17.9.2007 | 17:59
Hinn svarti dagur dómaranna.
Hinn svarti dagur dómaranna.
Látum nöfnin þeirra standa í svörtu í allan dag á bloggsíðum okkar. Þau tala fyrir sig sjálf verkin þeirra. Og við erum með þögla yfirlýsingu um hvað okkur finnst um þau.
Það voru hæstaréttardómararnir; Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Ingibjörg Benediktsdóttir, Markús Sigurbjörnsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson sem sáu ástæðu til að milda dóm nauðgarans úr 4 ár sem var dómur héraðsdóms í 3 1/2 ár.
Hvar stendur þjóð sem skynjar ekki réttlæti sitt og traust á þeim sem eiga að fylgja því eftir???
Ég ætla að láta þessi nöfn og spurningu mína standa hér í dag með stórum svörtum stöfum. Vona að fleiri geri slíkt hið sama á sinni bloggsíðu undir yfirskriftinni
Hinn svarti dagur Dómaranna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.9.2007 | 08:56
Hinir herskáu.
Þetta er mikið vandamál, og spurning um hvað sé til ráða. Það er örugglega erfitt að berjast við svona hugmyndafræði, og finna út hvar skemmdu eplin eru. Þetta er eins og að sofa á jarðsprengju, aldrei að vita hvenær upp úr sýður. Dönum og öðrum norðurlandabúum, er sannarlega vandi á höndum.
Þetta eru trójuhestar nútímans.
![]() |
Hópur Dana lítur á sig sem liðsmenn alþjóðlegra hryðjuverkasamtaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
16.9.2007 | 17:41
Haustlitir, ber og nýpur.
Við hjónin vorum að dunda okkur upp á lóð í dag, í góða veðrinu. Ég setti nokkrar kartöflur niður í rimlakassa í vor, og við settum þær inn í gróðurhúsið í dag, því ég ætla að taka þær upp smátt og smátt, til að borða glænýjar kartöflur, þetta er sniðugt, mér sýnist að þær ætli að vera fínar, set ef til vill mynd af þeim inn síðar.
En við vorum að mæla hæstu trén í garðinum. Hæsta tréð var ösp sem ég kalla Birgir, eftir bankastjóra Landsbankans, en ég tók græðling af tré í garðinum hans fyrir nokkrum árum, Birgir er nú orðin 7.50 m.
En ég tók líka myndir af nokkrum runnum sem hafa fallega haustliti og líka berjum og nýpum, hér er smásýnirhorn.
Þetta er úlfarunni.
Þessi elska heitir drekakvistill.
Jamm þetta eru sólber, þessi runni heitir Jänkisjärvi, finnsk tegund, afar bragðgóð.
Svo eru rifsberin.
Stikilsberin.
Hvít sólber, ég á líka hvít rifsber.
Nýpur eru fallegar og þær má nota í te. Þetta eru nýpur meyjarrósarinnar.
Hér eru ber Úlfareynisins, en þau eru nú bara fyrir fuglana á þessum bæ. Nema til frætöku og sáningar.
Sama á við um yllinn, nema í þessu góða árferði, þá flytja fuglarnir endalaust fræ af honum um allar trissur og hann er að verða illgresi.
Virginíuheggurinn fær skemmtilegan brúnan lit á haustin, meðan blóðheggurinn er rauðbrúnn allt sumarið.
Hér er birkikvisturinn, sem verður svona eldrauður við fyrsta frost. Svoleiðis er líka glansmispillinn.
Þetta er svo bersarunninn, sem er alltof sjaldgæfur, fallegur og harðgerður runni.
Hvítþinur, þessi fræ verða sko tekin og sáð þegar þau eru orðin þroskuð.
Garðskskraut þarf ekki alltaf að kosta mikið. Svona gömul heyvinnslutæki geta verið hið besta garðskraut.
Ein að lokum af krúttinu honum Sigurjóni Dag. Hann elskar bíla og gröfur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
16.9.2007 | 10:11
Stundum eru vegir mannsins órannsakanlegir.
Þð gerðist dálítið skemmtilegt í gær, eiginlega kraftaverk í anda Leyndarmálsins. En maðurinn minn hefur lengi rætt um að hann þyrfti að fá mann í vinnu, það er mikið að gera og erfitt að fá góða menn. Hann hafði fengið loforð um að fá pólskan mann í vinnu í múrverk, en þegar til átti að taka, þá var hann kominn í vinnu annað. Við erum að ræða þetta við eldhúsborðið, í því er í fréttunum sagt að margir pólverjar hafi verið sendir út landi fyrr í vikunni, því að starfsmannaleigan sem þeir voru ráðnir hjá hafði ekki tilskilinn leyfi.
Við vorum að vorkenna þessum pólsku mönnum og ég segi við hefðum ef til vill getað ráðið einhvern af þeim, þá er bankað og ungt par stendur fyrir utan, erindið var, að spyrja hvort manninn minn vantaði ekki mann í vinnu, hann er pólskur og talar að vísu ekki orð í íslensku, en er mjög duglegur, sögðu hjónin og hann er múrari.
Við litum hvort á annað, og hugsuðum þetta var einmitt það sem var í huga okkar beggja, og svo kemur bara svona tilboð upp í hendurnar.
Unga fólki er pólskt og talar ágæta íslensku, þau voru með litla stúlku með sér Júlíu, 6. mánaða.
Hér er hún Júlía litla, svona falleg og myndarleg.
Þau búa í Bolungarvík og falla algjörlega inn í okkar íslenska samfélag. Mjög sennilega er Júlia litla íslenskur ríkisborgari.
Þessar hnátur komu lika í heimsókn í gær.
Og Sigurjón litli líka, hér kveðjast þeir bræðurnir.
Annars var veðrið gott í gær, svolítið villtur himininn.
En við vorum lengi hugsi yfir því hvernig umræður okkar voru og síðan að þau skyldu koma hingað á sama tíma og bjóða fram mann, sem passaði alveg inn i það sem við vorum að ræða um. Það er ef til vill öðruvísi að lesa svona um það. En í raun og veru var þetta eins og kraftaverk, í upplifun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
15.9.2007 | 13:03
Hvað á maður að halda ?
Ætli fólkið sem gaf í sjóð til aðstoðar við leit að litlu Madeleine, verði ánægt með að peningarnir þeirra renni í lögfræðikostnað til foreldranna. Þær upplýsingar sem liggja fyrir, benda eindregið til þess að þau hafi sjálf orðið barninu að bana, og gert ráðstafanir til að láta það líta úr sem brottnám. Líkamsvessar og hár í skottinu á bíl þeirra, sem þau geta ekki gefið viðunandi skýringar á. Einnig eru sönnunargögn um hana að finna í íbúðinni og annari íbúð sem þau höfðu á leigu eftir að barnið týndist.
Fólkið er gjörsamlega siðlaust, ef þetta er vona búið. En ætli það séu nú margir sem vilja aðstoða meðan málið liggur svona ? Það er forgangsatriði í dag að finna sannleikann um hvað gerðist, en ekki að finna barnið sem nú þegar er augljóslega dáið, miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja, og því miður öll sönnunargögnin kring um foreldrana sjálfa. Blessuð litla sálin.
![]() |
Tíu milljón króna auglýsingaherferð í leitinni að Madeleine |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
14.9.2007 | 20:32
Haust.
Já það er greinilegt að haustið er komið. Það var fallegur dagur í dag, en ég er viss um að það verður næturfrost í nótt.
Fjörðurinn minn í sínum fegursta skrúða.
Og hér er dálítið annað sjónarhorn. Þarna má sjá snæfjallaströndina hvíta af snjó.
Já þetta er við flugvöllinn.
Fallegur fjallahringurinn. Séð inn í Tunguskóg, þar sem ísfirðingar eiga sumarhúsin sín. Þeir sem eiga heima í miðbænum, færa sig inn í Tunguskóg þegar sumrar og eru þar allt sumarið.
Sést betur hér, og svo er þetta nýja byggingarhverfið.
Og gamla Holtahverfið.
Góustaðir og Úlfsá og fleiri sem hér voru bóndabæir áður.
Hér sést vel að lyngið er orðið eldrautt, og kallast á við snjóinn sem kom um daginn. En sólin hefur brætt hann að mestu.
Hér sést hvernig fjörðurinn kúrir undir fjöllum á alla vegu. Þess vegna eigum við þetta dýrðar koppalogn svo oft á kvöldin. Hér sést Snæfjallaströndin betur.
Og nú er komið kvöld, og geislar sólarinnar leika sér í skýjunum.
Það er fallegt sjónarspil.
Svo er litla skottið hún Evíta Cesil, svona broshýr, en amma var að passa hana og bróður hennar Aron Mána í dag. Svona til að fá ekki fráhvarfseinkenni hehehehe...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
14.9.2007 | 09:45
Meira svona.
bb.is | 14.09.2007 | 09:29Dularfullur skilaboðahöfundur á Patreksfirði
Óvæntur glaðningur beið Patreksfirðinga er þeir héldu til daglegra starfa í morgun en þá tóku flestir þeirra eftir litlum miðum undir rúðuþurrkunum á bifreiðum þeirra. Á þessa litlu miða var búið að prenta falleg orð um lífið og mynd af hjarta. Hvort þetta er upphafið af ástarviku á Patreksfirði skal ekki segja en ljóst er að þessi dularfulli skilaboðahöfundur hefur fengið okkur öll til að íhuga lífið og tilveruna í morgunsárið, segir á heimasíðu Vesturbyggðar. Á miðunum stendur: Lífið er fegurð, dáðu hana. Lífið er auðlegð, varðveittu hana. Lífið er tækifæri, gríptu það. Lífið er söngur, syngdu hann.thelma@bb.is
http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=105620
Það mætti vera meira af svona uppákomum. Þetta er fallegt og gott inn í daginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
14.9.2007 | 09:01
Þá er það komið í ljós, sem margir héldu, en fæstir trúðu.
Já þá liggur ljóst fyrir að Madelein lilta var drepin af foreldrum sínum, sjá blogg Þorleifs Ágústssonar
http://tolliagustar.blog.is/blog/tolliagustar/#entry-311618, Ég setti fram kenningu um þessa lausn í einhverju svari fyrir mörgum dögum síðan. Það var það fyrsta sem mér datt í hug, að börnunum hefi verið byrlað svefnlyf, og að skammtur Madelein litlu hefði verið of stór.
Þetta er rosalegt mál alveg. Og gott að upp komst, læknar sem haga sér svona eru hættulegir sjúklingum sínum sem og fjölskyldu.
Ég sagði einhversstaðar að fólk sem yfirgefur börn sín til að fara út að skemmta sér, sé alveg eins til þess fallið að gefa börnunum svefnlyf. Um leið og ég heyrði að það hefði ekki verið blóð sem fannst heldur hár og aðrir líkamsvessar, varð ég viss í minni sök.
Vonandi fá þessi hjón viðeigandi refsingu fyrir viðbrögðin og verknaðinn. Ég hef enga samúð með foreldrum sem haga sér svona. Og ég ætla rétt að vona að þau vísi lögreglunni á líkið af barninu, svo hægt verði að jarðsetja það, þar sem það á heima.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2007 | 23:31
Að eta það sem úti frýs og daðra þar á ofan.
Nú er mál að safna í sarpinn. Af hverju að vera vandfýsinn? Éttu allt. Einstæðir: Verið á meðal fólks, æfið ykkur í daðri og farið á stefnumót.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.9.2007 | 18:30
Öfgahópar og hryðjuverkamenn, hvað er hægt að gera ?
Ekki verður þetta til að auka hróður Islam. Þó þessar ágætu konur megi svo sem alveg vera siðprúðari fyrir minn smekk, með tilliti til þess hvaða áhrif þær hafa á ungar stúlkur. Svona roll model, þá eru svona yfirlýsingar út í móa, og sýna svo ekki verður um villst umburðarleysi ofsatrúarmanna, hvaðan sem þeir koma. En sennilega er málið líka að fólk frá þessum heimshluta metur líf sitt og annara minna en í hinum vestræna heimi. Því þeir trúa því að með því að gerast dómarar yfir lífi þeirra sem þeir telja ekki lifa lífinu samkvæmt þeirra reglum, verði þeir verðlaunaðir þegar þeir koma yfir. Rétt eins og víkingar töldu að með því að deyja í bardaga kæmust þeir til Valhallar, það væri eina leiðinn. Lengra hefur nú ekki siðmenninginn skilað sumum enn þann dag í dag.
En þetta verður meira æpandi af því að bara í gær ... eða fyrradag var viðtal við konu sem kemur frá landi múslima, þar sem hún talar um harðræði og áþján kvenna úr þeim heimi.
Hvað er til ráða ? hvernig eiga menn að bregðast við svona drápsvélum. Þessi ágæta kona ásamt Salman Rustie eru á dauðalista hjá öfgamönnum, og þeim er full alvara. Á þeim lista eru líka blaðamenn frá Danmörku. Fólk þarf að fara huldu höfði, og vera með batterí í kring um sig til að fá að lifa. Er þetta hægt ?
![]() |
Hótar að hálshöggva Britney og Madonnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar