Sólin kveður ísfirðinga í bili.

Eins og ég sagði áður, þá braust sólin aðeins fram í dag.  Með erfiðismunum kleif hún upp yfir fjallatinda og brosti framan í okkur sem ekki búum á Eyrinni.

IMG_0333

Dýrðin ein ekki satt.

IMG_0334

Varð eiginlega að setja myndirnar hér inn.

IMG_0335

Það er svona dálítill söknuður í þessu.  Því það verður langt þangað til hún kemur aftur, eða ekki fyrr en 25. janúar, sem hún sést niður í bæ, við hin fáum hana nokkru fyrr.  Um miðjan mánuðin byrjar hún að fikra sig niður eftir fjöllunum og sést svo loks í Sólgötunni, sem ber nafn hennar út af því, þann 25. janúar.

IMG_0336

En að öðru einn barnabarni kom í heimsókn í dag, Sóley Ebba, hún er mikil tónlistarkona og þau afi tóku smá seríu saman.

IMG_0338

Klarinettinn þandur undir leiðsögn afa.

IMG_0341

Og svo voru tekin jólalög.  Alltaf jafn gaman að svoleiðis. 


Veðrið og fjöllinn.

Gleðilegan sunnudag. Hér eru nokkrar myndir fyrir fjallafólkið mitt.  Það er fallegur en kaldur dagur.  Og nú sést sólin ekki lengur, nema bara á fjallatoppum.

IMG_0327

IMG_0328

Já hún sést aðeins í glimti.

IMG_0329

Eyrarfjallið er svo hátt, að það nær geislum hennar vel.

IMG_0330

Ský eru eins og myndtjald sem endurvarpar geislunum niður til okkar.

IMG_0331

IMG_0332

Og varpa þessu sérkennilegu litum á hafflötinn. 

Njótið dagsins hver sem þið eruð elskurnar.  Ég hef fengið margar fallegar kveðjur frá ykkur, það hvetur mig til að huga að því að senda svona myndir.  Ykkur er líka óhætt að tjá ykkur hér, og jafnvel biðja um myndir af einhverju sérstöku. 


Bloggfærslur 18. nóvember 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband