Myndir frá Hnífsdal og fl.

Datt í hug í morgun að skreppa með myndavélina út í Hnífsdal fyrir hana Þórdísi bloggvinkonu mína. 

Það var ágætis veður í morgun, en núna er komin rigning og rok, og ég búin að vera úti að raða niður runnum til gróðursetningar.  Úff það var frekar  ....................................................... blautt LoL

 

IMG_9628

Þetta hús hér fremst er gamla kaupfélagshúsið, þegar Hnífsdalur var alvöru þorp.  Húsið við hliðna var hús sem Einar Steindórssón átti heima í, og uppi á bakkanum eru heimabæjarhúsin.  Þetta með rauða þakinu er friðað. Þar utan við eru hesthús, sem bærinn hefur nú keypt upp, því þar kemur vegurinn frá Bolungarvík gegnum gönginn.

IMG_9629

Alveg er ég viss um að hér hafa margir átt gleðistund, og jafnvel stofnað til hjúskapar, nú eða afkvæmis.  Félagsheimilið í Hnífsdal.

IMG_9630

Horft yfir ána, að byggðinni. Vildi ekki taka myndir af Ólafsauðninni hinu meginn. Devil Það var Leifur Pálsson sá heiðursmaður sem gaf svæðinu það nafn á sínum tíma.

IMG_9634

Hreggnasinn.  Blokkin þarna er kölluð Vindheimar, það er svolítið vindasamt þarna á háhæðinni.

IMG_9635

Svo horfir maður út á Djúpið og hér nær er Snæfjallaströndinn og fjær er Grænahlíðin.

IMG_9637

Arnarnesið.

IMG_9641

Og þetta venjulega sjónarhorn sem ykkur er boðið upp á.  Nema núna rennur snjórinn í fjallinu saman við skýin.

IMG_9620

Lognið á undan storminum hehe..

IMG_9623

Naustahvilftin þar dansa Dísir. 

IMG_9625

Horft yfir miðbæinn.

IMG_9626

Þessar myndir eru allar teknar í dag, fyrripartinn, áður en byrjaði að hvessa og rigna.

Eins og náttúrlega sjá má.  Eigiði góðan dag, og ekki hætta ykkur úr í þetta leiðindaveður nema þið eigið brýnt erindi. Heart

 


Æ Æ Æ ...

Vesalings dúllurnar.  Það er ekki andskotalaust að vera svona vinsæll og frægur.  Geri í stöðugri hugleiðslu Hari Kristna ?? Halo, Mel B flugþreytt, ætti ef til vill að skoða hamstraflugþreytumeðalið Viagra Devil, Mel C rosa óþolinmóð og Emma grét.  Jésús Pétur, hvað ég vorkenni þeim, enda er það mjög erfitt að vera svona frægur og feimus. 

Þá er nú betra að vera bara nobody og haft það eins og maður vill.  Smile

434849B


mbl.is Ýmislegt gekk á við upptökur á Kryddstúlkumyndbandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. október 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023311

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband