8.11.2007 | 18:26
Duglegur stubbur, sól og frostrósir.
Við hjónin fórum með ungann okkar hann Úlf á kennarafund í morgunn. Þar kom fram að hann er duglegur, veit mikið og kurteis. Eina sem er að, er að hann eirir ekki lengi í einu við sama hlutinn. Þannig er það bara. En við vorum rosalega montinn af honum.
Hann er farin að æfa Tai con Do, eða hvernig sem það nú annars er skrifað. Það þarf réttan búning, svo við ákáðum að kaupa einn slíkan. En þar sem hann var orðin eins og einn lubbi í framan, þá var eitt skilyrði, að ég mætti fara með hann til Villa Valla rakara og láta klippa hann. Það hefur nefnilega ekki mátt skerða hárið núna lengi.
Ég lofaði að taka svona yfir og eftir myndir.
Hér er hann sestur í stólinn hjá Villa Valla, þarna inni er rosalega notalegur andi, og rólyndi. Listaverk eftir Villa á hillum og myndir á veggjum eftir hann. Flottar myndir.
Hér er Villi byrjaður á lubbanum.
Þetta gengur bara vel, á bakvið má sjá Samma, hann er að vinna þarna líka, og svo kíkti Baldur Geirmunds í heimsókn, og það var auðvitað rætt um músik, og stubburinn kom ekki af fjöllum þar, sagði þeim að hann væri að læra á trommur, og spilaði bæði blues og jass.
Sko búinn og minn aldeilis vel klipptur og fínn. Og hæst ánægður með allt saman.
Ætli hún nái upp fyrir fjöllin ? hugsaði ég í morgun, þegar fyrstu sólargeislarnir léku á fjallatoppunum.
Seljalandsdalurinn baðaður sól, og fjallatindarnir í kring.
En hún sást ekki sjálf, bara glit hennar á fjöllunum.
Og svo merlar hún á sjónum.
Nei hún nær því ekki. Stundum þegar ég var barn hugsaði ég með mér, að einhver þyrfti að saga svolítið ofan af fjöllunum, svo sólin næði yfir á þessum tíma. En þá vissi ég ekki hve óþægileg hún getur verið í augunum á manni blessunin á þessum tíma, beint í augnhæð með geislana.
Já svona við vitum að minnsta kosti að hún er þarna uppi.
En hafið þið svo hugsað út í hve fallegar frostrósirnar eru, og af hverju þær myndast, og verða svona fallegar.
Nei við tökum þessu örugglega sem sjálfsögðum hlut. En er það svo ? Og fyrst þetta er svona, er þá ekki alveg tilvalið að njóta þess að virða þær fyrir sér og dáðst að þeim, meðan þær eru. Þær eru hvort sem er einu rósirnar sem blómstra úti á veturna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Bloggfærslur 8. nóvember 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar