Myndir frá Lóu frænku - til Önnu frænku.

Anna mín Stef, hún Lóa frænka okkar sendi mér þessar yndislegur myndir áðan. Ég læt þær fljóta hér inn til að gleðja þig.

 Judit

Hvaða glæsimeyja skyldi þetta nú vera LoL

thora

Eða þessi tvö ?

mumma

Mumma frænka í Ameríku.

mumma og Judda

Uss suss, ekkert smá af silungi þarna.

afi og Stefán

Afi í öllu sínu veldi með Stefáni.

amma

Amma, mér sýnist þetta vera við Nonni allavega.  Er ekki viss með hin tvö.

Og Lóa biður kærlega að heilsa þér.  Ef þú sendir mér email, mun ég láta þig fá netfangið hennar, og þar kemstu í fleiri myndir. 


Hið daglega veður og smá jólastemning.

Þá er komið að hinu daglega veðri, fyrir fólki mitt sem er ekki hér nema í huganum.  Það dimmir sífellt meira eins og sjá má, og þessar myndir sem teknar voru í morgun, gætu þess vegna verið teknar í ævintýralandi.

IMG_0677

Takið eftir birtunni á toppnum, þar sem sólin nær aðeins að teygja geislana sína yfir svartnættið.

IMG_0678

Þetta eru enginn Grimmsævintýri heldur raunveruleikin.

IMG_0679

Hér búa örugglega álfar og tröll, ef vel er gáð.

IMG_0681

en það birtir aðeins yfir hádaginn hehehehe..

IMG_0682

Það virkar nú aðeins dimmra en í rauninni það er.  En ekki mikið.

IMG_0683

En dagurinin þokast áfram.

IMG_0689

Og það verður sæmilega bjart.

IMG_0680

Þessi er aðallega tekinn fyrir Rannveigu. Engi í jólabúningnum.

IMG_0687

Og smá jólastemning fyrir alla hina.  Þetta eru fyrstu barnabörnin mín, myndin tekinn í dag, þau voru í heimsókn hjá pabba sínum, en eru núna í þessu á leiðinni suður heim aftur. Nema stubburinn náttúrulega, hann fékk að fara með í heimsókn sem ég fór í til móður afa og ömmu. 


Morgungullkorn dagsins.

Það kemur stundum til mín á morgnana svona gullkorn, ég gleymi þeim oftast, en ætti sennilega að leggja þau á minnið.  Því mörg þeirra eru afskaplega viturleg, hvaðan sem þau koma.

Morgun gullkornið sem kom til mín í morgun hljómar svona;

Ef enginn kemur á eftir þér og tekur við ævistarfi þínu, þá koðnar það niður og gleymist. 

IM001791

Fyrstu barnabörnin mín.  Nú eru þau sautján og það átjánda kemur í janúar.Heart


Bloggfærslur 10. desember 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband