Færsluflokkur: Bloggar

Smá ferð til Bolungarvíkur og daglegt veður á Ísó.

Já hér er at sem aldrei fyrr. En svo birtir upp um síðir.  En veðrið heldur áfram að vera meiriháttar gott.  Þ.e.a.s. fyrir venjulegt fólk, mig vantar rigningu.  Það er spáð rigningu á morgun, en það er varla skýhnoðri á himni, svo það er alls ekki víst að svo verði.  Af hverju getur ekki bara ringt á nóttunni, ég veit að það er hellirigning, þrumur og eldingar í Vínarborg.

IMG_8832

Hér er í gangi róðrarnámskeið fyrir ungmenni.  Nálægð við sjóinn á sinn þátt í því, og svo öflugt kajakfélag.

IMG_88321

Þau hafa gott af að læra að umgangast Ægi Stórsjó, það gerir nálægðin við hann.

IMG_8835

Þetta er hún Elísabeta mín frá Portúgal, hún er ásamt stelpunum mínum að setja niður sumarblóm og hreinsa beðin.  Það er mikil vinna og gengur frekar hægt þess vegna. Og svo er vökvun vandamálið.

IMG_8836

í hádeginu brá ég mér til Bolungarvíkur með  mínum elskulega eiginmanni.  Þessa lóð hefur hann unnið að, og margar fleiri þar ytra.

IMG_8838

Það er ekkert skrýtið að bolvíkingar séu harðgert dugnaðarfólk, sem eru kóngar allir hreint, með öll þessi hvössu háu fjöll í kring um sig.

IMG_8839

Krafturinn bókstaflega gýs upp af alefli yfir fólkið, sem kann það vel að meta.

IMG_8840

Það eru örugglega sterkar vættir sem búa í svona fjöllum, og miðla orku sinni til þeirra sem þarna dvelja.

IMG_8841

Það hlýtur bara að vera.

IMG_8842

Þarna á gangnamunninn að vera, sem mun sameina Bolungarvík og Ísafjörð í eina sæng í fyllingu tímans.

IMG_8846

Þessi frábæra lóð varð á vegi mínum.  Þvílíkt ýmindunarafl, og ég man eftir svona suðupotti heiman að frá mér, þessi blái, bara okkar var stærri, þar var soðið slátur, og líka ullinn af kindunum, áður en hún var hengd upp til þessis.

IMG_8847

Ég ætla að bjóða þér í hádegismat, sagði minn elskulegi.  Og viti menn hér er líka þessi frábæra krá og veitingastaður alveg niður við höfnina í Bolungarvík.

IMG_8849

Notalegur staður, ég mæli með því að þið kíkið út í Bolunvarvík og farið þarna inn, þar er margt að sjá.

IMG_8850

Greinilega er hér umhyggja og alúð lögð í innréttingar og þá muni sem hér eru.  Minjar frá liðinni tíð, og minningar um gengið fólk.

IMG_8851

Maður sér ekki mikið af svona dýrgripum um landið í dag, svei mér þá.  En er þetta ekki notalegt og kósý?

IMG_8852

Ég er viss um að Bolvíkingar kunna vel að meta þennan stað, svo og þeir sem þangað fara og svo auðvitað kostgangararnir, sem borða hér í hádeginu.  Hér var fullt hús af iðnaðarmönnum.  Ég náði þessum myndum áður en þeir komu.

IMG_8853

Og hér er svo höfnin, Pálmi Gestsson verður hér hafnarvörður í sumar.  Hann heldur auðvitað uppi fjörinu ásamt öðrum eðalbolvíkingum.  En hann er nýráðin hafnarvörður á Bolungarvíkur höfn.

IMG_8855

Hér er svo krúttlegi vitinn sem er síðasta mannvirki áður en haldið er á Óshlíðina, þar á undan er Ósvörin, safnið frábæra, þar sem Arngrímur og Finnbogi Bernódusson skiptast á að klæðast skinnklæðum og sýna gestum og gangandi hvernig sjósókn var hér fyrr á öldum.

IMG_8856

Hér verður svo gangnamunninn Hnífsdalsmeginn, það má segja að öll hlíðin hafi verið tekin niður, því líkt og annað eins.

IMG_8858

Hér erum við svo komin heim á kunnuglegar slóðir.

IMG_8862

Þessi mynd er ekki eins hættuleg og hún sýnist.  Nafna mín í þröngri stöðuLoL

IMG_8861

Jamm nefnilega... eða þannig. Heart

 


Gamla bókabúðin á Flateyri. Miklu meira en orð fá lýst.

Ég fór til Flateyrar í dag, sem ekki er í frásögur færandi, nema hvað ég þurfti að tala þar við ágæta kunningjakonu mína, og hún var ekki heima, þar sem ég var að vandræðast kom til mín kona, og spurði mig hvort ég ætlaði að hitta Jóhönnu.  Já sagði ég, hún er niðri bókabúð sagði konan.  Ég fór svo niður í "bókabúð" og þvílík dýrð sem þar er á ferðinni.  Þetta er verslun í sinni gömlu mynd.  var stofnuð 1914, og rekinn til 1999.  Fyrst af bræðrum, en síðar tók einn þeirra við versluninni og rak hana til dauðadags, síðan tók kona hans við og var með verslunina til 1950, en þá tóku börnin við, þegar þau svo hættu, gáfu þau minningarsjóði Flateyrar allt saman, húsið verslunina og allt.  Minningarsjóðurinn "vona að ég fari rétt með nafnið" tók við rekstrinum og frá árinu 2006 hefur bókabúðin verið opin almenningi, þar er fornbókasala og skiptimarkaður.  Og heimilið er til sýnis. 

Að vísu er þetta ekki rekstur sem borgar sig, og allt starf þarna er unnið í sjálfboðavinnu.  En ég segi nú bara ef þið eigið leið til Flateyrar, látið þetta ekki fram hjá ykkur fara.  Eg var gjörsamlega heilluð, og tók nokkrar myndir til að sýna ykkur.  Þvílíkar perlur sem leynast víða, segi nú ekki margt.

IMG_8743

Svo þið ratið nú inn, þetta hús lætur ekki mikið yfir sér.

IMG_8745

en þarna eru innréttingar frá 1914 svei mér þá.  Þetta er æði, hreint og beint eins og að stökkva inn í fortíðina í fullum herklæðum. 

IMG_8746

Hér kennir sko ýmissa grasa, og hér er allt til sölu.  Þetta er ekki bara eitthvað dautt safn, heldur lifandi með sál.

IMG_8747

Segi og skrifa.

IMG_8748

Einhversstaðar las ég að bækurnar væru seldar eftir vikt, þarna er ein algjört listaverk.

IMG_8749

Skrifstofan, og ritvélin samkvæmt nýjustu tísku ekki satt ?

IMG_8751  

Aha einhver áhuga á líni ?IMG_8752

Hreint út sagt frábært að upplifa.

IMG_8753

eitt er búðin, annað er íbúðin, sem er öll eins og hún var, það er eins og að fara aftur inn í fortíðina, ég segi það satt, þið verðið að gera ykkur ferð þarna til að upplifa þessa dásamlegu stemningu.

IMG_8754

Hvar annars staðar í veröldinni getur maður gengið beint í í svona upprunalegt heimili frá annari öld?

IMG_8755

Það fylgdi bókstaflega allt með, hnífapörin diskarnir og allt heila klabbið.

IMG_8756

Það var eins og fólki hefði labbað sig út í gær, eða jafnvel hefði bara skroppið í bæinn.

IMG_8757

Alveg einstök upplifun. 

IMG_8758

Eldhúsið, alveg eins og það var.

IMG_8759

Hér er ketilinn, brauðristin og hrærivélin.

IMG_8761

Leirtauið ennþá á sínum upprunalega stað, eins og húsmóðirin hefði verið þarna í gær.

IMG_8762

Hver man eftir svona rafmagnsinntaki ?

IMG_8766

Ætli þetta sé ekki minnsta klósett í heimi ?

IMG_8767

Innrammaður reikningur frá Guðmundi Mosdal, smíðakennaranum góða.

IMG_8771

Hér hefur verið hlustað á veðrufregnir og leikið af plötum.

IMG_8772

Auðvitað klukkan á sínum stað, og veggteppið, örugglega saumað út af húsmóðurinni.

IMG_8773

Já þetta er sko eitthvað til að upplifa og skoða, ég segi nú ekki margt.

IMG_8774

Meira að segja gítarinn á sínum stað.

IMG_8775

Meiriháttar.

Mér skilst að reksturinn standi í járnum, hér er allt unnið í sjálfboðavinnu, við að halda búðinni og heimilinu opnu.  Að vísu ætla kaupmannasamtök Íslands að styrkja þetta frábæra verkefni núna, en það þarf meira að koma til.  Það þarf gesti sem hafa áhuga á að vippa sér inn í fortíðina og upplifa gömlu dagana frá A til Ö.  ´Sjá hvernig fólk lifði og hrærðist, og hér er engu bætt við, eða tekið út, hér er bara allt eins og það var.  Og hugsið ykkur framsýni Flateyringa að hafa svona minningarsjóð, sem  hlúir að svona dásemd, þeir eiga líka fallegt dúkkusafn, sem ég á örugglega eftir að skoða og taka myndir af. 

En ég bara er djúpt hrærð yfir að hafa fengið að sjá þetta og skoða.  það er ólýsanleg upplifun.  Og ef þið eigið leið  hér um, ekki láta Flateyri og gömlu bókabúðina fram hjá ykkur fara.  Takið með ykkur gömlu bækurnar sem þið eruð búin að lesa og skiptið þeim fyrir aðrar sem þið hafið ekki lesið, bregðið ykkur svo nokkra tugi ára aftur í tíman og fáið árin beint í æð.  Þið munuð ekki verða fyrir vonbrigðum. 


Mömmublogg.

Þetta er svona mömmublogg, svo mamman fái nú ekki fráhvarfseinkenni, þegar hún kemur, og sér að litlu börnin sem hún skildi eftir, hafa stækkað heilan helling hjá ömmu sinni.

IMG_8656

Ef þið haldið að hún sé í pilsi, þá er það misskilninur.

IMG_8658

Hún náði sér nefnilega í naríur af stóra frænda sínum LoL

IMG_8661

Amma sjáðu hvað dúkkan mín er fín.

Já en af hverju er hárið á henni svona snubbótt ?

Ég var að klippa hana, er hún ekki Kúl ?

IMG_8662

Stundum þarf maður að máta skó, eða stígvél.

IMG_8663

Og auðvitað þurfa svo aðrir að reyna líka.

IMG_8664

Jamm það tókst.

IMG_8665

Maður er náttúrulega rosalega töff sko!!!

IMG_8667

Best að reyna líka með hinn fótinn. Tounge

IMG_8670

Þetta er sullukolla númer eitt, hér hefur hún difið húfunni ofan í tjörnina og svo beint á hausinn á sér.

IMG_8673

Ég á nammi, sem amma gaf mér.

IMG_8674

Það' er ekki hægt að gefa þér nammi Ásthildur, þú ert öll svo blaut.

IMG_8676

Já nefnilega sko.

IMG_8677

en það er gaman að leika sér úti.

IMG_8678

Hlaupa um og þykjast detta.

IMG_8679

Alveg niður!

IMG_8680

Og litla systir þarf að gera alveg eins.

IMG_8681

Eða þannig!!

IMG_8685

Og Jorga búin að skreyta styttuna í tjörninni.

IMG_8689

Svona eru morgnarnir.

IMG_8692

Og skemmtiferðaskipin farin að sýna sig.  Stelpurnar í vinnunni sögðu mér í dag, að einn þjóðverjinn hefði spurt þær hver hefði teiknað snjóinn í fjöllinn.  Hann vildi ekki trúa því að þetta væri ekta snjór svona í endaðan júní LoL

IMG_8687

Ísafjarðarlognið.

IMG_8668

Svona eru svo kvöldin.

IMG_8693

stelpur úr unglingavinnunni, sem hafa hjálpað mér undanfarna daga.  En ég er líka með duglegar stelpur sem vinna hjá mér. 

IMG_8695

Ísafjörður bara svona. 


Krúttfærsla - sólarbörn -

Ég var að atast niður í bæ, og heyrði alltaf trommuslátt í fjarska.  Hvað ætli þetta sé nú, hugsaði ég, nú er ekki dimiteringartími.  En svo sá ég undurfallega sjón, svei mér þá ég fékk kökk í hálsinn, eins og gerist þegar ég sé eitthvað fallegt og yndislegt.

IMG_8702

Börnin í leikskólum bæjarins, búin að skreyta sig og með allskonar hljóðfæri, tamborínur og trommur.

IMG_8705

Löng runa af þeim, gul frá Sólborg, rauð frá Eyrarskjóli, og blá frá Hnífsdal, að vísu voru ekki leikskólinn Suðureyri, Flateyri eða Þingeyri með, en þau hafa eflaust verið heima hjá sér og of mikið mál að koma þeim öllum hingað.

IMG_8708

Rauð fyrir Eyrarskjól.

IMG_8711

Og hér er Sigurjón Dagur.

IMG_8713

Blá fyrir Bakkaskjól.

IMG_8717

Hér er Isobel.

IMG_8718

Hvort er þjóðlegra, börn með fána, eða uppáklæddar yngismeyjar á upphlut og peysufötum ?  Eða er þetta ef til vill þjóðlegasta mynd ársins. Heart

IMG_8727

Já það var svo sannarlega gleðisjón sem mætti fólkinu í miðbæ Ísafjarðar í morgun.

IMG_8728

svo tóku þau lagið öll saman. Heill barnakór.

IMG_8731

Margt um manninn og pabbar og mömmur afar og ömmur með myndavélar á lofti.

IMG_8735

Hér eru þau örugglega að syngja sól sól skín á mig. 

IMG_8737

Svo var haldið til baka í leikskólana, gulu á leið í Sólborg, þessu rauðu eru upp við sjúkrahúsið, að komast alla leið´á Eyrarskjól og Bakkaskjólsbörnin örugglega komin í bíl á leið til Hnífsdals.

IMG_8675

ein svona í lokin af mínum trillum tveimur.  Knús á ykkur öll inn í daginn, og fyrirgefið hvað mér gengur illa að fara blogghringinn.  En mig vantar svo mikið nokkrar klukkustundir í sólarhringinn.  Heart

 


Ungverjaland þriði hluti, kvöldsigling á Dóná, og ferðalag til Szeget.

Áður en við leggjum að stað til Szeget ætlum við aðeins að skemmta okkur, í mat og drykk um borð í fljótabát á Dóná.  Fara í kvöldsiglingu um Dóná og hlusta á sígauna spila og horfa á þjóðdansa.

Ungverjaland20083 007

Tilhlökkun, hér erum við á hótelinu að bíða eftir rútunum, sem aka okku um borð.

Ungverjaland20083 008

Jamm fólk er uppáklædd og tilbúið í skemmtunina.

Ungverjaland20083 010

Kórstjórinn elskulegi hún Beata Jó, með öðrum syni sínum.

Ungverjaland20083 011

Já hér erum við komin niður að Dóná.  Ruslið sem sést hérna, flýtur niður með ánni, þar ægir saman allskonar drasli, flöskum og rusli, sem áin ber með sér og er bara heilmikið mál að hreinsa og þrífa.

Ungverjaland20083 012

Hér er báturinn sem við ætlum að sigla með um Dóná.  Þó áin virðist kolmórauð, þá er allt í lagi að borða fiskinn sem veiddur er í henni.  Þetta er mest leirburður sem litar hana. Hún hefur verið hreinsuð vel af mengun, svo það er allt í lagi að borða fiskinn.

Ungverjaland20083 015

Ef maður spáir í það, þá er engin tilviljun þessi hái veggur sem hlaðinn er upp, því flóð eru tíð, og þá hækkar vatnið ansi mikið.  Þetta er því varnarveggur gegn flóðum.

Ungverjaland20083 020

Svona erum við bara, konurnar, yndislegar og kammó hver við aðra, þess vegna ganga ferðirnar alltaf svo vel, af því að stemningin er frábær, og aldrei ber neinn skugga þar á.  Og svo eru karlarnir í forsvari, og þeir bera ábyrgðina, við bara höngum með og höfum það gott Heart P.S: ég á þessi bros Tounge

Ungverjaland20083 030

Um borð var bæði heitt og kalt hlaðborð, og það svignuðu borðin undan veitingunum. 

Ungverjaland20083 034

Svo voru náttúrulega ungverskir þjóðdansar í hávegum hafðir, undisspilarar voru sígaunarnir um borð.

Ungverjaland20083 039

Fallegir búningar, og örugglega allt handsaumað.

Ungverjaland20083 043

Eins og sá íslenski, nú er Matta Helga og Gréta búnar að smita mig svoleiðis að sennilega fer ég á næsta námskeið í þjóðbúningasaumi, gott ef ég læri ekki líka að gera allt skrautið, þá er bara að finna sér einhversstaðar tíma.... á einhver tímakvóta á lausu Blush

Ungverjaland20083 046

Reffileg, hér dansar hún með flösku á hausnum.

Ungverjaland20083 054

ég hef svona rökstuddan grun um að þetta sé mamman og sonurinn.  Að hún hafi kennt syninum að dansa, svona fjölskyldusammeneitthvað.  En það er bara hið besta mál ekki satt?

Ungverjaland20083 068

Það var líka skipt um búningar og svoleiðis.  en það var gaman að fylgjast með þessu, og þjóðdansar standa alltaf fyrir sínu, hvort sem þeir eru íslenskir eða útlenskir.

Ungverjaland20083 077

Dóná upplýst í rökkrinu.

Ungverjaland20083 082

Þetta er svona frábærasti og lífrænasti klósett odour sem ég hef kynnst.  Allir sem hafa fengið liljur í blómkransa kannast við sterkan ilminn sem þær gefa frá sér.  Tilvalið á klóið, og örugglega ódýrara en eitthvað tilbúið lyktareyðingarpjakk, sem er ekkert betri en ekta skítalykt, ef við værum ekki svona miklar pempíur. LoL

Ungverjaland20083 083

Sérfræðingar að störfum.  Mummi Þór vélarsérfræðingur og Jón Sigurpáls forstjóri fyrir sjóminjasafnið á Ísafirði, ég er viss um að þeir höfðu sterkan áhuga að fá þessa rússnesku vél heim og í safnið, og ég er líka viss um að Mummi hefði ekkert á móti því að fá aðeins að grufla í systeminu á henni LoL Allavega leynir áhuginn sér ekki.  vonandi verða þeir ekki teknir fyrir njósnir.

Ungverjaland20083 086

En eins og allir vita, þurfa karlmenn alltaf að fá verðlaun, þeir þurfa að vita að það sé metið það sem þeir eru að gera vel.  Við konurnar skiljum það svo vel.  Þó við þurfum ekkert svoleiðis.  Enda er saga okkar ekki þykk í Íslandssögunni.

Ungverjaland20083 089

Þeir voru því kallaðir upp nokkrir til að fá viðurkenningu fyrir vel unninn störf, og voru örugglega allir vel að því komnir.

Ungverjaland20083 091

Hér fær Kristján tíundi kóngur sína viðurkenningu.

Ungverjaland20083 098

Jamm bara gott mál að fá viðurkenningu.

Ungverjaland20083 104

Hér eru svo raddstjórarnir eða hvað það nú kallast, hver með sína viðurkenningu, fyrsti tenór annar tenór, bassi og annar bassi.  Takið eftir verðlaununum, svona pútur sem gogga i matinn sinn hehehehe

Ungverjaland20083 115

Aftur heim á hóteli.  Ef þið haldið að þessi lengst til hægri frá mér séð sé mister Bean, þá er það misskilningur.  Að vísu dálítið líkur honum, en þessi er frá Bolungarvík, og er ekki vitund líkur Bean í sér.  LoL Nema bara í útliti.

Ungverjaland20083 120

Ókey þá erum við lögð af stað til Szeget, nema að það kom fljótlega í ljós að rútan okkar, þær voru tvær, var eitthvað biluð.  Hitaði sig og gekk ekki vel.  Við fengum svona hægfara siteseeing tour LoL

Og stoppuðum á flestum stoppistöðum á leiðinni.

Ungverjaland20083 121

Já já við stoppuðum og stoppuðum, ókum á 80 km á hraðbrautum Ungverjalands, og gátum virt fyrir okkur landslagið og dýrin og hvað eina sem á vegi okkar varð.

Ungverjaland20083 124

Svo kom að því að forvitnir íslendingar vildu kíkja oní vélina, því við erum jú klárust og best ekki satt. ?

Ungverjaland20083 125

Smá skýjamynd, himnagalleríið var opið hér eins og svo oft heima.

Ungverjaland20083 128

Já já það var stoppað, bíllinn og farþegar þurftu að kæla sig, því auðvitað var loftræstingin líka biluð, svo við sátum í heitri rútunni sveitt, en samt glöð og kát, og gerðum bara gott úr öllu saman.

Ungverjaland20083 130

Það var hér í miðju Ungverjalandi á sléttunum, sem fólk kom frá Mesópótamíu, og settist hér að, um það leyti sem Víkingarnir gerðu sig heimakomna á Íslandi, eða um 990 eitthvað. Þeir hröktu fólkið í burtu sem var þar fyrir, rétt eins og landsnámsmennirnir heima gerðu við Papana. 

Ungverjaland20083 135

Einhver var að segja að íslenskar kýr hefðu sérstöðu vegna litarins, en mér sýnist nú að ungversku kýrnar séu bara allavega á litinn.   En svo eru líka sérstakar kýr sem eru hér landsnámskýr, gráar með stór horn.  Að mínu mati líkar kúnum sem ég sá í Guatemala og þar um kring.

Ungverjaland20083 144

Svona sveitabær sennilega týpiskur, en samt heilmikið kot.

Ungverjaland20083 145

Og enn var stoppað, en það gerði reyndar ekkert til, eftir að við fréttum að þeir í hinni rútunni væru komnir á áfanga stað, en yrðu að bíða eftir sínum herbergjum, þau myndu verða klár um það leyti sem við kæmum til Szeget.  Verst með ands.... hitann í rútunni.

Ungverjaland20083 150

Loksins komin upp á herbergi, loftkælt og hreint.  Notalegt, þó voru sumir ennþá að bíða eftir sínum herbergjum.  En við komumst strax inn í okkar.

Ungverjaland20083 151

Útsýnið fallegt yfir Tisza fljótið.

Ungverjaland20083 152

Flottur bær, svona um það bil jafnstór að höfðatölu og Ísland LoL

Ungverjaland20083 154

Hér er svo kóngurinn enn að bíða eftir sínu herbergi, hér er ekki farið eftir stöðu eða merkilegheitum hehehehehehe...

Ungverjaland20083 156

Og ef þið haldið að trabbi sé útdauður, þá verðið þið að fara til baka með það, hér lifir hann góðu lífi.  En nú erum við komin til Szeget, merkileg borg, með mikla sögu.  En meira um það síðar. 

Knús á ykkur öll inn í nóttina.  Ég er á kafi í mold og gróðursetningu sumarblóma, eiginlega á kafi. HeartÍ vatni, á einhver rigningu til að lána mér ?

 


Vinnufélagaferð í Skálavíkina, grillveisla og góð skemmtun.

Við vinnufélagarnir í Áhaldahúsi bæjarins fórum í grillveisluferð í gær út í Skálavík.  Það var virkilega góð og skemmtileg ferð, og ekki sakaði að veðrið er einstaklega fallegt.

En fyrst Þetta! eins og þeir segja spaugstofumenn.

IMG_8377

Et og drekk og ver glöð Heart

IMG_8379

Hér er Hnífsdalurinn fyrir hnífsdælingana mína.

En við fórum með rútu um hálfsexleytið, og vorum komin um kl. 7 út í Skálavík.

IMG_8380

Það var strax hafist handa við að koma mat og viðeigandi út úr rútunni, við höfðum fengið lánaðan sumarbústað til að athafna okkur í.  þennan líka fína bústað.

IMG_8382

Allt klárt undir grillveislu.

IMG_8385

Frú Freyja hafði marinerað og kryddað lambakjötið af hinni mestu snilld.  Og grillmeistari var Sveinn Sörensen.

IMG_8389

Konurnar höfðu það notalegt og nutu þess að láta karlana stjana við sig.  Þær voru jú gestirnir.

IMG_8392

Ykkar skál stelpur.

IMG_8394

Það var ágætis verönd á bústaðnum, en veðrið var svo gott að það var hægt að vera hvar sem var.

IMG_8398

Hér er örugglega verið að ræða einhver tæknimál, þar sem þarna eru yfirmaður tæknideildar og múrarinn.

IMG_8400

Það var sum sé hægt að sitja hvar sem var og borða, þessi eru auðvitað öll úti á túni. LoL

IMG_8403

Þú sleppur ekkert sagði Freyja svona komdu með myndavélina, ég ætla að smella einni af þér. W00t

IMG_8406

Þetta er nú svona felumynd, það voru smáský á himninum.

IMG_8409

Ósköp notalegt ekki satt.

IMG_8416

Hér pústar grillmeistarinn aðeins, enda búinn að grilla allt kjötið.

IMG_8427

Eftir matinn fóru menn svo í göngutúr niður að sjó.  Hér er gröfumaður í fararbroddi, bóndinn í Hrauni.

IMG_8431

Mér finnst alltaf eins og ég sé komin norður á Hornstrandir, þegar ég kem í Skálavíkina, það er sama yfirbragðið og friðurinn og kyrrðin.

IMG_8432

Þetta eru örugglega útilegumenn, eða huldufólk.  Enda nálgast Jónsmessann óðum.

IMG_8433

Kyrrð friður og kraftur á þessum stað.  Rolluskjátan forvitinn um þessa hávaðasömu gesti, sem skyndilega birtust á þessum friðsæla stað.

IMG_8434

Svo er spáð í myndavélina.

IMG_8438

Komið til baka úr gönguferðinni.

IMG_8442

Sumir fóru þó ekki í gönguferð, heldur héldu sig heimavið, og spjölluðu. Whistling

IMG_8444

Það er farið að nálgast miðnættið og sólin enn að skína.

IMG_8447

Þessi taska finnst mér alveg frábær.  Mér finnst að Besta Kaffi á Íslandi eigi að verðlauna þessa ágætu konu sem saumaði töskuna úr kaffipökkum.

IMG_8448

Mikil kjarnakona og laginn.

IMG_8451

Það voru ekki til nægilega margir stólar, svo það var ýmislegt notað til að sitja á.

IMG_8453

Hér sitja múrarinn og bakarinn á spjalli.

IMG_8454

Áhaldavörðurinn, grillarinn og bílstjórinn slaka á í kvöldsólinni.

IMG_8458

Ég veit að vinnufélagi minn fyrirgefur mér að birta þessa mynd, hehehehe... en það hvarflaði svona ýmislegt í gegnum hugann þegar ég sá hana hehehehe.... sérstaklega þar sem nokkrir tvíræðir brandarar höfðu fokið fyrr um kvöldið LoL Eða dettur ykkur nokkuð í hug ? Blush

IMG_8460

Það er ennþá glampandi sól, þó sést að skuggana er tekið að lengja.

IMG_8464

Hér er örugglega verið að syngja Kvöldið er fagurt, enda eru þetta kórfélagar ú rKarlakórnum Erni.

IMG_8473

Kveð svo með þessum fallegu kvöldsólarmyndum, miðnætursólarmyndir eru þetta.  Því við erum á heimleið eftir velheppnaða grillveislu út í náttúrunni.

IMG_8475

Knús á ykkur inn í þennna fallega sunnudag. Heart

 


Góða nótt og sofið rótt.

Nú er aftur komin föstudagur, eða laugardagsnótt.  Það er ótrúlegt hvað tíminn líður, og það er brjálað að gera, meðan ég er að koma niður sumarblómunum, og taka upp túlípanana.

IMG_8314

Fyrst kemur sumarnótt, næstum því jónsmessa.

IMG_8316

Svo kemur dagurinn.

IMG_8317

Vilt þú líka pússla ?

IMG_8322

Já það er vinsælt,

IMG_8330

Já þetta er svona fjölnota kerra LoL

IMG_8353

Svo þarf að leita að meiddi og fá prinsessuplástur ef það sést skráma.

IMG_8358

Já það þarf að spekulera í ýmsu, og þá er nú gott að hafa afa til að spyrja.

IMG_8364

Þetta er nýjasta leikfimin, vatna-leikfimi á tjarnarbakka LoL

IMG_8360

Var ég nokkuð búin að tala um veðrið Tounge

IMG_8366

Fjölskylda á matmálstíma.

IMG_8369

Blómarós og rósablóm. Heart

IMG_8351

Þau eru yndisleg svona sofandi og friðsæl. W00t

IMG_8352

Já það er best að fara að halla sér.  Þegar þessi tími er komin, þá dreymir mann um holuna sína.  og ég segi bara góða nótt öll sömul nær og fjær. Heart


Ævintýralandið og krúttfærsla undir svefninn.

Já ég ætla að setja inn nokkrar fleiri krúttmyndir.  Svona undir svefninn.  Það er smámsaman að komast regla á mig, og ég er að vinna mig niður úr bloggvinalistanum.  Það er góð tilfinning, og gaman að lesa hvað þið eruð að spá og spekulera. 

IMG_8149

Eins og ég sagði, þá er Úlfur farin á vit ævintýranna, á Þistareyki, eða hvernig sem það er skrifað í Borgarfjörð, í viku skemmtilegheit og ævintýri, þau fóru saman frændsystkinin Sóley Ebba og hann.  Það átti að taka með sér eitthvað krúttlegt, og þau voldu hvort sitt uppáhalds.

IMG_8157

Þetta er "Abigeil" þegar Úlfur var þriggja ára var ég á ferð í Mexícó, og þá voru þessir bangsar á vegi mínum, ég keypti tvo annan handa honum og hinn handa Júlíönu minni.  Hann var ísbjörn, dálítið hrollvekjandi á þessum síðustu og verstu.  En Abigeil fékk sum sé að fara í ævintýralandið.  Nafnið gaf drengurinn sjálfur, hvaðan sem honum kom í hug þriggja ára gömlum að skíra bangsann þessa, veit enginn, allra síst hann sjálfur í dag.

IMG_8163

Man ekki hvað krúttið hennar Sóley Ebbu heitir, en þetta er dýrið hennar.

IMG_8168

Jamm hér var um það bil að verða kveðjustund.

IMG_8174

Fljúgandi björn og strákur.

IMG_8177

LoL

IMG_8187

Gaman að vera börn, og gleyma sér svona.

IMG_8192

Taskan tilbúin og allt klárt í ferðalagið.

IMG_8196

Og allir vilja hjálpa til Smile

IMG_8201

Þetta er sullukolla númer eitt.

IMG_8216

Eins og sjá má.

IMG_8227

Og svo er prílað.

IMG_8213

Sagði einhver að Ásthildur væri eini klifurkötturinn ? LoL

IMG_8221

Stundum sér maður sjálfan sig endurspeglast í þessu elskum; svona má ekki gera!!! hehehehehe..

IMG_8230

En Isobel Díaz amma Alejöndru á afmæli 17. júní, svo ég bauð þeim í mat.  Ég veit að þau elska ofnbakað læri með soðnum kartöflum og sósu, og það brást heldur ekki í þetta sinn. 

IMG_8237

En áfram með krúttinn, töffarar ?

IMG_8239

Hahahahah !!!

IMG_8240

Svo er líka gott að fá sér ís.

IMG_8241

Tjörnin er óendanleg uppspretta ævintýra.

IMG_8252

Viltu fá ís með mér ?, já ég skal geyma snudduna þína. LoL

IMG_8259

Þessar voru teknar í dag.  Börn og gróður skemmtileg blanda.

IMG_8261

Og stundum heldur maður að ekki sjáist til manns, þegar maður missir sig að stríða litlu systur Whistling

IMG_8263

Hæ segir Hanna Sól.

IMG_8266

Gaman gaman segir Ásthildur.

IMG_8286

Knúsí krúsí!!

IMG_8295

Gæti verið auglýsing fyrir bleyjur.

IMG_8304

Er þessi ef til vill betri ?

IMG_8305

Eða ef til vill þessi? hvað finnst ykkur LoL  Þetta er annars bara svona smákrúttfærsla fyrir svefninn og ég segi bara góða nótt. Heart


Krúttblómin hennar ömmu, og ýmislegt annað.

Já þessi þjóðhátíðardagur liðinn, og venjulegur miðvikdagur tekinn við.  Allt í vanafarinu, ég að vinna við að setja niður sumarblómin, þar sem túlípanarnir eru að syngja sitt síðasta, en búnir að gleðja ísfirðinga og aðra núna í einn og hálfan mánuð, og spara mér mikla vinnu.

IMG_8059

en hér eru blómakrúttin mín.

IMG_8071

Maður gæti haldið að þær væru að veiða fisk.

IMG_8079

Svona með tillitil til staðsetningar....

IMG_8072

en þær eru þá bara að sópa fyrir ömmu sína LoL

IMG_8082

Svo uppvartar Hanna Sól verkamennina með nammi.

IMG_8086

Þessi svipur á Evítu Cesil er alveg óborganlegur.

IMG_8088

Sumir vinna líka úti við blómin hennar ömmu.

IMG_8089

Þá þurfa sumir að tala mikið í símann.

IMG_8095

Eða bara vera í prinsessuleik.

IMG_8093

Hér er píanótími hjá Jorgu og stelpunum.

IMG_8097

Og maður getur sofið í allskonar stellingum ekki satt ?

IMG_8098

Hér er Evíta að fara heim með pabba sínum.

IMG_8102

Hanna Sól fór með afa og ömmu í bæinn, í tilefni 17. júní. Og við fengum okkur ís í Hamraborg, hvað annað ?

IMG_8103

Þar stóð Úlfar og veifaði íslenska fánanum LoL Þeir voru reyndar að festa þá upp í tilefni dagsins feðgarnir.

IMG_8112

Já hestamenn voru mættir á svæðið, og teymdu undir börnunum.  Þetta var aðalatriðið hjá þeim litlu.

IMG_8116

Þau biðu í röð eftir að komast á bak.

IMG_8122

Sjáðu myndavélina segir Nói, ömmu hennar langaði svo í mynd af litlu skottunni sinni, svo ég smellti af nokkrum fyrir hana.

IMG_8123

Og Hanna Sól er vön á hestbaki, þar sem mamma hennar temur hesta, og hefur þjálfað þá litlu eins og hægt er.

IMG_8124

Þetta er skemmtilegt.

IMG_8132

Gaman gaman.

IMG_8137

Krakkarnir í Taikvon do voru líka að skemmta og sýna sig.

IMG_8139

Taka nokkra takta, ég missti af því að stubburinn minn og fleiri brutu spýtur. 

IMG_8140

Þeir leyfðu líka áhorfendum að prófa spörk.

IMG_8143

Og margir vildu prófa bæði eldri og yngri.

IMG_8145

Stubburinn minn var komin úr gallanum, hann var nefnilega að fara af stað í Ævintýralandið, sumarbúðir í vikudvöl.  Hann er þar núna, og skemmtir sér vonandi vel.

IMG_8146

Hér eru svo afi og Hanna Sól.  En ég segi bara eigiði góðan dag mín kæru. Heart

 


17. JÚNÍ, TIL HAMINGJU VIÐ ÖLL.

Já enn einu sinni 17. júní.

IMG_8104

Þetta er 17. júní.

IMG_8107

Þetta er líka 17. júní.

IMG_8109

Á Ísafirði er þetta líka örugglega 17. júní.

IMG_8111

Og þetta er 17. júní.

IMG_8121

Þetta er meira að segja 17. júní.

IMG_8129

Og þetta er líka 17. júní, væntanlegur kvenknapi Íslands, Íslandssólin mín Hanna Sól. 

TIl HAMINGJU MEÐ DAGINN BLOGGVINIR OG INNLITSVINIR OG BARA VINIR!Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband