3.11.2007 | 15:22
Sving og stórsveit Ísafjarðar og Bolungarvíkur.
Eins og ég sagði áðan, þá fór ég eftir frábært hrekkjavökupartý á tónleika hjá Stórsveit Ísafjarðar og Bolungarvíkur.
Þetta voru mjög góðir tónleikar, þrátt fyrir stuttan æfingartíma, en flestir félagar sveitarinnar eru félagar í lúðrasveit tónlistaskólans. Það er hin þýska tónlistarkona Íris Kramer sem æfir sveitina, þar voru spiluð svinglög og mjög skemmtilegt lagaval.
Íris að stjórna, þarna má sjá Baldur Geirmundsson nýkrýndan bæjarlistamann Ísafjarðarbæjar.
Mamma þarf ég að koma með þér á hljómleikana ? Já sonur minn. Ókey, ég hef þá bara eitthvað meðferðis til að lesa.
Það var fjölmenni í salnum. Þarna má sjá Kristján Viggósson, systir hans Sigrúnu
Eina af okkar flottustu sópransöngkonum Guðrúnu Jónsdóttur og Huldu Braga, sem er organisti í kirkjunni og spilar á ýmis ásláttarhljóðfæri í Lúðrasveitinni. Ég gleymi aldrei þegar Guðrún söng í risastóra nýja íþróttasalnum hér, og þessi netta kona hún bókstaflega fyllti húsið með söng sínum. Maður hefði ekki trúað því að óreyndu, hún söng líka titil hlutverkið í Sound of Musik sem sýnt var hér fyrir nokkrum árum.
Þau létu sig heldur ekki vanta, Kristinn H. Gunnarson og Elsa Friðfinnsdóttir kát og glöð. Mínir menn.
Það er heilmikil stemning í salnum.
Já og sagan orðin spennandi líka.
Þessi myndarlegu hjón hafa stuðlað að menningarlífi bæjarins um áratuga skeið. Geirþrúður Charlesdóttir og Jón Guðjónsson. Þau láta sig ekki vanta hvorki á tónlistarviðburði eða leikrit hér í bænum.
Frábær hljómburður í þessu nýja menningarhúsi okkar er ekki til að skemma fyrir.
Vá og meiri spenna í bókinni.
Kempan Villi Valli hefði átt að vera þarna uppi, en hann er í einhverjum smá erfiðleikum með aðra hendina á sér, þarna er konan hans Guðný Hartmann, yndælust af öllum yndælum og Guðrún Gunnarsdóttir. Ég er svo heppinn að þekkja hana mjög vel.
Það voru þarna margir sem tóku sóló, og stemninginn var rífandi.
Maður lætur nú samt ekki neitt slíkt trufla sig, þegar góð bók er annars vegar.
Hér er einn ungur og upprennandi sólóisti, ef til vill næsti Baldur G. Hann hefur sýnt gríðarlegar framfarir frá fyrri konsertum stórsveitarinnar, svo að eftir var tekið í gær. Enda eru margir af hans ætt þarna í sveitinni, móðir hans, móðurbróðir, afi.
Hér er Matis, hann stjórnar lúðrasveitinni. Hann kemur frá AusturEvrópu, einn af þeim frábæru tónlistarmönnum, sem okkur hefur hlotnast að fá hingað og dvelja og auðga menningu okkar með færni sinni.
Og ekki lætur maður nú fjörið trufla sig, aldeilis ekki.
Valkyrjan Íris Kramer, hún bregður sér í hvaða hlutverk sem er þarna uppi, og er alveg frábær tónlistarmaður og stjórnandi.
Baldur tekur líka sólóinn eins og ekkert sé.
Pabbi minn er að spila í kvöld.
Frábært.
Slagverksleikararnir og bassin, eru auðvitað lykillinn í svinginu.
Bókin búin ?
Og sumir spila með öllum líkamanum... Sorrý Íris mín ég bara varð. Þetta var ótrúlega fyndið.
Sigrún Gerða var flott í gær eins og alltaf, við ætlum í plöntuleiðangur í garðinum þeirra Einars Odds þegar veður og færi gefst.
Þessir eiga eftir að setja svip sinn á tónlistarlífið, Halldór Smárason er einn af mínum uppáhalds píanóleikurum. Vonandi tekst okkur að halda honum kjurum í bænum.
Hér sjáið þið fjölskylduna, við hliðina á Írisi, móðir sonur, bróðir og afi. Músíkölsk fjölskylda.
'Okey það þurfti Jailhouse rock með trukki til að vekja strákinn.
Stórkostlegir tónleikar. Íris sagði eftir þá, að fólk gæti pantað sveitina við ýmsar uppákomur, og ég vil leggja til að við fáum þau til að spila á aðventunni. Ég spurði hana hvað það myndi kosta, og hún svaraði svona um það bil 40.000. kall. Eigum við ekki að safna í einn konsert eða svo. Það veitir ekki af svona í svartasta skammdeginu að svinga með góðum tónlistarmönnum. Til er ég að leggja í púkkið.
Vil eiginlega skora á hann Jón Sigurpálsson að koma því á koppinn, ég ætla að byrja að heita á verkefnið með því að leggja til 5000.- kall frá mér, og skora á aðra að taka við boltanum og gefa eitthvað líka. Við erum ekki lengi að safna upp í 40.000 kallinn skal ég segja ykkur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.11.2007 | 11:05
Hrekkjavaka í kúlunni.
Já það var sem sé Hrekkjavökupartí í kúlunni í gær. Eitt barnabarnið Daníel Örn fékk þessa frábæru hugmynd, og fékk svo leyfi hjá ömmu sinni til að halda veisluna. Hún var ákveðin með góðum tíma. Ekki var verra að Úlfurinn hafði fengið leyfi til að kaupa Graskerið góða, og nú var hringt í ömmu í vinnunna og áhyggjur beraðar af því að ég var ekki kominn heim til að gera að graskerinu. Ég sagði þeim að graskerið yrði tilbúið í tíma.
Það var því með nokkrum ugg, sem ég réðist með hnífnum að þessum tröllvaxna ávexti.
ég get frætt ykkur um að það er heilmikið kjöt í honum.
Þarna voru mjög áhugasamir aðstoðarmenn.
Kjötið fjarlægt.
Þá var komið að því að skera út í flykkið Þetta var rosalega skemmtilegt.
Og hérna er árangurinn. Pumpkinið sætara en ég meira að segja.
Tengdadóttirinn Tinna bakaði fullt af pizzum, sem voru vel þegnar. Þau voru um 18 talsins krakkarnir þegar mest var. Og veislan bara rosalega skemmtileg.
Þið þarna kóngúlóafóbíufólk, hver er hræddur við svona kónguló ?
Það var farið í Limbó
Fullorðnafólkið tók auðvitað þátt líka hér er Skafti sonur minn.
Partýdömurnar voru af ýmsum stærðum og aldri. Evíta Cesil og pabbi hennar.
Þarna voru líka riddarar og ninjakarlar. Svakalega tekuru mikið af myndum, sagði riddarinn um leið og hann setti sig í stellingarna
Þessi er í boði Jennýjar, svo hún fái smá krúttkast. Hvernig smakkast ?
Þú færð klapp á kollinn
Sjáiði hvernig stelpustýrið pósar framan í myndavélina. Hún er ótrúleg, verður sennilega fyrirsæta, ekki herðartrjáategundinn samt. Heldur þessi fallega eins og hún er týpa.
Hér er frumburður sinnar móður.
Kóngulóarmenn og Batman Gaman að leika sér í dótinu hans Úlfs.
Hefðarmey frá París dettur manni í hug.
Sjóræningjar.
Ljóska ? Ónei, þetta er strákurinn sem stóð fyrir þessu öllu hann Daníel Örn.
Allt í fullum sving.
Meira að segja Zorró orðinn spenntur.
Þetta er alveg nóg málning á mig, þakka þér fyrir !
Pizzurnar hennar Tinnu voru vel þegnar, enda góðar.
Nammi namm.
Summum fannst erfitt að sjá út.
Flottir gaurar.
Eins og ég sagði, kóngulær geta verið ansi krúttlegar.
Ef þið hafið haldið að amma Kúl ætlaði ekki að taka fullann þátt, þá er það misskilningur.
Og þeim fannst amma bara ansi flott.
Og ömmu fannst sþau frábær líka.
Já það voru ýmsar fígúrur á ferðinni. Tinna sjóræningi.
Og auðvitað urðu þeir að slást riddararnir, hvað annað, allt í góðu samt.
Hér er hann upphafsmaðurinn, og í pels af ömmu.
Smá hópmynd, hér vantaði samt nokkra, það er ekki hægt að safna svona stórum hópi saman hehehe þau eru út um allt.
Kraðak af kátum krökkum
Já þau voru mörg, og hér eru ekki einu sinni allir, eins og ég sagði áðan, þau voru 18 stk.
Sá hlær best sem síðast hlær eða þannig
Vona að þið hafið notið sýningarinnar. Ég varð eiginlega að setja inn svona margar, af því að ég tímdi ekki að sleppa neinni. Þetta var virkilega gaman, og sýnir að bestu skemmtanirnar eru þegar allir skemmta sér saman ungir sem aldnir. Það er í raun og veru alltof lítið gert af því á þessum tímum aðskilnaðarstefnu fjölskyldumeðlima. Þegar ungabörnin fara á vöggustofu, í leikskólann, skólann, mamman og pabbinn í vinnuna, amman og afinn á elliheimilið. Þarf þetta að vera svona ? Er ekki einhversstaðar millivegur þar sem stórfjölskyldan fær að hafa meiri tíma saman.
Eftir þessa skemmtilegu veislu, fór ég svo á stórtónleika í Edinborg. Það var Stórsveitinn sem lék og var aldeilis frábært. Ég ætla að setja myndir af því hér inn seinna í dag. Meiriháttar skemmtilegir tónleikar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Bloggfærslur 3. nóvember 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar