Svona inn í helgina.

Í dag var lognið svolítið að flýta sér eins og sjá má.

IMG_0494

Það rýkur upp sjórinn við flugvöllinn.

 

IMG_0495

Sést betur hér.

 

 

IMG_0496

Þessi tekinn í ljósaskiptunum.

Og þessar myndir verða þær síðustu í bili.  Eins og ég hef reyndar sagt hér áður, þá bilaði Canon myndavélin mín um daginn, svo ég sendi hana suður í viðgerð.  Hún er ekki kominn aftur.  En ég hef notað aðra gamla vél sem ég átti.  En ég ákvað að lána El Salvadorunum mínum hana svo þau gætu tekið myndir á heimaslóðum.  Svo nú er engin myndavél á heimilinu.

Ég er að fara suður á morgun, að hitta mína Frjálslyndu félaga, og á myndasýninguna hennar Katrínar á laugardaginn, því miður þá verður enginn myndavél í för.  En bara góða skapið og ánægjan af að hitta góða vini.

Ef til vill fær ég myndir frá þeim í staðin frá ferðalagi þeirra.  það væri svo sem gaman að fá El Salvador beint í æð frá heimafólki.  Við sjáum nú til. 

En sem sagt, verið stillt og prúð á meðan ég er í burtu.  Þið sem hafið áhuga á að hafa samband, getið hringt í mig, í gemsanúmerið, er í símaskránni.  Það væri svo sem mjög gaman að hitta ykkur. 

 

 


Bloggfærslur 29. nóvember 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband