7.9.2009 | 20:36
Eru menn ekki að grínast?
Svei mér þá ég starði á þingkonuna og búsáhaldabyltingarsinnan í fréttunum í gær, og var að spá í hvort þetta væri spaugstofan eða hvað. http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/2009/09/06/ Það á sem sé að nota nokkra milljarða af litlu sameiginlegu fé þjóðarinnar til að byggja háskólasjúkrahús. Gríðarleg frjárfesting og mikill mannafli. Ég get svo svarið það. þau falla eitt af öðru vinstri grænu hetjurnar sem ég hélt í fáfræði minni að væru fyrst og fremst að hugsa um heill íslenskrar þjóðar. En sé svo að þau eru einungis að hugsa um eigið rassgat. Álfheiður Ingadóttir, það er bara ekkert vit í því að leggja þennan pening í háskólasjúkrahús, meðan við erum að skera niður í heilbrigðisgeiranum, loka skurðstofum og fækka starfsfólki. Þið eruð væntanlega að grínast, hafið ákveðið að við þyrftum að hlæja svolítið, það ku vera gott fyrir heilsuna og sálarlífið. Ef þér hins vegar var alvara þarna í fréttunum í gær, þá verð ég að segja að þú varst aumkvunarverð að þurfa að standa þarna eins og illa gerður hlutur og setja þetta á borð fyrir okkur sem erum að missa allt út úr höndunum á okkur, erum að spá í hvort við eigum fyrir salti í grautinn á morgun, hvað þá borga fyrir skólamat, tryggingar, skatta og aðrar álögur sem sífellt hækka.
Þið eruð bara ekki í lagi, verð að segja það hreint út. Það ætti að taka helmingin af laununum ykkar, og síðan setja bæði ykkur og alla aðra pólitíkusa í sama fasa og aðra lífeyrisþega. Meðan þið skynjið ekki hvað er að gerast í þjóðfélaginu, þá þarf að grípa til þess að þið virkilega finnið til þess í pyngjunni.
Samtrygging og spilling meðal ykkar sem trónið þarna uppi er algjör. Og íslenskur almenningur er svona um það bil að fá alveg nóg af ykkur. Það hefur nefnilega komið í ljós, sem maður vildi ekki trúa, að það er sama rassgatið undir ykkur öllum, hvort sem þið kallið ykkur vinstri græn, samfylkingu, sjálfstæðisflokk eða framsókn. Skrifa með litlum staf til lítilsvirðingar.
En það er hingað og ekki lengra, vinsamlegast hættið strax að hugsa um háskólasjúkrahús, meðan þið getið ekki mannað þau sjúkrahús sem fyrir eru í landinu. Þetta blaður um að það skapi svo mörg störf eru hlægileg eða sorgleg eftir því hvernig á það er litið. Vinsamlegast annað hvort farið að reyna að setja ykkur í spor okkar sem erum að missa tökin og falla í vonleysi, eða segið af ykkur og farið fram á að hér verði sett á laggirnar utanþingsstjórn, eða þjóðstjórn. Það er orðið hverjum manni augljóst að þið ráðið ekki við ástandið. ´Hér er klæmst á ESB og Icesave út og suður, eins og það sé það eina sem þarf að gera í augnablikinu. Jæja ég get sagt ykkur að það er einfaldlega ekki á dagskrá. Því hér bíða miklu fleiri og brýnni mál að sinna.
Það er komið nóg. Hingað og ekki lengra. Nú þarf að endurvekja mótmælin á Austurvelli og á öllum stöðum um allt land. Til að láta ykkur vita að við viljum þetta ekki lengur. Við viljum fá réttlæti, tryggingu fyrir því að við getum staðið teinrétt og borgað það sem okkur ber, (ekki meira) og við viljum að börnin okkar séu ekki sett á ævilangan skuldahala, bara af því að þið berið einhverja fáránlega ofurtrú og bleyðugang gagnvart útlendingum.
Segi nú ekki margt. En þetta var held ég dropinn sem fyllti minn mæli. Það á sem sagt bara að huga að Reykjavík, háskólasjúkrahús og tónlistahöll. Þið eruð bara ekki í lagi segi og skrifa. En sagan mun dæma ykkur og það mun verða þungur dómur að lifa með. Þið megið aðeins huga að því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.9.2009 | 10:27
Til hamingju með afmælið Bára mín!
Í gær þann 6. september átti stúlkan mín afmæli. Ég sé litlu stúlkurnar mjög mikið í mömmu sinni. Hún var alla tíð afskaplega dugleg og ákveðin einstaklingur. Strákastelpa, alveg eins og ég var þegar ég var lítil. Ég er mjög hreykin af henni hvað hún er dugleg við að láta draum sinn rætast. Alveg vrá því að hún var pínulítil ætlaði hún að verða dýralæknir. Enda var húsið alltaf fullt af gæludýrum, fuglum, köttum, naggrísum og ég veit ekki hvað og hvað.
Við pabbi hennar erum afskaplega glöð yfir að geta hjálpað henni með því að annast prinsessurnar hennar meðan hún er í námi. Þær eru svo sannarlega gleðigjafar. Æ hvað allt verður tómlegt eftir að þær fara sagði afi í gær. Og já, svo sannarlega verður lífið snautlegra þegar þær hafa yfirgefið hreiðrið. Þangað til njótum við samvistanna við þær. Og fylgjum mömmunni eftir með því að senda henni myndir og láta hana vita að við elskum hana rosalega mikið. Innilega til hamingju með afmælið í gær elsku Bára mín.
Og knús frá okkur öllum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
6.9.2009 | 20:01
Sitt lítið að hverju.
Þið verðið að afsaka mig kæru bloggvinir, ég er orkulaus og vitlaus þessa dagana. Bæði hefur Ásthildur verið lasin og ég líka, og svo bara þetta vesen hjá okkur hjónum.
En ég ætla að setja inn nokkrar myndir.
Það flæða hormónar hér um allt heimilið. Stóri strákurinn okkar fékk að halda bekkjapartý í gærkveldi, hér er hann að undirbúa tónlistina.
Farðu frá ég þarf að komast framhjá.
Nei ég fer ekki fet, ég má sitja hérna.
Þú ert fyrir mér, viltu gegna!
ég bíð eftir að þú farir frá.
Þá keyri ég bara á þig.
Jæja þá.
En ég má fá hjólið.
Nei láttu það vera!
ég er að hjóla...
Nei ég má núna...
ég ætla að hjóla núna....
Stelpur stelpur, þið megið ekki rífast svona. Við skulum bara koma og gera eitthvað annað skemmtilegra.
Við skulum bara koma og setja Dóru í tækið...
Smá systrakærleikur.
Nú er allt að verða klárt fyrir partýið.
Við aftur á móti áttum inni matarboð niður í Neðsta. Í tjöruhúsinu sem er frábær veitingastaður, rekinn af Magga Hauks og Ragnheiði Halldórsdóttur. Þangað kemur fólk allstaðar að úr heiminum til að borða fiskiréttina sem þar eru matreiddir af snilld.
Og það þarf að fínstilla græjurnar. Þessir piltar standa mörgum fullorðnum á sporði þegar kemur að DJ hlutverkinu. Þó ekki séu þeir háir í loftinu.
Hér er náttúrulega eitthvað á seiði.
Við erum komin niður í Neðsta Kaupstað. Elstu samstæðu hún á landinu held ég bara.
Meðan við biðum eftir að maturinn yrði framreiddur var farið aðeins niður í fjöru. En það var hlaðborð og við vorum frekar snemma.
Litla stúlkan og hafið.
Bless stóra haf.
Eins gott að grufla ekki á henni þessari. Ég man ennþá hvað mig sveið í hendurnar, þegar við vinkonurnar vorum niður í fjöru að handfjatla marglittur. Varst það ef til vill þú Dísa mín sem varst með mér þá.
Það er óhætt að segja að maturinn var algjört lostæti. Og þarna má sjá skreytingar frá syni mínum. Steinana hans hér og þar.
Hér er allt í gömlum stíl og upprunalegt, hrátt en óskaplega vinalegt. Og þjónustan ljúf og góð. Enda sækir fólk í að komast til að borða hér, bæði íslendingar og útlendingar, sem hafa lesið um eða heyrt af þessum frábæra veitingastað.
Og hér er allt til staðar, líka fyrir litlar stúlkur sem þurfa eitthvað við að vera.
Fiskurinn er glænýr, og flakaður sama daginn, og hér stendur Dóri sveittur við að steikja hann ofan í svanga matargesti, sem greinilega voru mjög ánægðir með það sem þeir fengu. Enda var úrvalið gott. Kærar þakkir fyrir mig bæði vertar í Neðsta og svo Júlli minn.
Og partýið var í fullum gangi þegar við komum heim.
Það var búið að færa allt út í góða veðrið. Veit ekki hvort nágranninn var hrifinn, því hávaðalaust er þetta ekki. En Doddi lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Þau er flott þessir krakkar, sem eru að verða táningar og lífið blasir við þeim, vonandi gott líf.
Þau eiga allavega rétt á því að við stöndum vörð um þau og látum ekki misvitra stjórnmálamenn gera einhverjar vitleysur sem stofna þeim í hættu eða á skuldaklafa. Við verðum að vernda þau með öllum ráðum, og þau ráð hljóta að vera að berjast með öllum tiltækum ráðum gegn vitleysugangi stjórnmálamanna að þeir vilji frekar sleikja skósóla útlendinga en að vernda hagsmuni þjóðarinnar. Það segi ég og skrifa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
5.9.2009 | 11:20
Laugardagsmorgun.
Það er laugardagsmorgun, sólin hún brýst inn um gluggann, bráðum. Hún er að þrengja sér gegnum skýin. Það er hlýtt og allt í rólegheitum. Ásthildur er að verða góð af skarlatssóttinni, og við erum bara heima þrjár. Úlfur fær að halda partý í kvöld og er að bjóða vinum sínum. Við hljótum að lifa af eitt bekkjarpartý eða svo.
Þessi mynd var tekin í gær.
Og þessi í dag.
Skotturnar mínar dansa.
Þær eru glaðar og kátar.
En nú bankar einhver upp á og ég hef fengið heimsókn. Svo ég segi bara eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.9.2009 | 19:09
Lífið og tilveran, og hvað er svo framundan ?
Lífið heldur áfram og haustið er gengið í garð. Mánuðurinn minn.
Perurnar mínar að verða fullþroska.
Einhvernveginn svona líður mér nákvæmlega núna. Fyirtæki sem ég hef lagt mikla peninga í verður gjaldþrota á morgun. mestmegnis vegna þess að hjól atvinnulífsins eru að hjakka og fjara út. Ráðamenn samfélagsins hugsa meira um breska og hollenska sparifjáreigendur en að koma hjólum atvinnulífsins í réttan farveg. En svona er þetta, veit ekki einu sinni hvort ég held húsinu mínu. En svona er lífið.
Vinir fagna. Reyndar eru þetta fólk hvort tveggja vinir okkar, en þau hafa samt aldrei hist áður, samt sem áður hafa þau vitað af hvoru öðru gegn um okkur Ella.
En hér eru Einar Þorsteinn Ásgeirsson arkitektin af húsinu okkar, og arkitekinn Birgit Abrecht og þeirra fjölskyldur.
Okkur var boðið í holusteik á heimili þeirra Abrechthjóna í Hnífsdal í fyrradag. Frábært kvöld.
Manuela og Birgit náðu vel saman. Tvær yndælar konur og frábærir listamenn hver á sínu sviði.
Brandur heldur áfram að velja sér staði til að slaka á. Sumir eru frekar óvenjulegir.
Við Elli buðum svo vinum okkar í mat í gærkveldi. Steikta ýsu, sem er algjört lostæti.
Frábært að hafa góða vini í kring um sig.
Rositha les upp ljóðin sín á þýsku.
Svo er að fá sér te og hunang. Og Klaus hellir í bollana úr potti hehehe...
Brugðið á leik með húfu sem við keyptum í Póllandi, stríðið var mikið í umræðunni í gær, og þar gerðust margir skelfilegir hlutir. Við erum heppinn að hafa ekki þurft að standa frammi fyrir loftárásum, hatri og skjótandi hermönnum. Vonandi verður þar svoleiðis hér um ókomna tíð.
Í morgun kom svo Brandur í fyrsta skipti og heilsaði að fyrra bragði upp á Ásthildi. Venjulega heilsar hann bara Hönnu Sól og lætur sig hverfa þegar sú litla réttir fram hendurnar. En nún ákvað hann að hún væri orðin nógu þroskuð til að hægt væri að heilsa upp á hana.
Fyrir Ísfirðingana mína er hér mynd frá í morgun. Þegar á daginn leið birti til og sólin kom fram. September verður sólríkur og hlýr ég veit það bara.
Milli sjúkrahússins og Sólborgar leikskóla stelpnanna er púttvöllur, þar hafa verið eldri konur aðallega í allt sumar að pútta, gaman að sjá þær, Hlíf er þarna beint á móti. En í dag voru margir ungir strákar innan um eldri dömurnar, mér fannst það svo flott, og hugsaði hve skemmtilegt það væri fyrir þær að hafa þessa ungu frísku stráka í púttinu með þeim.
Hanna Sól tók þessa mynd af ömmu sinni á leið him frá leikskólanum.
Þó lífið sýnist stundum óréttlátt og maður missi eitthvað, þá er það bara einhvernveginn þannig að lífið heldur áfram.
Meðan missirinn er bara peningar þá er það ásættanlegt. Verra er að missa ættingja eða góða vini.
Ég hefði svo sem viljað lifa við meira öryggi svona í ellinni. En ég er alveg tilbúin að takast á við það sem framundan er. Ég er vel sett með fulla heilsu, frjóa hugsun og í ágætis vinnu... ennþá. Orðin nógu gömul til að fara að taka ellilífeyrir. Það er ekkert öruggt í heimi hér, og allt er fallvalt. En meðan maður hefur bjartsýnina og kærleikan að leiðarljósi þá skiptir hitt minnsta máli. Þó vil ég halda áfram að eiga heima hér því hér liggur mitt ævistarf. Í gróðrinum og öllu því góða sem hér er í kring um mig.
Við munum svo sannarlega halda áfram með lífið og tilveruna.
Mín elskueg eigið gott kvöld og kveðja héðan frá Ísafirði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
1.9.2009 | 14:26
Þýsk heimsókn og ljóð.
Búin að vera með gesti frá Þýskalandi í heimsókn. Það var yndislegt fólk. Þetta voru Einar Þorsteinn sem teiknaði kúluhúsið okkar og Manuela konan hans, móðir hennar Rosvitha og Klaus hennar maður. Við vorum boðin í holusteik í Hnífsdal á Sunnudagin til Birgit og Stefan Abrect þýskra vina okkar og áttum við skemmtilegt kvöld.
Síðan bauð ég þeim í mat til okkar í gærkveldi og var með steikta ýsu. Við áttum yndislegt kvöld ég ætla að setja inn myndir seinna í dag.
Virkilega gaman og mikið umræðuefni. Það var talað um kreppuna, og svo leiddist talið að Þýskalandi í og eftir stríð. Bæði móðir Birgit og Rosvitha bjuggu í Austur Þýskalandi og fjölskyldur þeirra urðu að flýja yfir allslaus. Þau gátu klætt sig í nokkrar flíkur, en ekki of áberandi, til að láta ekki vita að þau voru að fara burtu.
Klaus bjó í næsta bæ þegar Pforsheim var skotinn í tætlur. Hann man ennþá eftir hvernig þeir lýstu upp borgina, til að auðvelda bretum að skjóta á allt kvikt og sem flest hús. Enda drápu þeir 18 þúsund manns á einni nóttu. Mikið eigum við samt sem áður gott að eiga ekki svona minningar, þó allt virðist vera svart.
Við þurfum nefnilega að muna að þó erfitt sé í ári, þá eigum við það sem mestu máli skiptir, frið og okkur sjálf og fjölskyldur og vini. Því skulum við ekki gleyma.
En Rositha er ljóðskáld og hefur gefið út ljóðabók allavega eina, hún las upp nokkur ljóða sinna í gær, og eitt þeirra er um Ísland. Ég skil að vísu ekki mikið í þýsku, en þetta ljóð fór inn í hjartað. Ég ætla að setja það hér inn, fyrir þá sem skilja þýsku og kunna að meta ljóð.
Ég held að við höfum gott af að hlusta á hvað útlendingar segja um land og þjóð. Það er nefnilega miklu fallegra og innilegra en þær fréttir sem okkur eru sagðar í dag. Og ég tel vera stórum ýktar.
En hér kemur ljóðið.
Island, ursprüngliches Land.
Ins Meer ergossen die Vulkane ihr Inneres
Neue Schichten auf die erstarrte Lava.
Dick aufgebrochene Gesteinsblasen
Warten auf Erosion, auf einen Ausbruch,
dass Formen und Strukturen sich wandeln.
Ergriffen stehe ich im aufersissenen Felsenapalt
Zwichen östlicher und westlicher Kontinentalplatte.
Dort entsteht isländiches Land noch immer
die heilige Stätte der Isländer,
Der Ersten Thing, heute Fest- und Ehrenplatz.
Dice Wolkeninseln Hängen am Himmel,
Eine Zudecke über dem Land,
aus der er wieder und wieder regnet.
Mal zart, mal stärker es schüttet,
hört schnell auf, um gleich wieder zu beginnen.
Regensatte, feuchte Luft lässt
Moose, Steinbrech, Flechthen wachsen.
Schwere Polster liegen die rauen Felsen weich,
kriechen Berge hinauf, grünen die Landschaft.
Tönen in Rousseauscher Grünapalette.
An den Hängen der Berge steigin Dampfwolken auf.
HeiBe Quellen treten aus de Erde,
die Engergie des Landes.
Schwimmen in des Blauen Lagune,
Eis und Schneefrie Bürgersteige en der Stadt.
Geysire schmücken ockerfarbene Lavaflächen,
die Atem holen, füllen eine Glocke blauen Geysirswassers,
exlodieren, schleudern dreiBig Meter hohe
heiBe Fontänen in die Luft.
Weiter geht die weite Fahrt im weiten Land,
an einen ungeheuer groBen, gewaltigen Wasserfall.
Es stürzt so viel süBes Wasser, es genüge,
der ganzen Menscheit Durst zu löschen .
Meer und Wolken liegen aufeinander,
lange Steinzungen ragen ins Wasser.
Meerschaum nagt den Fels,
Mahlt den kristallinen Sand su Strand.
Wenn der Wind, der beständig bläst,
die Wolkendecke aufreiBt, leuchtet das helle Blau
des nördlichen Himmels, es spiegelt im Meer
eine gleibende silberne Platte, der Walfjord.
Jeder Stein ein Edelstein.
Die Sonne tief am Firmament,
Mutter und Tochter mit langen Schatten.
Zur flachen Lagune fliegen Zwei Weibe Gänse.
Von der in Stein gehauenin Strabe kein Laut.
Gaman ef einhver sem þetta les treystir sér til að þýða þetta fallega ljóð yfir á Íslensku.
En njótið dagsins og ég set inn myndir seinna í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023317
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar