2.10.2007 | 22:36
Má bjóða ykkur í smáferðalag til El Salvador undir svefninn.
Af því að maður á aldrei að láta eitthvað íþyngja sér undir svefninn, þá ætla ég að bjóða ykkur með mér í smáferðalag til El Salvador. Það var reyndar gleðilegt tilefni, sum sé gifting, og við förum á slóðir Pablo og Isabel.
Reyndar byrjaði ferðalagið ekki mjög vel, því þegar við komum til San SAlvador komumst við að því að taskan okkar hafði ekki komið með. Og við stóðum þarna með ekkert til skiptanna. En við kvörtuðum við flugfélagið, það voru bæði American airline og British airways sem við höfðum ferðast með, og fengum peninga til að kaupa föt til skiptanna.
Hér er hótelið sem við gistum á. Það er utan við miðborgina, því þar var stórhættulegt að vera. Menn stoppuðu þar helst ekki á rauðu ljósi, og þetta var fyrir jarðskálftana, það stórversnaði eftir það.
En það voru svona verðir við allar byggingar, með vélbyssur og alles, alla banka, búðir og hótel. Þetta venst sjálfsagt. Við íbúðargötur voru keyptir verðir og götur þeirra betur stæðari girtar af.
Þetta var bakgarður hótelsins, hér borðuðum við morgunmat. Þeir borða ekki kartöflur, heldur nota þeir banana í staðinn, eða hrísgrjón. Þetta er mágkona mín með mér, sem býr í Mexíco. Það var ómetanlegt að hafa hana með altalandi á spænsku.
Hér erum við á flugvellinum að kvarta yfir töskunni. Við fengum að leita í týndum farangri, og þvílíkt og annað eins sem týnst hefur, það sama var í London og Miami, þar sem við heimtuðum líka að fá að leita. Fleiri herbergi með töskum og allskonar farangri. En nei taskan fannst ekki. Hún kom reyndar hingað heim nokkrum mánuðum seinna, frá British airways.
Hér sitjum við á veröndinni á hótelinu, og Elli að semja ræðu sem hann átti að flytja við giftinguna, og systir þýðir yfir á spænsku.
Við brugðum okkur niður að ströndinni, og fengum okkur krabbasúpu.
Eins og sjá má er ekkert smá í þetta lagt.
Svo var farið út að versla föt fyrir giftinguna, vegna töskutapsins, ég veit að þið trúið því varla, en þetta hús var inni í mollinu.
Það var hægt að kaupa öll heimsins vörumerki.
Bæjarins bestu, eða þannig. Snakk á horninu. Og ég er þarna í baksýn, eins og sjá má með innkaupapokana hehehe.
Sölukonurnar á götunum voru allar með svona litlar sætar svuntur. Þær seldu allskonar varning. Þarna voru líka betlarar og maður sá líka vesalinga sem greinilega voru alkoholistar og geðveilt fólk, þau áttu ekki mjög gott líf.
Við fórum líka upp í lítið þorp utan við San Salvador, þar sem borgarastríðið var hvað harðast, það mátti ennþá vel sjá skotgöt víða á húsum. Svona voru göturnar.
Í þorpinu sátu menn og spjölluðu, enginn vissi lengur í hvað liðið þeir höfðu barist, enda sátu foringjar þeirra saman og sumbluðu. Sá sem vann þetta stríð voru Bandaríkjamenn og aðallega Kóka kóla.
Hér er verið að undibúa veislu brúðhjónanna. Þessi litla skotta þarna minnsta er litla Alejandra.
Hér leiðir Pablo dóttur sína inn gólfið. Það var ekki gift í kirkju, heldur á hótelinu þar sem veislan fór fram, og það var bæði kristileg athöfn, en líka borgaraleg, það er siður þarna.
Hér eru brúðhjónin og svo við Elías, ég er voða kerlingarleg þarna svei mér þá hehehehe.
Eins og sjá má HÉR;
Þar sem ég er með mágkonu minni henni Kristínu.
Já þetta var ferðin til El Salvador, sem hefur leitt af sér annað mál, sem er að kynnast elskurlegri fjölskyldu minni frá þessu fjarlæga landi. Og svo er að sjá hvernig þeim reiðir af. Þau komu hingað í og vilja setjast hér að. Þau voru rík á mælikvarða El Salvador sem varð svo til þess að Mafían vildi fá sinn skerf að auðæfum þeirra. Of stóran skerf. Þeirra hótanir voru ekki innantómar, því þeir víluðu sér ekki við að drepa foreldra Isabel. En svona er lífið. Þeirra bíður örugglega gott og hamingjusamt líf her á okkar kalda landi. Þau hafa sett sig hér niður, eiga hér sitt heimili og fjölskyldu. Þar sem hjartað er, þar eigum við heima.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
2.10.2007 | 14:54
Hvernig viljum við taka á vandanum, og erum við á réttri leið ?
Þekki ekki biðtímann núna á Vog, en það eru 3ja vikna bið á Hlaðgerðarkoti. Í fyrra var hringt eftir 6 mánuði í son minn eftir að hann sótti um innlögn á Vog að hann kæmist að. Ef þetta er með því besta sem gerist, þá er vandinn mjög mikill annarsstaðar.
Málið er að þegar fíklar loks ætla að takast á við sjálfa sig og lífið, þá þurfa þeir að komast inn NÚNA, ekki á morgun ekki eftir þrjár vikur, hvað þá sex mánuði. Eins er með fólk sem er við að falla, byrjað á niðurleiðinni. Þá þarf að vera til staðar einhver stofnun sem grípur inn í.
Eða eitthvað sem aðstandendur geta fest hönd á. Ég hefði viljað sjá ráðstefnu á breiðari grundvelli en þarna virðist vera. Og sérstaklega í ljósi þess að vandinn hefur aukist svona mikið. Þá sé ég heldur ekki ástæðu til að hafa einhvern hátíðafund með helstu skemmtikröftum þjóðarinnar. Ég hefði frekar vilja sá fund með aðstandendum fíkla, og öllum þeim aðilum sem tengjast fíklum á allan mögulegan hátt.
Þetta er ekki bara spurning um heilsu, það eru gríðarlegir peninar í spilinu, af því að peningar eru nú aflið sem bærist mest í þessu þjóðfélagi. Eða hvað halda menn að rán, innbrot og allskonar skemmdir á eigum og fólki kosti almenning í þessu landi ? Fyrir utan brotnar fjölskyldur, sorg og vanlíðan hverskonar.
![]() |
Erum í miðjum örvandi vímuefnafaraldri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bloggfærslur 2. október 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar