13.11.2007 | 18:00
Veðrið í dag á Ísafirði og nýr vefmiðill.
Veðrið í dag var gott, það var held ég spáð einhverjum hryssingi með snjókomu, en reyndin var önnur.
Smá skýjadans.
Og gleiðarhjallinn tignarlegur.
Sólin sést ekki lengur nema í smáljósbrotum.
Svona.
En svo koma tvær myndir fyrir Önnu frænku mína Stefánsdóttur.
Hér stóð húsið hans Júlíusar afa. Það var rifið fyrir mörgum árum.
En ég er næstum viss um að þetta hús var húsið sem Þóra amma þín bjó í, og Stebbi skó. Svona smá sárabót elsku frænka mín.
Að lokum langar mig að benda fólki á ljómandi flottan nýjan vef sem heitir Skutull. http://www.skutull.is/
En þar hefur frábært fólk tekið sig saman um skrifa og halda honum úti. Allt í sjálfboðavinnu. Það er alveg einstakt. Og ég segi bara innilega til hamingju með flott framtak.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
13.11.2007 | 12:50
Eigum við að spara þessi jólin.
Hvernig væri nú að fólk tæki sig saman um að lámarka jólagjafirnar í ár. Tæki upplýsta ákvörðun um að gefa ódýrari gjafir. Ekki endilega ómerkilegri. Það gæti til dæmis verið eitthvað heimagert, af kærleika og góðsemi. Eða bara að gefa tíma saman. Til dæmis eldri borgara í ættinni, ég er viss um að slíkum þætti miklu vænna um að fá fjölskylduna í heimsókn, með nokkrar smákökur og knús, heldur en eitthvað sem of mikið er til af. Nú eða hlýja vetlinga, sokka eða eitthvað nytsamlegt, en sem ber vitni um umhyggju á ástúð.
Það er líka hægt að gefa myndir, eða litla jólasögu af fjölskyldunni.
Látum ímyndunaraflið ráða jólagjöfinni í ár, ekki upphrópanir auglýsendanna, eða skrautlegar hillur dótabúðanna. Við getum breytt þessu æðisgengna kapphlaupi. Við getum gefið frumlegar gjafir sem við höfum sjálf útbúið, eða látið gera. Ætli slík gjöf nái ekki meira til hjarta viðtakandans. Ég man eftir þegar börnin voru lítil og við áttum ekki of miki ð af peningum handbært, að ég bjó til dúkkur fyrir þau. Ein af þeim var hann Óli hann var prjónaður í ýmsum litum, Óli varð strax uppáhald, þó hann væri hvorki fallegur né dýr. Og þegar eitt barnið fótbrotnaði og varð að vera á spítala í nokkrar vikur, þá vildi hann hafa Óla með sér. Þá hafði einn fóturinn týnst, og það var kominn gamall ullarsokkur í stað fótar. En hann var mjúkur og hlýr hann Óli.
Svo má ef til vill gera eitthvað skemmtilegt við peningana sem sparast á þessu. Eitthvað sameiginlegt fjölskylduboð, eða út að borða eða eitthvað sem maður gerir ef til vill ekki daglig dags. Nú eða bara eiga meiri ró, vegna þess að vísakortið brann ekki yfir.
Látum þessi jólin verða kærleiks - og gleðijól, en ekki Jólin hans Mammons. Við getum alveg breytt þessu.
![]() |
Jólagjöfin í ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
13.11.2007 | 10:17
Svifryk og trjágróður.
Sá hér góða grein í Laufblaðinu, fréttablaði SKógræktarfélags Íslands frá 2005. En stendur fyrir sínu enn þann dag í dag samt sem áður. Nú í allri umræðunni um svifryk og nagladekk.
Hvernig ætli staðan sé í dag, og hvernig væri að borgaryfirvöld skoðuðu aðrar leiðir en bara strangt bann við nöglum, eftir að tíminn er orðin viðsjárverður ?
Svifryk og trjágróður.
Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin. Í vetur (2005) hefur mengun af völdum svifryks í Reykjavík verið töluvert í umræðunni. Einnig var mengun af völdum svifryks mikið áberandi á Akureyri á árinu.
Fram kom í Morgunblaðinu þann 6.12. að svifryk hafi farið 20 sinnum yfir heilsuverndarmörk á þessu ári á stöðinni í Grensási í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum frá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar.
Svifryk er talinn ein helsta orsök heilbrigðisvandamála sem rekja má til mengunar í borgum. Heilsuverndarmörk fyrir heilt ár eru 50 ug/m3 og að loftmengun fari ekki oftar yfir þau en í 35 skipti á hverju ári á einni mælinarstöð, en fjöldi skipta yfir heilsuverndarmörkum mun lækka á komandi árum samkvæmt reglugerð nr. 251/2002.
Á næsta ári er leyfilegur fjöldi 29 skipti en árið 2010 verður hann kominn niður í 7 skipti. Fyrirsjáanlegt er því að yfirvöld verði að grípa til að aðgerða á næstu árum. Reykjavíkurborg er að vinna að tillögum hvernig ráða megi bót á svifryksvandamálinu.
Ein þeirra leiða sem hægt er að fara til að berjast gegn svifryksmengun er aukin trjárækt í þéttbýli, ekki síst nærri umferðaræðum. Tré geta tekið upp sviftyksagnir auk þess sem þær setjast í barr og lauf. Laufblöðungur kannaði heimildir varðandi slík mál og fylgja nokkrar þeirra hér með. Virðast barrtré vera einna mikilvirkust við að sía/nema svifryk úr andrúmsloftinu og eðlilega bein fylgni á milli stærðar trjánna og græns yfirborðs þeirra. Kemur þá strax upp í hugann sitkagrenibeltið samsíða Miklubrautinni í Reykjavík.
Ef takast á að ná niður magni svifryks til að vernda heilsu þéttbýlisbúa er hugsanlega hægt að stórauka gróðursetningu trjáa samsíða umferðaræðum samhliða þeim aðgerðum sem geta dregið úr losun þess í andrúmsloftið. Þessi mál þlyrfti að skoða frekar.
Heimildir.
- Urban Woodlands; their role in reducing the effects of particulate pollution Environmental Pollution. Volume 99, Issue 3. 1998 347 360 K.P. Beckett, P.H. Freer- Smith og G.Taylor.
- The Urban forrest in Bejing and its roel in air pollution reduction. Urban Forestry &urban greening, Volume 3,Issue 2, 12 janúary 2005, Pages 65 78 Jun Yang, Joe Mc-Bride, Jinxing Zhou og Zhenyuan Sun.
- 3. Http://www lifesci.sussex.ac.uk/home/Kevin _Beckett.
Laufblöðungur, Fréttablað skógræktarfélags Íslands. 3. Tölublað 2005.
Planta meira greni við umferðargötur, er ef til vill góð lausn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 13. nóvember 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar