Menningarblogg.

Ég ætlaði að vera í leikhúsi í kvöld.  En sýningunni var því miður frestað.

Mamma og Inga Júl. 002

Skuggasveinn var víst fyrsta leikritið sem sýnt var á Ísafirði. Því er gaman að Litli Leikklúbburinn skuli nú sýna það leikrit hér í fyrsta sinn i nýjum sal Edinborgarhússins.  Við höfum lengi átt draum um leikhús, og nú hefur það ræst.  Vonandi kemst ég á sýningu hjá þeim síðar.

Mig langar líka til að sjá sýningar Elvars Loga Jónas Hallgrímsson á Hótel Ísafirði, og Jólasveina Grýlusyni í Tjöruhúsinu.  Ég er viss um að þessar tvær sýningar eru vel þess virði að koma og njóta þeirra.

En á næstu helgi verð ég í borg óttans, ætla á miðstjórnarfund Frjálslyndaflokksins, og svo á jólahlaðborð.  Hlakka mikið til að hitta félaga mína þar og eiga við þau létt spjall yfir veisluföngum.

Þá ætla ég líka að nota tækifærið og fara á myndlistarsýningu hjá bloggvinkonu minni Katrínu Snæhólm.  Vonast jafnvel til að hitta fleiri bloggvini þar. 

En í dag datt inn um bréfalúguna hjá mér boðsmiðar á frumsýningu á kvikmyndinni Duggholufólkið, Nútíma ævintýri, sem verður 5. desember n.k.

Sjá hér;

Duggholufólkið frumsýnd um jólin

Barna- og fjölskyldumyndin Duggholufólkið verður frumsýnd um jólin en hún er fjallar um Kalla, 12 ára borgarbarn og tölvuleikjaunnanda, sem sendur er til Vestfjarða til að dvelja hjá föður sínum yfir jólin. Þar kemst hann í hann krappan þegar sýndarævintýri skjáheima breytast í alvöru ævintýri. Þar sem sagan gerist að stórum hluta á Vestfjörðum og fóru töluvert af tökunum fram fyrir vestan. En innitökur fóru hins vegar fram í stúdíói í Reykjavík. Myndin byggir lauslega á sögu um að eitt sinn endur fyrir löngu hafi 18 manns farist við Dugguholu Gilsbrekkudal í Súgandafirði á leið frá jólagleði að Hóli í Bolungarvík. Í burðarhlutverkum eru tvö 11 ára gömul börn, þau Þórdís Árnadóttir og Bergþór Þorvaldsson. Auk þeirra fara með helstu hlutverk Brynhildur Guðjónsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Erlendur Eiríksson og Magnús Ólafsson. Auk þess eru margir Vestfirðingar í aukahlutverkum.

Leikstjóri og handritahöfundur er Ari Kristinsson en hann er einna þekktastur fyrir barnamyndirnar Pappírs-Pési og Stikkfrí sem slógu svo rækilega í gegn fyrir nokkrum árum.

 

Dugguholafolk Þessa mynd tók ég út Bæjarins besta.

Ég var með í upptökum einn dag  í vor.  Það var mjög skemmtilegt og fræðandi að eyða deginum með þessu skemmtilega og yndæla fólki.  Við fórum svo aðeins að skemmta okkur á Langa Manga um kvöldið.  Margrét Ákadóttir var líka með í hópnum. 

Jamm skemmtilegt.

Duggholufólkið

Svo þið sjáið að það er mikið að gera í listalífinu hjá mér.  Og mikið um að vera á þessum tíma í menningunni hér á Ísafirði.  Bara spurning um hvað maður hefur mikinn tíma til að njóta þess alls sem í boði er.


Draugar og daglegt veður.

Já hér er hið fegursta veður í dag svo sem og aðra daga flesta.

IMG_0472

Tunglið tunglið taktu mig og berðu mig upp til skýja.

IMG_0477

Ef til vill get ég náð þér með þvi að teygja mig frá fjallatoppum Eyrarfjallsins.

IMG_0475

Ég segi það satt, þetta er alltaf jafn fallegt.

IMG_0481

Í mínum augum það er.  Og nú er farið að koma gulur litur, eftir því sem á morguninn líður, sjáið hvernig birtan glampar á sjónum.

IMG_0486

Já og nú er himinn gulur. Þetta sjónarspil er ókeypis fyrir alla sem vilja líta upp úr amstri dagsins og bara njóta.

IMG_0483

Svona líka.

IMG_0487

Smile

Það er verið að landa úr Júlíusi Geirmundssyni í dag, hátíðlegt að sjá það.

En hér er önnur mynd úr höfninni, mynd hinna gleymdu skipa.

IMG_0484

Var ég að tala um drauga.... ?  Já einmitt.

IMG_0485

Í þessu húsi er draugur, eða maður sem er farinn héðan.  Ég hef sjálf heyrt í honum og það gerðu líka fleiri manns.  Þetta hús var flutt frá Hesteyri á sínum tíma, þegar faðir minn og fleiri keyptu það og endurbyggðu það hér á höfninni.  Það var svo notað undir skreiðarvinnslu.  Þessar dyr sem hér sjást voru aldrei notaðar, nema til að sturta inn skreiðinni, en það eru aðrar dyr innan til, sem voru notaðar, þar er líka stigi upp á loftið, þar sem ýmislegt er og var geymt, svo sem eins og net og margskonar hlutir.

Stundum þegar við vorum að vinna niðri, heyrðum við að eitthvað var dregið til á loftinu.  Einu sinni kvað svo mikið að því að húsið nötraði.  Við fórum upp til að skoða hverju þetta sætti, um leið og við fórum upp stigann, datt allt í dúnalogn.  Uppi var ekki nokkur einast maður, hvað þá að einhver væri þar sem hefði getað útskýrt hávaðann.  Við leituðum um allt loftið, en það er einn geimur.

Afi minn í móður ætt Hjalti Jónsson, sagði mér síðar að hann hefði séð þann sem þessu olli.  Hann gat lýst honum, svo að einhver þekkti hann, hann hafði svo einkennilegar hendur, stórar kjúkur á þumalputtunum.  Þetta var þá smiður frá Noregi, sem hafði fylgt húsinu.  Gat ekki yfirgefið staðinn.  Ég veit ekki hvort hann er þarna ennþá blessaður.  En ég mun aldrei gleyma þessu.  Og það heyrðu allir sem inni voru hávaðann. 


Bloggfærslur 27. nóvember 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband