13.9.2007 | 15:05
Kveðjustund.
Allt fram steymir endalaust,
Ár og dagar líða.
Nú er komið hrímkalt haust,
horfin sumarblíða.
Einhvernveginn svona er ljóðið sem er í sálu minni núna. Það er ótrúlega erfitt að segja bless við ástvini sína. Nú var dóttir mín að leggja af stað suður til Reykjvíkur með litlu dæturnar. Húsið verður tómlegt, sem betur fer er stubburinn hér og mun halda okkur við efnið, með glaðværð og athygli. Svo veit ég að hin litlu barnabörnin mín verða áfram duglega að koma hingað. Svo það þarf ekki að kvíða, neinu, en samt, þar er bara erfitt að segja bless.
Sem betur fer er sólin að brjótast fram, þá verður ekki eins erfitt að ferðast, og ef það væri hellirigning eða snjókoma.
En himininn brosir við okkur öllum og segir, eilífðin er bara eitt andartak og það líður fljótt.
Svona eru fjöllin mín í dag.
Og haustlitirnir að myndast.
Já, þetta er að lagast og sólin er kominn.
Eins og sjá má.
Þá er að skrifa í gestabókina, allt orðið klárt til brottfarar.
Amma vill fá að taka mynd áður en stelpurnar hennar fara.
Allir klárir í slaginn. Og amman með kökk í hálsinum.
Mér verður víst ekki mikið úr verki í dag, vil helst skríða upp í rúm og breiða yfir haus. Hér er nú samt hann Kristján Logi litli, hann er í pössun, vegna þess að mamma hans er í skólanum, og hann var veikur. Það er svo sem alltaf eitthvað til að draga mann út úr sjálfinu sínu.
Ég veit að ég ætti að sökkva mér niður í gróðurinn úti, eða fara í góðan göngutúr. En ég bara kem mér ekki að neinu núna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.9.2007 | 23:28
Fyrsta haustlægðin í ár.
Veðrið er búið að vera svolítið æst í dag. Ég bjargaði nokkrum blómum inn í gróðurhús í dag. Þarf að ganga frá þeim á næstu dögum í mold og búa að þeim fyrir veturinn. Það er samt voða notalegt að gera það. Einskonar umönnunnarhlutverk.
Eins og sjá má er lognið að flýta sér. Stubburinn að koma heim úr skólanum, með félaga sínum Sakaríasi.
Ennþá er allt í lagi með gróðurinn, en haustlitirnir eru farnir að koma fram.
Sjávarperlan mín ennþá í sínu fegursta, þessi heitir "Norðurljós" og er einstaklega flott planta.
Lóðin mín er orðin að einskonar frumskógi, þar sem allt vex vel, sem betur fer, en dálítið villt.
Tengdadóttir mín hún Tinna kom með lítinn mann í heimsókn í dag, og sú stutta var ansi hrifinn, hún nafna mín.
Það þurfti náttúrulega að skoða hann og tékka á aðstæðum.
Heyrðu góð þetta er mitt dót
Ég skal passa þig, segir Óðinn Freyr, en stubbur er ekki alveg ánægður.
Dóttir mín ætlar að fara suður á morgun. Það verður sorgardagur hjá mér, að missa þessar elskur. Ég hata svona kveðjustundir. En það er víst ekkert við því að gera. Þau eru frjáls eins og fuglinn, og geta flogið um. Ég er bara svo ánægð að hafa getað gert mitt til að þeim hefur liðið vel hér, þessa tvo mánuði sem þær hafa dvalið hjá mér. Nú liggur leiðin til Vínar. Skóli, leikskóli og aupair. Það er það sem verður.
En ég mun halda áfram að vinna við að koma plöntunum mínum á sinn stað, svo þær geti unað sér vel og lengi yfir skammdegið. Ég er viss um að það koma góðir dagar hér eftir, sem verður gott að vinna í garðinum við frágang og flutninga á runnum og fjölæringum. Alltaf má breyta og bæta. Finna pláss fyrir eðalplöntur og svo framvegis. En ég er að verða klár í haustið og kuldann. Það er aðalmálið.
Jamm það er komin tími til að halla sér. Ég er svo ánægð með allar góðu óskirnar sem ég hef fengið frá ykkur öllum og fjölskyldunni minni, líka Málverjunum mínum. Einn dag á ári á maður sjálfur. Minn er 11. september, og það getur enginn tekið frá mér, jafnvel ekki menn sem nota sér ískaldan húmor eða djöfulskap og nýta sér dagsetninguna nine one one til að ráðast á saklausa borgara og deyða fleiri þúsund manns. Hverjir svo sem þar áttu hlut að máli. Það var verulega ljótt.
Hver er sinnar gæfu smiður. Við fáum til baka það sem við sendum frá okkur. Það er vert að hafa í huga. Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda. Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
12.9.2007 | 01:49
11. september afmælið mitt.
Þessi dagur var hreint frábær. Við litla skottið hún nafna mín áttum allan fyrripart dagsins saman.
Svo komu börnin í vöflur, rjóma og heitt súkkulaði, eins og vera ber.
Dóttir mín og litla Hanna Sólin komu frá Reykjavík í dag, hún er aldeilis börubrött sú stutta, þó hún sé nýkomin úr uppskurði þar sem teknir voru bæði háls og nefkirtlar.
Eins og sjá má var sú litla glöð aðsjá mömmu sína og systur.
Þarna klappa þau fyrir ömmu sinni.
Því næst vorum við boðin í mat hjá okkar góðu vinum og fjölskyldu frá El Salvador.
Þessi áletrun var til mín, yndislegt alveg. Alejandra spilaði afmælis söngin á skemmtara, þegar ég kom greinilega búið að æfa það vel. En hve ég er heppin.
Sjáiði bara hvað stendur í rammanum á veggnum, hvað er íslenskara en áletrunin Drottinn blessi heimilið.
Og ég fékk líka pakka frá þeim. Fékk fékk gamla brýnið fullt af pökkum, þessa peysu sem ég er í, gáfu mér sonur minn Skafti og Tinna. Önnur tengdadóttir færði mér rauðvínsflösku og glænýjar kartöflur úr garðinum. Það er algjört sælgæti glænýjar kartöflur.
Ég er svo heppin að eiga svona gott fólk að.
Og þær ræðast við, önnur á spænsku og hin svarar da da da.... og skilur alveg, því þau heyra hljómin í röddinni fyrst og fremst.
Meðan Hanna Sólin mín tékkar á hvort húsgögnin séu nú í góðu standi.
Isabel og Pablo eru nýbúin að kaupa sér þessa yndislegu íbúð. Þau eru virkilega að setjast hér að fyrir lífið.
Já og svo er smáfjalla/himna sýning svona að lokum.
Jamm yndislegur dagur liðin. Ég vil bara þakka enn og aftur fyrir mig, og góðar óskir. Þær munu fleyta mér langt inn í nóttina og draumalandið. Það er svo mikils virði að finna svona hlýhug, og væntumþykju.
Og ég vona að þið eigið öll góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
11.9.2007 | 10:58
11. september.
Minn dagur.
Ég og Nonni bróðir minn.
Nokkrar myndir sem ég fann í fljótu bragði. Bara svona upp á grín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
10.9.2007 | 23:46
Veður og sál.
Eins og ég sagði áður þá tók ég nokkrar myndir í dag. Veðrið var frekar úfið, eins og sálin mín. Maður heldur alltaf að maður hafi allt í hendi sér, en uppgötvar svo, að ekkert má út af bregða, svo að lífið fari úr skorðum. Þá kemur líka í ljós á hvaða þroskastigi maður er, til að geta tekist á við það sem að höndum ber.
Dálítið tryllingslegt ekki satt ?
Samt svo frábært.
Himnashow.
Og meira
Fjöllin loga.
Úbbs hvaðan kemur þessi blámi allt í einu?
Lék mér með þessa dálítið.
Fuglar himinsins leika sér.
Flottir !
Ekkert jafnast á við himnagalleríið.
Bloggar | Breytt 11.9.2007 kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
10.9.2007 | 11:20
Dagurinn í dag....
Dagurinn í dag er baráttudagur, það er rigning og sól til skiptis. Hvort sigrar það glaða sólskyn eða drungaleg rigningin. Ég held að sólin muni hafa vinningin.
Þessi sérkennilega mynd var tekin í gær. Það er eins og rjúki af jörðinni.
Þessar þrjár næstu eru allar teknar í sömu andánni.
Það er barátta í myndunum frá Gallerí himni.
Sólin skal sigra.
Hér eru Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar stóra systir og mamma þeirra í kaffi í eldhúsinu hennar ömmu í kúlu.
Fjölskyldan er það sem skiptir mann mestu máli. Það er bara þannig. Samhent fjölskylda getur gert svo margt. Ég er þakklát fyrir að eiga mína. Ég er líka þakklát fyrir að eiga góða að hér.
Vona að þið eigið öll góðan dag. Ég er viss um að minn verður það líka. Ég geng allavega út í hann með ljós, kærleika og von að vopni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
9.9.2007 | 11:24
Lúðuveisla og hádegisstemning.
Jæja lúðan var æðisleg. Sonur minn byrjaði að elda um tólfleytið. Hann útbjó stórt grill úti úr múrsteinum, því hún er svo stór.
Hér er hún í allri sinni dýrð, engin smásmíði.
Grænmetið sem er í pottinum, setti hann inn í fiskinn. Það var algjört sælgæti.
Hér er svo kokkurinn.
Nammi namm. Þetta var skemmtileg hádegisstemning.
Það eru sko ekki bara börnin sem finnst gott að liggja á teppinu hennar ömmu.
Það er alltaf þessi skrýtna skemmtilega stelpa þarna, sem er svo gaman að spjalla við. En maður skilur ekki af hverju það er ekki hægt að ná almennilega til hennar, þá verður maður hugsandi á svipinn, en svo brosir maður og hún brosir á móti.
Hún er alveg mögnuð þessi stelpa.
Hann Sigurjón Dagur lét sig ekki vanta í veisluna. Tilbúinn í slaginn.
Stubburinn minn líka, hann er örugglega að hugsa um náttúrufræði, en hann er snillingur í því fagi. Horfir á alla náttúrulífsþætti sem hann finnur í sjónvarpinu.
Smá knús, svo notalegt.
Svo er lagt í langferð. Sonur minn ætlar að hafa litlu pæjuna í nótt.
En eigiði góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
8.9.2007 | 12:57
Það er alltaf von.
![]() |
Fannst á lífi eftir að hafa verið týnd í skóglendi í tvær vikur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
8.9.2007 | 00:32
Börnin, himininn og smá hugleiðing.
Svona af tilefni þess að ég er komin með yfir 100.000 flettingar, eða; 100300 til að vera nákæm, þá hef ég verið að hugleiða hvort svona blogg og spjallrásir, muni ekki smám saman breyta heiminum. Hafa efalaust nú þegar gert það. Hér áður fyrr, þá heyrðust ekki raddir Jóns og Gunnu, nema þeirra sem skrifðuð í blöðin, og það voru ekki margir sem létu heyra í sér þannig. Það var mikið mál, fyrst var að skrifa bréfið, svo að senda það til einhvers dagblaðsins, og biðja um birtingu, þá þurfti oft að stytta greinina, eða hún fékkst ekki birt.
Í dag eru þau skötuhjú litla Gunna og litli Jón ekki í neinum vandræðum, þau bara skrifa það sem þeim býr í brjósti, og fá svör allt á sama klukkutímanum. Þetta getur verið bæði til góðs og ills. Versta nýlega dæmið er sennilega Lúkasarmálið, þar sem hysterían vatt upp á sig, þangað til fólk réði ekki við sig, ástandið var eins og í vilta vestrinu í BNA þegar menn tóku fólk af lífi án dóms og laga.
En þetta getur líka verið gott, því það er vakin athygli á málum, sem sumir vilja ekki fá umræður um. Sumt þjóðþrifamál, sem þarf að ræða á svona breiðum grundvelli.
Líka hættulegt ef menn fara af stað eins og með Lúkas.
En ætli þetta breyti ekki þjóðfélaginu varanlega ? Það hefur sýnt sig að ráðamenn taka mark á því sem fólkið segir, á bloggi og spjallrásum. Þeir láta hafa áhrif á sig. Þannig að sennilega verður lýðræðið sterkara, og vilji fólksins setur meiri svip á samfélagið. Þannig þarf það líka að vera. Þetta leiðir svo örugglega til þess, að það kemur ný kynslóð ráðamanna, fólk sem getur tekist á við opna umræðu, yngra fólk, sem þekkir þetta umhverfi. Það verður meira eins og norm, að fólk tjái sig opinberlega. Lýðræðið hlýtur að verða skilvirkara, og opnara. Það er alla vega mín trú.
Það væri verðugt verkefni fyrir mannfræðinga og aðra fræðinga að gera úttekt á breytingum á samfélaginu síðastliðin 20 ár, með tilliti til þessara þátta.
Ég vil allavega þakka því fólki sem hefur litið hér við og skoðað síðuna mína. Ég bjóst aldrei við svona góðum viðtökum, og heldur ekki að eignast svona marga frábæra vini. Og það er svo gaman líka þegar ný andlit sýna sig, eða gamlir kunningjar dúkka upp og segja hæ!.
En nóg um það. Ég ætla að setja inn nokkrar myndir af nöfnu minni það er fyrir mömmuna, sem er í Reykjavík. Hanna Sólin gekkst undir uppskurð í morgun, það voru teknir úr henni kirtlarnir bæði í hálsi og nefi. Hún var alveg sallaróleg meðan hún var svæfð, og eftir aðgerðina, gekk mín bara borubrött út og þakkaði fyrir sig. Stúlkan í mótttökunni muldraði við mömmuna; þau koma nú venjulega grátandi út. En ekki litla hetjan mín, sem er bara þriggja ára.
Við áttum góða stund í morgun nöfnurnar. Sátum og spjölluðum aðeins eftir morgunmatinn.
Bangsar eru góðir. Þessir eru frá New York og Boston. Ég fór á Cheers barinn sem er þar, það er að vísu ekki barinn þar sem þættirnir voru teknir upp, en nákvæm eftirlíking, og myndir af leikurum upp um alla veggi. gaman að koma þar.
Svona já.
Það er sko hægt að hlæja að því.
Svo þarf að smakka aðeins á öllu dótinu.
Og gott að hafa afa með. Hún er alveg að fara að skríða.
Hér er svo Sóley Ebba að skrautskrifa, að lærði hún hjá Jens Guði.
Evíta litla kom í heimsókn og þær fóru saman í bað.
Algjörar pæjur.
Við ætluðum ekkert að fara að sofa!
Það var ákveðið að grilla saman í hádeginu á morgun. Einn sonur minn fékk gefins stóra lúðu, sem verður sett á grillið.
En ég tók nokkrar himna myndir líka í dag, það eru svo flott litaskilin á þessum tíma.
Stórkostleg samspil ljóss og skugga.
Ekki satt ?
Svo er hér ein fyrir þá ísfirðinga sem hafa ekki komið heim lengi.
Póllinn og Edinborgarhúsið búin að fá þessa líka fínu andlitslyftingu.
En ég vona að þið sofið rótt og hafið það gott.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
7.9.2007 | 15:49
Hvað varð um litlu Madelein McCann - what happened to Mary Jane ?
Þetta er á allan hátt frekar ógeðfellt mál. Ef foreldrarnir eru saklausir, þá er það skelfilegt ofan á sorgina að þurfa að standa sem sakamanneskjur frammi fyrir heiminum.
Ef aftur á móti þau hafa sett brotthvarf hennar á svið, vegna þess að Madelein litla hefur dáið inn á heimilinu, þá er málið jafnvel ennþá ógeðfeldara. Því það bendir til þess að hún hafi verið beitt harðæði sem orsakað hefur dauða hennar. Það er þá eina skýringin á hvers vegna foreldrarnir hafa sett brottnám hennar á svið, til að fela áverka á líkama hennar.
Ég vona að þetta andstyggilega mál taki enda sem fyrst, á hvorn veginn sem er, svo við viðkvæmt fólk getum hætt að velta okkur upp úr þessu. Meðan það er sífellt í fréttum, þá er erfitt að líta framhjá því.
![]() |
Kate McCann hefur ekki verið ákærð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar