð, þar sem Siggi Sveins sú gamla kempa mun kveikja í honum á gamlárskvöld. Allt tekur enda er sagt. Enda er örugglega flottara að gleðja börn og gamalmenni með flottri brennu til að fagna nýju ári, en að grotna niður í fjöruborði gleymdur öllum. Eða þannig. Þetta heitir af fara með stæl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
21.12.2007 | 12:33
Hið daglega veður og jólagjafir.
Hið daglega veður er bara ágætt 21 desember og vetrarsólstöður á morgun, þá byrjar að birta aftur.
Sérkennileg birta er alltaf á þessum árstíma. Það er af því að sólarljósið brotnar uppi í skýjunum og kemur óbeint niður í fjörðinn minn.
En ég sagði ykkur í gær að pabbi hefði beðið mig um að teikna mynd, þegar ég var lítil. Það er framhald á þeirri sögu, sem er dálítið skemmtileg og hrífandi.
En svo er mál með vexti að í hitteðfyrra þá var ákveðið að fara í að hreinsa út háaloftið á mínu æskuheimili, þar kom ýmislegt í ljós, sem hafði verið geymt fram á þann dag.
Eitt af því var mynd sem ég kannaðist við, en það var einmitt myndin góða sem ég teiknaði fyrir föður minn 50 árum áður. Sumar gjafir endast bara nokkuð vel
Og það má alveg sjá hvaða mótív ég notaði. Mér þótti vænt um að sjá að hún hafði verið geymd allan þennan tíma.
Svo smá krúttmyndir.
Þessar elskur eru 10 ára í dag, en það voru alltaf ömmudagar og ömmu helgar.
Sumir taka tæknina í sína þjónustu.
Ætla að bæta smávegis við, var að taka til í herberginu mínu og rakst á þessa fallegu hugvekju, hún er alveg í anda þessa tíma,
Ég stend við uppsprettu kærleikans,
frá uppsprettunni fer sálin, ég.
Frá uppsprettunni vinn ég sem þjónutsumaður
og með vitundina í kærleiksljósi,
sendum við kraft til allra þeirra sem þarfnast hjálpar.
Megi kærleikur hins Guðlega kjarna,
streyma út og inn í hjarta mitt,
inn í hópinn minn og um allt landið mitt
og um alheim.
Eigið góðan dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.12.2007 | 00:33
Gjafir og stress.
Í dag er stressið í hámarki, undirbúningur jólanna í algleymingi, og margir um það bil að fá magasár af taugaveiklun.
Þetta er jólaskraut letingjans, eða þess sem tekur lífið ekki of alvarlega. Manneskja sem hefur svona jólaskraut inn á heimilinu er annað hvort ekki viðræðuhæf eða einhver sem ekki stressar sig á aðstæðum.
Okey ókey ókey tekið inn í kúlunni, en veggurinn er líka tákn um manneskju sem annað hvort tekur lifið ekki of alvarlega, eða er ekki að stressa sig á hlutunum. Sú manneskja er reyndar múrari, og tekur hlutina eins og þeir eru, og þetta er alveg jafnflott og hvað annað, enda sést mótatimbrið á veggnum, hann lýsir þvi sem gerðist, alveg eins og ljósin skýra út að hlutirnir eru ekki teknir mjög alvarlega á þessu heimili.
Ég frábið mér einhverja hreinsispekulanta með sjónvarpið í för. Og ég vil segja við ykkur hin, sem annað hvort hafið ekki heilsu til að gera allt sem ykkur langar til, eða hreinlega hafi hvorki tíma né efni á því, að svona getur þetta verið hjá fólki sem hefur alveg efni á einhverju miklu flottara, en finnst bara einfaldleikinn bestur. Það er ekki allt fengið með því flottasta og dýrasta sem til er, heldur skiptir mestu máli að maður sé ánægður með það sem maður hefur.
Það skiptir heldur ekki máli hversu dýrar gjafir maður gefur, heldur skiptir máli að maður hafi lagt allt sitt í valið. Til dæmis prjónaðir sokkar, einhver sem hefur lagt á sig nokkurra daga vinnu við að prjóna sokka handa þeim sem honum þykir vænt um, í hverri lykkju er kærleiksrík hugsun, er það ekki flott gjöf? Eða maður semur smásögu með gjöf þyggjandans í stjörnuhlutverki, er það ekki hið besta mál ? Þó maður gæfi einhverjum litabók, sem viðkomandi hefði lagt á sig að mála allar myndirnar í, þá er það merki um umhugsun og kærleika. Því það er jú það sem mest og best er, að finna að viðkomandi hafi lagt á sig að gera eitthvað fyrir MIG, að finna að gjöfin er í einlægni eitthvað sem hefur kostað tíma og umhugsun þess sem gaf. Haldið þið að það séu ekki bestu gjafirnar eftir allt saman, að vita að þið hafið þegið eitthvað frá ástvini, sem þið vitið að hann hefur lagt eitthvað á sig til að gefa ykkur.
Faðir minn sagði gjarnan þegar ég var barn, og spurði hvað hann vildi fá í gjöf frá mér, hann vissi náttúrulega að ég hafði engin fjárráð til að kaupa neitt, en spurði af stolti. Ég vil bara fá teikningu frá þér, sagði hann, og svo fór maður og var alsæl með þessa vitnsekju, og setti allt sitt í að teikna eins fallega mynd og maður gat fyrir pabba.
Gjafir eru tvíbent vopn. En góð gjöf, gefin af góðum hug, hvort sem hún kostar fimmhundruð kall eða milljón skiptir bara ekki máli þegar upp er staðið. Ef hugurinn fylgir ekki máli, eða gjöfin er gefinn í hugsunarleysi, þá skiptir verðlag hennar engu máli.
Þetta er vert að hafa í huga. Og stundum getur besta gjöfin verið eitthvað sem "kostar" ekkert, nema ást og kærleika, umhyggu, bros eða faðmlag. Höfum það líka í huga.
Í fyrrakvöld drakk yndislegur maður sig í hel, vísvitandi um hvað hann var að gera. Þessi maður var tiltölulega ungur, og afskaplega listrænn, hann átti við áfengisvandamál að stríða, og hann hreinlega tók þessa leið út. Sorglegt, en svona er þetta stundum. Þegar menn gefast upp í lífsins ólgusjó, þá getur enginn mannlegur máttur bjargað. Félagar hans sem eru á svipuðu róli og hann, reyndu að koma honum á spítala og reyndu sitt í sínum félagslega vanmætti til að hjálpa, en allt fyrir ekki, hann var ákveðin í að enda þetta allt.
Ég vil biðja fyrir sálu hans, og senda ættingjum hans mínar samúðarkveðjur. Þessi öðlingur mun örugglega fara beint upp i himininn, því þar eru verk mannanna metinn eftir sálinni en ekki andlegri mammons auðlegð. Hann þjónaði listagyðjunni af sínum vanmætti. En svona er lífið stundum og dauðinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Bloggfærslur 21. desember 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar