11.10.2007 | 19:41
Fallegur dagur og haustlitir.
Þessi dagur var fallegur og góður.
En byrjum aðeins í Bolungarvík, í gær var rigning og kalt, meira að segja fjöllin voru með trefil.
En glæsileg.
Hér endar vegurinn, það er ekki hægt að komast norðar á bíl en þetta.
Smá tips fyrir þá sem vilja hafa falleg ker, en hafa ekki mikið milli handanna, þetta er bíldekk svona skemmtilega skorið og málað. Kostar ekkert, nema smá handavinnu og slettu af málningu.
En aftur að haustinu. Nú skartar gróðurinn sínu fegursta. Ég fór um garðinn minn í dag í góða veðrinu og tók nokkrar myndir.
Hér er bara að njóta þess sem fegurst er.
Og fjörðurinn minn fallegi og lygni er algjör dýrð í svona veðri.
Silfurtorgið og ég er stolt af þessu beði. Sem hér er svona ósköp fallegt. Og svo má bara borða þessar kræsingar og þær smakkast vel og eru meira að segja mjög hollt fæði.
Silfurtorg í allri sinni dýrð.
Eins og sést er blanka logn og blíða.
Mannlífið líka fallegt, tvær flottar óbeislaðar ísfirskar.
Mætti líka litlu lady Evítu Cesil og pabba hennar á förnum vegi.
Og gat ekki stillt mig um að taka eina krúttmynd fyrir bloggvinkonur mínar. Hvað er eiginlega yndislegra til ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
11.10.2007 | 08:27
Afmæli.
Þennan dag árið 1922 fæddist móðir mín Aðalheiður Bára Hjaltadóttir. Hún hefði því orðið 85 ára í dag hefði hún verið ennþá á meðal okkar blessunin. En mamma mín fór frá okkur þann 1. nóvember árið 2000. Það var eftir stutta sjúkdómslegu, og hún fékk að vera heima allan tímann, við systkinin skiptumst á að vera hjá henni.
En mamma mín var alltaf miðpunktur heimilisins. Kring um hana voru alltaf barnabörnin og gæludýr barnanna hennar. Ef eitthvað bjátaði á hjá einhverju barnabarnanna, þá var farið heim til ömmu. Og þau voru mikið inn á heimilinu á Seljalandsvegi 78 Vinaminni. Þetta varð til þess að ungarnir hennar voru miklu nánari en ella hefði verið. Þau voru meira eins og systkini en systkinabörn. Og sá strengur hefur aldrei slitnað sem betur fer.
Öll jól hittust allir hjá mömmu, og meðan fjöldinn var ekki of mikill var borðað saman, en síðan eftir að við urðum of mörg, þá var farið eftir matinn heim til mömmu og þar voru teknir upp jólapakkarnir, og við sátum öll saman og áttum góðar stundir. En það var annað, það voru mörg jólin sem utanað komandi fólk eyddi jólunum með fjölskyldunni. Einhver sem átti engan að, eða var fjarri heimkynnum sínum. Allaf var sjálfsagt að við kæmum heim með slíka, og allir boðnir velkomnir. Hjartað í mömmu var stórt, og þar rúmuðust allir.
Okkur þótti vænt um það systkinunum að geta veitt henni þá síðust ósk að fá að dvelja heima uns yfir lauk. Og undir það síðasta, þá vissi hún að fólkið hennar beið eftir henni, hún var vör við þau.
1967 þann 11. júní eignaðist hún dreng sem var skírður Júlíus. Þeir voru á sama aldri elsti sonur minn og bróðir minn. En það var mömmu mikið áfall þegar hann dó aðeins 7 mánaða gamall í janúar 1968. Ég held að hún hafi aldrei jafnað sig almennilega á þessum barnsmissi, og ég er alveg viss um að þau hafa hist aftur, þegar hún fór héðan.
Elsku mamma mín, takk fyrir að hafa alltaf verið hér fyrir okkur börnin þín og allra mest fyrir barnabörnin.
Hér í faðmi fjölskyldunnar.
Mamma.
Hve endanlegt síðasta andvarp þitt var,
hve fjarlægist ímyndin þín.
Að vita ekki leið þína burtu og hvar
þú heldur þig kjölfestan mín.
Heilög var sorgin í hjartanu - þú
helgaði minnin um son.
Sem hrifinn var burt frá þér, smábarn, en nú
er sameining ykkar mín von.
Þitt hljóðláta fas, þinn hlátur og þrek
í hug mínum aðeins nú skín.
Þinn stuðning við áttum við bernskunnar brek,
og best var að leita til þín.
Þú varst okkur klettur í hafinu - keik
og hjá þér við átt höfum skjól.
Í brotsjóum lífsins, í baráttu og leik,
björt varstu lífs okkar sól.
Nú horfin þú ert og við sitjum hér hrygg
og hugsandi hvert fyrir sig.
Við elskum þig mamma sem trú varst og trygg
og trúum að Guð geymi þig.
Elsku mamma, einhversstaðar í faðmi fjölskyldunnar sem ef flutt yfir móðuna miklu. Til hamingju með daginn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Bloggfærslur 11. október 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar