Mýrarbolti - taka tvö.

Ég lenti í smáævintýri í gær, alveg óvænt.  Ég heyrði sum sé í fréttum að fólk var hvatt til að mæta inn í Tunguskóg, til að vera statistar í mynd sem bretar eru að gera um mýrarbolta.  Ég hugsaði með mér að það væri gaman að taka nokkrar myndir á bloggið mitt, Ásthildur var nýsofnuð, og ég bað Úlf að hlusta eftir henni fyrir mig, meðan ég skryppi smástund inn í skóg.

En þegar ég mætti á svæðið, voru ekki margir komnir, ísfirðingar eru oft dálítið seinir á sér, og sumir feimnir, það var til dæmis fullt af fólki í berjamó hinumegin við ána, þar sem sást vel yfir Tounge En sum sé, þar sem svona fátt var, og mikið stóð til, endaði með því að ég slóst í hópinn, og tók þátt í öllu saman. 

Það var reyndar alveg rosalega gaman.

IMG_1372

Það fyrsta sem ég sá voru tveir slökkviliðsbílar á bólakafi í grasinu.  Þeir höfðu verið kallaðir til, til að sprauta vatni yfir mýrarboltasvæðið.  Eins gott að ekki kviknaði í einhversstaðar nákvæmlega þarna.

IMG_1373

Strákarnir við pollinn voru svo að heilgrilla læri ofan í mannskapinn. nammi namm.

IMG_1376

Bílliinn á kafi, byssan spennt, og auðvitað er þarna gott útsýni til myndatöku.

IMG_1377

Klappstýrur voru þarna auðvitað, og svo Hálfdán Bjarki sem var einn af aðalkörlunum þarna, enda er hann upplysingafulltrúi bæjarins og þar að auki vanur mýrarboltamaður.

IMG_1378

Skólabróðir minn hann Magni mættur líka í stígvélum, vanur maður.

IMG_1381

Hér átti að fara fram heimsmeistaramót í Mýrarbolta, milli Íslendinga og Tékka, hér eru tékkarnir, einhver gárunginn sagði að hluti af þeim væru gúmmítékkar, því þeir fengu lánaða þrjá ísfirðinga LoL

IMG_1384

Það liggur mikil vinna á bak við svona mynd.  Ég held að þetta sé stuttmynd, og verði sýnd á BBC world.

IMG_1385

Það þarf að huga að ýmsu, og mikið um að vera hjá leikstjóra og framleiðanda.

IMG_1389

ég held samt að þeir hafi gleymt að tala við álfana og huldufólki í dalnum, því marg gekk á afturfótunum til að byrja með.

IMG_1396

Hér er tékkneskaliðið komið í búningana sína.

IMG_1406

Málið er að við áttum að ganga á eftir leikmönnunum að leikvangnum, en fyrst átti að sprauta í fallegum boga vatni yfir leikvanginn.  hehehehe... en málið var að úðinn fór yfir okkur öll hin, hér eru menn að forða sér undan vatninu.

IMG_1410

En það tókst svo að lokum að sprauta á leiksvæðið en ekki fólkið.

IMG_1413

Her er myndin svona í þverskurði.  Það er maður sá sem þarna tekur myndina, sem vinnur verðlaun í ljósmyndasamkeppni á mýrarbolta. 

IMG_1414

Jæja þá fer að koma að því að fara ofan í drulluna.

IMG_1415

Bæði liðin komin á sinn stað.

IMG_1416

en fyrst var boðið í hádegismat. 

IMG_1426

Og fólk var orðið svangt.  Þetta var ævintýri út af fyrir sig.

IMG_1429

Og svo þurfti að koma bílunum í burtu, það var minna mál, þegar þeir höfðu tæmt 2000 lítra af vatni.

IMG_1436

Og gekk bara nokkuð vel.

IMG_1441

Áhorfendahópurinn var líka fjölþjóðlegur.  Og það var reyndar komin ágætis stemning í mannskapinn  þegar hér var komið sögu. Allirsem einn maður, bæði leikarar, leikumsjónarmenn og ´horfendur.

IMG_1444

Það hafði líka fjölgað í áhorfendaskaranum.

IMG_1452

Veðrið var líka gott hlýtt og logn.  Hér er verið að instructera mannskapnum.

IMG_1459

Og dómarinn komin út í drulluna LoL Þetta er reyndar yfirmaður tæknideildar bæjarins.

IMG_1461

Sómir sér vel þarna í drullunni.

IMG_1460

Og hefst þá leikurinn, ég held að þeir hafi bara átt að leika smástund, en það voruallir svo spenntir, bæði leikendur og áhorfendur, að þeir léku fullan leiktíma, ótrúlegt alveg.

IMG_1462

Það þarf endalaust að vera að skoða og athuga, næsta skref er svo sjálfur leikurinn.

IMG_1464

Þeir voru ekki með neitt stíft prógramm eða handrit, hvað eigum við að gera næst, sögðu þeir.  En í staðin fá þeir örugglega skemmtilegri og líflegri myndskot.

IMG_1465

Hér er svo einn af leikendum framtíðarinnar.  Pabbi hans var ansi vel liðtækur í slagnum.

IMG_1467

Já svona á að gera þetta !

IMG_1472

Og þá er drullann á fullu.

IMG_1478

Slagurinn byrjaður.

IMG_1487

Viðbúnir tilbúnir nú.

IMG_1488

Íslendingarnir.

IMG_1496

Fyrsta markið varið.

IMG_1499

Og spenna komin í leikinn.

IMG_1502

Hér er varið hjá tékkunum.

IMG_1504

Og eins og sjá má, er hiti í mönnum.

IMG_1505

Oh boy!

IMG_1522

Örtröð við markið.

IMG_1525

Maður og bolti.

IMG_1528

Stundum var erfitt að greina boltan LoL

IMG_1540

Og smátt og smátt runnu jafnvel leikmennirnir saman við drulluna.

IMG_1543

Ótrúlegt að horfa á þetta.

IMG_1547

Og ef maður spáir í orkuna sem fer í þetta.  Það er ekki nema fyrir fílhrausta menn og konur að spila þennan mýrarbolta.

IMG_1549

enda var farið að draga af mannskapnum undir það síðasta.

IMG_1561

Þetta er sko ekki auðveldasta sport í heimi.

IMG_1562

Enn og aftur maður og bolti LoL

IMG_1568

Og maður á mann LoL

IMG_1575

Leikurinn endað svo 1x1, jafntefli.  Og mennirnir gjörsamlega uppgefnir, því í mýrarbolta, skipta menn út reglulega í liðunum, þar sem þetta reynir svon mikið á.  En hér var engu sliku til að dreyfa.

Svo ef til vill hefur hér verið slegið heimsmet í úthaldi í íþróttiinni, hver veit?

 

IMG_1576

Leiknum lokið, og mennirnir komnir á land.  Pása fyrir tökulið og leikendur, áhorfendur farnir að mjaka sér heim, og tími á mig að koma mér heim til minna unga.  En mikið var þetta annars skemmtilegt, ef ég hefði vitað að ég ætti eftir að standa framan við myndavélar, hefði ég örugglega sett á mig smá málningu og allavega greitt á mér hárið LoL en auðvitað þarf líka skessur í svona viltar myndir.  W00t Annars takk fyrir mig og takk fyrir skemmtilegan dag.


Gott veður á Ísó, og gott líf í kúlunni.

Það er dýrðar dagur í dag, milt og hlýtt veður, sólin svona við að brjótast fram. 

Ég brá mér í bíó með stubbnum í gærkveldi til að sjá Mamma Mía, og ég sé ekki eftir því.  Þetta var held ég sýning númer fimm hér og það var allt uppselt, sumir voru að fara í annað og jafnvel fjórða skiptið.  Enda stemningin algjör.  Það voru vídeóupptökur af Abba, bæði fyrir sýninguna og í hléi, svo fólkið var orðið vel upphitað fyrir sýninguna.  Þarna voru margar eldri konur eins og ég, og allt niður úr. En karlmenn líka.  Ég held að það sem geri útslagið með vinsældir þessarar myndar, er einlægnin og leikgleðin í aðalleikurunum öllum.  Þau bókstaflega virðast elska að vera þarna með.  Og Meril Streep Vá þvílíkur leikur, og gleði.  Brosnan var líka flottur, mér fannt hann töff að syngja svona, og ég sá í augunum á honum að þau gneistuðu af kæti, meðan hann var að syngja.  Þetta skilar sér alveg fram í kvikmyndahúsin og til áhorfenda.  Svo hef ég líka grun um að við þessar eldri, höfum gaman af að sjá að eldri konur geta verið aðal, og bæði töff og töfrandi.  En mér finnst hafa verið valin maður í hverju rúmi, og heildin þess vegna svona óskaplega skemmtileg og góð.

En að kúlúbúum.

IMG_1341

Við vorum með spaghetti í gær, krakkarnir elska svoleiðis.

IMG_1344

Tóm sæla tíhí.. LoL

IMG_1345

Og maður þarf nú ekki hnífapör í svona mat sko!!!

IMG_1346

En prinsessur eru nú settlegri..... eða þannig.

IMG_1349

Og Úlfur "stóri bróðir" er mjög duglegur við að hjálpa ömmu með stelpurnar.

IMG_1351

Hanna Sól er hér í bókmenntunum, þetta er reyndar ein af uppáhaldsbókum Úlfs, ásamt heimsmetabók Guinnes.

IMG_1353

Hér grípur hann aðeins niður í píanóið, en trommurnar eru hans aðall.

IMG_1354

Lillan horfir á sjónvarpið með athygli.

IMG_1368

Afi greyið þarf að fara að skola sótið úr kajakgallanum sínum, og Úlfs.  Sem betur fer slapp allur þeirra búnaður í brunanum.

IMG_1355

Af því að haustið er að koma, er ekki úr vegi að fá nokkrar blómamyndir.

IMG_1358

Rósir hafa aldrei verið fallegri en í sumar.

IMG_13591

Hvaða fallega blóm skyldi þetta nú vera. Tounge

IMG_1359

Jú bara venjuleg kartafla, ekkert flóknara en það. 

IMG_1362

ég get svo svarið það sem þessu barni dettur í hug, þetta gerði hún alveg sjálf, og þóttist sofa, bara leikaraskapur í litla grallaranum.

IMG_1364

En afi gefur prinsessunni blóm.

IMG_1366

Ó svona falleg Havaírós.

IMG_1370

Hún þarf auðvitað að fara í hárið.

IMG_1367

En veðrið er yndislegt, þó ekki sé full sól.  Eigið góðan dag elskurnar.Heart 

 


Lognið er að flýta sér í dag.

Veðrið var kolvitlaust í morgun, þegar við fórum á leikskólann.  En það er orðið betra núna, hefur lægt heilmikið og steinhætt að rigna. 

IMG_1326

Já himininn var dálítið ógnvænlegur í morgun ekki satt ?

IMG_1327

Þessi var reyndar tekin seinnipartinn í gær, sjáið birtuna, hún er mjög sérstök.

IMG_1330

Minnir mann hálfgert á tröllasögur.

IMG_1334

En svona er náttúra íslands, óbeisluð, og óviðjafnanleg.

IMG_1335

Ekki algeng sjón hér, hvítfryssandi haföldur.

IMG_1336

Og allir fuglarnir komnir á land.  Eða að láta vindinn bera sig.  Einn sem ég mætti átti í erfiðleikum með að fljúga gegn vindinum frá bílnum mínum.  Ég varð að hægja á mér svo hann kæmist framhjá.

IMG_1338

Já þeir eru allir sestir upp blessaðir.

IMG_1328

En Hanna Sól og Ásthildur atidur, eins og hún segir sjálf, fóru til berja í gær, í yndælisveðri, og týndu nokkur krækiber.  Og svo var borðað, og Sigurjóni boðið að borða líka. 

Annars er góð saga að grallaranum Ásthildi frá leikskólanum.  Í gær þegar ég sótti þær, var forstöðukonan alveg miður sín, þá hafði sú stutta skriðið upp úr vagninum þegjandi og hljóðalaust, hún var bæði bundinn niður í vagninn og svo með hljóðtæki.  En allt í einu var hún bara komin út á tún.  Þær spurðu mig hvort ég vildi að hún svæfi inni til öryggis, en ég taldi það ekki þurfa.  Okkur fannst skrýtið hvernig hún gat losað sig úr vagninum, því það virtist ekkert hafa opnast. 

Í dag, sagði forstöðukonan mér að vegna roksins þá svaf hún inni, og þær horfðu á hvernig hún smokraði sér úr beltinu, án þess að opna það og án þess að gefa frá sér nokkurt hljóð.  Amma verður því annað hvort að kaupa nýtt beisli, eða láta hana sofa inni. LoL Hún  algjör prakkari.

IMG_1332

Þessi var svo tekinn í morgun.  Ásthildur er ekki að gráta vegna þess að hún vilji ekki fara á leikskólan heldur á ég að halda á henni hehehe.... Hin er svo að pósa í prinsessukjólnum sem hún fékk að fara í í morgun á leikskólann.

En sum sé veðrið er orðið bara nokkuð gott hér.  Og vonandi allstaðar annarsstaðar.


Every time you say good bye, I die a little.

Hér er hún Solla stirða í allri sinni dýrð.

CIMG5944-1 

Ömmustelpan mín er nú ansi lík henni Sollu stirðu, með þennan lit og klippingu.

2008.27.8. 002

Krakkarnir og kisa.  Það er sorg í hjarta mínu, því dóttir mín er farin suður, til að læra undir próf, síðan liggur leiðin hennar til Vínar, þar sem hún sest á skólabekkinn.  Litlu stelpurnar hennar eru hér, og það hefur ekki verið auðveld kveðjustundin.  Ég er líka í sárum, því ég á afskaplega erfitt með kveðjur.  Í hvert sinn sem einhver kveður deyr einhver hluti af manni.  En nóg um það.  Ég næ mér fljótlega.  Gat ekki skrifað neitt í gær, var of aum til þess. InLove

2008.27.8. 008

Brandur er allavega glaður að fá frið á heimilinu fyrir þessu litla skrímsli, sem sífellt var að bögga hann.  En hann hafði hina mestu skömm á, og var jafnvel hræddur við til að byrja með.

2008.27.8. 011

Heimilislífið dottið í sama farið, að fá afa í mat á sunnudögum.

2008.27.8. 013

Þessi ágæta kona, sem mér var sagt að væri bæjarstjóri, minnir í Nanortalik, kom og keypti hjá mér plöntur, hér er hún að leggja af stað út á völl, með fríðu föruneyti og blómin frá mér, til að fljúga beint heim til sín.  Þar dafna blómin vonandi vel.

2008.27.8. 014

Ballerínan og riddarinn, eiga vel saman.

2008.27.8. 017

Með allt á hreinu.

2008.27.8. 019

Og hér er svo litla Heidy, en hún var eins og allir vita frá Austurríki.

2008.27.8. 028

Svo er auðvitað tekið til að að skoða gamla dótið upp á nýtt.

2008.27.8. 031

Prinsessur þurfa líka aðeins að sinna þeim málum.

2008.27.8. 035

En góða veðrið er ennþá hér.  Milt og lygnt.

2008.27.8. 036

eins og sjá má.

2008.27.8. 037

Húsin í bænum standa gjarnan á haus.

2008.27.8. 038

Nýlega bættist í flota ísfirskra bátaeigenda.  Þessi skúta er bæði afskaplega flott og kostar ekkert smá skilst mér.

2008.27.8. 039

Til lukku með hana Rabbi.

2008.27.8. 043

en það gerðist líka dálítið dapurlegt, þegar kviknaði í aðstöðu Sæfara, og margir kajakar eyðilögðust í eldi.  Og húsið stórskemmdist líka.  Aðstaða þeirra kajakmanna.

2008.27.8. 044

Lögreglan og eigandi að átta sig á aðstæðum.  Sannarlega sorglegt mál.  En vonandi verður þetta allt byggt upp aftur, og vonandi hafa kajakarnir verið tryggðir.  Sem betur fór slapp minn karl við skemmdir á sínum kajak.  En aðstaðan þeirra er mjög skemmd.

2008.27.8. 045

Vil óska þeim góðs gengis við endurbygginguna.

2008.27.8. 047

en kúlan er enn á sínum stað og þeir sem þar dvelja oft og lengi.

2008.27.8. 053

Litlu grallararnir mínir þar á meðal.

2008.27.8. 067

Þetta er miljón króna svipur á Evítu, hún er ótrúleg með svipbrigði stelpan sú.

2008.27.8. 070

Og svo eru þær alveg að fara að tala, það koma orð og stundum heilar setningar hjá Evítu.

2008.27.8. 076

Jamm grallaraspóar Heart

2008.27.8. 080

Og Hanna Sól verður örugglega fyrirsæta.

2008.27.8. 085

Aríel litla er algjörlega hlutlaus, og búin að finna sér verðugan andstæðing LoL

2008.27.8. 088

Svo fékk hún rúm, eða hún fann það eiginlega alveg sjálf.

2008.27.8. 092

Í nýja prinsessuherbergi heimasætunnar Hönnu Sólar. 

2008.27.8. 095

Og veðrið er ennþá gott.

2008.27.8. 096

Hér er svo elskuleg fyrrverandi nágrannakona mín hún Magný.  Þau búa núna úti á Spáni, í Andalúsíu, þar sem þau leigja út íbúðir Competa, Perla í fjöllum Andalúsíu, það er hægt að hafa samband við þau á www.competa.is, ef þið viljið ferðast til Andalúsíu og leigja ykkur íbúð á fögrum stað, ég var að skoða myndir.  Er ákveðin í að bregða mér þangað fyrr en seinna, og ryfja upp skemmtileg ár með þeim hjónum sem nágrönnum mínum. 

2008.27.8. 098

Þá er allt að verða klárt fyrir brottför.  Síðustu mínúturunar fara í að sitja með foreldrum sínum og fá sér kaffisopa á uppáhaldsstað okkar, fyrir framan kúluna.

2008.27.8. 099

Og Kay hjálpar til.  Hann er svo duglegur drengur og góður hann fer að byrja í skólnum í Austurríki.

2008.27.8. 101

Og þá er allt orðið klárt að leggja í hann.  Góða ferð elsku barnið mitt, og knús þangað til við sjáumst aftur.  Ég ætla að gæta litlu englanna þinna eins vel og ég get.  Heart

2008.27.8. 104

Og hér eru aðrir farfuglar að tygja sig til heimferðar.  Þeir fara líka fljúgandi, eru farnir að hópast saman, en þeir fara gjarnan margir saman.  Í augnablikinu eru þeir innan um fjárhóp, og virka svipað stórir, þetta sumar hefur því verið þeim gott og gjöfult af mat. 

eigið góðan dag elskurnar mínar og takk fyrir hve þið eruð góð við mig endalaust. Heart 

 


Heimkoma.

jamm hér eru ferðalok.

23.8.081 361

Kcöldið er fagurt.

23.8.081 362

Sól er sest og sefur fugl á grein.

23.8.081 366

er þetta ekki rómó?

23.8.081 371

Og afi les fyrir börnin.

23.8.081 372

Svo þarf að þvo sér fyrir svefninn ekki satt?

23.8.081 376

Annars getur maður nú brosað að þessu öllu saman.

23.8.081 384

Grallaraspóarnir nammi namm gosdrykkur.  Ætlarðu að klára þetta allt ?

 

23.8.081 387

Nei þú mátt líka fá sopa.

23.8.081 392

E það er betra að fá bara glas.

23.8.081 404

Borðið þér orma Frú Norma ?

23.8.081 425

Aha kettlingurinn, amma viltu ekki taka við honum.

23.8.081 432

Það er reyndar ágætt að hvíla sig í kattarsandinum.

23.8.081 434

Og jamm hér horfðu allir á ólympíuleikana. W00t

23.8.081 444

Hver segir að kisur og börn eigi ekki vel saman.

23.8.081 449

Nú eða Eyrnaslapi, það má pakka honum inn í rýjur, svona til tilbreytingar

23.8.081 459

Umm sítrúna er súr !!!

23.8.081 463

Leyfðu mér... ég vil smakka.

23.8.081 483

Umm kisi kiss, fáðu þér mjólk

23.8.081 493

Sona sona, hér er mjólkin'

23.8.081 495

Best að klára þetta.

23.8.081 507

Strákar geta lika elskað ketti Smile

23.8.081 513

Og svo var dansað, þetta var síðast kvöldið, hér er hann Erik frá Maríubakkannum á útopnu.

23.8.081 516

Og hann fríkar út, þessi elska.

23.8.081 522

Sumir létu sér nægja að dansa við mömmu

23.8.081 523

Nú eða ömmu LoL

23.8.081 528

Og það er fjör!!!!

23.8.081 534

Jamms það var dansað upp á dekki,

23.8.081 538

Já allir voru að dansa upp á dekki !!!

23.8.081 556

Já systir Eriks frá Maríubakka, með kisu hana Aríel.

23.8.081 560

Amma og afi eftir allt fjörið.

23.8.081 564

Úbbs hvar er kisa?

23.8.081 566

Hér erum við á leiðinni heim, Dynjandinn er glæsilegur foss.

23.8.081 574

Og svo stoppuðum við auðvitað á Hrafnseysi, bústað Jóns Sigurðssonar.

23.8.081 578

Og fengum þar góðan viðurgerning, kaffi, kakó vöfflur og rjóma, svei mér þá.

23.8.081 594

Þarna er svo auðvitað minjasafn um kappann.

23.8.081 597

Pottur á hlóðum.

23.8.081 600

Þessa fallegu kirkju átti að rífa, það var byggð kapella inn í húsinu, en sem betur fer dróst að rifa hana, þangað til lög sögðu til um friðun, og hér stendur hún enn, þetta gamla kirkjuhús.

23.8.081 603

Hún er líka falleg og hlýleg að innan.

23.8.081 604

Og sjálfsagt hefur verið gott að ylja sér á ofni, þegar kalt var úti.

23.8.081 602

Hrafnseyri, þaðan sem okkar sjálfstæðishetja kemur Jón Sigurðsson. Og Ketildalirnir í rigningu.

23.8.081 605

Litla skottið finnur sér ýmislegt til að skoða.

23.8.081 606

Vertu sæll Jón Sigurðson.

23.8.081 610

Amm og farið yfir Hrafnseyrarheiðina, sem er ógnvænleg, get ég sagt ykkur.

23.8.081 615

Og hér er drottning, sem betur fer ekki sú danska, því þó hún haldi á sigarettupakka þessi drottning, þá talar hún frekar í síma en að reykja líkt og danadrottninginn.  LoLHeart

En þetta svona dekkar vikuna mína, og ég segi bara góða nótt og dásamlega drauma elskuleg.

 

 

 


Ævintýralandið.

Það kom dálítið skemmtilegt upp á hjá mér núna.  En ég var með hugleiðingar á blogginu hennar Hnetu bloggvinkonu minnar, þar sem hún var að tala um að hún hefði verið að kaupa miða á leikrit vetrarins fyrir sig og sína. http://hneta.blog.is/blog/hneta/ m.a. að hún ætlaði að sjá Skilaboðaskjóðuna, ég sagði við hana, að ég hefði einmitt samið leikrit fyrir nokkrum árum, thema sem skilaboðaskjóðan byggir á. 

Forsaga málsins er sú, að fyrir mörgum árum, var ég með leiklistarkennslu í Grunnskólanum á Ísafirði, í samstarfi við Litla Leikklúbbinn, við höfðum themað ævintýrin og ofbeldið í þeim.  Upp úr því samdi ég þetta leikrit, þar sem tveir menn detta ofan í ævintýralandið, annar er jákvæður og hinn neikvæður, þeir sjá svo hvert ævintýrið á fætur öðru, en það er búið að breyta þeim, þannig að ofbeldið er að mestu tekið út.  Það var virkilega gaman að vinna með krökkunum, við settum þetta svo á svið og sýndum í Grunnskólanum.  Við sendum þetta svo inn til Bandalags ísl. leikfélaga, og þar gleymdi ég því alveg, þangað til í fyrra að það var haft samband frá grunnskólanum á Borgarfirði eystri, og spurt hvort þau fengju leyfi til að setja upp leikritið mitt.  Sem var auðvitað auðsótt mál, og ég auðvitað mjög montin.  Þau höfðu svo samband aftur og vildu fá eitthvað í endirinn, það varð út að ég setti saman texta við gamalt lag sem lokalag.  Þetta rifjaðist svo upp fyrir mér, þegar Sigrún Hneta, fór að tala um Skilaboðaskjóðuna, sem kom svo síðar.  Og ég fór að skoða hvað hefði nú orðið af þessu skemmtilega afkvæmi mínu.  Og viti menn, þarna var umsögn og myndir. 

http://www.leit.is/thjonsla/go.aspx?r=le&url=http://www.google.com

Ævintýralandið

Þetta er örugglega vonda drottningin í Mjallhvít og dvergarnir sjö.

Ævintýralandið2

Þetta eru nú sennilega Aulabárður og bræður hans.

Ævintýralandið3

Nornin í Hans og Grétu.

Ævintýralandið4

Rauðhetta, amma og Úlfurinn.

Ævintýralandi5

Hér gæti svo verið lokasöngurinn.

Því miður á ég engar myndir af okkar uppsetningu, það væri gaman ef einhver, foreldri eða aðstandendur hefðu mynd af henni í fórum sínum til  að leyfa mér að sjá.  En ég vil bara vona að krakkarnir á Borgarfirði eystri hafi haft jafn gaman af að setja þetta upp og við hér hinum megin á landinu. 


Hin forvitnilega Flatey.

Já við fórum með Baldri yfir til Flateyjar, ég hafði aldrei komið þangað áður, en hafði lengi haft áhuga á að skoða þessa eyju.  Hún er sérstök fyrir margra hluta sakir.  Í dag eru þar tveir ábúendur, bændur  örugglega sjálfþurftarbændur, með kindur og hænsni.  En þarna erum mörg falleg hús og vel við haldið.  Miklu meiri byggð en ég bjóst við.  Þarna eiga menn sumarhús, og margir dvelja þarna sumarlangt.  Mér var sagt að þegar kvikmynd Baltasar var gerð þarna var gengið í að fá Gemsasamband þangað, en íbúar voru víst ekki hrifnir af slíku.  Og ekki vel séð að menn tali í þau tól í miðbænum.

23.8.081 107

Hér er verið að fara um borð.  Vestfirðingar fá sérkjör á bátinn.

23.8.081 109

Hér eru unglingarnir okkar.  Þetta var síðasta ferð sumarsins, þar sem báturinn siglir tvisvar yfir Breiðafjörðin, það voru því síðustu forvöð að dvelja þarna milli ferða.

23.8.081 110

Það þarf að fylgjast með fuglum og svoleiðis.

23.8.081 111

Okkar erlendu vinir, Kaj frá Austurríki og Leon frá Þýskalandi.  Þeir skemmtu sér ekki síðu en hin börnin.

23.8.081 113

Það er gott að sitja hjá mömmu, þar er öryggið.

23.8.081 126

Þúsund eyja klasi, sem ekki er hægt að telja.  En fallegt er hér.

23.8.081 127

Sumir voru nú samt dálítið sjóveikir.

23.8.081 131

Og svo var komið í Flatey og nú var bara að ganga á land.

23.8.081 134

Aðalgatan í átt að þorpinu. 

23.8.081 136

Læknishús stóð utan á þessu húsi, og þarna má greina sultukrukkur sem voru örugglega til sölu.

23.8.081 138

Hér eru engir malbikaðir breiðvegir, heldur svona slóðar, alveg eins og fólkið hér vill hafa það.

23.8.081 139

Íslenskar hænur á vappi.  Allt svo frjálslegt og notalegt hér.

23.8.081 141

Sumir eru einfaldlega prinsessur, og prinsessur þurfa að halda uppi kjólfaldinum, þegar þær vaða yfir polla LoL Það er örugglega meðfætt.

23.8.081 148

Og meðan sumir príla...

23.8.081 150

Vilja aðrir sulla.

23.8.081 154

Og nóg um að vera fyrir ærslafulla krakka.

23.8.081 156

En prinsessur eru líka alltaf settlegri...

23.8.081 159

Já það var margt um að vera.

23.8.081 162

Og börn eru alltaf svöng á ferðalögum ekki satt?

23.8.081 165

Ömmur líka Tounge

23.8.081 167

Svo er gott að leggja sig aðeins eftir matinn.

23.8.081 172

Hún er alveg eins og amma sín, öll í grjótinu.

23.8.081 175

Það eru mörg falleg hús hér eins og ég sagði áðan, og öllum vel við haldið.

23.8.081 177

Hér er hótelið þeirra kaffihúsið og barinn.

23.8.081 180

Það var líka farið í kirkjuskoðun.

23.8.081 195

Bátar eru auðvitað lífsnauðsyn í Flatey.

23.8.081 210

Og heimurinn getur virkað ógnarsmár, meira að segja miðað við lítið kríli.

23.8.081 244

Kirkjan er fallega skreytt af Baltazar Samper.

23.8.081 246

Bæði altarið og kirkjuskipið.

23.8.081 247

Trú von og kærleikur heita þessir bátar.

23.8.081 249

Og ekki fer maður svo í Flatey að maður skoði ekki bókhlöðuna.

23.8.081 250

Og Flateyjarbók.

23.8.081 254

Hér er líka teikning af eyjunni frá árinu 1906.

23.8.081 256

Safnahúsið er eins og sjá má, risasmátt. 

23.8.081 263

Það er komin tími til að halda af stað niður á bryggju.

23.8.081 274

Farartækin hér eru af ýmsum stærðum og gerðum.

23.8.081 275

Eins og sjá má.

23.8.081 276

Já þau eru líka mis afkastamikil.

23.8.081 279

En það er nú bara eins og það er.

23.8.081 285

Hér er meira að segja bíll.

23.8.081 278

ég hugsa að þessi skreiðarhjallur og fiskurinn á honum, sé bara mjög stór á Flateyskan mælikvarða.  Þ.e. miðað við höfðatölu.

23.8.081 287

Og svo er komið niður á bryggju.

23.8.081 291

Hér er beðið eftir bátnum.

23.8.081 293

Og sumir orðnir lúnir.

23.8.081 312

Það var múgur og margmenni á bryggjunni, þegar skipið kom.

23.8.081 314

Flatey kvödd með virktum.

23.8.081 319

Og gamli vitinn lýsir leið.

23.8.081 329

Og það er notalegt að setjast niður og fá sér eitthvað í gogginn eða bara horfa á barnaefnið í sjónvarpinu.  En sumarbústaðarlífið heldur áfram.

Læknishús

Þessi er fyrir Kiddu mína.


Er ólympíuleikvangurinn í Peking íslenskt hugvit ?

Ég var að lesa ljómandi skemmtilegt viðtal við arkitektin að kúluhúsinu mínu, lífskúnsternum og stærðfræðingnum jú og arkitektinum Einar Þorstein Ásgeirsson.  Þar kemur hann fram með skemmtilegla sögu um tilurð "hreiðursins" ólympíuleikvangsins í Peking.

 

  En það voru fleiriren við tveir og Holbækbúar,sem voruánægðir með árangurinn:Tveir svisslenskirstjörnu-arkitektarsáu gripinn,þeir voru einmitt aðvinna að samkeppnifyrir Ólympíuleikanaí Bejing 2008. Og vitimenn, með kópíuaf þessu listaverkiokkar unnu þeir samkeppnina!  Garðskálinn í Holbæk kominn tilPekingÉg má til með að segja þér aðraskondna sögu um form, Súsanna.Og hvar þau lenda svo á endanum.Þessi er frá fyrstu árumsamvinnu okkar Ólafs Elíassonar.Þannig vildi til að haustið 1998unnum við að gerð “garðskála”listaverks fyrir lystigarð í Holbækí Danmörku. Við urðum lokssammála um að ákveða þekkt,fallegt geometrískt munstur áskálann, sem ég vissi um: Ammann-línurnar. Gott og vel. Skálinnvar svo vígður vorið 2000 íHolbæk.Tveimur árum seinna var gefinút bók um þetta verkefni ásamtfleiru. Við vitnuðum að sjálfsögðuí stærðfræðisnillinginn Mr.Ammann frá Boston og línurnarhans. En það voru fleirir en viðtveir og Holbækbúar, sem voruánægðir með árangurinn: Tveirsvisslenskir stjörnu-arkitektarsáu gripinn, þeir voru einmittað vinna að samkeppni fyrir Ólympíuleikanaí Bejing 2008. Ogviti menn, með kópíu af þessulistaverki okkar unnu þeir samkeppnina!Nú er búið að reisa byggingunaí Bejing og allir sem þekkja garðskálanní Holbæk sjá, hvað er hérá ferðinni. Síðast um helgina komhér ókunnur maður, bankamaður,sem óspurður sá strax að umsama hlut er að ræða. Nú, ariktektarnirstanda ennþá í þeirritrú, að þetta ævintýri þeirra hafiheppnast. Þeir tala fjálglega um“fuglshreiður”, en ekki Ammannlínur.Og svo langt gengur vitleysan,að það er búið að finnaKínverskan listamann, sem vefurtágum saman á líkan hátt. –Þóþað nú væri.“„Fjölmiðlarnir éta þetta svoauðvitað upp hver eftir öðrum,uns ný “staðreynd” verður til! Íeinkaviðtali hafa sömu arkitektarviðurkennt hugmyndastuldsinn, en opinberlega ekki. Þaðværi skömminni skárra ef þeirviðurkenndu, að minnsta kosti,að hér eru Ammann-línurnarkomnar til Bejing!“  image002Einar er afar sérstakur maður og framtíðarhugsuður.  Hér eru glefsur úr viðtalinu. 42Einar Þorsteinn Ásgeirssonlistamaður og arkitekt segirhinn harða heim vitsmunaekki gefa mikið fyrir rómantískartilvísanir„Samstrendingur er nýyrði ííslensku og þýðir að maður geturpakkað saman helling af einumog sama margflötungnumán þess að myndist gat eða holrýmiá milli þeirra. Sama geristmeð sameindir í kristöllum, þaðmyndast einskonar samloka.Maður þarf ekki nema eitt slíktform, en getur pakkað því samaná alla kanta,“ segir Einar Þorsteinnlistamaður og arkitekt ogbætir við: „Í nýja Tónlistarhúsinuí Reykjavík er þetta form notaðí burðargrind glerhjúpsins, semá ensku heitir „space frame“ ogber sig sjálf vegna þess að húner í þrívídd. Það sem er sérstaktvið þetta form mitt, er að það erbyggt á fimmfalt symmetrískurými, en er samt samstrent, enaðeins um fimmtán samstrendform eru til.“ Vitaskuld er Gullinfangiðaðeins eittaf fleiri skyldumformum og þau erusmám saman aðkoma í ljós – en áendanum leiða þausaman til nýs skilningsá vissum þáttumnáttúrunnar.

Allt viðtalið er svo hér: http://www.landogsaga.is/LS-03058.pdf


Komin heim í heiðardalinn.

Já ég er komin heim, er svona að jafna mig eftir fríið. W00t    Það er ótrúlegt hvað maður getur orðið þreyttur eftir frí hehehehe... Það var annars rosalega gaman.

23.8.08 130

Íslensk náttúra er hrikalega falleg og kraftmikil.

23.8.08 142

Við vorum með tvo sumarbústaði undir mannskapinn, en það var samt þröngt á þingi, enda afkvæmin mörg.  En bústaðirnir voru sérlega flottir og notalegir.  Við sváfum samt í pallhýsinu okkar til að byrja með.

23.8.08 147

Þessi litla hvíta kisa var eftirlæti allra barnanna.  Hún heitir Aríel líka kölluð Nanna, en það er af Evítu litlu.  Hún er víst ein af fáum skógarkisum, kvenkyns sem er svona hvít og falleg.

23.8.08 153

Ömmuskott með græna teppið sitt.

 23.8.08 155

Það var rosalega gaman að hoppa í stóru dýnunni. 

23.8.08 157

Hér er búið að undirbúa kvöldmatinn á laugardeginum.  Það dugði ekki minna en fjögur læri.

23.8.08 158

Notalegt heimilislíf.

23.8.08 162

Stubburinn með kisu.

23.8.08 163

Það þurfa náttúrulega allir að hjálpast að við að vaska upp, þegar maður er í fríi.

23.8.08 165

Svo má næla sér í snakk, þegar pabbi er upptekin af að horfa á ólympíuleikana LoL

23.8.08 172

Það þarf líka að kenna þeim litlu að fara vel með kettlingin.

23.8.08 179

Sæt saman.

23.8.08 181

Það þurfti margt að spjalla og skoða.

23.8.08 182

Gelgjurnar mínar.

23.8.08 183

Það voru líka týnd ber, en það var best að borða þau strax, svo þau skemmist ekki.

23.8.08 185

Það er rosalega fallegt í Flókalundi. 

23.8.08 190

Svo var sameiginlegt borðhald.

23.8.08 193

Ásthildur er liðtæk við að leggja á borðið líka með aðstoð Kajs.

23.8.08 199

Já það var fjör.

23.8.08 247

Hanna Sól með Sollu stirðu klippingu.

23.8.08 250

Og Evíta horfir á heiminn.

23.8.081 004

Strákar eru sísvangir ekki satt, sérstaklega í útilegum.

23.8.081 006

Jamm það þarf að fylgjast með þessum leikum úti í Kína.

23.8.081 022

Og svo má líka rífast smá.

23.8.081 034

Nú eða bara vera vinir.

23.8.081 027

Kisa er ekki hrifin af banönum.

23.8.081 029

Við nefndum frumburðinn "pabba ársins".

23.8.081 032

Harrý Potter ? Nei Kaj Veller hinn austurríski.  Þetta er samt flott mynd LoL

23.8.081 076

Eins gott að gæta sín þegar maður fær svona villidýr yfir sig.

23.8.081 082

Evíta verður örugglega fatahönnuður, hún kann sko að klæða sig í það sem til fellur LoL

23.8.081 084

Og Óðni Frey finnst ber góð hehehehe.....

23.8.081 089

Og það er líka gaman að róla.

23.8.081 091

Svo fengu unglingarnir að tjalda, það var gaman.

23.8.081 098

Hahaha flott skvísa, og þetta er Erik Oddur í Maríubakkanum, þau urðu bestu vinir.

23.8.081 103

Hehehehe, það sem sumum skottum getur dottið í hug.  En þetta er samt rosalega fyndið. 

En við fórum út í Flatey, og ég ætla að láta hér inn nokkrar myndir þaðan seinna.  En það er gott að vera komin heim.  Ég hef líka saknað ykkar mín kæru. 

Svo segi ég bara góða nótt héðan úr kúlunni. Heart


Blóm og ævintýri.

Ég hef verið á fullu núna, er að fara í viku frí, til að slaka aðeins á.  Fer í sumarbústað í Flókalundi.  Þar koma svo litlu dúllurnar mínar til mín, og þar með er ég orðin þriggja barna móðir aftur hehehehe

IMG_0385

Amma er ég ekki alveg nógu fínn til að fara í matarboð til afa gamla, spurði stubburinn, en pabbi hans var að elda skötusel fyrir afa sinn, og bauð stubbnum líka.

IMG_0386

Kvöldið er fagurt sól er sest

IMG_0388

Og sefur fugl á grein, tröllinn vaka lika og ævintýrin kvikna í svona umhverfi.

IMG_0389

Og það er tími riddarana, og riddarasporanna. 

IMG_0390

Hver öðrum glæsilegri standa þeir allt af sér.

IMG_0391

Og þetta er tími nelikkunnar líka.

IMG_0392

Drottningin lætur sig heldur ekki vanta, drottning blómanna er rósin, alveg eins og ljónið er konungur dýranna. SKrýtið hvað við þurfum alltaf að setja einhverja titla á allt. Þó svo hvert og eitt stendi fyrir sínu án þessara titla.

IMG_0393

Þetta hlýtur þá að vera Mjallhvít ekki satt.

IMG_0394

Og hér leynist rauðhetta í skjóli Margrétu perlu.

IMG_0396

Litli stubburinn kom í dag með pabba sínum, þetta er kónguló í grænni líkkistu hehehehe

IMG_0397

Hér eru svo stríðsmenn vindanna, annar með Basúku, og hinn með Sniper... hvað sem það nú er, víst er það rosaleg byssa sem getur skotið mús upp á fjallstindi.  Hrollur Blush ég er alveg sammála þér amma, sagði stubburinn, ég er algjörlega á móti skotvopnum, ég myndi bara nota þær til tilrauna, með að skjóta blómum eða eitthvað slíkt. W00t

IMG_0399

But boy will be boys !!!

IMG_0401

Þannig er það bara.  Svo er það okkar að leiðbeina þeim, og fá þá til að vilja frekar skjóta blómum, en skotum. Heart Slíkt er uppeldisatriði fyrst og fremst.

En ég verð ekki mikið við næstu viku, ekki samt gleyma mér, og ég lofa að taka fullt af myndum í Flókalundi, og sýna ykkur þegar ég kem heim.   Knús á ykkur mín elskuleg. Heart


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Ágúst 2008
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband