Að raska ró Faraóanna.

Það setur að mér óhug að lesa þessa frétt.  Ég átta mig ekki á því, hvort þar er um að ræða sögur sem maður hefur lesið um hefndir múmía, eða jafnvel sú hugsun að þar sé eitthvað dularfullt og stórkostlegt að gerast.  Ég man þegar vinkona mín og systur fóru til Egyptalands, þær fóru í svona pýramýdaferð.  Og ég veit að sú ferð hafði ótrúleg áhrif á þessa vinkonu mína.  Og það sem meira var, ég fann fyrir veru við hlið hennar lengi á eftir, í einmitt svona galla eins og myndin í fréttinni sýnir.  Hún hafði líka martraðir, og endaði með því að ég leitaði til sálarrannsóknarfélagsins í Reykjavík til að hreinsa út hjá henni.  Ég er alveg viss um að þarna elti hana einhver alla leið heim.  Við vitum ekki hvað svona lagað getur haft í för með sér, og við vitum ekki heldur hve öflugar þessar verur voru.  Það sem er nokkuð ljóst gegnum sögurnar er, að hefnd þeirra getur verið grimmileg ef þeim misbýður, til dæmis eins og það að bera andlit sem á að vera hulið gullnri grímu.  Ég hefði aldrei þorað þessu raski á friðhelgi faraós.  No Way. 
mbl.is Hulunni svipt af andliti gullna faraósins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölskyldan mín frá El Salvador.

Ég var í matarboði í gær.  Þar var á boðstólum rosalega góð Mexicósk súpa, og frábær eftirréttur.  Húsbóndinn er úr fjölskyldunni minni frá El Salvador, og við vorum boðin svona til að skoða nýja húsið sem hann var að kaupa sér.  Þau eru orði 4 börnin, svo það var kominn tími til að fá sér stærra húsnæði.  Enda er hann komin í góða stöðu, sem steypustöðvarstjóri og kennari í spænsku.

Foreldrar hans og Alejandra voru þarna líka í matarboðinu. 

IMG_0138

Hér eru þau Pablo og Ísabel, litla stúlkan er Isobel Liv dóttir Rolando sonar þeirra, sem þurfti að flýja með þeim.

Þau sýndu mér bréf sem þau voru að fá frá lögfræðingi í El Salvador, sem boðaði ekkert gott fyrir þau.  Þar var þeim tilkynnt að allir pappírar sem þau hafa sent, væru annað hvort úreltir, eða ekki með réttan stimpil frá Íslenskum stjórnvöldum, og það var líka ráðist skammarlega að þýðanda bréfanna.

En það væri svo sem hægt að byrja á þessu upp á nýtt ef þau borguðu meira.  Borguðu meira, spilltir embættismenn og lögfræðingar eru nú þegar búnir að hafa af mínu fólki yfir hálfa milljón ísl, króna í svona pappírsvesen.  Og ekkert gengur og rekur, þau eru höfð að féþúfu.  Og hvers vegna, jú það er vegna krafna frá pappírsdýrum hér heima, sem taka ekki gilda undirritaða og staðfesta undirskrift frá báðum foreldrum Alejöndru um að þau Isabel og Pablo Díaz hafi full leyfi þeirra til að fara með hana hvert sem er í heiminum og sérstaklega til Íslands, og það leyfi gildir til 18 ára aldurs.  Þetta plagg er viðurkennt í Bandaríkjunum sem löggilt, en ekki hér.

Fólkið mitt frá El Salvador er sem sagt orðið bitbein milli spilltra embættismanna í El Salvador, og möppudýra á Íslandi, sem taka ekki tillit til aðstæðna. 

Það er mikill spilling í El Salvador embættismenn ganga þar fyrir mútum og slíku.  Þó sumum finnist að hálf milljón sé ekki stór peningur, þá er hann það miðað við verðlagið í El Salvador og svo fyrir fólk sem þurfti að flýja mafíuna þaðan, með tvær hendur tómar, koma sér hingað og byrja hér nýtt líf.  Mafía sem drap foreldra konunnar, og gengur ennþá laus, fóru sem sagt aldrei í fangelsi, þess vegna flýðu þau.  Vissu sem var, að bófarnir kæmu sínu fram, án afskipta löreglunnar.

Þau sóttu nýlega um íslenskan ríkisborgararétt, öll fjölskyldan, líka sonurinn hann er búin að vera hér í 7 ár þann 13. desember en þau í maí á næsta ári.  Þau spurðust fyrir um hve langan tíma þetta tæki, jú þau þurfa að bíða í 6. mánuði til ár, eftir að frá svar. 

Og ég var að hugsa, hvað er það eiginlega sem tekur svona langan tíma að kanna, með fólk sem hefur verið hér sjálfum sér og öðrum til sóma í tæp sjö ár.  Elskulegt, stálheiðarlegt og sjálfstætt fólk.  Í sumum tilvikum ef réttir aðilar fara fram á það, tekur það um sólarhring.  Erum við ekki að tala um jafnræði þegnanna og að allir séu jafnir fyrir lögum.  Ég er satt að segja alveg gáttuð á þessu stafakróksveseni hjá útlendingastofu, eða hvar það nu er sem hnífurinn stendur í kúnni. 

Af hverju þurfa þau að vera fórnarlömb fjárkúgarana frá sínu fyrra landi, í boði íslenskra  yfirvalda ?Af hverju þurfa þau að hafa áhyggjur og sorg, vegna þess að pappírar sem allstaðar annarstaðar væru teknir gildir, eru ekki samþykktir hér ? Enginn hefur krafist þess að Alejandra væri framseld, enda hvert ætti að senda hana.  Hennar eina sanna fjölskylda er hér, og það eru til pappírar upp á það.  Undirritaðir í viðurvist lögfræðinga sem fóru gagngert frá Bandaríkjunum til að fá þá undirritun. En nei, það er bara haldið áfram að krefjast ættleiðingar, þó allir pappírar þar um hafi glatast í jarðskjálftanum.  Og þó vita sé að spilling er grasserandi, og öllum fjármunum sem þau hafa sent til að greiða úr málinu, hafa hafnað í vösum spilltra manna.  Væri nú ekki nær að þetta fé færi í gegnum íslenskt hagkerfi í formi neyslu?  Spyr sú sem ekki veit.  En ég er reið, ég er ekki reið við þetta spillta lið þarna úti, vegna þess að það sér þarna tækifæri til að maka sinn krók.  Ég er reið út í það fólk hér heima, sem viðheldur þessu máli, og hefur í skjóli einhverra lagakróka neitað að taka á þessu máli lá mannlegum nótum.  Ég ætla svo sannarlega að vona að þar verði bragarbót á.

Ég mun allavega ekki liggja á mínu liði til að leyfa fólki að fylgjast með því.

IMG_0140

Þetta er hann Ísacc Logi Díaz, mamma hans er íslensk, faðir hans er frá El Salvador, og hefur sótt um íslenskan ríkisborgararétt. 

IMG_0153

Hér er hann að leika við pabba sinn.  VÚ týndur ?? Fundinn !!

IMG_0157

Og svo afa í kúlu, það er nefnilega afi og amma í kúlu, og svo eru abuelo og abuela það eru hin afi og amma.

IMG_0144

Hér er svo Eva Rut hún er stjúpdóttir Rolando.  og svo sést í Alejöndru. 

IMG_0150

Fjölskyldan mín, upp í stiganum er hún Isobel Lív Díaz.

IMG_0160

Hér er svo ömmustubburinn, hann vildi opna dyrnar fyrir okkur, en er of stuttur, svo hann náði sér í fótaskemil LoL Var reyndar ekki alveg búinn að hugsa dæmið til enda.

Ég vil samt taka fram að þó ég sé reið, þá eru þau það ekki.  þau vilja bara að málið komist í höfn, eru búin að leggja svo mikið á sig, og vilja allt gera til að málið komist í höfn, og Alejandra litla geti verið hér örugg í faðmi fjölskyldunnar þeirra einu sem hún þekkir, og vilja að rétt sé að öllu farið.   Það gerir mig jafnvel ennþá reiðari fyrir þeirra hönd.


Bloggfærslur 4. nóvember 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband