29.10.2007 | 23:57
Grasker !
Stubburinn minn er búin að vera að ræða við okkur afa og ömmu undanfarið um að fá að kaupa sér Grasker. Það fékkst í Samkaup eitt stórt og mikið, og hann langaði svo að fá það og skera út eins og gert er á Halloween.
Nema hvað í dag hringir hann í ömmu sína og spyr hvort ég vilji sækja hann úr trommutíma. Nema hvað; ég er niðrí Samkaup, segir hann, stend fyrir framan grænmetisborðið við hliðina á graskerinu.
Oh boy, ömmur eru náttúrulega svag fyrir svona stubbum. Sem ég kem inn í búðina, stendur hann þar ábúðarmikill, ég veit ekki hvað það er þungt amma, en "við" erum búin að vera að reyna að mæla hvað það er þungt. Það er allavega ekki eins þungt og skólataskan mín.
Við tökum kvikindið og setjum í kerruna. Já sagði ein kona sem ég þekki vel; ég sé að þið hafið tekið graskerið, hún snýr sér að mér; við vorum að reyna að vikta það til að vita hvað það væri þungt.
Flykkið reyndist vera rúm 9 kg. og kostaði yfir 2 þúsund kall. En hvað gerir maður ekki fyrir svona stubba
Jamm hér er það í allri sinni dýrð.
ég er að hugsa um að fara að rækta svona grasker, sagði stubbur. Ætli ég geti ekki bara ræktað það í garðskálanum ? Og ég veit um tvær bestu manneskjur til að hjálpa mér við ræktunina, hann blimskakkaði augunum á ömmu. Þið afi eru þau bestu.
Við skulum nú sjá til hvort fræin spíra, sagði ég.
Já en amma, ef til vill mun ég rækta stærsta grasker í sögunni. Það mun sennilega taka mikið pláss, en það verður bara að hafa það. Verst að þau taka svo mikið pláss þessi grasker.
Nú er ég búin að fá nokkrar uppskriftir frá vinkonu minni af Málefnunum.com um Graskerasúpur, Graskerabökur Graskerabrauð og fleira. Ég ætla að prófa hvort ég fæ eitthvað matarkyns út úr þessu flykki, áður en stubburinn fær það til útskurðar
En svo að lokum, tvær myndir frá deginum í dag.
Fallegur dagur. Fjöllinn eins og tússmynd og birtan eftir því.
Vonandi eigiði góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
29.10.2007 | 13:49
Áskorun til stjórnvalda og almennings.
15. milljarðar er mikill peningur. Menn hneykslast á því að þessu fé sé verið til að styrkja bændur í landinu. Ég ætla út af fyrir sig ekkert að tala um það í sjálfu sér, hvort þetta sé of mikið. En ég er alveg viss um að hluti af vandræðum í landbúnaði eru höftin og kvótarnir sem bændum okkar eru settir. Og þess vegna er þeim borgað fyrir að fá ekki að nytja þær auðlindir sem þeir eiga í bústofni og framleiðslu á búum sínum.
Bændasamtökin hafa um nokkurt skeið talað fyrir því að geta haft meira um það að segja að selja sínar afurðir. Það er talað um verkefni; frá Haga til maga" og "beint frá býli".
Ég satt að segja skil ekki af hverju það er ekki löngu komið á, að menn megi verka og selja öðrum sínar afurðir. Þessi höft og boð og bönn eru bara til trafala, alveg eins og í sjávarútveginum. Þar hafa skuldir aukist gríðarlega, svo stefnir í algjört hrun í sjávarútvegi. Þar er líka eins og í landbúnaði verið að verja hagsmuni fárra, fyrir hagsmuni heildarinnar. Þar sem fólki er meinað að komast inn í greinina, með valdboði undir því yfirskini að verið sé að vernda fiskinn og miðinn. En ekkert hefur bólað á neinni aukningu á fiskigengd samkvæmt þeim mælingum sem Hafrannsóknarstofnun gerir. Þeir hafa týnt fleiri þúsund tonnum út úr fiskisstofnum, og kvótasetningin algjörlega þýðingarlaus, og tap þjóðarinnar vegna þessara aðgerða hafa kostað þjóðina milljarða á undanförnum árum.
Það má ekki hlusta á sjómenn, eða endurskoða aðferðarfræðina, þótt það sé örugglega hverjum manni ljóst að hér er vitlaust að farið. Rangur grunnur notaður, og svo bætt við einhverskonar pottum hér og þar til að lappa upp á handónýtt kerfi. Af því það hentar ekki herrum sem telja sig eiga fiskinn í sjónum, að hugsað sé heildrænt og með hag byggðanna að leiðarljósi.
Eins finnst mér verið gera við bændur. Þeir eru kvótasettir, bannað að selja það sem þeir framleiða, og allt á þetta að vera vegna hreinlætis og umhyggju fyrir heilsu okkar landsmanna.
Hvenær hefur einhver dáið af því að eta heimaslátrað lamb ? Eða drekka ógerilsneydda mjólk ? Í þessu ljósi er líka rosalega erfitt að ímynda sér að hér sé verið að huga að heilbrigðissjónarmiðum, því ég veit ekki betur en menn fái að skjóta hreindýr á færi, drösla þeim yfir land og girðingar, og gera að þeim jafnvel á hlaðinu hjá bóndanum, og svo er kjötið selt. Hvar er hreinlætið þá ? Eða vaskarnir eða öll hreinlætisaðstaðan.
Nei hér er allt annað á ferðinni. Ég hef líka hneykslast á því hvernig sláturdýr eru send milli landsfjórðunga, sáralítið eftirlit virðist vera með því hvernig aðbúnaðurinn er, og ekkert spáð í hve hættulegir vegir eru á þessum tíma, eða að hafa dýr í tveggja til þriggja hæða bílum og aftanívögnum. Nýlega fór einn slíkur út af veginum og drap marga skepnu og særði aðrar. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem það gerist. Og maður spyr sig; hvar eru dýraverndunarsamtök, og þeir sem eiga að bera ábyrgð á velferð dýra, eða yfirdýralæknir? Hvers vegna er ekki sett stopp á þessa villimennsku ? Og af hverju segir enginn neitt ?
Hvers vegna þarf að flytja sláturdýr milli landshorna ? Jú það er þetta hryllilega orð "hagræðing". Þetta stórnvaldstæki sem notað er, þegar menn vilja hygla örfáum útvöldum, en taka brauðið úr munninum á öðrum. Sláturhúsaleyfishafar, vilja auðvitað hafa húsin fá og stór. Þeim hentar að gína yfir afurðum bóndans, og gera hann í rauninni að leiguliða í sínu eigin búi. Alveg eins og L.Í.Ú, gerir sjómenn, smáútgerðir og kvótalausa atvinnurekendur að þrælum.
Þetta gengur ekki lengur, og við eigum ekki að sætta okkur við þetta. Það á að vinda ofan af kvótakerfi bæði til sjós og lands. Leyfa sjómönnum að sækja sjóinn, eins og stendur í stjórnarskrá landsins. Það er skýrt að náttúruauðlindir séu sameign þjóðarinnar. Það er því fjandi hart að nokkrir menn, geti eignað sér fiskinn í sjónum, eða afurðir bændanna.
Beint frá búi er mjög áhugaverður kostur, og það ber að hlusta á bændurna. Þeir eiga að fá leyfi til að slátra sínu fé sjálfir, og selja sínar afurðir beint frá býli, ef þeir kjósa svo. Það er hægt að auka eftirlit með hreinlæti á bæjunum, með því að auka vægi dýralæknaembætta. Ég er viss um að bara þetta gæti stóreflt bændastéttina, það myndu fleiri koma inn í greinina, ef fólk mætti framleiða og selja sínar eigin afurðir. Þá er verið að tala um allt sem lítur að landbúnaði. Ég sé fyrir mér að bændur myndu jafnvel koma sér upp sameiginlegri aðstöðu, þar sem hver hefði sinn sölubás, og fólk gæti valið um hvar það vildi helst versla.
Ég sé líka fyrir mér með smábátana, að ef handfæraveiðar væru gefnar frjálsar, og þannig opnað fyrir aðgang ungra manna að sjávarútveginum, myndi setja drifkraft í byggðirnar. Lífæðar landsins myndu ganga í endurnýjun lífdaga.
Það eru í raun og veru engar afsakanir til fyrir því að koma þessu ekki í gegn. Þess vegna skora ég á stjórnvöld að huga að þessu. Og ég vil hvetja almenning til að standa með bændum og sjómönnum að því að taka þrælaböndin af höndum þeirra, svo þeir geti frálsir menn sinnt því sem hugur þeirra stendur til. Að þeir séu ekki gerðir að lögbrjótum bara við það eitt að bjarga sér. Þetta er orðið nóg, og kominn tími til gefa eftir. Hér er lítið samfélag og alveg óþarfi að reyna að apa allt upp eftir milljónaþjóðum. Við eigum að nýta okkur smæðina og frelsið sem getur verið hér einmitt vegna hennar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Bloggfærslur 29. október 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar