Myndir frá því í dag.

Ókey ég skil ekki alveg af hverju myndirnar sáust ekki, en meðan ég grauta í þessu, þá ætla ég að setja hér inn nokkrar fallegar myndir sem ég tók í dag.  Þessi dagur var ægifagur og góður.

En fyrst smá skammir,

IMG_0249

Í gær þegar ég var að rölta heim eftir tónleikana, sá ég þetta hér, beint fyrir framan löggustöðina,

bílför yfir laukabeðið.  Þú sem þarna varst að verki ættir að skammast þín, hér hefur verið lögð mikil vinna og natni í að gróðursetja lauka, sem áttu að skarta sínu fegursta í vor.  Með þessu hefur þú gert þær vonir að engu.  Eru vegirnir ekki nógu breiðir fyrir þig ? Eða hvað varstu eiginlega að hugsa ?

Ég vona að þú kunnir að skammast því fyrir að virða ekki verk annars fólks meira en þetta. 

oOOo

En að myndunum frá því í dag.

IMG_0251

Þetta er eiginlega líkara tússmynd ekki satt.

IMG_0252

Og litirnir eru svo fallegir á þessum tíma.

IMG_0254

Það er greinilega logn.

IMG_0256

Gallerí himin opið.

IMG_0257

Ég held að sólin eigi erfitt uppdráttar núna og þess vegna skín hún í skýin.

IMG_0258

Og fjöllinn endurspeglast í sjónum.

IMG_0260

Og svo þegar kvöldar, þá er fegurðin engu lík.  Það hefur ekki verið átt neitt við þessar myndir.

IMG_0262

Fallegt ekki satt ?

IMG_0264

Ég segi fyrir mig, ég ætlaði ekki að tíma að fara inn. Þetta var svo fallegt. 


Ferðasagan framhald. Frá Palenque til Guatemala.

Jæja þá vona ég að allir sjái myndirnar.  

Ferðasaga Cesiljar.  Framhald.  Frá Palenque til Guatemala.   

Við lögðum af stað kl. 6 um kvöldið til Palenque.  Vorum kominn þangað um miðnæturbil, tókum leigubíl og báðum hann að aka okkur á gott hótel í miðbænum. Þetta var sæmilegt hótel, en við ákáðum að vera þar aðeins eina nótt, vorum reyndar ekki viss hvort við ætluðum að dvelja lengur.  

Vöknuðum snemma og fengum okkur morgunmat.  Fórum á nokkra matsölustaði, en hvergi fékkst bjór svo Cesilína varð að láta sér nægja að vatn með matnum, þvílíkir púrítanar. Vorum búin að ákveða að halda áfram að landamærunum.   

Við tókum leigubíl upp að Mayarústunum.  Þær voru stórkostlegar miklu öðruvísi en í Teotihuacan.  Svæðið hefur verið skannað með infra rauðu ljósi og þar sést að um 1500 byggingar eru á svæðinu, en einungis 5%  þeirra eru á yfirborðinu, sumar eru faldar í frumskóginum, aðrar undir jarðvegi.  Þarna voru listamenn með verk sín, áteiknaðar fjaðrir, og leðurmyndir.  Auk allskonar hálsmena og armbanda.  Eyddum góðum hluta dagsins að reika þarna um og skoða. 

001

Frá rústunum í Palenque Þetta er drottningarhofið.

002

Glæsilegar byggingar.

003

Og svo allt öðruvísin en í Teotihuacan.

Við ákváðum að fara ekki að landamærunum þennan dag,  fórum og fengum okkur annað hótel, gott hótel með sundlaug og alles sem nefnist Casa inn. 

Skruppum í laugina og fórum svo í miðbæinn.  Þar sem hótelið er aðeins fyrir utan miðbæin, fengum við okkur leigubíl.  Mágkona mín, lummaðist við að skrifa niður númer bílsins og nafn leigubílstjórans, vegna aðvarana bílstjórans í San Cristobal.  Ég bað hana að fá nafnið á hótelinu og heimilisfangið svo við kæmumst nú aftur þangað um kvöldið.  leigubílstjórinn skrifaði þetta samviskulega niður á gulan miða, sem mágkona mín passaði upp á, sem betur fer.  Svo röltum við um í bænum, og fengum okkur bjór og Tequila eins og gengur, vorum að vandræðast yfir því að hr. Cesil hefði gleymt myndavélinni upp á hóteli. Ég keypti mér teppi til að hafa í rútunni, það er gott ef maður ætlar að leggja sig, því þeir erum alltaf með loftkælinguna á fullu.   

004

Flottar í rútunni.

Þegar við ætluðum heim á hótel, gengum við aðeins áleiðis og veifuðum næsta leigubíl, hann opnaði rúðuna og við sáum að hann er með farþega, hann stoppaði og sagði “þið eruð fólkið með myndavélina”.  “Nei nei” sagði hr. Cesil “við gleymdum henni á hótelinu.”  “Nei” sagði maðurinn “þið eruð fólkið sem gleymdi vélinni í framsætinu hjá mér, ég þekki gula miðan sem Senjora heldur á.  En ég þarf að fara með þessa farþega, og kem síðan aftur.  Ég fór með myndavélin niður á stöð, og við verðum að sækja hana þangað, bíðið bara.”  Og við gerðum það.  Kom svo ekki gæinn ók okkur niður á stöð, og þar var digitalmyndavélin með öllum myndunum sem við vorum búin að taka á ferðalaginu. Og án hennar hefð þessi saga nú verið heldur litlaus.  

005

Hér sjáum við hinn heiðarlega bílstjóra.

Við vorum búin að kaupa miða til Guatemala, fórum með sendiferðabíl, sem sótti okkur upp á hótel um 6.20. Hann tók okkur til landamæranna.  Létt rigning var eða súld.  Við  ókum gegnum lítil þorp, þar sem börnin þustu út á götuna með lófan á lofti Peso Peso..., grísir, hænur, endur og kalkúnar vöppuðu um moldarhlað.  Húsin timburkofar eða hlaðin hús.  Göturnar bara leir og drulla eins og allt í kring um húsin.  Landslagið var fallegt háir hólar grænir upp í topp.  Við stoppuðum á bóndabæ til að borða morgunverð, þar var farið inn í skógin til að borða.   

006

Morgunverður í skóginum.

Þarna voru fleiri túristar á ferð, mest bar á ítölum og bandaríkjamönnum.  Loks komum við að landamærunum þau eru við fljótið Rio Usumacinta. Þar voru hermenn í dálitlu skýli og skoðuðu þeir farangur okkar og passana.  Svo var haldið út í langan mjóan bát, og haldið á fljótið.  Það var um klukkutíma sigling.  Siglt var upp með fljótinu,  fljótið var kolbrúnt, og í því voru allskonar hringsog og boðar.  Gróður og frumskógur til beggja handa.

007

Landamæra stöðin í Beten.

008

Klár í bátana.

009

Komin um borð  Norðmaður þarna fremst. Hr. Cesil þessi myndarlegi við hliðina á skippernum.  

Þegar við komum til Guatemale virtist það vera í miðju einskisins.  Aðeins sáum við einn ungan pilt sem bauð okkur velkomin.  Nokkrar litlar telpur svona sjö átta ára sátu niður við fljótið og þvoðu þvott og vöskuðu upp leirtau upp úr brúnleitu fljótinu, þvott og leirtau báru þær svo á höfðinu uppeftir aftur. Þegar við komum upp á bakkan blasti við býli, þar sem bóndinn lá í hengikoju, á patíóinu var einhverskonar veitingastaður, nokkur timburborð og stólar.  Ein gömul rúta var þarna, og tveir menn sem buðu okkur að skipta Pesóum fyrir Guatemalamyntina Cien Quetzales heitir hún.  Við þurftum að bíða í þrjá tíma þarna út í miðjunni á engu eins og mágkona mín kallaði þennan stað.  Það var verið að bíða eftir næsta hópi.  Loks var svo haldið af stað á gömlu rútunni sem við höfðum haldið að væri aflóga rúta, sem notuð væri sem skrifstofa.  Fyrst var stoppað við landamæraeftirlit, þar þurftum við að borga 10 dollara til að fá vísa. Hörkulegar dömur sem tóku ekki neinar mótbárur gildar, og heldur ekki Pesos. Bara dollara takk. 

010

Í miðjunni á engu.

Svo var haldið af stað til Flores.  Vegurinn var eins og tíu Þorskafjarðarheiðar.  Þess ber að geta hér, að um alla Mexócó og Guatemale, eru með reglulegu millibili hraðahindranir, í Mexícó norðantil eru malbikaðar hindranir, en sunnar þar sem eru bara malarvegir og í Guatemala voru hraðahindranirnar gerðar úr því sem tiltækt var, trjábolum eða bara grafinn skurður í veginn.  

Fyrst var ekið í gegnum frumskóg, síðan tók við lægri gróður og akurlendi, skrýtið að sjá stofuplönturnar okkar sem villigróður í skóginum, ég sá marga ættinga Acyl.  Lítil þorp með timburkofum, og svo flottum húsum inn á milli. Þarna voru líka börn, hænur, kalkúnar, svín, nautgripir og geitur á vappi umhverfis híbýli manna.   

Í einu þorpinu kom lítill ellefu ára snáði upp í strætóinn.  Hann var að fara í kaupstaðinn að kaupa 3”nagla klukkutíma ferðalag.  Minn var uppáklæddur í fínni skyrtu, pressuðum buxum og blankskóm.  Hann sagði okkur að hann væri þrjá tíma í skólanum, og svo væri hann að hjálpa pabba sínum sem var smiður og verktaki. Þeir voru að smíða hurðir, sagði hann hreykinn og voru á undan áætlun.  “bærinn” reyndist vera þorp með lítilli verslunargötu.   

011

Á leið í kaupstaðinn að kaupa 3”nagla. Og mágkona mín er þarna með honum.  Hún býr í Mexócó og talar þess vegna reiprennandi spænsku, sem kom sér vel alla ferðina.

012

Naglakaupstaðurinn.

Loks komum við til Flores.  Fórum á gott gistihús og ætlum til Tíkall á morgun.  Gista hér aðra nótt og fara svo til Belize. 

Okkur var sagt að Best væri að fara snemma og vera í Tíkall við sólarupprás, þá myndi maður heyra í dýrum skógarins.  Við vöknuðum því kl. fjögur til að vera ferðbúin kl. fimm.  Rútan kom náttúrulega ekki fyrr en kl. hálf sex, og það er klukkutíma akstur upp í regnskóginn, svo það var ljóst að ekki myndum við heyra mikið af náttúrulegum dýrahljóðum.   

Þegar við komum til Tíkall voru þar veitingastaðir svona frekar frumstæðir, sem sagt einhvers skonar skúrar með tjaldyfirbreiðslum og langborðum.  Ekki var mikið lagt í borðbúnað, og voru bollar og undirskálar sitt af hvorri gerð, sumir bollarnir skörðóttir, og meira að segja þegar við fengum okkur ávaxtasafa þá var ljóst að rörið sem fylgdi hafði verið vaskað upp og endurnotað.  En maður lætur nú ekki svona smámuni á sig fá. 

013

Byggingar við Grand Plaza, og Cesil þarna í forgrunni.  

014

Hið glæsilega hof Stóra Jagúarsins.

Rústirnar í Tíkall voru alveg meiri háttar.  Byrjuðum á að skoða the Great Plaza Þar sem hof I og II standa hvort á móti öðru eins og tveir risar.   Hof I er talið kennileiti Tíkall þekkt sem Temble of the Giant Jagúar. Hofið sem er týpiskt Mayahof var byggt um það bil Anno Domino 700. hæð þess er um 145 fet, þar sem það gnæfir yfir stóra torginu.  Beint á móti hofi I stendur hof II.   Temple of the Masks. Hæð þess er um það bil 125 fet. Byggt á sama tíma. Talið er að Mayar hafi komið þarna fyrir um það bil tvöþúsund  og fimm hundruð árum að minnsta kosti.  Svæðið sem þeir byggðu á var stórt og margar veglegar byggingar standa upp úr frumskóginum og má sjá enn þann dag í dag.  Margar byggingar eru samt huldar bæði skógi og jarðvegi. Flestar byggingarnar voru byggðar frá 550 til 900 A.D. Um 3000 byggingar bæði stórar og smára hafa fundist á svæðinu, en erfitt er að halda þessu við og grafa upp, því skógurinn eirir engu.  Athygli vekur steinar líkt og grafsteinar útskornir og með hringlaga stein fyrir framan.  Mikið er af þeim þarna.  Sumstaðar inn í skóginum má sjá leifar að slíku, þar sem gróðurinn hefur lagst yfir steinana og njörvað þá niður, eða sprengt sér leið gegnum þá.  Mjög merkilegur staður og gaman að ganga þarna um og skoða.  Ekki spillti fyrir að hitta fyrir ættingja mína sem sveifluðu sér kátir  í trjátoppunum.  

Við fórum svo til baka til Flores um eftirmiðdaginn, fórum í sturtu og gengum í bæinn og fengum okkur bjór.  Fólkið hér er afar vingjarnlegt og elskulegt.  Hér er fólkið fallegra en í Mexícó, fíngerðara.  Indíjánarnir eru þó svipaðir.

015

Gengið um í frumskóginum að skoða minjar.

Hótelið sem við gistum á heitir Beten.  Svæðið í heild heitir Beten,  hér eru ekki héruð, heldur eru nokkrar borgir í samstarfi.  Floresbær er eyja með 9000 íbúum.  Höfuðstaður borgarkjarnanna heitir líka Beten.  Í þessu bæjasamfélagi eru 12 bæir. 

Svarti kristur er upprunnin í Beten.  Þegar við vorum þarna var Karnival í gangi, til heiðurs Svarta Kristi.  Við vorum þarna síðasta dag Karnivalsins, og þá var skotið upp flugeldum, og mikið um dýrðir. 

016

Hótel Beten.

017

Horft út yfir vatnið í ljósaskiptunum frá hótelsvölunum.

018

Fiskur úr vatninu.  Hann bragðaðist vel.

Við fengum okkur ljúfengan kvöldverð á hótelinu, fengum okkur fisk úr vatninu sem umlykur Flores, auðvitað skolað niður með eðalrauðvíni, og herlegheitin á hlægilegu verði.

Við fórum samt snemma í háttinn því rútan átti að koma klukkan fimm um morguninn til að ná í okkur og fara áleiðis til Belize. 

Hún kom 5.30 latneskt tímatal, til að ná í okkur.  Okkur hafði verið lofað lúxusrútu, en þetta sem kom var nú samt einhver endemis garmur.  Það er tveggja tíma akstur að landamærunum, og annað eins til Höfuðborgarinnar Belíze.  En við ætluðum ekki að stoppa þar heldur fara út á eyju sem heitir Kaye Caulker.

Meira um það næst. 


Mugiboogie tónleikar í Edinborg.

Ég fór á tónleika hjá Mugison í kvöld.  Alveg déskoti góða. ég var svo heppinn að komast upp á svalir, þar sem vel sást yfir salinn.  Þar var Þorsteinn myndasmiður, ljósamaður og alltmúlig mann, og hann kenndi mér ýmislegt, hann er alveg frábær maður, með fallega sál. En sum sé hér var ég og skemmti mér alveg konunglega.

Hér sjáum við Mugimama, hún virðist hafa áhyggjur.  Skiljanlega, sonurinn kom akandi að sunnan í dag i leiðinda veðri, og við mömmurnar erum sífellt með áhyggjur af ungunum okkar ekki satt ?

IMG_0175

En tónleikarnir voru hreint dásamlegir, þeir byrjuðu með nokkrum rokklögum, og ég vissi um leið að ég er rokkari ennþá þrátt fyrir allt, það bara dúndraðist allt inn í mér við fyrstu trommutaktana, mikið rosalega getur maður verði háður þessum rosatakti. 

IMG_0174

Það var töluverð eftirvænting í loftinu í kvöld.

IMG_0193

Tveir Mugison á sviðinu.... Gasp  Hehehe ó nei, ég varð að fikta smá.

IMG_0215

Það er sko tilfinning í þessu hjá strákunum.

IMG_0225

Úff já það var sko aldeilis fjör í Edinborgarhúsinu í kvöld. 

IMG_0188

Allt frá ljúfum ballöðum upp í feikna rokk.

IMG_0236

Og ekki var allt hefðbundið, það er öruggt mál.

IMG_0237

Fjör fjör fjör.

IMG_0242

Líka fjör í pásu, þau eru félagar í LL og voru örugglega að vinna að Skuggasveini, hér er Tóta vinkona mín og Hrafnhildur leikstjóri.

IMG_0244

Og hér eru Vagnsbræður úr Bolungarvíkinni.  Miklir tónlistarmenn eins og þau systkin öll.

IMG_0241

ég nappaði svo Mugipapa út af tónleikunum til að smella af mynd, og auðvitað með tengdadóttur minni.

IMG_0246

Hér eru þeir svo saman feðgarnir, það var áritaðir diskar í gríð og erg.

IMG_0248

Skemmtilegt umslag og eigulegt segi það nú bara.

IMG_0250

Og auðvitað fékk ég áritun, ekki spurning.

 


Bloggfærslur 7. nóvember 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband