8.10.2007 | 14:48
Frá Haga til maga.
Þegar ég fór suður um daginn, þá mætti ég mörgum risatrukkum, upp á tvær til þrjár hæðir, oft með tengivagni aftaní. Þessir risatrukkar fluttu fé í sláturhús. Ég fékk sting í hjartað. Þessar vesalings skepnur, hefur enginn spáð í hvernig þeim líður í þessum flutningum ?
Ekki hef ég séð neins staðar mótmæli dýraverndunarsamtaka gegn þessum flutningum. Eða finnst slikum það ekki taka því, þar sem búið er að dæma skepnurnar til dauða. Og hvað með nautgripina sem fluttir eru í svona gámum langar leiðir, stundum beint úr hlýju fjósi til aftökustaðar.
Og til hvers er þetta allt saman ? Jú það er verið að hygla sláturhúsahöfum, alveg eins og útgerðarmenn hafa fengið fiskinn í sjónum, þá eiga sláturhúsahafar einkarétt á því að slátra. Þó flytja þurfi dýrin langar leiðir. Stundum velta þessi risavagnar og blessaðar skepnurnar deyja eða merjast.
Og allt þetta gerist í nafni "hagræðingar" þó löngu sé vitað að stórar einingar séu ekkert hagkvæmari en smáar.
Ég vil vekja athygli á þessu vonda máli og hvetja dýraverndunarsamtök til að leggjast á árar og koma í veg fyrir svona flutninga í framtíðinni.
Hér þarf að endurskoða hvort ekki sé rétt að staldra við og lesa betur reglur Evrópusambandsins um heimaslátrun. Ég las í Bændablaðinu að reglurnar væru túlkaðar allt of þröngt hér á landi, sennilega til að vernda þá sem vilja fá og stór sláturhús. Í öðrum Evrópulöndum eru allstaðar til staðar heimaslátrun, þar sem bændur geta selt almenningi sínar afurðir.
Ég er viss um að ef leyfði yrði heimaslátrun og verkun á kjöti, þannig að bændurnir sjálfir fengju að slátra og vinna kjötið til sölu til almennings, þá myndi það hleypa miklu lífi í landbúnaðinn. Þetta yrði auðvitað gert undir eftirliti dýralækna. En ég sé fyrir mér að bændur myndu sameinast um að slátra, og vinna kjötið sitt, og fólk gæti komið heim á bæina og keypt af þeim allskonar afurðir. Það yrði þá örugglega ekki bara kjöt, heldur myndu þeir líka fara að búa til meira, osta, berjasaft og sultu, og markaðir myndu koma á fót nærri neytendum í nágrenni við þá bændur sem þannig stæðu að málum. Það væri hægt að notast við færanleg sláturhús, eins og notast er við allskonar slátturgræjur.
Svona skylti myndum við þá sjá víðar, og hægt væri að versla beint frá bændunum sjálfum. Þeir sem bestir væru, myndu geta selt mest, þar yrði eftirlitið í höndum neytenda.
Þessi glæsilegi markaður er rétt hjá afleggjaranum til Akraness. Þarna gætir ýmiskonar handsverks og annars. En mikið hefði verið gott að geta keypt aðrar afurðir eins og kjöt beint af bóndanum.
Mér finnst þetta frábært framtak, en mér skilst að það hefi ekki verið auðvelt að fá því framgengt. Því hendur bænda eru bundnar af fáránlegum reglum og stöðlum, sem standast engan veginn neina skoðun eða skynsemi.
Ég er viss um að ef leyfð væri sala til almennings frá bændum, yrði það mikil lyftistöng fyrir bændurna og myndi hleypa heilmiklu lífi í sveitir landins, það væru góðar mótvægisaðgerðir.
Ég skora á bændur að flykkja sér um þetta Haga til Maga dæmi, og krefjast þess að fá að selja sínar vörur eins og aðrir. Láta reyna á hvort það er ekki brot á stjórnarskránni að hefta svo frelsi þeirra, sem ljóst er að gert er í nafni hreinlætis og umhugsunar fyrir heilsu okkar. Ég er allavega alveg óhrædd við að reyna. 'Eg vil geta keypt mér vambir og sláturefni, vélundu og annað af skepnunum í sláturtíðinni, beint af bóndanum, og ég vil geta keypt mér kjöt af nýslátruðu. Ég vil líka geta keypt mér gott rauðvín heimabruggað af bóndanum, (berjavín, jafnavel rabbabarahvítvín). Sultu, ábrystir, osta, skyr og allt hvað það nefnist.
Við viljum íslenskt. Og ég vil geta keypt það beint af býli. 'Eg vil líka sjálf ráða hvaða býli ég fæ að kaupa þetta frá. Ekki sérvalið af einhverjum ráðamönnum sem skammta leyfum til sinna manna. Sá sem er duglegastur og færastur í sinni grein á að bera mest úr býtum, og skussarnir mega eta það sem úti frýs.
Og það á enginn að "EIGA" réttin til að slátra dýrum bóndans. Hann á sjálfur að fá að ráða því hvernig hann hagar sínum markaðsmálum.
Íslenskur Sveitamarkaður það er framtíð landbúnaðarins. Það er ég viss um.
Það er komið nóg af svona haftakörlum, sem hafa haldið bændum föngnum árum saman. Nú er lag fyrir nýja tíma, fara yfir haftastefnuna og gefa spilin upp á nýtt. Bæði í landbúnaði og sjávarútvegi. Koma svo !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Bloggfærslur 8. október 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar