29.9.2008 | 12:52
Smá mömmublogg og bréfið hans Guðmundar.
Smá mömmublogg, svo langar mig til að setja hér inn frábæra grein frá Guðmundi Hagalínssyni, formanni eldri borgara í Önundarfirði, þar sem hann svarar Ástu Möller. Þar koma fram ýmsar upplýsingar, sem fólk ætti að vita af.
Mágkona mín kíkti við í gær og var með skemmtilegar gjafir handa stelpunum, en það eru óróar frá Indíjánum, sem hrekja vonda drauma í burtu.
Þessir kíktu líka við. Júlli fór svo í fjöruferð með Hönnu Sól og Sigurjón, hann er að leita að grjóti í fiska, hann ætlar fljótlega að opna sýningu í Edinborg.
Amma þurrka !!!
Sjáðu !! litla sullukollan mín.
Sunnudagslærið skorið.
Þórunn fór í morgun, og það var mikill spenningur að burðast með töskuna hennar.
Amma ég vil ekki fara á leikskólann.
En hérna kemur bréfið hans Guðmundar:
Ísafirði 23. september 2008. Mánudaginn 15. september og miðvikudaginn 17. sama mánaðar, litu dagsins ljós á síðum Morgunblaðsins tvær greinar eftir frú Ástu Möller alþingismann og formann heilbrigðisnefndar Alþingis. Mig langar til að velta fyrir mér ákveðnum þáttum er tengjast greinum frú Ástu fyrir mér. Frú Ástu og öðrum til íhugunar. Að sjálfsögðu ber að þakka það er færst hefur til betri vegar, en ég mun að sjálfsögðu benda þar frú Ástu á það óréttlæti er snýr beint að okkur eldri borgurum. Frú Ásta talar um það í greinum sínum að allar þær lagfæringar sem orðið hafa á tryggingakerfinu séu gerðar undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Var það ekki undir stjórn Sjálfstæðisflokksins sem tekið var úr sambandi það ákvæði að miða laun aldraðra við lægstu laun verkamanns? Sem var afnumið á Alþingi á vordögum að mig minnir 1995. Hvað varð um byggingu hjúkrunarheimilanna sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra Jón Kristjánsson skrifaði upp á að yrðu byggðar í tíð stjórnar Davíðs Oddssonar?Minna má á samkomulag Ásmunarnefndarinnar sem skipuð var í tíð stjórnar Sjálfstæðisflokksins, og segja má að stjórn LEB hafi í raun verið neydd til að skrifa undir, eftir fund með formönnum aðildarfélaganna að Stangarhyl 4 í júlímánuði 2006.Því þar var okkur tjáð að ef við myndum ekki undirrita samningsdrögin eins og þau lægju fyrir að öllu leyti, gætum við farið heim og yrðum við þá á byrjunarreit. Þessir samningar voru samykktir og nú skulum við rifja upp hvað í þeim stóð. Hvað varðar uppbyggingu hjúkrunarheimila 2007, 200 hjúkrunarheimili. 2008, 500 heimili, 2009, 900 heimili, 2010, 900 heimili.Þess vegna er ekki úr vegi að spyrja þig frú Ásta, er þetta samkomulag sem LEB skrifaði undir í góri trú, að haldið yrði við, eitthvað í samræmi við að sem þú frú Ásta ert að guma af að eigi að gera af núverandi ríkisstjórn til ársins 2010?Í upphafi talaði ég um það að það bæri að þakka það sem vel væri gert, og að sjálfsögðu er það spor í rétta átt að lofa fólki 67 ára og eldri að halda áfram að vinna án skerðingar tryggingabóta.Nú væri ekki úr vegi að spyrja þig frú Ásta, hvaða vinna er í boði fyrir okkur sem búum í sjávarþorpunum út um allt land, þar sem fiskveiðistjórnunarkerfið eins og það er, er við líði, og ef auglýst er eftir starfskrafti á þessu aatvinnusvæði, þá er háskólaprófs krafist. Nú er rétt að velta fyrir sér skerðingarákvæði tryggingabóta. Frú Ásta bendir réttilega á það að skerðingar hafi lækkað úr 67% frá síðustu aldamótum 25% 1. apríl 2008. Frú Ásta setur up dæmi um einstakling sem leysir út kr. 500.000.- úr séreignalífeyrissjóði og segir að skerðingin sé 248.000.-, en getur þess ekki að 35% skattur er af þessum 500.000.- og eftir því telst mér til að viðkomandi einstaklingur eigi eftir kr. 73.500.-, Það er rétt að vekja athygli frú Ástu og annara á því að ef einstaklingur eða hjón eiga sumarbústað eða einhverjar eignir, og hafa ekki náð að losa sig við þær fyrir 67 ára aldur, þá hirðir ríkið 60% í gegnum skatta og skerðingar af uppgefnu söluverði. Í dag borga ellilífeyrisþegar 35.72% skatt af lífeyristekjum og til viðbótar 25% skerðingu tryggingabóta. Það væri vissulega ánægjulegt frú Ásta ef þú gætir upplýst okkur eldri borgara um það hvaða lög það eru sem heimila þá eignaupptöku á lífeyristekjum og af fasteignum og öðru því er eldri borgarar vilja selja og nota sem viðbótarlífeyrir?Í lok þessarar greinar langar mig til að fara nokkrum orðum um tilurð lífeyrissjóða, í fyrsta lagi eru ákveðin % af launum og framlag atvinnurekenda, lífeyrissjóðirnir ávaxta sig á ýmsan hátt. Það er nánasat nokkuð víst að um 50% af greiðslum lífreyrissjóðanna er tilkomið í gegnum vexti og verðbætur, þess vegna væri eðlilegt að um mun lægri skattprósentu væri að ræða á lífeyristekjur til dæmis 15%.Að lokum frú Ásta væri ekki úr vegi að þú sæir þér fært að halda fund með okkur eldri borgurum svo við fengjum tækifæri til að fræða þig á því óréttlæti sem lögleitt var undir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins er mér telst til á 18 ára valdaferli Sjálfstæðisflokksins. Guðmundur B. Hagalínsson 425 Flateyri.Fyrrverandi bóndi. Formaður félags eldri borgara í Önundarfirði.Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
28.9.2008 | 15:34
Prinsessur og annað fólk.
Þórunn og Guðjón Arnar eru farin á fund með eldri borgurum sem hér er haldinn í dag í stjórnsýsluhúsinu. Ég ungamamman fór aftur á móti heim í kúluna. En Júlli minn er svo farin í fjöruferð með Sigurjón Dag og Hönnu Sól, og Ásthildur fékk að fara í heimsókn til Inga sonar míns. Svo hér er allt með kyrrum kjörum smástund.
Haustlitirnir verða alltaf skýrari og skýrari. Og fegurðin og litadýrðin eykst.
Himnagalleríið var líka opið í gær, og sendi magnaðar myndir niður til okkar.
Hér er Solla stirða komin á ný
Jamm hún er góð.
Hér er svo prinsessan í allri sinni dýrð, í hásætinu, Úlfur tók þessa mynd, og er líka útlitshönnuður.
Og í gær var prinsessuherbergið málað, bleikt, að ósk prinsessunnar, sú er ánægð.
Ævintýraprinsessan mín.
Og Úlfur er liðltækur við að mála.
Svo þarf að þrífa penslana og svoleiðis.
Ganga frá, og þá er nú gott að hjálpast að við verkin.
En ég og gestur minn, hún Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, fórum í bíltúr á Flateyri, og skoðuðum dúkkusafnið þar. Það er algjörlega frábært safn af dúkkum, sem var gefið til Flateyrar. Þar er líka hægt að kaupa sér kaffi og með því. Og kaupa frábærar handunnar vörur, bæði ullarfatnað, dúka og allskonar fallega muni sem konurnar gera sjálfar.
Þarna er margt fallegra muna til sölu. Þið megið ekki láta brúðusafnið á Flateyri fram hjá ykkur fara, og ekki gleyma bókabúðinni, svo er hægt að kaupa harðfisk hjá henni Guðrúnu Pálsdóttur, og jafnvel fara í róður með þeim hjónum. Það er margt hægt að gera á Flateyri, þessu fallega þorpi við ysta haf.
Það þarf að gefa sér góðan tíma til að skoða allar þessar frábæru dúkkur, sem þarna eru til sýnis.
Þær eru af öllum stærðum og gerðum, og allstaðar að úr heiminum.
Þessi er dálítið skondinn hehehehe.
Flottar ekki satt ?
Fyrirfólk og þjóðarbrot.
Þessar greinilega komnar langt að.
Þetta er bara brot af öllum þessum flottu brúðum, sem safnið býður upp á. Og svo eru hnallþórur og allskonar meðlæti með kaffinu, allt heimabakað af miklum myndarskap safnhaldara.
Litla skottið að borða rúsínur.
Ömmusnúlla
Guðjón Arnar er maður með mikla útgeislun, og börnin eru alltaf best í að dæma um það. Það væsir ekki um Ásthildi á hnjánum á honum.
Já það var ýmislegt rætt við eldhúsborðið hjá mér í morgun. Margt bæði viturlegt og gott, eins og vera ber.
En eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
27.9.2008 | 13:39
Smá mömmublogg.
Ég er með gest hjá mér, það er yndælt, en þýðir að ég hef ekki tíma til að eyða hér í bili. En ég ætla sð setja inn nokkrar krúttmyndir.
Það var dótadagur á leikskólanum í gær, Ásthildur vildi hafa bangsa með sér. En Hanna Sól hafði náttúrulega fína gelludótið sem hún fékk.
en það var geymt í plastpokanum.
Hér er álfkonan á heimilinu.
Jamm flott ekki satt.
Og þau fengu sér ís börnin.
Ásthildur elskar ís, og hún vill helst fá fleiri en einn í einu
Það er nú samt örugglega hollara að fá sér vitabex með hrásykri og rúsínum.
eigið góðan dag elskurnar, hér er rigning og sól til skiptis, og farið að kólna. En ég sit í góðum félagsskap og ræði málin við vinkonu mína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
26.9.2008 | 13:05
Litir ljóss og skugga - og smá mömmublogg.
Hér gengur allt sinn vanagang, með ýmsum tilþrifum þó. Kapphlaup við tímann við að ganga frá plöntum og sinna vinnunni. Ennþá er eftir að setja niður túlípanana. Vonandi dregst frostið, svo hægt verði að setja laukana niður án þess að nota járnkarl. Nú spáir slyddu, ekki svo hættulegt reyndar, en verra ef það kemur mikið frost ofan í þessa bleytu.
Skotturnar mínar klárar í ferðina í leikskólann, þá setjum við Drekasöguna á, og svo brunum við til Súganda með ævintýrið í hlustunum, og söngvarnir óma svo í höfðinu á mér allan daginn.
Þá er að fara inn í leikskólann og hitta kakkana, jamm hún kann að segja kakkar.
Gá á spjaldið, hvor myndin sé ekki örugglega þarna.
En ég tók nokkrar myndir af ljósi og skugga, það er ótrúlega fallegt að ferðast í svona ljósbroti. Eins og ævintýraheimur, mér finnst ég vera komin inn í Drekasöguna, og finn fyrir vættum og verum, þessa heims og annarra.
Ótrúlega flott.
Og svona brosir Suðureyri við manni, í ljósi og skugga.
Þetta er alveg magnað.
Eiginlega kyngimagnað.
En krumma finnst gaman að láta sig svífa þöndum vængjum.
Ætli honum finnist þetta ekki spennandi lika.
Já ótrúleg þessi birta.
Ekki satt ?
Og smá regnbogi fullkomnar fegurðina.
Ég elska þetta bara.
Og svo brosir Skutulsfjörðurinn bara.
Svo er maður komin heim aftur, og afi á leiðinni Víííí !!
Og Sigurjón og pabbi hans í heimsókn.
Eitthvað íbygginn á svipinn stubburinn minn.
Hér er búið að finna stóra baðkúlu, og það þarf auðvitað að gera eitthvað við hana, svo það var bara farið í bað.... hvað annað
en svo kom afi með gjafir að sunnan, allskonar forvitnilegt pæjudót frá ættingjum og vinum. Það var rosalega spennandi.
Bros og tilhlökkun.
Vei en spennandi !!!
Já það þarf ekki mikið til að gleðja litlar stubbur
Einmitt það sem mig langaði í, sagði hún
eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
24.9.2008 | 23:29
Krúttfærsla og veður.
Smá krúttfærsla og veður héðan elskurnar.
Á leið á leikskólann. Afi blessaður fór í uppskurð á auga í morgun í Reykjavík, svo við erum bara fjögur heima, hans er auðvitað sárt saknað.
Sú stóra vildi fara með blóm í leikskólann, sem var allt í lagi nóg ef af þeim hér.
En svo var lagt af stað.
Veðrið dálítið villt og ævintýralegt... eða þannig ég elska þessa birtu og skugga.
Maður fer ósjálfrátt að hugsa um aðra vídd, og annan heim.
en fjörðurinn minn er friðsæll, og sólin að gæjast fram.
Þetta er bara duló ekki satt.
Skottið vildi svo fara i tölvuna, eins og stóra systir, og leggja kapal hehehehe...
En hér tekur við ljósmyndarinn Úlfur, og fyrirsæturnar, Hanna Sól ofurfyrirsæta, Ásthildur jr. Cesil og Ásthildur senior Cesil allar fyrirsætur fyrir Úlfinn.
Ef þið eruð að pæla í hvaða gel hún er með í hárinu, þá er það sólarvörn upp á 45 sem hún fann einhversstaðar. Málið er að stubbur var nýbúin að fá að kaupa sér hárgel, og hann var sannfærður um að hún hefði tekið það traustataki. En komst svo að því að hún hafði ekki snert það, heldur fundið áðurnefnda sólarvörn... En hún virkaði flott, hvernig ætli svona sólarvörn fari annars með hár
Já hún kann þetta allt saman.
Og við auðvitað líka hehehehe
Við knúsírófurnar....
Og meðan ég svæfði litlu knúsírófuna, þá svæfði stubburinn minn þá stóru, las fyrir hana, og þegar ég kom fram var hún sofnuð. Hann er algjör hjálparhella þessi elska.
Það er nú það, eigið góða nótt elskuleg mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
24.9.2008 | 13:24
Um Frjálslyndaflokkinn - flokkinn minn-
Það hefur mikið verið rætt um innanborðs átök í Frjálslyndaflokknum. Ég vil því birta hér grein sem ég skrifaði ásamt nokkrum félögum mínum um þau átök. Því miður virðist vera að upp sé komin alvarlegur ágreiningur, sem hefði átt að vera fyrirsjáanlegur fyrr, en ég og mínir félagar vildum trúa því í lengstu lög að fólk vildi fyrst og fremst fylkja sér um þau málefni sem Frálslyndiflokkurinn stendur fyrir, og láta persónalegan frama eða ósætti við aðra félaga víkja fyrir heildinni.
Nú er svo komið að það er nokkuð ljóst að það verður ekki svo. Og ég segi því miður. Því þarna er innan um gott fólk, sem hefur látið leiða sig í öngstræti, og mun að mínu mati einangra sig í flokknum, ef það sér ekki að sér, og fer að vinna samkvæmt málefnum, en ekki hver vill ekki hvern hvar.
Aðför að grundvelli Frjálslynda flokksins
Svo virðist vera sem valdabrölt herji nú á Frjálslynda flokkinn enn einu sinni. Við getum ekki betur séð en verið sé að reyna yfirtöku á flokknum. Okkur líkar það illa, því við höfum í lengstu lög viljað stilla saman strengi og halda málefnum flokksins til streitu. En nú er ljóst að það er ekki hægt. Ákveðnir aðilar hafa sýnt að þeir komu inn í flokkinn með því hugarfari að yfirtaka hann og laga að sinni stefnu. Eins og reyndar var marg varað við á sínum tíma. Á viðskiptamáli væri þetta kölluð tilraun til fjandsamlegrar yfirtöku.
Okkur þykir vænt um Frjálslynda flokkinn, og það sem hann stendur fyrir, Við erum líka ánægð með forystu flokksins og nefnum þar fyrst og fremst formanninn Guðjón Arnar Kristjánsson. Forysta flokksins hefur sömu stefnumál á dagskrá og við undirrituð, og leggur sömu áherslur. Þó við teljum ekki upp fleiri, þá er á þessum lista kjarninn úr Frjálslynda flokknum eins og hann var, fólk sem hefur unnið mikið fyrir flokkinn, oftast sjálfboðavinnu og yfirleitt án hávaða eða fyrirgangs.
Við gengum í upphafi til liðs við flokkinn, einmitt vegna áherslna hans á málefni hinna dreifðu byggða, sjávarútvegsmálin, landbúnaðarmálin og hlut byggðanna í misskiptu samfélagi og höfum starfað með honum síðan. Okkur hefur liðið vel með þessar áherslur, og líka áherslur okkar í málefnum útlendinga. þ.e. stefnu flokksins, samkvæmt málefnasamningi okkar. Við tökum undir áherslur Guðjóns og þingmanna okkar í velferðarmálum, og tillögur og frumvörp sem þeir hafa lagt fram um þau mál.
Sem fyrr segir þá er greinilegt að aðilar innan flokksins vega nú leynt og ljóst að formanninum og þar með flokknum. Nú svo komið að við getum ekki orða bundist. Á miðstjórnarfundum hafa átt sér stað endurteknar árásir á þingflokksformanninn Kristinn H. Gunnarsson, en jafnframt er í gangi undirróðursherferð á hendur formanninum þó sé erfitt að sjá hvaðan fréttir berast, en þannig er eðli rógsins.
Guðjón Arnar hefur sýnt ótrúlega hugprýði og stillingu við þessi niðurrifsöfl. Það að hann vilji halda frið, eins lengi og stætt er, er viturlegt. Hinn vitri ræðst ekki fram, heldur leyfir hlutunum að hafa sinn gang, til að sjá hvaða stefnu þau taka. Hins vegar er óhætt segja, að þeir sem vega að Guðjóni nú, þekkja hann ekki eins vel og við og það fólk sem honum stendur nær. Gamli skipstjórinn, er ef til vill seinþreyttur til vandræða, en að grípa til aðgerða, hefur aldrei vafist fyrir honum, þegar til kastanna kemur. Við höfum líka fulla trú á að svo verði nú.
Við höfum ekki viljað ræða opinberlega um þessi innri mál flokksins, vegna þess að við vonuðum að þessum rógi linnti og menn myndu snúa bökum saman. En svo kemur að því að það er ekki hægt að þegja lengur. Þannig líður okkur núna. Þeir sem ekki eru ánægðir með stefnu flokksins, og forystu, ættu frekar að velja sér annað skipsrúm en að stunda þessa niðurrifsstarfsemi. Þeim átti að vera ljós stefnumál flokksins þegar þeir gengu til liðs við hann.
Málefni Reykjavíkur eru vissulega góðra gjalda verð, en það vill svo til að flokkurinn mælist ekki með mikið fylgi þar, sem sýnir að styrkur hans liggur á landsbyggðinni, enda ekki vanþörf á að vinna að þeim málefnum sem brenna á hinum dreifðu byggðum landsins. Út af þeirri stefnu höfum við aldrei vikið, og förum vonandi ekki að gera það nú.
Það er skiljanlegt að fólk vilji komast til forystu í flokknum og láta að sér kveða, en við erum orðin þreytt á sífelldum ófriði og niðurrifsstefnu í þágu slíkra eiginhagsmuna. Hér vilja margir verða kóngar og ekki seinna en strax.
Á tveggja ára fresti er landsþing Frjálslynda flokksins. Það á að skera úr um hverjir veljast til forystu, valdir af félagsmönnum flokksins, þar er vettvangurinn til að gefa kost á sér til trúnaðarstarfa. Þeir sem vilja komast til meiri metorða en þeir hafa nú þegar, ættu að bíða þess tíma en ekki sitja og kynda undir ófriði meðal flokksmanna, það er hætt við því að það komi í bakið á þeim sjálfum.
Okkar afstaða er ljós, meðan Guðjón Arnar gefur kost á sér til formanns í Frjálslynda flokknum, munum við standa þétt að baki hans. Best væri að fólk færi að vinna saman, og láta reyna á málefnin. Málefni og stefna Frjálslynda flokksins eru góð og algjörlega nauðsynleg að okkar mati.
Valdabrölt eins og nú á sér stað í flokknum tætir hann bara niður. Gefur óvinunum gott færi á að skjóta föstum skotum. Enginn er verri óvinur, en sá sem þykist vera vinur, en er svo þegar á reynir Lúsifer í dulargerfi.
Við undirrituð eigum sæti í miðstjórn Frjálslynda flokksins
Ásthildur Cesil Þórðardóttir,
Hanna Birna Jóhannsdóttir,
Pétur Bjarnason,
Pétur Guðmundsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (48)
22.9.2008 | 14:10
Haustið - krúttfærsla og Ruth Tryggvason.
Það er fallegur dagur í dag, en greinilegt að haustið hefur haldið innreið sína í bæinn okkar.
Nú er gott að hafa göngin.
en sólin er að brjótast fram, hversu lengi sem henni auðnast að skína á okkur.
Og Súgandafjörðurinn dularfullur.
Angandi af fegurð haustsins, með sína fallegu liti.
Og Tungudalurinn, skíðasvæðið, það verður samt langt í skíðafæri.
Prinsessur halda samt reisn sinni, og láta engan bilbug á sér finna.
Þó þær fái sér nú samt sæti öðru hvoru
Hér er svo Daníel ömmustrákur, hann elskar jafn mikið ömmu í kúlu og ömmu á Engjaveginum, og skiptir sér á milli þeirra, þegar hann er á Ísafirði.
Stóri stubburinn minn í alvöru lífsins, að leita að einhverju upp undir rjáfri
Sú litla biður bara um Latabæ, og segir Bratibær með ógurlegri tunguleikfimi, sem hún er nýbúin að finna upp. Og ef maður skilur ekki strax, kemur hún stormandi með fjarstýringuna. Næst a dagskrá eru svo Múmínálfarnir og Stubbarnir.
Hér eru þær að brasa með afa, að fá sér brauð.
Svo þarf að fá sér að súpa.
Með blóm í hári, er þessi meyja gjarnan.
Ég veit ekki alveg hvaðan barnið hefur þetta, en mamma hennar var svona stelpurstrákur, og lék sér frekar með bíla.
Naturalborn !
Hún er sko flott.
Langafi mættur í sunnudagssteikina.
Sumir kjósa samt að borða uppi fyrir framan sjónvarpið Ömmur mega allt.
Svo er komin mánudagur og tími komin á leikskólann.
Ert ekki að koma amma ?
Við erum að bíða eftir þér.
En vinkona mín hún Ruth Tryggvason er heiðursborgari Ísafjarðar. Þessi eldhressa kona er algjörlega frábær og mættu margir taka hana til fyrirmyndar. En nú stendur yfir sýning um hana í Stjórnsýsluhúsinu.
Hún Ruth í gamla, hefur bakað ofan í okkur í yfir 50 ár, og bestu kökurnar og brauðin sem fást eru einmitt hér.
Hér er brot úr hennar ævi. Það er gaman að skoða þetta.
Þó hún sé fæddur dani, þá er hún íslendingur í húð og hár, eða réttara sagt ísfirðingur
Og hún hefur verið algjör pæja og er reyndar enn.
Glæsileg kona.
Til hamingju með þessa sýningu Ruth mín, þú ert flottust
Og það var regnbogi yfir stjórnsýsluhúsinu í morgun.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
21.9.2008 | 11:42
Dagurinn í gær.
Það var mikið að gera hjá mér í gær. Náttúrulega litlu skottin mín, sem tóku sinn tíma, svo átti einn vinnufélagi minn fimmtugsafmæli, og ég mætti í það auðvitað, í kósí fjárhúsi inn í Arnardal, þar sem búið er að gera upp sveitabæ af miklum dugnaði, og verður einskonar ferðamannaparadís, enda þau sem að honum standa kraftmikið ungt fólk. En Guðjón Jón Jónsson til hamingju með fimmtugsafmælið, og takk fyrir mig. Ég þurfti að fara allt of snemma, því þetta stemmdi í virkilega skemmtilegt kvöld, og karlinn var með kjötsúpu í matinn. Það er ekkert betra en heit ilmandi kjötsúpa.
Svo var tónlistardagurinn, ég komst ekkert á hann, en Elli minn var að spila, og svo var Úlfur að spila líka.
Afi tók þessar myndir.
Flottir. Einhvernveginn held ég að þeir séu að djassa, saxofónleikarinn hefur einmitt sýnt mikla framför í jassi undanfarin ár.
Kennarinn stubbsins hann Önundur, er alveg frábær, og nær svo vel til stráksins. Enda hefur hann þetta allt í sér, þ.e. músikína sá stutti.
Svo er líka ósköp notalegt að eiga bara saman morgunstund með afa.
En svo átti Alejandra mín líka afmæli, og við vorum boðin í mat til þeirra. Isobel er frábær kokkur. Afi gamli var líka boðinn, og hann skemmti sér mjög vel.
Í góðum félgasskap.
Sú stutta búin að finna eitthvað fallegt
Riddarinn hugumprúði að sýna meyjunni sápukúlur.
Og svo blása þau eru algjörar rúsínur, Ísaac og Ásthildur.
En svo kemur stóra systir og vill taka af manni dótið.
Og hleypur í burtu með það hehehe, sjáið svipinn á litla skæruliðanum.
Það er ekki til betra fólk. Og nú þurfa þau á okkar aðstoð að halda, til að koma dóttur sinni og fjölskyldu hingað. Þau eru nú hundelt af mafíunni, og óttast um líf sitt. Og yfirvöld í El Salvador gera ekkert til að styggja illþýðið.
Krúsísmúsí!
Nammi namm.
Afi gamli skemmti sér rosalega vel í gær, þau spurðu hann mikið um efnahagsmálin, gengið og framtíðina, og það er enginn betri að uppfræða fólk en hann um allt slíkt. Hann veit nákvæmlega hvað gengið er hátt á hverjum tíma, evran dollarin og jenið, bara fletta upp í honum, og svo hvað er skynsamlegt að gera. Þetta eru hans ær og kýr. Og Rolando gat þýtt þetta allt saman á milli.
Ætli það sé ekki leitun að slíkum manni komin yfir nírætt ? Þórður Júl er bara sá flottasti.
Hanna Sól búin að hreiðra um sig í hjónarúminu og horfir á Shreck á spænsku
Hér er Isobel litla komin líka.
Og svo fóru þær að dansa og dilla sér
Meðan sumir bara skriðu um, þau voru reyndar öll í kisuleik.
ég grauta þessu fram og aftur, en afi kom seint í matinn því hann hafði verið að spila, og þessi mynd er alveg kostuleg, enn í kisuleiknum og sníkir mat
Þegar við vorum á leiðinni heim, þá var einmitt í gangi flugeldasýningin, slúttið á Tónlistardeginum mikla.
Þessar dularfullu kúlur eru regndropar, believe me or not.
En svo að lokum fyrir hana Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur, ég lofaði henni myndum af Sóltúni. En þar átti hún heima fyrir nokkrum árum.
En Guðmundur Mosdal smíðakennarinn gamli átti hér heima, ég held að hann hafi byggt þetta hús, síðan hafa margir átt hér heima, ég sagði nú í gamni einhverntíman að öll pör sem hafa búið þarna hafa skilið að skiptum, hvort sem það er tilviljun, eða álög, ég held að Guðmundur hafi aldrei verið við kvenmann kenndur. En svona er lífið. Nú er þetta hús í eigu ísfirðingafélagsins.
Flott hús á flottum stað, og mér sýnist að þar sé fólk alla daga allan ársins hring, svo það er vinsælt af brottfluttum ísfirðingum og öðru góðu fólki.
En hér með líkur þessari myndasyrpu, eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
20.9.2008 | 11:12
Tónlistardagurinn mikli á Ísafirði, og smá krúttfærsla.
Lognið er eitthvað mikið að flýta sér í dag, og veðrið er frekar rysjótt, synd eiginlega, því það er mikið um að vera hjá okkur í dag. Ekkert minna en stóri tónlistardagurinn. Dagskrá út um allan bæ, svona einskona fiskisúpuveisla Dalvíkur, nema hér verður boðið upp á tónlist, heil dagskrá, og fjöldi heimila sem stendur opinn gestum og gangandi. Því miður kemst ég ekki í neitt slíkt, þar sem ég er upptekin, tvö afmæli sem þarf að fara í í dag. En ég vona að veðrið lagist, svo dagurinn verði góður, og margir notfæri sér þessa prýðis skemmtun.
Thema dagsins er svo Abbalagið thank you for the musik, með texta eftir hina frábæru Dr. Ólínu Þorvarðardóttur. Ég er eiginlega afar stolt af bænum mínum og þessu frábæra tónlistarfólki, og öllum sem lagt hafa vinnu í uppákomuna.
Á vængjum söngsins;
Og syngið nú öll með, á þessum yndæla laugardagsmorgni til heiðurs Ísafirði.
Ég virðist látlaus, ég verð sjaldan æst eða reið.
Ef ég segi sögu, syfjar þig trúlega'um leið.
En leynivopn á ég, eitt dásemdarþing
því kliðurinn þagnar þegar ég syng.
Það er hamingjugjöf,
og mig langar til að hrópa'yfir höf;
Á vængjum söngsins
hef ég svifið í sorg og gleði.
Sungið dátt með glöðu geði.
Án þess væri lífið
svo laust við lit og róm,
innihaldstóm
væri þá ævi tilveran öll.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
um lífsins tonahöll.
Dálítil snót var ég dansandi'af lífi og sál.
Ég dreymandi söng - því söngur var mitt eina mál.
Já oft hef ég hugsað hvers virði það er
að heyra og finna í brjóstinu á sér
þessa hljómkviðu slá.
Hjarta strengina samhljómi ná.
Á vængjum söngsins
hef ég svifið í sorg og gleði.
Sungið dátt með glöðu geði.
Án þess væri lífið
svo laust við lit og róm.
Innihaldstóm
væri þá ævi tilveran öll.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
um lífsins tónahöll.
Þakklæti finn ég
þegar ég syng af hjartan lyst.
Rödd mína þen ég hátt, svo allir heyri;
Þenna tón, þennan róm, þennan hljóm:
Söngs á vængjum svíf ég í sorg og gleði.
Syng eg dátt með glöðu geði.
Án þess væri lífið
svo laust við lit og róm.
Innihaldstóm
væri þá ævi tilveran öll.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
um lífsins tónahöll.
Hreinlega frábær texti.
Já þó vindar blási, sólin gægist, og regnið falli, þá fara ísfirðingar inn í þennan laugardag með músik í hjarta, láta ekki veðrið stoppa sig, heldur ganga milli húsa í bænum og hlýða á söng og hljóðfæraslátt. Húrra !!!
Þetta geta alveg eins verið vængir söngvanna. en þessa mynd tók ég í fyrradag. Himnagalleríið.
Þann dag borðuðum við lika lyfrapylsu og slátur hehehe... þessi svipur á Sigurjóni Dag er kostulegur, en hann borðaði nefnilega slátur en ekki lyfrarpylsu.
Úlfur og pabbi hans gerðu slátrinu líka góð skil.
Þetta er nýji ljósmyndasvipurinn á Ásthildi.... nýtt lúkk hehehehe.
Og ekki er þessi fyrirsætusvipur síðri
Og prinsessan mín, er hér komin í einn kjólinn, ef þið haldið að ég ýti undir þetta, þá er það misskilningur ég leyfi henni bara að vera til á sínum forsendum.
Systurnar að togast á um nýju sokkabuxurnar hennar Hönnu Sólar, en hún er vaxin upp úr öllum sínum sokkabuxum, og þá fær litla systir að klára þær alveg
Svo er gaman að púsla saman, og Aron Máni lítur til með þeim.
Já það er margt sem hægt er að gera, það var nefnilega lokað á leikskólanum í gær, svo við fengum heilan aukadag saman.
Svona pósar Hanna Sól, og nú er hún búin að greiða hárið líka.
Sæt og fín.
ein í lokin knúsírófan mín Evíta Cesil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
18.9.2008 | 12:18
Kúlulíf, hönnun, myndlist, ævintýri og myndabloggið hans Stefáns.
Já kúlubúar við það sama, ég hef samt verið ansi drusluleg undanfarið, hef að mestu legið í rúminu, orkulaus, með munnangur, hálsbólgu og eitthvað slíkt. En nú er þetta allt á uppleið hjá mér.
Þessi regnbogi er nokkura daga gamall, en það var rosalega flottur tvöfaldur regnbogi í gær, hafði bara ekki orku til að taka myndir En nú brosir sólin við okkur ísfirðingum.
himnagalleríið hefur verið opið eins og sjá má.
Þetta er hönnun Hönnu Sólar, plastpils, nýjasta tískan í kúlunni.
Önnur hugmynd, galakjóla hönnun, takið barnið með ykkur út að skemmta ykkur
Sumir láta sig litlu skipta svoleiðis skart og fínerí, þar gildir penninn og hið ritaða krass
Það er nú samt betra að skrifa á blað.
Svo er maður aldeilis dugleg að borða, fisk og kjöt.
Og svo þarf að blása ef maturinn er of heitur.
En Hönnu Sól er fleira til lista lagt en að hanna föt, hér hefur hún tekið nokkrar listrænar myndir af litlu systur.
Stillta barnið hehehehe...
Duglega barnið.
Káta barnið, þetta er að vísu mjög hættulegur svipur, því það getur allt gerst. Í gær beit hún systur sína nokkrum sinnum, og þegar hún var skömmuð, sagði hún æ æ æ ekki bíta, svo blés hún á bágtið, og strauk yfir það, en þegar hún ætlaði að kyssa á bágtið, fannst stóru systur komið nóg, hún æpti upp yfir sig. Og sú stutta varð voðalega sár, hehehehe svo amma varð að skerast í leikinn og fá leyfi hjá Hönnu Sól, til að hún fengi að kyssa líka.
Þessi var tekin í morgun, hér erum við komnar á leikskólann.
Og það er ekki hægt að segja að þeim leiðist að fara þangað en Hanna Sól hafði farið með spólu, sem hún vildi spila fyrir krakkana. En það er auðvitað enginn DVD spilari, svo hún varð dálítið sár, en við sóttum svo Drekaspóluna út í bíl, og þær áttu að fá að hlusta smá í hvíldartímanum.
Hér er svo skottið að koma hlaupandi.
En þessi drekasaga er alveg frábær, ég mæli með að barnafólk bæði mömmur og pabbar og líka afar og ömmur eignist þessa frábæru spólu.
Þarna hafa margir þungavigtarmenn og konur lagt sína hönd á plógin, söguna les Ingvar E. Sigurðsson, Tónlist eftir Jóhann Helgason, saga og söngtextar Iðunn Steinsdóttir, og sönvarar eru heldur ekki af verri endanum.
Eins og sjá má.; Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Andrea Gylfadóttir, Jóhann Helgason, Heiða, Hildur Vala, Stefán Hilmars, Valgeir Guðjónsson, og fleiri. Sagan er skemmtileg, og söngvarnir líka, við hlustum allaf á þetta núna á leiðinni til og frá Skólanum, og við erum farnar að syngja með allar þrjár. Enda er vil við hæfi að hlusta á Drekasöguna, meðan við förum gegnum drekann í fjallinu, inn um munninn og út um rassinn... eða þannig.
Og svo styðjum við gott málefni í leiðinni.
Annað sem mig langar að benda ykkur á, er myndablogg hjá vini mínum Stefáni H. Kristinssyni. Yndislega myndir, og vel við hæfi að benda fólki á, sérstaklega þeim sem búa erlendis.
http://www.icelandphotoblog.com/ Hér er linkur á bloggið hans. Skoðið sérstaklega youtobe myndbandið, yndislegt og músikinn frábær.
Eigið svo yndislegan dag elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar