16.11.2007 | 15:49
Viðurkenning, gott veður og óbeisluð fegurð.
Stubburinn kom heim úr skólanum aldeilis glaður. Hann var með viðurkenningu í ljóða og smásögusamkeppni sem var haldinn í skólanum.
Auðvitað tók amman mynd af þessum sigurvegara.
Hér er svo ljóðið;
VOR:
Sólskin og trén blómstra,
blómin verða fallegri en nokkru sinni fyrr.
Það er að koma vor.
Það rignir og regboginn kemur.
Veturinn fer.
Ég einn í þessu ljósi og fegurð.
Svo fór hann niður í Pennann, þar fekk hann nammi, af því að við amma og stubbur erum svo miklir Harrý Potter aðdáendur, og amma keypti bókina í gær. Svo hann kom heim aldeilis rogginn með sælgæti í poka, verst að það voru ekki fjölbragðabaunir Berta, sagði hann. Ætli einhver eigi uppskriftina að þeim.... spurði hann svo
En svo nokkrar myndir frá því í dag. Hér er gott veður og hlýtt.
Fallegur dagur.
Þetta er það næsta sem við komumst að sjá sólina á þessum árstíma. En hún er þá ekki í augnhæð eins og annarsstaðar á þessum árstíma.
En svo ein gleðifregn í viðbót. Næsta sunnudag, klukkan tuttugumínútur yfir níu um kvöldið ef ég man rétt, verður heimildarmyndin óbeisluð fegurð sýnd í sjónvarpinu. Þannig að þeir sem áhuga hafa á að sjá venjulegt fólk á Íslandi blómstra, og fá smá hlátur i sinnið, þá skuluð þið endilega taka þennan tíma frá. Ég get lofað ykkur að honum er vel varið.
P.S. ef ykkur finnst að myndgæðum hafi hrakað, þá er það af því að vélin mín góða skemmdist, og ég þarf að senda hana í viðgerð. En ég á sem betur fer aðra. En hún er ekki eins góð. Ég og Canon vorum svo góðir vinir. Vonandi verður hægt að lækna hana fljótt og vel.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
16.11.2007 | 10:36
Dagur íslenskrar tungu og gamlar myndir.
Á íslensku má alltaf finna svar
og orða stórt og smátt sem er og var
og hún á orð sem geyma gleði og sorg,
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg.
Á vörum okkar verður tungan þjál
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildir hér og nú
það gerir enginn nema ég og þú.
Þórarinn Eldjárn.
Dagur íslenskrar tungu, er líka dagurinn okkar, sem hér notum tungumálið til að tjá okkur, hið ritaða mál. Við þessi smáþjóð erum heppinn að eiga málið okkar ennþá. Þrátt fyrir sífellda áreitni og viðleitni til að blanda hana öðrum málum. Einkum ensku. Skotar og írar töluðu geilísku hér áður og fyrr, í dag eru bara þeir sem eldri eru sem ennþá kunna það mál. Enskan hefur alveg tekið yfir. Sama gæti orðið um finnskuna. Í Finnlandi skiptist þjóðin í sænskumælandi og finnskumælandi finna. Það eru einhverjar reglur um að ef svo og svo mikill hluti er sænskumælandi í samfélaginu verða öll skilti að vera á báðum tungumálum. Það þarf að texta sjónvarpið. Eða svona var það allavega. Ég hugsa að sænskan verði ofan á í tímans rás í Finnlandi, þar sem það mál er líkara norðurlandamálunum en finnskan. Þannig að svo gæti farið að sama yrði um finnskuna og gelískuna. Þetta er bara svona spekulasjónir ég er enginn sérfræðingur um tungumál, en ég hef dvalið í Skotlandi og veit að skotum þykir vænt um gamla málið. Í Finnlandi var dálítill rígur milli málsvæða, þar sem finnskumælandi finnar vildu ekki læra sænskuna. En þetta getur svo sem allt verið í þátíð í dag. En svona kom þetta mér fyrir sjónir á sínum tíma.
Þess vegna er ég stolt yfir að okkar ylhýra mál er ennþá tiltölulega hreint, en það verður sífellt flatara og fátækara af orðaforða, eftir því sem tíminn líður. En það er okkar sjálfra að halda því vakandi og kjarnyrtu. Reyndar var það danskur maður sem við getum þakkað að hér varð ekki danska ofaná, þegar fyrirfólk í landinu talaði bara dönsku af því að það var miklu flottara. Þessi séríslenska snobbárátta, sem ennþá loðir við okkur. Að allt sé betra og flottara sem kemur utan að.
En sum sé, við þessi smáþjóð við eigum okkar eigin tungu, og það er ekkert sjálfgefið í þessum heimi, við skulum ekki gleyma því.
Krossgátur er eitt tæki til að viðhalda kunnáttu tungunnar. Og krossgátur eru leikfimi hugans, vinnur gegn gleymsku. Þær eru því góð afþreying.
En ég var að skanna inn gamlar myndir í gærkveldi, og ég bara verð að setja hér inn eina mynd fyrir hana Rannveigu Höskuldar bloggvinkonu mína.
Rannveig mín er er nokkuð viss um að þú hefur ekki vitað af þessari mynd af þér Steinunni og Snorra. En ég hef verið víða með myndavél, og byrjað snemma.
Og svo fyrir hana Önnu frænku mína í Svíþjóð.
Mér hefur alltaf þótt vænt um þennan fjörkálf.
Hér er hún mamma mín, með mig eða Nonna bróður einmitt í Tangagötunni, næsta húsi við Þóru ömmu þína.
Þessa tók ég nú ekki, hehehe.... en þetta er frá forsetaheimsókn til Ísafjarðar sennilega einhvertíma um 1950 og eitthvað. En hvaða reffilegi karl skyldi nú stika þarna á götunni til hliðar Sjálfur afi okkar hann Júlíus Geirmundsson, hvað annað.
Segi bara gleðilegan dag íslenskrar tungu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 16. nóvember 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar