24.10.2007 | 17:53
Óbeisluð fegurð í Ísafjarðarbíói.
Óbeisluð fegurð sýnd í Ísafjarðarbíói
Föstudaginn 26. október kl. 21:00
Sunnudaginn 28. október kl. 17:00
Miðaverð er kr. 1000
Allur ágóði af sýningunum rennur til Sólstafa og er það von skipuleggenda að sjá sem flesta. Myndin hefur fegnið góða dóma og er mjög skemmtileg. Fjallað var um hana í Kastljósi 8. október og í þættinum 07/08 á RÚV. Viðtalið við Hrafnhildi er aðgengilegt á vef Þorsteins Joð .
Forsala aðgöngumiða hefst miðvikudaginn 24.oktober 2007 á Langa Manga og í verslun Office One á Ísafirði. Einnig er hægt að senda póst á netfangið m@snerpa.is.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
24.10.2007 | 11:58
Góður fundur með Guðjóni Arnari og Kristni H. Gunnarssyni.
Ég var á mjög flottum fundi hjá frjálslyndum í gærkveldi. Framsögumenn voru Guðjón Arnar og Kristinn H. Gunnarsson. Mjög fjölmennt var á fundinum, og margir sem lögðu fram fyrirspurnir. Þar kom fram að Frjálslyndi flokkurinn hefur lagt fram um 13 frumvörp til laga síðan Alþingi kom saman, þar af nýju sem komin eru í umræðu. Þetta er Frumvarp til laga um almannatrggingar og um málefni aldraðra. einnig frumvarp til laga um að sjúkratryggingar greiði tannlæknaþjónustu aldraðra og öryrkja, og þeirra sem yngri eru en 25 ára. Breytingu á lögum um tekjuskatt, um hækkun persónuafsláttar. Tillaga um skipan lánamála og sambærileg lánakjör einstaklinga hér á landi og annarsstaðar á Norðurlöndum. Frumvarp til laga um breytingu um stjórn fiskveiða. Hækka veiðiheimildir upp í 170 þúsund tonn. Um leyfi til krókaveiða á eiginbát við annan mann, með 4 handfærarúllur. Frumvarp um Háskóla á Ísafirði og fleira.
Sem sagt mörg góð mál, sem lögð hafa verið fram að mínu fólki. Það verður gerð betri skil á þeim seinna. En það er margt sem er ekki réttlátt í okkar samtryggingu í dag, eins og til dæmis viðbótarlífeyrissparnaðurinn, sem er eiginlega sparnaður fyrir ríkið en ekki einstaklinginn sem safnar, ef hann tekur hann ekki út á réttum tíma. Um aðhlynningu aldraðra og Alsheimer sjúklinga, að það sé ekki nauðsynlegt að hafa sama heimilisfang og viðkomandi, og að greiðsla til heimahjúkrunar hækki upp í 95.000 krónur á mánuði. Þetta mun þýða að fólk getur verið lengur heima hjá sér, og þar með sparað heilmikla peninga, sem það kostar að vista fólk á stofnunum.
Fiskveiðilöggjöfin er kominn alveg út úr kú, og er þjóðfélagslega mjög óhagkvæm, því það eru ekki réttar forsendur sem Hafró setur til grundvallar. Það væri nær að minnka loðnuveiði, þar sem loðna í mjöl gefur einungis 5% hagnað á þjóðarvísu meðan Þoskurinn gefur um 30%. Og það er sannað mál að því minni sem loðnustofninn er, því horaðri og minni er þorskurinn. Loðnan er aðalfæða þorsksins.
Félag smábátasjómanna samþykkti á landsfundi sínum að fá hlutlausa rannsókn til hliðar við niðurstöður Hafrannsóknarstofnunnar, sem ég tel að sýni best hve ótrúverðugar þær niðurstöður eru.
En sum sé, góður fundur vel mætt, og mikill hugur í fólki. Það er gaman að fara á fund þar sem er jafnmikill áhugi á málefnum flokksins og sýndi sig í gær. Og sýnilegt að við erum ekki eins máls flokkur. Heldur látum okkur varða allar hliðar mannlífsins.
Einnig réttindi og aðstöðu þess fólks sem hingað kýs að koma og dvelja, til lengri eða skemmri tíma. Það er skylda ríkisins að sjá til þess að ekki séu á þeim brotinn mannréttindi, og að menn fái greidd þau laun sem þeim ber. Undirboð og svik við vinnandi fólk á ekki að líða. það þarf að taka hart á brotamönnum, sem nóta bene eru íslendingar, sem þannig haga sér af græðgi. Og þetta lækkar líka laun íslenskra verka- og iðnaðarmanna, það hefur sýnt sig. En einnig er sú staða komin upp að íslensk veiðiskip, eru í auknum mæli mönnuð erlendum sjómönnum, og þeim greitt minna fyrir en íslenskum sjómönnum. Slíkt býður hættunni heim. Allt gert til að hámarka eigin hagnað. Þessi græðgisvæðing er að verða óþolandi. Og þeir menn sem enskis svífast til að hámarka gróða sinn, þurfa að sæta refsingum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
24.10.2007 | 08:49
Hvað með Reykjavík ?
Nei við mótmælum engu. Erum dofin og tilfinningalaus. En ef til vill er þýðingarlaust að mótmæla, heimurinn virðist ætla að láta herforingjana í Burma komast upp með þjóðarmorð, spillingu og að fara sínu fram, hvað sem tautar og raular. Einhverjar máttleysislegar umræður um viðsskiptaþvinganir eða refsiaðgerðir skipta þá nákvæmlega engu máli, því þeir maka krókinn á viðskiptum við þau lönd sem þeim hentar, af því þeir hafa eitthvað þjóðarauð landsins á sínu valdi, og aðrir eru æstir í að selja þeim hvað sem er. Það er svo mikil hræsni og óréttlæti í þessu, að það er með ólíkindum.
Mér verður hugsað til Davíðs, þegar hann upplýsti okkur í sjónvarpsviðtali að stöðva bæri Saddam Hússein vegna þess hve mikill harðstjóri hann væri. Það réttlætti innrás fullkomlega. Nú þegar það er vitað að nokkrir einstaklingar herforingjaklíka eru með öll ráð heillar þjóðar í hendi sér, og heimurinn veit að fólki vill losna undan þeim, þá er bara malað í fínum matarboðum um "hertar refsiaðgerðir". Ráðamenn Þjóða heims þar með talin íslensk SKAMMIST ÞIÐ YKKAR.
![]() |
Tólf ára stofufangelsi mótmælt í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 24. október 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar