2.12.2007 | 23:56
Ađventukvöld međ smá útúrdúr.
Fór á ađventutónleika í kvöld. Elli mađurinn minn var ađ syngja og ég fór auđvitađ til ađ hlusta. Ţetta er orđin árviss atburđur, tónlistarveisla, ţar sem okkar frábćrasta tónlistarfólk leggur fram krafta sína, kórar og tónlistarfólk.
Byrjađi međ stúlknakór, ţessar litlu elskur eru ekki háar í loftinu, en flottar samt.
Reyndar byrjađi kvöldiđ međ Händel; Consertino í F dús, adagio, međ Íris Kramer á trompet og Huldu Braga á orgel.
Svo kveiktu fermingarbörn á kertum og lásu setningar úr ritningunni.
Hér eru eldri dömur stúlknakór Tónlistarskóla Ísafjarđar, hitt var telpna kór Tónlistaskólans.
Svo var Sunnukórinn og báđir telpnakórarnir.
Hér má svo sjá karlakórinn Ernir.
Og hér líka.
Hér fyrir ofan ţá má sjá kirkulistaverkiđ.
Presturinn Séra Magnús lagđi einmitt út af ţessu listaverki, mig minnir ađ hann segđi ađ ţađ hefđi veriđ Ólöf Norđdal sem átti kveikjuna ađ ţví. En ţađ er úr ritningunni sagan um Jésú og lóurnar.
En ţađ var sagt ađ Jesú sem barn hefđi leikiđ sér međ öđrum börnum viđ ađ gera fugla úr leir, ţá kom heittrúarmađur og varđ reiđur af ţví ađ ţetta var gert á Sabbaddeginum, hann hóf ađ brjóta alla fuglana, en Jésú rétti ţá út hendi og breytti leirfuglum í lifandi fugla sem flugu upp og voru ţar fyrstu lóurnar. Hann lagđi vel út af ţessu lista verki hvađ ţađ ćtti í raun og veru vel viđ í öllum uppákomum kirkjunnar. Svo lagđi hann út af ţröngsýninni og ofsatrú á alla kanta ţađ sem umburđarlyndi vantađi. En svo klikkti hann út međ atriđi sem sló mig. Hann var ađ tala um umburđarleysi ţar á međan ađ fólk vildi ekki presta i leikskólanna, svo sagđi hann, ég meira ađ segja las ţađ í gćr ađ einn mađur í Vantrú sagđi ađ ţađ ćtti ađ banna litlu jólin. Og ţá hugsađi ég; Magnú minn, nú varđ fjöđurinn hjá ţér ađ fjórum hćnum. Ţví ţađ var nefnilega ekki svo. Heldur sagđi einhver prelátin í vandlćtingu vegna umrćđna Vantrúar, Svo vilja ţeir auđvitađ banna Litlu Jólin. Ţađ var ţví ekki rétt sem hermt var eftir.
En ótrúlega lífseigt ţađ sem sagt er, ef fólk vill virkilega hamra á röngum stađhćfingum. En ég tek fram ađ mér líkar afskaplega vel viđ prestinn okkar hann séra Magnús.
Hér eru svo fjórir kórar saman, og lokasöngurinn var; Hin fyrstu jól, afskaplega hátíđlegt og yndislegur endir á frábćru kvöldi.
Allir syngja saman.
Og svo smá snjókoma hehehe
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
2.12.2007 | 13:03
Skugga Sveinn.
Ég fór á leiksýninguna Skuggasvein í gćrkveldi í Edinborgarhúsinu á Ísafirđi.
Ţetta mun vera fyrsta leiksýninginn sem sett er upp í ađalsalnum. En nokkur leikverk af minna taginu hafa veriđ sýnd í sal á annari hćđ hússins.
Húsiđ í sjálfu sér er meistaraverk, ţar koma saman gamli tíminn og sá nýji. Húsiđ er bjálkahús, sterklega byggt, og hafa ţau einkenni veriđ látin halda sér. Edinborgarhúsiđ var teiknađ af Rögnvaldi Ólafssyni, en endurgerđ var allavega ađ hluta til í höndum arkiteksins ísfirska Elísabetar Gunnarsdóttur. Í húsinu er nú rekinn listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar undir styrkri stjórn Jóns Sigurpálssonar listamanns og Margrétar Gunnarsdóttur píanókennara.
En Skuggasveinn.
Í byrjun vil ég segja ađ sviđsmyndin var hreint frábćr. Einföld en afskaplega sterk og var einn mesti styrkur sýningarinnar.
Skuggasveinn var í höndum Páls G. Loftssonar. Páll er vanur leikari, og Skuggasveinn varđ eftirminnilegur í međferđ hans. Allt frá ţví ađ vera nćstum klökkur í endurminningum upp í ađ ţruma yfir salnum, ţá fyllti hann ţennan karakter af ţvílíku lífi ađ unun var á ađ horfa.
Ketill skrćkur, Sveinbjörn Hjálmarsson var eftirminnilegur líka, mjög sannfćrandi góđur leikur og samleikur ţeirra fóstbrćđra var sérlega nćmur og góđur.
Ţađ var töluvert um óreynda leikara í sýningunni, og bar hún dálítiđ keim af ţví. En hún var ţó í heild sinni áferđarfalleg. Ég held samt ađ ţađ hefđi mátt stytta hana verulega, sérstaklega fyrir hlé. Söngvana hefđi líka mátt stytta um einhver vers. Ég hugsa ađ ţarna hafi virđingin fyrir meistara Matthíasi ráđiđ um ađ svo var ekki gert. En sýningin tók um 3. tíma. Tek ţađ samt fram ađ allir söngvarar voru mjög góđir enda flestir í Karlakórnum Ernir ef mér skjátlast ekki.
Grasagudda var líka ógleymanleg. Viđar Konráđsson fór á kostum. Hann datt aldrei út úr hlutverkinu og hélt salnum í hláturkasti í hvert sinn sem hann birtist. Magnađur leikur.
Sigurđur í Dal, hefđi stundum mátt reyna ađ sannfćra okkur meira, en Lárus komst samt ágćtlega frá hlutverki sínu. Lárus er glćsimenni og gaf Sigurđi ţann ţokka og höfđingskap sem hćfđi hlutverkinu.
Glćsimenniđ Sigurđur í Dal. Ţví miđur voru myndatökur bannađar á međan á sýningu stóđ, en ég tróđ mér baksviđs fyrir leikinn og náđi nokkrum góđum myndum.
Dóttir hans Ásta var einstaklega vel leikinn af Elínu Sveinsdóttur, stórfalleg stúlka og söng eins og engill. Ţađ voru ţví fallegar senurnar milli hennar og Haraldar (Hlyns Kristjánssonar) ţađ skorti nokkuđ á sviđsöryggi hjá honum. En leikur samt ţokkalegur.
Haraldur útilegumađur.
Spjátrungurinn Jón sterki var ágćtlega túlkađur af Ţorleifi Ágústssyni. Ef til vill full reigingslegur á stundum, en í heildina skilađi hann Jóni vel frá sér.
Gvendur hjú í Dal, Ísak E. Róbertsson var léttur áfćti, en vantađi töluvert á framsögn, ég skildi varla orđ hjá honum blessuđum.
Sýslumađurinn Lárensíus var skemmtilega túlkađur af Finni Magnússyni, enda Finnur mjög vanur leikari. Hann gaf ţessum sýslumanni líf, mitt í allri grćđginni og hefnigirninni skein alltaf í gegn sá mađur sem hann reyndist svo vera í lokinn.
Sýslumađurinn Lárensíus.
Ţjónustustúlkan Margrét, var ţokkaleg í höndum Dagnýjar Hermannssdóttur einföld góđ sál, ástfanginn af húsbónda sínum. Ţó var stundum sem mér fannst hún heldur undirleit. Ţ.e. horfđi of mikiđ niđur á gólfiđ, einkum í samtali sínu viđ Hólasveina. Augun eru sterkt afl á leiksviđi, og mađur ţarf ađ gćta sín hvert mađur horfir. Ţađ má líka segja í heildina, hafi leikendur horft full mikiđ upp í loftiđ, ţegar ţau ávörpuđu salinn. Ţađ hefđi veriđ betra ađ finna stađ sem var nćr hausamótum leikhúsgesta.
Ţjónustustúlkan Margrét og Helgi Hólasveinn.
Grani kotungur var kostulegur í höndum Harđar Högnasonar.
Hólasveinar voru túlkađir af Ólafi Halldórssyni og Halldóri Sveinssyni. Ágćtlega gert, en ég hefđi stytt ţeirra atriđi nokkuđ fyrir mína parta.
Galdra Héđinn var í höndum Ţrastar Ólafssonar, Ţröstur er ađ minu mati orđin svolítiđ fastur í svona skrípafígúrum, ég vildi sjá hann takast á viđ alvarlegra hlutverk nćst.
Galda Héđinn.
Ögmundur í túlkun Jóns Jens, var ágćt, skorti samt dálítiđ á sannfćringuna, en ţetta er hlutverk sem er erfitt ađ gera eitthvađ í. Ţađ bíđur ekki upp á mikla leikhćfileika.
Ögmundur útlagi og galdramađur.
Ţađ er alltaf sérstök tilfinning baksviđs fyrir sýningu, mér sýnist ađstađan ţarna vera mjög góđ fyrir leikendur, eitthvađ sem ekki hefur alltaf veriđ til stađar hjá okkur.
Ţađ er sminnkađ og fariđ í búninga og dálítill sviđsskjálfti í mönnum eins og gengur.
Ásta Dalamćr sminnkar Hólasvein.
Međan leikstjórinn Hrafnhildur setur förđunina á sjálfan Skugga Svein.
Stalst til ađ smella af nokkrum myndum í uppklappinu, ţarna má sjá Jón sterka, Gvend vinnuhjú og GrasaGuddu.
Ásta Dalamćr.
Hólasveina ćringjar.
Skugga Sveinn og Ketill skrćkur ganga hér fram undir dynjandi lófataki.
Eins og ég sagđi, áferđarfalleg sýning, vantađi ef til vill dálítiđ upp á framsögn hjá sumum nýgrćđingnum, en ţađ er ekki auđvelt ađ setja upp svona mannmarga sýningu međ mörgu óvönu fólki. Ţau skiluđu ţó öll góđri sýningu, og ţarna kom í ljós hve afburđar góđur hljómur er í húsinum.
Leikmynd til fyrirmyndar, lýsingar góđar og hnökralausar, búningar skemmtilegir og trúverđugir, förđun smekkleg aldrei ofgert.
Leikstjóranum Hrafnhildi Hafberg óska ég innilega til hamingju međ ţetta leikverk.
Ég skemmti mér hiđ besta, ţađ gerđi einnig 10 ára stubburinn minn. Svo ţađ er ljóst ađ leikritiđ höfđar til margra. Ţađ er full ástćđa til ađ mćla međ ţví. Ég vona ađ ţau muni sýna fleiri sýningar. Ţađ liggur mikil vinna á bak viđ svona sýningu, óeigingjörn vinna allra ţeirra sem ţar koma viđ sögu. Bćđi leikara og ţeirra sem vinna sitt verk í kyrrţey baksviđs og á ćfingartíma.
Hafiđ hjartans ţökk fyrir.Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfćrslur 2. desember 2007
Um bloggiđ
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annađ
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar