30.9.2009 | 14:44
Ég vil þakka
Ykkur öllum sem sýnt hafa syni mínum og okkur hluttekningu, vináttu og kærleika. Það er svo óendanlega mikils virði þegar maður missir ástvin að finna hug fólks. Ég vil líka þakka þeim sem hafa hringt og komið.
Ég verð að reyna að skilja og sætta mig við að vinurinn minn komi ekki aftur með brosið sitt bjarta og segi mér frá fyrirætlunum sínum, draumum eða vonum. Eða færandi hendi. Nú síðast með lúðu og kola, alveg algjört sælgæti mamma sagði hann og brosti. Eða kemur í mat á sunnudegi og borðar mömmulæri af ákefð og lætur mann vita að það sé besta læri í heimi.
En ég verð líka að sætta mig við að hann valdi líf sitt sjálfur, hann tók líka fulla ábyrgð á því þegar hann þroskaðist nóg til að vita hvað hann vildi. Og átti yndislegan tíma nú síðustu árin, búin að vinna til baka traust samfélagsins og virðingu margra. Hann elskaði bæinn sinn, og þó fólk væri að ráðleggja honum að flytja í annað samfélag, þar sem ef til vill yrðu minni fordómar, þá kom það aldrei til greina. Hér voru hans rætur og hér skyldi hann vera. Hjá sínum nánustu, sonunum tveimur, sem hann elskaði út af lífinu, fjölskyldunni sinni og vinkonu og barnsmóður.
Hann átti líka vini allstaðar í kring um sig. Hann mun líka fá virðulega og fallega útför.
Rétt áðan kom Halldór besti vinur hans í heimsókn. Hann var sannarlega sleginn, en hve gott það var að ræða við hann um Drenginn minn. Þau hjónin sögðu fallega frá og hann var þeim eins og svo mörgum öðrum góður vinur og hjálparhella.
Júlli minn valdi þá leið sem hann fór, vissulega hefði móðir óskað sér beinni brautar fyrir son sinn. En við getum ekki valið fyrir börnin okkar. Þau verða að fá að fljúga og læra af reynslunni. Það eina sem við getum gert er að styðja við bakið á þeim andlega, og elska þau. Ef þau fara alvarlega út af brautinni eins og minn drengur gerði fyrir löngu, þá verðum við að aðskilja afkvæmið og fíkilinn. En það er ekki bara aðstandendur sem þess þurfa heldur þurfa opinberir aðilar að gera það líka. Sú fyrirlitning og virðingarleysi sem oft einkennir til dæmis lögreglu og læknum gagnvart fíklum er óþolandi. Og ég er viss um að oft hefur það einmitt leitt til þess að brotinn manneskja verður ennþá verr haldinn við slíkar aðstæður.
Ég ætla ekki að nefna nein nöfn hér en þeir sem eiga mega svo sannarlega taka til sín þessi orð mín. Og skammast sín, en jafnframt draga þann lærdóm af afskiptum sínum af Júlla mínum og haga sér betur við þá sem á eftir koma.
Júlíus aftur á móti þessi ljúflingur hefur alltaf fyrirgefið og aldrei hnjóðað í nokkurn mann. En sum samskipti hans og lögreglu og lækna eru geymd hjá mér en ekki gleymd.
Ég vil nota þetta tækifæri til að skerpa á þeirri ósk minni nú til margra ára að það verði hætt að setja fíkla í fangelsi, þangað eiga þeir ekkert erindi. Slíkir eiga að fá að fara inn á lokaða meðferðastofnun, þar sem fagmenn hlú að þeim og koma þeim út betri manneskjum með von um betri framtíð.
Ég hef fengið að heyra að fólki finnst gott að ég skrifi hér um drenginn minn. Og það geri ég með mikilli ánægju, það losar líka um einhver tilfinningahöft hjá mér að geta sagt frá því hve góður og frábær hann var. Og ég finn svo sannarlega að hann átti marga vini og velunnara sem vilja leggja sitt af mörkum honum til heiðurs. Fyrir það er ég óendanlega þakklát.
Ísafjörður staðurinn sem hann neitaði að yfirgefa, skartaði sínu fegursta daginn sem hann dó.
En ég vil ekki að við gleymum okkur alveg í sorg, það var ekki hans stíll. Hann vildi gleði og ástúð í kring um sig. Þess vegna ætla ég að segja smásögu af litla syni hans, sem mamma hans sagði mér í gær. Vona að það sé í lagi. Og svo ætla ég að setja inn nokkrar myndir af börnum. Það er alveg í hans anda.
Mamma Sigurjóns Dags er dýralæknir. Hún hafði fundið mús sem var mjög illa farinn eftir kattarkjaft. Hún var með snjóskóflu í höndunum og tók á það ráð að greiða músinni banahögg með skóflunni. Sigurjón Dagur horfði á þessar aðfarir og spurði svo; Mamma hvað myndir þú gera ef ég væri svona slasaður?
Elskan mín sagði mamma, ég myndi auðvita fara með þig beint niður á sjúkrahús og kalla á lækni.
Sigurjón horfir smá stund á móður sína og segir svo: Nei! ég vil heldur skófluna.
Sól á fjallatoppum.
Sól í firði. Landsins vættir fagna góðum dreng í sinn faðm.
Köttur á heitu þaki eða vélarhlíf.
Og á þaki.
Í kúlu heldur lífið áfram þökk sé litlum hnátum.
Fyrsta alvörumynd Ásthildar, hún er efnileg. Þetta er draugur sagði hún. Og nokkrum dögum seinna þegar ég var að skanna hana inn, og hún sá myndina endurtók hún að þetta væri draugur, svo það er alveg rétt.
Þetta er myndar stelpa hugsar Símon Dagur.
Hún er svo sæt,best að smakka á henni Sólveigu Huldu.
Vissi það, hún er sæt.
Vá hvað þetta er fallegur engill.
Mér finnst hann líka fallegur.
ég vil fá hann!
Ég áida...
Nei ekki þú!!!
Hæddu ðessu!!
Pabbi hún er að takida af mér!! Segiði svo að börnin viti ekki hvað þau vilja.
En ég bið alla góða vætti að vaka yfir ykkur öllum og vernda. Og til allra þeirra sem sakna Júlla míns, sendi ég risastórt knús. Við skulum minnast þessa ljúflings með birtu í sálinni og gleði yfir því að honum líður vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
Ég ætla að setja inn nokkrar myndir fyrir þá sem þykir vænt um Júlíus en eru fjarri í dag, og komast ekki.
Ljúflingurinn minn lifir ennþá í minningum okkar allra.
Sorgin er sár
svíður hjarta.
Tómleiki og tár
tilfinning svarta.
Samt lifir sú von
að góð sé þín köllun
minn elskaði son
á Ódáinsvöllum.
Ljúflingur og ljósið mitt
leggðu á veginn bjarta.
Löngunin og lífshlaup þitt
liggur mér á hjarta.
Í dýpstu sorg um dáinsgrund
döprum hug mig teymdir.
en fórnfýsi og fagra lund
í fylgsnum hugans geymdir.
Ekki barst þú mikið á
elsku sonur mildi.
Varst samt alltaf þar og þá.
Þegar mamma vildi.
Í mér sorgin situr nú
sárt er upp að vakna.
Hér ég vildi að værir þú
vinur þín ég sakna.
Englarnir nú eiga þig.
engan frið það lætur.
Við það sætta má ég mig
móðirin sem grætur.
Elsku Júlli ástin mín.
yfir þér nú vaka.
Allir vættir. Ævin þín
er óvænt stefnutaka.
Ég veit að elsku mamma mín
miðlar með þér gæsku.
Hún var æðsta ástin þín.
öll þín árin æsku .
Nú gráta blessuð börnin þín.
bestur alltaf varstu.
alltaf setja upp í grín.
alla tilurð gastu.
Sendi ég þér sátt og frið.
með söknuði í hjarta.
held þú eigir handan við,
hamingjuna bjarta.
Alltaf tilbúin til að aðstoða ungviðið. Bæði sín eigin og annara.
Hann var líka duglegur við að segja þeim að borða hollan mat, og kenndi þeim góða umgengni.
Í faðmi fjölskyldunnar. Þar var hann ánægðastur.
Hann færði Dvalarheimilinu Hlíf 18 fiska, sem hafa verið hengdir upp á veggin hússins og eru til mikillar prýði.
Stolt sinnar móður.
Glettinn og skemmtilegur var hann.
Og fannst gott að koma til mömmu og fá sér í gogginn. En oftast kom hann þó færandi hendi, með fisk, harðfisk eða fallegan stein, eða eitthvað til að gleðja mig.
Þetta er Júlli minn, alltaf svo góður við börnin, enda elska þau hann öll.
Hann gat líka verið töffari.
Eða natnin uppmáluð.
Hér hjálpast þeir feðgar að við að elda fiskisúpu (Gourme) Ofan í fjölda manns.
Og hann var einlægur aðdáandi Frjálslyndaflokksins.
Hann tók þátt í öllu með börnunum.
Og eins og ungamamma með syni sína.
Sama hvað var.
Alltaf leikið með.
Borða saman ís.
Synd hvað sá litli hafði lítin tíma með pabba sínum.
Skemmtileg mynd sem vinkona hans Frída tók.
Fallegi grallarinn minn.
Og listaverkin flott.
Steinninn varð lifandi í höndunum hans.
Hann var mjög hreykin af þessum steini.
Hulk í góðum fíling.
Og aðstaðan var enginn, hálfónýtur gámur og ljósavél. En aldrei kvartaði hann. Það var fjarri honum að kvarta yfir einhverju. Hann tók hverju eins og það var. Og var búin að fyrirgefa öllum þeim sem svo sannarlega reyndust honum vondir. En flestum þótti vænt um hann.
Hjartað sem hann gaf mömmu sinni. Ég á eftir að slípa það aðeins betur mamma sagði hann og brosti.
Skreyting hjá Frjálslynda flokknum í kosningunum.
Ég bið að þið eigið öll góðan dag. Ég vil nota tækifærið til að þakka öllum sem hafa hringt og komið til okkar á þessum erfiðu tímum. Öllum sem hafa boðið fram aðstoð og viljað hjálpa til. Það verður örugglega haft samband.
Með kærri kveðju Ásthildur Cesil.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (50)
29.9.2009 | 00:19
Í minningu ástkærs sonar.
Ég fékk þá köldustu kveðju í hádeginu í dag sem nokkur móðir getur fengið. Þó var hún sögð hlýlega og af ástúð. En það dugir ekki til.
Í dag fékk ég að vita að elskulegur sonur minn Júlíus Kristján Thomassen er dáin, farin fyrir fullt og allt. Ó hve sárt það er að missa svona allt í einu barnið sitt. Í yfir 30 ár hef ég borið hann fyrir brjósti, barist fyrir hann eins og ég hef getað. Ég veit að hann var þakklátur fyrir það. Nú er hann horfinn þessi ljúflingur og yndislegi drengur, sem alltaf setti aðra fram fyrir sjálfan sig. Krafðist aldrei neins, en var alltaf sá fyrsti sem kom færandi hendi eða lét vita af ást sinni og kærleika. Barnið sem þurfti mest á móður sinni að halda.
Það á að setja í lög að börnin eigi skilyrðislaust að lifa foreldra sína. Hitt er of sárt.
Elsku hjartans barnið mitt, ég hef ekki orku til að skrifa mikið, ég er tóm af sorg. En þú varst perla sem öllum vildir vel, og varst alltaf tilbúin til að hjálpa til. Í dag grétu öll börnin þig. Og þau grétu sárt. Þú áttir alltaf tíma fyrir þau, fara með þau að veiða, í sund eða bara fjöruferð. Sú minning mun lifa með þeim löngu eftir að þau verða fullorðin. Hvað sem þú tókst þér fyrir hendur gerðir þú vel, hvort sem það var að elda fiskisúpu fyrir tugir manns, eða steikja fisk, svo ekki sé talað um listaverkin sem þú varst að gera undanfarin ár, og gafst flest þeirra til fólks sem þér fannt þurfa á þeim að halda.
Hjarta mitt er yfirfullt af sorg. Þegar presturinn og lögreglan komu í hádeginu til mín, vildi ég að þeir hyrfu á braut. Ég vissi hvað þeir vildu segja mér, en ég vildi ekki heyra það. Gat ekki trúað því að tími aðskilnaðar væri komin. En ég vissi það. Ljúflingurinn minn, það eru margir sem sakna þín. Því þú varst alltaf tilbúin til að hlú að öðrum, þó þú værir sjálfur í rúst. Eða eins og sonur þinn sagði í dag; pabbi átti alltaf tíma fyrir alla aðra, en hann átti aldrei tíma fyrir sjálfan sig. Þetta er óréttlátt og ég vil ekki að það sé svona.
Nú blaktir sorgarfáni við hún í kúlu. Sjálf er ég í rusli, og langar mest til að draga sængina mína yfir haus og láta sem þetta sé bara erfiður og vondur draumur. Að þú sért ekki farin horfin mér og okkur hinum. Huggunin er samt að við vitum að þú ætlaðir ekki að deyja. Heldur var tíminn þinn einfaldlega komin.
Vertu sæll barnið mitt og vegni þér vel hjá englunum. Við munum hittast síðar.
Sonur minn
Þú flýtur sofandi að feigðarósiog vilt ekki vakna.
ég stend álengdar, en næ ekki til þín.
Þó elskan ég þig svo mikið.
Ég kalla til þín með hjartanu en þú heyrir ekki.
Ég kalla til þín með skynseminni en þú skilur ekki.
Ég kalla til þín með örvæntingu en þú aðeins flýtur framhjá.
Hvað á ég að gera.
Ég get ekki varið þig fyrir áföllunum,
ekki hlíft þér við miskunnarleysi mannanna.
Þú ert fastur í víti þar sem ég næ ekki til þín.
En ég elska þig.
Kanske nær ástúðin að bræða burt kalið í hjartanu þínu,
svo Ísdrottningin vonda haldi þér ekki að eilífu.
Mamma.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (108)
27.9.2009 | 22:38
Smá mömmó í kúlu.
Smámömmó. Við mæðurnar blívum þó allt annað hrynji. Og þannig mun ég allavega setja hér inn myndir af börnunum, þó ég finni mætavel að allt hér fer hnignandi. Allavega þar til ég hef fundið eitthvað annað sem tekur við og fólkið mitt getur fundið og skoðað. En það gæti allt eins orðið fljótlega.
Það þarf náttúrulega að matreiða snjóinn að hætti kokksins.
Þar duga enginn vettlingatök
Og svo er að smakka.
Ungfrú Hanna Sól, er að verða svo stór stúlka. Hún var í afmæli í dag hjá enn einni vinkonu sinni henni Sunnevu Sól.
Við vorum líka í afmælisboði í gærkveldi, Alejandra okkar elskuleg er orðin 13 ára.
Myndarleg og dugleg stelpa. Skyldu yfirvöld veita henni leyfi til að verða sá íslendingur sem hún vill verða.
Drottin blessi heimilið, hvað getur fjölskylda orðið íslenskari en það, enda hafa Pablo og Ísobel nú íslenskt ríkisfang, en ekki litla stúlkan þeirra, það er vegna regluverks sem ekkert vit er í skriffinnsku og asnalátum sem eiga að vernda en birtast hér í algjörri andhverfu sinni og hafa gert Alejöndru ótrúlega erfitt fyrir. Vonandi lagast það.
Og afi gamli er auðvitað heiðursgestur.
Og börnin eru mörg.
Sólveig Hulda og afi.
Hér er hún með mömmu sinni. 'Eg gæti verið að missa þessi yndislegu barnabörn og fleiri til Noregs, vegna ástandsins og aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar. Það verður sárt.
Dansað upp á borði.
Hún er með músikina í blóðinu þessi stelpa.
Dansa dansa!!
Og Hanna Sól ræðir við afa. henni finnst gaman að spá og spekulera, núna er hún á fullu að læra stafina.
Þau tvö eru bestu vinir
Það hringdi í mig vinnufélagi og vinur í kvöld og sagði mér að hann hefði verið að skoða myndirnar úr djúpinu sem ég setti hér inn um daginn, og þar hefði hann séð andlit á einni myndinni. Ég skoðaði hana og sá þetta andlit, set það hér inn í gamni.
En það var svo annar maður sem sá andlit í annari mynd í sömu færslu. Ég fór að skoða það og sá þessar.
Ef vel er skoðað má sjá þarna mannsmynd.
en það þarf ef til vill að rýna aðeins í myndirnar til að sjá þær í fyrstu. þetta er nú bara til gamans.
En eigið góða nótt elskurnar mínar.
Og svo sem hér líka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
26.9.2009 | 11:19
Minnihlutastjórn Vinstri grænna fram á vorið.
Mér lýst vel á tilllögu Páls Vilhjálmssonar um að Vinstri grænir sitji sem minnihlutastjórn til vors, og að kosið verði aftur þá.
Sjá hér:
Laugardagur, 26. september 2009
Minnihlutastjórn Vinstri grænna
Bretar og Hollendingar hafna fyrirvörum Alþingis við ríkisábyrgð á Icesave-samningnum. Þar með er ríkisstjórnin fallin. Aðeins á eftir að tímasetja afsögn ríkisstjórnarinnar. Minnihlutastjórn Vinstri grænna ætti að taka við og sitja fram á næsta vor, þegar kosið yrði á ný.
Minnihlutastjórn myndi starfa í skjóli breiðrar samstöðu á Alþingi um brýnustu mál. Vg er með hreinar hendur af hruni og er treystandi fyrir framkvæmdavaldinu. Stjórnmálaflokkarnir þurfa tíma til að móta stefnu sína til að bjóða kjósendum valkosti við næstu kosningar. Eftir hrun hefur reddingarpólitík verið ráðandi og verður um sinn.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eiga að lýsa því yfir að þeir séu tilbúnir að verja minnihlutastjórn Vg falli. Samfylkingin mun emja enda ekki skipuð fólki yfirvegunar.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er búin að vera.
http://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/954876/
Með þessu yrði ESB-ógninni aflétt í bili allavega. Þ.e. ef menn tjúna Steingrím niður. Þeir hugsa öðruvísi en Samfylkingin það er nokkuð ljóst.
Ég er líka sammála því að lítið hefur breyst í reddingapólitíkinni. Og að enginn tími hefur farið í að bjarga heimilum og atvinnufyrirtækjunum. En allt púðrið farið í hlaup eftir duttlungum útlendinga, svo sem eins og ASG, ESB og Icesave. Einhvernveginn hef ég á tilfinningunni að allt þetta sé runnið að mestu undan rifjum Samfylkingarfólksins. Þar er yfirborðsmennskan meiri að mínu mati.
Ég gæti vel hugsað mér að Vinstri græn bæru áfram stjórn landsins fram að kosningum, og aðrir flokkar færu þá í ímyndarvinnu og settu sér raunhæf markmið um hvað þau ætla að standa fyrir eftir næstu kosningar. Vinstri Græn verða auðvitað líka að huga að sínum loforðum, og ganga til baka með vitleysuna sem samstarfsflokkurinn hefur greinilega verið allof ráðandi um.
Margir kusu þá einmitt vegna andstöðu þeirra við ESB og Icesave. Og það er ekki gott að breyta svo í lauf þegar sætin eru í höfn. Það verða þeir að læra.
En allir hinir fjórflokkarnir eru gjörspilltir og rotnir inn að beini því miður. Döpur endalok Borgarahreyfingarinnar setur fólk líka í vanda. Mér finnst það synd að svona fór, því þetta hefur styrkt fjórflokkinn í sessi. Það má ekki gerast. Það breytist ekkert ef við höfum ekki kjark til að senda það fólk út í hafsauga sem skóp vandræði okkar, og situr ennþá og kjamsar allt kjöt af beinum, fyrir sig og vini sína.
Ég les daglega í DV niðurdrepandi upplýsingar um bruðl, svindl, svínarí og þjófnaði og ótrúlegan hroka ári eftir hrunið, og menn segja bara að þetta taki svo langan tíma. Það er einfaldlega ekki svo, það ætti þá að bæta við fólki, það ætti að vera nóg framboð af frambærilegu fólki í dag til að vinna að rannsókn mála og flýta því að þjófagenginn verði sett bak við lás og slá. Það er einfaldlega komið nóg.
Þess vegna skulum við gera þessa kröfu. Allir rétthugsandi alþingismenn verji minnihlutastjórn Vinstri Grænna falli, og kosið verði næsta vor.
Og þá verða líka kjósendur að hafa þor og vilja til að kynna sér stefnur flokkanna og láta vera að kjósa af gömlum vana, en fara að kjósa eftir sannfæringu sinni og þora að refsa þeim sem illa standa sig. Öðru vísi er vonlaust að skapa nýtt Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.9.2009 | 16:29
Fyrsti snjórinn skreytingar og fáni samstöðu og réttsýni.
Já fyrsti snjórinn féll í morgun. Fullorðnum til ama en börnum til mikillar gleði.
Fallegt samt.
Þær voru kátar í morgun skotturnar mínar að sjá snjóinn.
Hef nú samt ekki trú á að hann vari lengi.
en það þurfti að smakka.
Já sjáið bara vinirnir mínir fá Ísafirði, nú er það svart allt orðið hvítt.
Jamm og já.
Get samt sagt ykkur í trúnaði að þessa veðurlag fer miklu betur með plöntur en þurrafrost og vindur.
Kúla í felulitum eins og rjúpan.
Og birtan æðisleg.
Hér kemur svo mótsögnin við snjóinn. Hanna Sól lisakona og skreytingardama, kann svo sannarlega að búa til fallegar skreytingar.
Held meira að segja að hún hafi búið til hér eitthvað nýtt sem hægt er að nýta sér í skreytingar.
eða hafið þið séð svona áður? Og svo kann hún nöfnin á fullt af blómum.
Sjáðu!
Já það má ýmislegt læra af þeim sem eru fæddir listamenn.
Skottið hefur meiri áhuga á stóru blómunum.
Alvöru prinsessa með alvöru kórónu sem hún gerði sjálf. Hanna Sól tók þessa mynd.
Svo er allt í lagi að fíflast smá.
Það er vel við hæfi að fá vinkonu í heimsók að nafni Snæfríður.
Og að er spáð í blómaskreytingar.
Að lokum ég er búin að fá fánan frá Þórshöfn, hann kostaði bara 5622 krónur með sendingarkostnaði, og nú er bara að finna einhversstaðar stöng til að hengja hann upp á, og byltingin er hafin.
Eigið góðan dag elskurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.9.2009 | 10:45
Svona létt hugleiðsla um .. Það skyldi þó aldrei vera. Og gef mér ýmsar forsendur.
Já nú tel ég að upphefjist tími uppgjöra. Hafi menn talað um leirslag hingað til, mun sá atburður fá enn dýpri merkingu héðan í frá.
Fyrst varð ég hissa og reið yfir ráðningu Davíðs Oddssonar í ritstjórastól moggans. Þá var ég náttúrulega fyrst og fremst að hugsa um sjálfa mig og hvort mér yrði hent út af blogginu, og hvert ég ætti þá að snúa mér.
En ég er farin að sjá skondnu hliðina á þessu. Það mun koma í ljós hversu margir hætta að kaupa Morgunblaðið og hversu margir ákveða að byrja að kaupa það. Og svo á líka eftir að koma í ljós hvernig það fer allt saman.
Það skondnasta við þetta allt og sýnir íslensku þjóðarsálina svo vel er, að margir andstæðingar ESB gleðjast yfir að fá öflugan málsvara fyrir því að ganga ekki í Evrópusambandið. Aðrir hætta svona fyrir fram af því að þeir eru vissir um að allt fari til andskotans með karlinn í brúnni. Við erum sem sé ennþá við það heygarðshornið að sjá alltaf aukaatriðin, en ekki það sem skiptir mestu máli. Þannig erum við bara.
Ég gat ekki heyrt annað í gær eða fyrradag en að Ingibjörg Sólrún sé að boða endurkomu sína í stjórnmálin. Hún ætlar þá væntanlega að bola Jóhönnu burt, fólk er hvort sem er hundóánægt með hana. Það skyldi þó ekki vera runnið undan rifjum þeirrar sem vill komast í stólinn? Segi svona. Trúi öllu upp á þá manneskju.
Málið er að ég er ekki viss um að Steingrímur verði ánægður með skiptin. Hann hefur nánast verið með allt í sínum höndum, Jóhanna hefur látið honum eftir allt streðið, sem hann hefur notið í botn, ásamt athyglinni. Ég er nokkuð viss um að Ingibjörg Sólrún vill sjálf vera í sviðsljósinu þegar hún tekur við. Og þá verður Steingrímur að láta sig hafa það, að vera ekki aðal lengur. Það verður forvitnilegt að fylgjast með því.
En í ljósi þess að nú hefur sest í ritstjórastól Moggans maður sem hefur aldrei þolað Ingibjörgu Sólrúnu, og það maður sem skirrist ekki við að láta skoðanir sínar í ljós. Maður sem er uppvís að því að elta uppi óþægilegar staðreyndir um fólk sem hann vill koma á kaldan klaka. Þá verður forvitnilegt að sjá viðbrögðin við endurkomu hennar.
Málið er nefnilega að konan sú hefur margar beinagrindur í sínum skáp í sambandi við hrunið. Beinagrindur sem hún vill ekki endilega að komi upp á yfirborðið nákvæmlega þegar hún ætlar að koma til baka. Eins og peningaausturinn þegar hún ætlaði sér inn í Öryggisráðið, ferð hennar til New York til að dásama bankaútrásina og fleira slíkt.
Og ég er nokkuð klár á því að ritstjóranum er nákvæmlega sama þó Geir lendi líka í súpunni með vinkonu sinni og kossadömu.
Ég held sem sagt að við munum upplifa spennandi vetur með leirböðum og skítkasti sem aldrei fyrr. Hvort þar verður einhversstaðar pláss fyrri björgun heimila og atvinnu á Íslandi verður svo að koma í ljós. Það virðist hvort sem er enginn áhugi á því lengur að gera neitt í þá áttina.
Enda geta núverandi stjórnvöld sjálfum sér um kennt yfir óánægju almennings, vegna aðgerðaleysis og ráðaleysis. Flótta undan staðreyndum og aumingjaskapar við útlenda óvini okkar.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2009 | 12:28
Smá mömmó og kúlulíf.
Nokkrar myndir af stelpunum okkar.
Hanna Sól og Brandur eru góð saman á morgnana.
Ásthildur er líka góð á morgnana.
Notalegt að vera hjá afa.
Hönnu Sól finnst líka gaman að sitja svona
Eitthvað spennandi í barnatímanum.
Þá er nú notalegra að lesa bara Barbapabba undir svefninn.
Barbafjölskyldan er nefnilega skemmtileg og jákvæð.
Og Ásthildur er sniðug, því fyrst fer hún með afa og Hönnu Sól að lesa, svo á amma að lesa fyrir hana á eftir alveg sér
Hún er að breytast í töffara þessi stelpa.
Litla skottan mín.
Amma taktu eina mynd svona !
Það er sól þegar komið er heim úr leikskólanum. Og upplagt að dunda sér aðeins úti við.
Til dæmis að týna blómvönd.
Og það er orðið hvítt í fjallatoppa hér á Ísafirði.
Eigið góðan dag elskurnar og megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur öllum og vernda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
22.9.2009 | 15:49
Mannlegt eðli.
Ég hef æ oftar spáð í það sem við köllum mannlegt eðli undanfarið. Það er ef til vill vegna þess að ég hef sjálf þurft að fara í naflaskoðun, vegna breytinga í mínu lífi, vegna hrunsins mikla, líka vegna viðbragða fólks á alla vegu við því sem það les og svarar. En ef vil vill fyrst og fremst vegna þess að ég er orðin 65 ára gömul og reynslunni ríkari. Hef gert allar þær skyssur og vitleysur sem hafa þroskað mig og gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Og ekki síst vegna þess að ég hef alltaf haft gaman af að skoða mannlífið og hlusta á umhverfið, og ekki bara mannanna heldur líka bæði dýra og plantna.
Þegar ég segi plantna og dýra, þá hristir einhver haus. En málið er að allar lifandi verur hafa tjáningu og vilja til að lifa af. Það má vel sjá tjáningu hjá hundum og köttum. Þeir hafa lifað svo lengi með okkur, að þeir hafa jafnvel svipbrigði og viðbrögð sem sýna vel hvað þeim finnst. Önnur dýr hafa líka tjáningu en ef til vill ekki jafn skýra. Plöntur hafa líka tjáningu en hún er okkur oftast hulin. Það er hægt að mæla viðbrögð þeirra, en það sem hægt er að sjá er til dæmis viðbrögð þeirra við birtu, þar sem þau snúa framhlið blaðanna alltaf að ljósinu, en líka geta þau komið sér upp varnarkerfi til dæmis ef sjúkdómur herjar á skóg, þá mynda trén inn í skóginum vörn við honum. Ráðstöfun náttúrunnar segja menn. En á ráðstöfun náttúrunnar bara við um dýr og plöntur en ekki fólk?
Erum við undanskilin? Ég held ekki. Til dæmis vorum við hjónin fyrir allmörgum árum á skútuferðalagi um Grísku eyjarnar, með tvö ung börn okkar. Þar sem við komum að landi settu börnin sig í samband við börn á svipuðum aldri í höfnum Grikklands, og orð virtust óþörf. Þau skildu hvort annað án tungumálsins, þar var bara notuð líkamstjáning. svona rétt eins og hjá dýrunum.
En ég ætlaði að tala um mannlegt eðli. Og hvernig mikilvægi þess eykst þegar upp koma vandamál. Það er alltaf allt í lagi meðan menn eiga nóg að eta og hafa rúm til að sofa í. Þegar grunnþarfir hans bregðast, þá er kemur í ljós að við erum eins og dýr merkurinnar.
Sumir grípa til þess að reyna að halda í það sem þeir hafa sankað að sér, nota öll meðul til að fá að halda prikinu sínu, meðan þorrinn verður að sætta sig við að vera á gólfinu. Við höfum komið okkur upp goggunarröð sem erfitt er að riðla. Líka vegna þess að þeir sem hafa valist til að ráða samfélaginu þurfa að reiða sig á þá sem sitja á prikinu. Það er liðið sem hefur komið þeim þangað sem þeir sitja. það er því takmarkaður vilji til að breyta neinu, alveg sama hvað menn kalla sig, pólitískt séð. Þeir hafa meira og minna selt sig priksitjurunum.
Völd spilla, það er alveg dagsljóst, hvað þá völd sem hafa viðgengist áratugi. Því lengur sem menn sitja því erfiðara er að snúa þróunninni við. Því allt hefur jú miðast við að tryggja völdin. Og þó til dæmis svo komi að þeir missi tímabundið tangarhaldið. Þá hafa þeir búið svo um hnúta að arftökum gengur ekki vel að halda völdunum.
Margir muna sjálfsagt eftir breskum þáttum sem hétu Já Ráðherra. þar sem ráðuneytisstjórar réðu nánast öllu, og snéru kjánalegum ráðherrum eftir sínu höfði. Ég hef á tilfinningunni að það sé einmitt að gerast hér hjá okkur. Það hefur komið fyrir oftar en ekki að skjöl týnast, plögg frá erlendum aðiljum sem vilja koma til hjálpar finnast eftir dúk og disk, þegar farið er að grennslast um þau. Það vekur upp spurningar um hvernig það geti gerst að svona plögg gufi upp.
Hef reyndar heyrt svona á skotspónum, án ábyrgðar að fólk sem ráðið er af fyrrverandi stjórnvöldum sem situr í ráðuneytum dragi lappirnar og reyni allt til að gera óskunda fyrir þá ráðamenn sem nú ríkja. Það væri ágætt að fá um það staðfestingu að það væri ekki rétt. En meðan enginn segir neitt lifir þessi saga góðu lífi hér niðri í lágróðrinum, sem kallast grasrótin.
Ég vaknaði s.l. sunnudagsmorgun við það að ég heyrði viðtal við Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann fullyrti að Sjálfstæðisflokkurinn væri velferðarflokkur. Ég viðurkenni að í fyrstu í svefnrofunum hélt ég að hér væri á ferðinni spaugstofuútgáfa hjá útvarpinu. Og ég lagði við hlustir. Þarna kom fram að það væri alrangt að Sjálfstæðisflokkurinn ætti nokkurn þátt í hruninu, og að þeir væru hinir einu og sönnu björgunarmenn fólks sem minna má sín. Allt gott hefði komið frá Sjálfstæðisflokknum og allt slæmt frá hinum. Ég vissi ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta.
En það er nokkuð ljóst að áróðursmaskína Valhallar er komin á fullt og farin að mala, rétt eins og alltaf. Þeir misstu sig dálítið svona í miðju hruninu, en nú koma þeir aftur á fullu og ætla sér að koma því inn hjá almúganum að þeir muni bjarga öllu. Hvað sagði slagorðið? Ábyrg fjármálastefna? Nei ég man það ekki og nenni ekki að rifja það upp. En það sorglegast við þetta allt, er að það er fullt af fólki tilbúið til að gangast undir þennan "sannleika" enn og aftur. Hvers vegna? Jú af því að sú ríkisstjórn sem nú ríkir er ekki að standa sig. Hefur ekki staðið undir væntingum og orðið ber að því að svíkja kosningaloforð sín, eins og skjaldborgina margfrægu og allt upp á borði. Meira leyndó hefur ekki viðgengist í manna minnum. Og allt kapp lagt á að styrkja bankana og fjármálakerfið í staðin fyrir heimilin.
Sem sagt Sjálfstæðisflokkurinn er að græða á því í dag, að það er ekkert sem tekur við. Borgarahreyfingin sem margir bundu vonir við brást illilega. Sem er enn ein birtingarmynd forpokunar okkar íslendinga. Að taka alla af lífi sem ekki eru svartir hrafnar. Eða þannig. Hrafninn gerir það nefnilega hann drepur hrafn sem er svo óheppin að fæðast hvítur, og hver man ekki eftir Jónatan Livingstone mávi?
Frjálslyndi flokkurin lifði í tíu ár, og vonandi fær að fljúga aftur. Honum var fórnað einmitt af því að vera ekki í slagtogi við fjórflokkinn. Það var fundið flokknum allt til foráttu og menn nýttu sér að öfgafullir einstaklingar fengu tímabundna fótfestu þar. Þar fór fólk sem virkilega vildi breyta samfélaginu til hins betra, og ein besta stefnuskrá sem gerð hefur verið og stendur enn. Það dugði samt ekki til. Því fjórflokkurinn leyfir ekki nýjum framboðum að lifa. Það er of hættulegt fyrir samtryggingu spilltra pólitískra afla, sem manni finnst mest hafa það að fá að vera í friði með sitt á þurru.
Sama var um Íslandshreyfinguna. 'Eg er alveg viss um að Ómar Ragnassyni gekk gott eitt til að stofna þá hreyfingu. því miður lenti hann í svipuðu og við að fá yfir sig allskonar besservissera sem alltaf grípa tækifærið þegar ný framboð koma. Fólk sem sér tækifæri til að komast til valda og ráða í skjóli annara. Ég held að það hafi líka orðið innan Borgararhreyfingarinnar, og mín persónulega skoðun er að þrír þingmenn hennar hafi orðið fyrir holskeiflu illra afla sem tókst að kæfa góðar ætlanir í fæðingu. Vegna reynsluleysis þeirra sem þar völdust til forystu. Það þýðir nefnilega ekki að segja mér að Birgitta Jónsdóttir til dæmis sé haldin drottnunargirni eða stjörnustælum. Þar fór góður biti í hundskjaft. Þau voru tekin eins og gerðist hér í denn í vilta vestrinu, velt upp úr tjöru og fiðri og hengd án dóms og laga.
Í dag er ég sorgmædd yfir því hve þröngsýn við erum og tilbúin til að leggjast á þá sem vilja gera vel. Eins og hungruð úlfahjörð, okkur er auðvitað stjórnað þó við vitum það ekki, af þeim sem trompin hafa, okkur er sigað á þá sem ógna valdastrúktúrnum. Og við erum nógu barnaleg og tilbúin til að drepa til að láta hotta okkur til að gera nákvæmlega það sama og gert var í vilta vestrinu. Þegar búið var að egna þorpsbúa nógu mikið til að fara og taka þann sem bæjarstóranum stóð mest ógn af og hengja án dóms og laga.
Já við erum lítil þjóð, við ættum svo sannarlega að geta haft það svo gott og látið kærleikan fylla allt. En smæðin er sennilega okkar akkilesarhæll. Því öfundin og illgirnin er oft á tíðum það sem stjórnar okkur í stað þess að reyna að átta sig á heildarmyndinni og sjá að við erum þrátt fyrir allt öll í sömu súpunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
21.9.2009 | 13:02
Má bjóða ykku í smábíltúr um Djúpið?
Langar að bjóða ykkur í haustferð um Djúpið. Við skruppum inn í Heydal í gær, með Úlfinn okkar, en hann hefur fengið að fara í vikuferð þangað.
Aldrei er Ísafjarðardjúp fallegra en á haustinn, þegar litadýrðin er sem mest.
Við erum rétt komin inn í Hestfjörðinn hérna.
Reyndar eru litirnir ekki alveg komnir fram, vegna þess að hér hefur verið tiltölulega hlýtt og rigning.
Þetta sem er hvanngrænt enná er reynirinn okkar, en honum hefur fjölgað mikið á þessum slóðum í góðu árferði undanfarin ár. Og nú er hann víða fullur af berjum, svo vonandi eykst hann mikið enn.
Gróður og grjót er falleg blanda.
meira að segja klettarnir eru litskrúðugir.
Það var ekki stoppað, svo þetta er tekið á ferð, enda er ég orðin þrælvön að taka myndir út um bílrúður
Hvalskurðará. Hún er í Skötufirðinum.
Hlíðin mín fríða má líka segja hér, Hjalla meður græna. Reyndra rauða, gula og gráa í dag.
Hér er svo brúin yfir Mjóafjörð komin í gagnið loksins. Við tókum rúnt yfir hana, en þar sem við vorum að fara inn í Heydal, fórum við aftur til baka og héldum okkar ferð áfram hinu meginn.
Heydalur þetta er móttökustaður fyrir gesti, hlaðan hefur verið gerð upp og er virkilega notaleg og hlýleg. Hér keypti fólk frá Reykjavík, en þau hafa sest hér að og gert Heydalin að ferðaþjónustu. Hér er heitt vatn sundlaug og hesta og kajakleiga. Virkilega skemmtilegt að koma.
Stubbur var ánægður með aðstöðuna, hann hlakkar til að eyða hér einni viku í afslöppun.
Virkilega kósý og skemmtilega gerð upp gamla hlaðan. Þetta fólk er alþjóðlegt, þau eru hér á vegum félagsskapar sem kallast Seeds, eða svipað og Veraldarvinir. Vinna hér við ýmsar lagfæringar fyrir gistingu og mat. Svona á lífið að vera.
Stubbur strax farin að láta til sín taka.
Hér kveðjum við hann í bili þessa elsku. Hann mun hafa það gott í sveitiinni.
Haldið heim aftur, þetta skilti hef ég ekki séð áður. Skemmtilegt, og hverfandi eftir því sem malarvegum fækkar hef ég trú á.
Endalaus fegurð.
Skarfurinn er tignarlegur fugl, sérstaklega þegar hann er að þurrka vængina, þessum finnst greinilega ekki þörf á slíku.
Vigur sú fræga eyja, sem margir heimsækja sumar og haust. Eyjan græna.
Á hvað ertu eiginlega að glápa? það er dónalegt að stoppa svona og glápa á mann
Og ég er sko hvergi banginn við þig frú mín góð.
Flott útstilling, gæti allt eins verið listaverk einhvers útilistamanns. en ekki hvað.
Fyrstu jarðgöng á Íslandi, voru auðvitað hér. Hamarsgatið.
Komin heim og þetta er sorbus decora, eða skrautreynir, ber nafn sitt með rentu.
Svo útsýnið okkar venjulega.
Hér er vinaleg mynd af fólki að gefa hrossi. Við erum á leið inn á flugvöll að sækja englana okkar.
Músikfólk, Maggi Reynir bassaleikari og Ingibjörg okkar sem alltaf er kölluð Ingibjörg í BG.
É datt í drullupoll amma.
ég hljóp svo hratt, að ég hrasaði og datt.
Og það er gott að komast heim í durtu:
er hún að verða mátuleg afi?
Og nú er allt komið aftur í fastar skorður.
Eigið góðan dag elskurnar megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur öllum og vernda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar