7.9.2008 | 13:22
Mömmublogg, Tjöruhús og steinfiskar.
Ég verð að biðja ykkur afsökunar á því hve ég hef lítið svarað ykkur elsku Bloggvinir. En tíminn hleypur einhvernveginn frá mér, það lagast þegar ég verð búin að ljúka af undirbúning fyrir veturinn, og við hverfum meira inn í skammdegið. Þá eykst sá tími sem maður hefur til að sinna þeim sem manni þykir vænt um.
En hér er smá mömmublogg.
Við fórum í sund í gær til Bolungarvíkur. Við skildum ekki í öllum bílunum sem við mættum, fyrr en við spurðumst fyrir útfrá, þá hafði verið fótboltaleikur BÍ/Bolungarvík gegn liði frá Reykjavík. Greinilega mikill áhugi á fótbolta. En okkar menn unnu víst. En það er rennibrautin í Víkinni sem heillar unga fólkið mitt. Annars förum við oftast til Suðureyrar. Reyndar var Úlfur á leið í afmæli, hann hafði keypt hring og fengið listaverk frá pabba sínum til að gefa frænku sinni, svo týndi hann fallegan blómvönd úr garðinum, ég er viss um að hann hefur slegið í gegn í afmælinu, því það voru mest dömur sem þar voru.
Á eftir var svo grillað. Afi fékk heilmikla hjálp við grillið.
Það vantar salt í þetta amma hehehehehe...
Nei bara að plata, þetta er fínt svona.
Og hann Brandur fékk nú líka knús, heldur meira en hann kærði sig um
En ekki lyftir hann kló móti þessum sakleysingjum. Enda eru þær rosalega ánægðar með Brand, ég er ekki viss um að það sé alveg gagnkvæmt. Og þó, honum er ekki eins leitt og hann lætur
Og þá er að bregða sér á bak.
Þær eru nú reyndar vanar stærri hestum en þessum. En hann dugir í bili.
Af því að ég er að tala um Tjöruhúsið, í sambandi við Fermingarafmælið okkar, þá eru nokkrar myndir hér þaðan. En Maggi bauð sínu fólki upp á fiskidag í Tjöruhúsinu, Júlla mínum var boðið líka.
Þessi frábæri drengur kom og skemmti gestunum við góðar undirtektir.
Hér má sjá meistarakokkinn sjálfan í góðra manna hópi.
Þetta ágæta fólk kom alla leið frá Austurríki, hafði heyrt um Tjöruhúsið, og langaði að fá sér góða fiskirétti, þau voru svo heppinn að lenda inn í veislunni hjá Magnúsi, en hann er annars búin að loka í ár. Nema fyrir svona veislur eins og við verðum með á næstu helgi.
Hér er svo Júlli minn, með aðstoðarstúlku Siggu barnsmóður hans. Hún er sænsk þessi stúlka.
En ég ætla að setja inn nokkrar myndir af því sem hann er að fást við þessa dagana. Hann er ótrúlega góður alveg sama hvort það er með blýjanti, leður eða steina.
Ætli þessi hafi ekki fengið sér einum og mikið í Tjöruhúsinu
Merkilegt hvað hægt er að gera úr einföldustu hlutum, eins og leðurreimum, grjóti og gamalli kúlu.
Fiskarnir hans eru líka flottir.
Sérstsaklega steinfiskarnir.
Ótrúlega mikið líf í steinfiski.
Flottur ekki satt ?
Þessi er líka ótrúlega flottur.
En nú þarf ég að þjóta, eigið góðan dag elskurnar mínar. Og takk fyrir mig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
6.9.2008 | 15:18
6. september 1971.
Þann dag fæddist mér stúlkubarn. Hún kom í heimin hljóðlega og svo sársaukalaust, að ljósmóðirinn trúði mér ekki þegar ég sagði að barnið væri að koma. Nei þetta tekur góðan tíma enn, sagði hún. Svo litu tvær hjúkrunarkonur inn til mín, og skoðuðu mig, þar sem ég lá hin rólegasta, og viti menn, kollurinn er komin sagði önnur í ofboði, sæktu ljósuna.
Ég hafði nefnilega verið að lesa mér til um sársaukalitlar fæðingar. Og hvernig maður ætti að slaka á þegar verkirnir kæmu. En allt um það, í dag á þessi stúlka afmæli
Yndisleg er hún Bára mín.
Og tveggja telpna móðir í dag.
Hér er svo stóri bróðir þeirra hann Trölli.
Hér erum við svo fjórir ættliðir, að vísu ekki dóttir Báru minnar en Júlíana Lind er dóttir Skafta. Bára heitir svo í hausinn á ömmu sinni, Og hér erum við.
Innilega til hamingju með afmælið Bára mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
5.9.2008 | 15:16
Veðrið á Ísafirði og smá mömmublogg.
Mömmukrúttfærsla.
Það er verið að borða morgunmatinn hérna, Ásthildur vill fá bita líka
Svo er verið að gera sig klára í bílinn, og það er gott að hafa kexköku til að maula á leiðinni.
Á Suðureyri eru svo ungar á tjörninni, þeir koma hlaupandi þegar maður birtist, og nú ætlar amma að hafa með sér brauð til að gefa þeim.
Svanirnir eru farnir suður á bóginn.
Og í gær var Hanna Sól umsjónarmaður á leikskólanum, það er mikið ábyrgðarstarf, sem hún hefur áreiðanlega sinnt með miklum sóma.
Litla skottið komin á leikskólann.
Við fórum svo í sund eftir leikskólann. Úlfur kom með sem sérlegur aðstoðarmaður.
Hann er nefnilega rosalega duglegur að hjálpa ömmu sinni með stelpurnar.
Eftir sundið var haldið heim á leið.
Já það er fjör.
Afi kennir þeirri stuttu að vaska upp !
Og nú getur hún þetta alveg sjálf, enda rosalega gaman að sulla
Veðrið er dásamlegt dag eftir dag.
Hlýtt logn og friður.
Gaman að sjá allt speglast í firðinum.
Og tilkomumikið listaverkið sem umlykur allan pollinn, þegar fjöllin speglast í honum. Það kemur yfir mann ró og friður.
En þetta er næstum dagleg sjón hér á sumrin, sérstaklega á morgnana.
Eigið góðan dag elskurnar. Ég verð að biðjast afsökunar á hve ég hef lítið verið á ferðinni, en það er bara svo mikið að gera hjá mér þessa dagana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
4.9.2008 | 12:10
Fermingarbörn Ísafirði, fædd 1944.
Kæru fermingarsystkini mín, nær og fjær. Eins og þið hafið vonandi öll frétt, þá ætlum við að hittast á 50 ára fermingarafmælinu okkar, hér á Ísafirði þann 13. September. Okkur hér fannst að það væri ekki hægt annað en að hittast á þessu merka ári. Og það gafst ekki tími í vor til að vinna að þessu. Við höfum svo nokkrar tekið okkur saman um að koma þessum hitting á núna í haust. Þ.e. Ég, Dísa, Þorbjörg, Ásgeir, og svo Guðjón Arnar og Maggi Reynir sem hafa hjálpar til og Óli Halldórs.
Meiningin er, að hittast um eitt leytið upp á bókasafni, gamla sjúkrahúsinu, ganga þaðan um bæinn okkar, fá að skoða kirkjuna ef einhver vill, og ef einhverjar aðrar óskir berast, verður reynt að verða við því. Síðan munum við öll fara til Óla Halldórs, og spjalla saman, þar verður eitthvað gott í boði, síðan verður matur að hætti Magnúsar Haukssonar í tjöruhúsinu kl. sex um kvöldið. Magnús er orðin þekktur langt út fyrir landsteinanna með sína frábæru fiskirétti og fleira. Ég þarf að fara að gefa honum tölu í hve margir ætla að mæta. Svo ég vil biðja þau sem lesa þetta, að koma til mín upplýsingum um þátttöku, eða til Tobbu eða Dísu.
Hér er ein mynd af okkur, við gamla barnaskólann, með kennurum.
Þessi var svo tekinn á síðasta hitting í krúsinni, fyrir fjórum árum síðan. Hér með mökum.
Það var rosalega gaman, og vonandi komast sem flestir til að taka þátt í gleðinni með okkur. En endilega látið vita.
Með bestu kveðjum Ásthildur.
P.S. það eru laus sæti í tveimur bílum vestur á föstudagskvöldið, og heim aftur seinnipart á sunnudegi, ef einhver vill nýta sér það, þá er bara að láta vita.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
2.9.2008 | 20:52
Það er leikur að læra.
Allt gengur sinn vanagang hér.
Á leikskólanum í gærdag.
Já sú stutta vill mikið vera á höndum.
en það er gaman á leikskólanum.
Afi hér eru gleraugun þín !
Litla skottið er uppi fyrir kl sjö, en sú eldir vill gjarnan sofa lengur. Hér er hún kominn upp í prinsessurúmið að reyna að vekja stóru systur.
Það tekst nú á endanum. En ekki alveg strax.
Á kvöldin þarf svo að bursta tennurnar, og auðvitað ennibein og auga, nebbi, flipi, munnhola, hökuskegg, og hálsakot
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
1.9.2008 | 12:48
Smá krúttfærsla fyrir mömmur.
Þá er víst komin tími á smá krúttfærslu.
Úlfur er ótrúlega duglegur að hjálpa til með stelpurnar.
Og þær elska hann út af lífinu.
Hann tók einmitt þessa mynd af Ásthildi, hún er óútreiknanleg með hvað henni dettur í hug
Hér situr hún á tjarnarbrúninni,
Afi og Hanna Sól, góð saman.
Fín og flott eins og venjulega.
Amma sjáðu hvað ég get!!!
Grallararnir.
Hanna Sól er að verða svo stór stelpa.
En sú stutta vill bara prýla.
Eitt enn sem skilur systurnar að. Ásthildur vill kjöt og fisk, en Hanna Sól elskar ávexti og ber. Her hefur afi klippt fyrir hana niður vínberjaklasa, sem hún át með bestu lyst.
en Úlfur er að smíða sverð, með stuðningi frá afa.
Járnið er hamrað.
Og afi er vinsæll.
Hér er baby born komin úr baði.
Og systurnar fóru svo í heita pottin í gær, því veðrið var svo gott.
Það var gaman.
Og mín að verða tilbúin í holuna sína.
Sérkennileg birta, meðan sólin er að brjótast fram.
Þessi var svo tekinn áðan, sólin er að brjótast fram líka núna. Eigiði góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar