14.12.2007 | 14:50
Hið daglega veður og hinn ægilegi Krampus.
Hið daglega veður á Ísafirði.
Það var ansi hranalegt í morgun. Stóra gróðurhúsið mitt alveg farið til fjandans.
Ekki beint svona kræsilegt.
Þurfti að skreppa í bæinn, og tók þá þessa mynd.
Svo smávegis glaðningur fyrir fjallafólkið mitt. Upp úr hádeginu þá fór aðeins að rofa til.
Það birti alveg heimikið.
En samt ekki allstaðar.
Ég elska þessa liti.
Þetta gerðist nefnilega um leið og rafmagnið fór. Eins og væri verið að kveikja á alheimsljósinu út af rafmagnsleysinu.
En ég var að lesa í fréttablaðinu um Krampus. Krampus er eins konar grýla þeirra Austurríkismanna.
Nú er í gangi herferð til að kveða niður hræðslu barna við þetta dýr. Ég man vel eftir jólakettinum, og hræðslu við að lenda í honum.
En fréttin er svona;
Fyrir komandi jól ákvað markaðsráð Salzborgar í Austurríki í samvinnu við dýragarð borgarinnar, dótaminjasafnið og þjóðleikhúsið að setja á fót sjálfshjálparnámskeið fyrir börn sem hræðast þarlenda jólagrýlu meira en góðu hófi gegnir.
Krampus heitir hann sem ásækir óþekku börnin. Hann skilur eftir kol til viðvörunar heima hjá þeim eða, þegar í harðbakkann slær, bindur hann þau á höndum og fótum með stálkeðjum og slær þau í rassinn með birkivendi.
"Upplifðu Krampus" heitir námskeiðið þar sem börnin læra að þekkja fyrirbærið og þeim er kennt að komast yfir hræðsluna. Með því að föndra, dansa, og klappa dýrum minnkar smam saman fjarlægðin við hinn hyrnda, ófrýnilega og loðna Krampus.
Í dýragarðinum skoða þau horn á dýrum, í dótaminjasafninu er þeim kennd saga Krampusar og þau látin smíða sína eigin Krampus- grímu og í þjóðleikhúsinu fá þau að klæða sig í Krampus-búning og hlaupa um.
Námskeiðið var haldið í fyrsta skipti nú í haust og varð geysivinsælt. Sjö hundruð krakkar tóku þátt og verður því haldið áfram um sinn þótt Krampus sé farinn að hlaupa um götur að hræða mann og annan.
Uppeldisfræðingarnir einblína á jákvæðar hliðar grýlunnar. Að Krampus reki burt illa anda með sínu ljóta útliti og bjöllum og strjúki fólki með birkivendi til að stuðla að frjósemi.
Markmið námskeiðsins er að uppræta hræðslu í hjörtum barnanna. Hins vegar á enn eftir að koma í ljós hvort Krampus fækki ferðum sínum til óþekkra barana með vönd sinn og keðjur.
Hér eru nokkrar myndir af Krampus hinum ógurlega, enginn furða að börnin séu hrædd við hann. Meira að segja óhugnanlegri en Grýla, ætli við þurfum ekki líka að fara að setja á stofn sjálfshjálparnámskeið íslenskra barna vegna hennar.
Þessir Krampusar eiga að vísu heima í Vín. En þeir eru heldur ófrýnilegir.
Svo ein í lokin af mínum litlu dúllum í Vín, send af mömmu þeirra.
Prinsessurnar mína í Vínarborg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bloggfærslur 14. desember 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar