15.12.2007 | 20:20
Nemendatónleikar Tónlistaskóla Ísafjarðar.
Ég var á jólatónleikum Tónlistaskóla Ísafjarðar, þetta er að vísu tónleika röð, þar sem allir nemendurnir koma fram og skemmta foreldrum og öðrum. Aldeilis frábær skemmtun.
Fyrst var Skólalúðrasveitinn. Stjónandi og kennari þar er Madis Mäckalle, sem hefur verið hér í nokkur ár, og náð aldeilis frábærum árangri, líka með lúðrasveit þeirra sem eldri eru. Nokkrir úr þessari skólasveit eru líka í þeirri hljómsveit, tvær dætur Madís, Marelle og Miriam, þær leika á ýmis blásturhljóðfæri. Þau komu frá Eistlandi og eru sannkallaðir gullmolar.
Ef þið haldið að stelpur læri ekki á trommur, þá er það bara ekki rétt, hér er ein efnileg. Emma Rúnarsdóttir heitir hún.
Svo var það stubburinn minn, ég held að öllum öðrum ólöstuðum hafi hann slegið í gegn, þeir sömdu sjálfir þennan trommudúet hann og kennarinn, stubburinn taldi í meira að segja. Jazz-spjall kölluðu þeir þetta frábæra tónlistaverk. Þá var amma stolt.
Þeir voru flottastir. Önundur er frábær kennari og vinur nemendanna.
Þessir ungu menn eru bræður og fjölskyldan kemur frá Póllandi. Snillingar framtíðarinnar.
Þetta er ein af heimagöngunum hjá mér hún Laufey.
Þau tóku svo saman Litla trommuleikaran Úlfur og Sóley Ebba, mjög fínt hjá þeim og góður samleikur.
Einn af þeim efnilegri leikur hér "How Deep is your Love" í frábærum fluttningi.
Hér er Maksymilian Haraldur Frach að spila Býfluguna, ekki léttasta fiðluverkið eftir Schubert. Þeir bræður eru Pólskir og foreldrar þeirra báðir kennarar við skólan. Það er þvílíkur fjársjóður sem við eigum hér af tónlistarmönnum og kennurum. Hér voru margir efnilegir nemendur, þó ég hafi ekki getað sýnt myndir af þeim öllum. En þetta fólk er framtíðin okkar í tónlist, það er enginn spurning.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
15.12.2007 | 12:54
Daglegt veður og jólahlaðborð.
Já ég fór á jólahlaðborð í gær á Hótel Ísafirði. Þar var ekkert til sparað og virkilega góðu matur, og nóg af öllu. Ég fór í boði sonar míns, og fyrirtækis hans Ásels, í fyrirtækinu vinna fyrir utan eigandann tveir íslendingar, fjórir pólverjar, tveir portugalar og einn frá El Salvador. En þetta eru allt úrvalsmenn. Besta auðlegð hvers fyrirtækis er starfsfólkið.
En fyrst hið daglega veður. Veðrið er bara ágætt í dag.
Þó birtan sé ekki alveg eins og á sumardegi, þá er þetta alveg ágætt.
Rómó bara.
En svo tókum við til matar okkar í gær.
Þetta er ein af fallegu tengdadætrum mínum, þær eru reyndar þrjár og hvor annari fallegri.
Þessir piltar eru allir pólskir, einn þeirra er að flytja heim aftur, en hinir tveir tiltölulega nýkomnir, voru að setja með mér niður túlípana í haust. Þeir eiga fjölskyldur sínar úti, börn og konur, en komast ekki sjálfir heim um jólin. Dálítið sorglegt, en þeir hafa þó getað sent heim peninga, svo fjölskyldan getur gert sér dagamun. Það er þó bót í máli. Vonandi koma þeir bara með fjölskylduna hingað, þegar þeir hafa komið sér fyrir.
Þeir skemmtu sér hið besta eins og sjá má.
Þessi er frá Portugal, hann hefur vakið athygli í bænum fyrir vinnusemi algjör duganaðarforkur. Myndin framan á honum er af yngsta barninu hans. Hann getur farið út til fjölskyldunnar yfir jólin sem betur fer.
Þetta tattú vakti athygli mína, og ég spurðist fyrir um hvað það væri. En hann barðist í stríði í Mosambique, en það ríki var undir Portúgal hér áður og fyrr. Ég var búin að gleyma því að Portúgal var eitt sinn stórveldi.
Þessir drengir spiluðu undir borðum. Þeir eru mínir uppáhalds, þeir eru flottastir, ótrúlega flinkir.
Hér er svo allur hópurinn samankominn.
Svo var haldið á Langa Manga á eftir, þar var Gummi að spila, auðvitað, og trommarinn er sonur hennar Gló okkar hérna.
Þessa set ég inn fyrir Laufey. Frumburður hennar og gauksunginn minn, saman. Flottastir.
Þessir þremenningar hér eru afskaplega merkilegt fólk skal ég segja ykkur, því þetta er meirihluti af félagi athyglissjúkra, það vantar bara þvaglegginn á myndina. En ég komst loks formlega inn í félagsskapinn eftir frumsýningu á Óbeislaðri fegurð. Var lengi búin að falast eftir að komast í félagsskapinn. Það eru bara fjórir meðlimir, og þar er jafnrétti algjört, tveir karlar og tvær konur. Því miður vantar Selfyssneska hlutann á myndina til að hún sé alveg fullkomin. En þetta er örugglega í fyrsta skipti sem hann missir af myndatöku
Sum sé, þetta var aldeilis frábært kvöld, og hér hafið þið smáhuta af því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bloggfærslur 15. desember 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar