31.8.2007 | 15:00
Í minningu Kristjáns Sverrissonar.
Í dag er til moldar borin Kristján Sverrisson. Kristjáni kynntist ég fyrir nokkrum árum, þegar hann fór að vinna hjá Ásel. Kristán reyndist hinn besti vinur og hann var alltaf fyrstur til að bjóða fram hjálp sína. Hann var kátur og skemmtilegur maður.
Ég man það svo vel, þegar hann tilkynnti okkur að hann væri með illkynja æxli í höfði. Í allri þeirri baráttu var hann bjartsýnn og vongóður. Það var hann sem alltaf var að hughreysta alla í kring um sig. Þegar hann var rétt að ná sér, sló honum niður aftur, en alltaf hélt hann ró sinni og gleði. Hann var hreint ótrúlegur þessi drengur. Maður lærir margt af því að fá að umgangast og kynnast fólki eins og honum.
En því miður sigraði meinið, og hann varð undan að láta. Þar féll góður drengur frá langt fyrir aldur fram.
Ég man þegar ég handleggsbrotnaði í fyrra, og hafði boðið fólki í mat. Hann sat hér og ég var að vandræðast hvað skyldi til bragðs að taka. Hvað ertu tala um, sagði Kristján strax, þú ert hér með mann sem kann að elda. Þetta verður ekkert mál. Ég sé um þetta allt alveg frá A til Ö.
Og það gerði hann svo sannarlega. Ég sem gat ekki gert neitt, þurfti bara að slaka á og meðan hann var að útbúa matinn, smitaði hann mig og allt í kring um sig af gleði og kátínu. Það var svo framreidd dýrindismáltíð fyrir gestina mína og okkur öll hin. Ég bara gleymi þessu aldrei. En svona var Kristján. Aldrei neitt vesen, bara að leysa hlutina.
Þessi mynd var tekin við það tækifæri, því miður er hann ekki á henni, því að öllum líkindum hefur hann tekið myndina fyrir mig.
Yndislegur maður hann Kristján, mig langaði bara að minnast hans með nokkrum orðum. Ég mun aldrei gleyma honum, og hjálpsemi hans við okkur hér.
Elsku Anna mín þetta hefur verið þér erfiður tími, þar sem litli drengurinn ykkar hefur haft nauman tíma til að kynnast föður sínum. Þú hefur staðið eins og hetja algjörlega við hlið hans. Aldrei æðru orð frá þér á neinn hátt.
Ég votta þér börnum ykkar og öllum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda. Minning um góðan dreng mun lifa lengi hér á þessu heimili. Stórt knús til þín og þinna.
Ó, Faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefur villst af leið.
Ó, Faðir, gjör mig blómstur blítt,
sem brosir öllum mót
og kvíðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
Ó, Faðir, gjör mig ljúflingslag,
sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag,
en svæfir storm og bál.
Ó, Faðir, gjör mig styrkan staf
að styðja hvern sem þarf,
unz allt það pund, er Guð mér gaf,
ég gef sem bróðurarf.
Ó, Faðir, gjör mig sigursálm,
eitt signað trúarlag, sem afli blæs í brotinn hálm
og breytir nótt í dag.
Guð veri með þér vinur minn allt til enda veraldar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
31.8.2007 | 12:04
Hvurju ertu nú búin að koma af stað Jenný !
Las það í Fréttablaðinu nú rétt í þessu. Ellý búin að læsa blogginu sínu. Það er ekki nokkur spurning sko, það er þér að kenna, það stendur nefnilega líka í blaðinu að þú hafir sett fram spurningu um hvort hún væri ekki komin heldur langt í lýsingunum, og urðu fjörugar umræður á blogginu hennar Jennýjar.
Jamm maður trúir nú öllu sem stendur í blöðunum, og aumingja Ellý varð svo sjokkeruð að hún sagði bara lok lok og lær og allt í stáli. Nú verða menn bara að bíta í það súra að fá lykil til að komast inn.
Ég segi nú ekki margt. Það er alls ekki víst að allir fái lykil í hendurnar hjá henni Ellý. Og þar með minnkar heimagangurinn hjá henni allverulega.
Þetta er nú bara sett inn sem grín.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
31.8.2007 | 11:22
Hið daglega líf á Ísafirði.
Síðasta stóra skemmtiferðaskipið lagðist að bryggju hér í gær, enginn smásmíði þar á ferð. Ótrúlegt að svona stór skip geti lagst að bryggju.
Þið sjáið að veðrið var muskulegt í gær, en það var samt hlýtt.
Enginn smásmíði.
Þessi ungu myndarlegu menn voru örugglega af skipinu, einhverskonar messaguttar sennilega.
Dularfullur Ísafjörður. Hann getur líka verið fallegur í þoku fjörðurinn minn.
Dularfullur garður líka
Oh boy, lítur skringilega út hehehehe...
Dóttir mín eldaði dýrindis kjúklingarétt í gær og bauð bróður sínum, barnsmóður og börnum. En her eru þau systkinin að föndra með börnunum.
Smakkaðist rosalega vel.
Börnin þurftu svo auðvitað sinn tíma í leik, eins og gengur.
Og út í garðskála barst leikurinn auðvitað. Stubburinn var samt í tölvunni eins og sjá má ef vel er að gáð.
Svo er voða notalegt að fá sér bað svona eftir á áður en farið er í rúmið.
En það er bjartara yfir núna. Og ég ætla mér að vera dugleg upp á lóð að sinna plöntunum mínum.
Eigiði góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.8.2007 | 00:32
Skemmtun af ýmsu tagi.
Það var lágskýjað í dag, en hlýtt og gott veður samt.
Talandi um kóngulær, þá var þessi elska að spóka sig i garðskálanum. Og maurinn sem ég hef sýnt ykkur áður var þar líka á gönguferð. Eða einhver annar, ætli þeir séu að koma sér upp aðstöðu hjá mér?
Hún Ásthildur Cesil jr. er afskaplega músikkölsk, og hér spilar hún á munnhörpu, slær taktinn með henni líka og syngur með.
Stelpurnar mínar leika sé með dótið sitt. Hún Matta tengdadóttir er að fara að læra hárgreiðslu, og vildi sýna dóttur minni og það var gaman hjá stelpunum að taka upp allt fína dótið sem hún var að fá.
Allskonar fínar græjur fyrir ungar konur. Pottþétt.
tími skemmtiferðaskipanna er heldur ekki liðinn ennþá, og í dag voru þau tvö hér við höfnina, og svo sést þarna líka Árni Friðriksson.
Líf og fjör á höfninni.
Litla Ásthildur Cesil var lasin í dag með hita, en gaf sér tíma til að bregða á leik með mömmu sinni, með Vínarhúfuna hennar ömmu.
Þessa hérna alltso hehehe
Svo kom hér maður í kvöld og bankaði uppá, spurði mig hvort ég kannaðist við þessi ber. Þau voru innan um annað lyng hér í nágrenninu. Ég átta mig ekki á hvaða ber þetta eru. Laufin eru ekki lík hrútaberjum, en mér datt þau samt helst í hug. Þekki einhver þessi ber endilega látið mig vita.
Annars býð ég ykkur góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Hvað ætli svona rannsókn hafi kostað. Og til hvers eiginlega var hún gerð ? það hafa enginn slys vitanlega eða allavega ekki opinberlega orðið af fylleríisflugi geimferja. Og að rannsaka þetta 20 ár aftur í tímann. Er það ekki borin von.
Þeir ættu ef til vill að rannsaka og afsanna þá kenningu sem kraumar í samfélaginu að ferðin til tunglsins hafi aldrei veri farin, heldur sviðsett í stúdíói kvikmyndaframleiðanda. Sagt er að eftir lát hans hafi fundist allskyns props sem sönnuðu að þetta var allt saman tekið upp í stútíói hans. Og rannsóknar blaðaljósmyndari fyrrverandi fullyrti við mig að þegar ljósmyndir eru skoðaða, þá passar engann veginn birtan í andlitum geimfaranna miðað við það ljósmagn sem átti að vera á tunglinu.
Svo ef til vill var sú geimferð aldrei farin, nema í bíó.
![]() |
NASA: Ekkert sem bendir til að geimfarar hafi farið drukknir út í geim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.8.2007 | 11:02
Hver er afstaða þín í þessu máli ?
Nýlega svifti ungur maður sig lífi á Litla Hrauni. Hann er ekki sá fyrsti, og verður heldur ekki sá síðasti, því miður. Þó hann hafi ekki verið í fíkniefnum, þá eru vandamálin þar svo sannarlega til staðar.
Ég hef fylgst með þessu tiltekna dæmi í ákveðinni nálægð. Og sjálf hef ég verið í nálægð við þessar aðstæður. Ég tel mig þess vegna getað skilið þær nokkuð vel.
Hver er afstaða þín ?Ef til vill finnst sumum líf þess fólks sem hefur orðið eiturlyfjum að bráð ekki skipta miklu máli. Maður hefur svo sem fundið fyrir þeim umræðum í samfélaginu. En almenn mannréttindi sem tryggð eru í stjórnarskránni eiga nú samt sem áður við um þau líka. Þau eru manneskjur eins og aðrir með sína drauma og óskir. Auk þess á hver og einn fjölskyldu sem elskar þau, föður, móður, bræður, systur, börn og maka, afa og ömmur. Það er stór hópur kring um hvern og einn. Hópur sem líður illa vegna ástandsins.
Þrýstihópur.
Það er alveg ljóst að þetta er ekki þrýstihópur. Fíklar kvarta ekki yfir illri meðferð, eða skilningsleysi samfélagsins, þeir hafa fengið skilaboð um að þau séu annars flokks og það þýði ekkert. Aðstandendur eru heldur ekki þrýstihópur, bara það að þurfa að takast á við ástand kring um fíkil dregur allt baráttuþrek úr fólki, svo að það hefur enga orku til að berjast við kerfið.
Hvað er til ráða ?En það þarf eitthvað að gera. Sjálfsvíg fíkla er mein alls samfélagsins. Við erum öll samábyrg fyrir því ástandi sem þvingar þá til að taka sitt eigið líf. Ég er viss um að þeir gera það til að rjúfa þann vítahring sem þeir eru í, þegar þeir finna enga aðra leið út.
Vítahringur.Hver er sá vítahringur ? Jú, það kostar óhemju fé að útvega sér eitur. Til að fjármagna neyslu neyðast þau út í innbrot og þjófnaði. Þá er stutt í handtöku, dóm, síðan tekur við bið eftir fangelsisvist, sem getur orðið nokkuð löng, og er hræðilega sálarslítandi, loks innilokun, oft útskúfun. Þegar komið er út aftur tekur ekkert við annað en gatan, oft hafa þeir komist í sambönd inni, sem gerir þeim kleyft að lifa fyrra lífi áfram. Í sumum tilfellum bíður þeirra einhver sem er tilbúin að útvega þeim efni ef þeir sinna ákveðnum málum, svo sem eins og innbrotum, vændi eða jafnvel innflutningi á efnum.
Það er auðvitað hægt að fara í meðferð, og í byrjun er örugglega hægt að forða sumum frá því að fara lengra. En eftir því sem vítahringurinn stækkar, því minni líkur eru á að hægt sé að rjúfa hann. Í sumum tilfellum er alltaf í gangi bið eftir fangelsisvist, og því erfitt að fara í meðferð, meðan slíkt ferli er í gangi. Og ég veit að menn hafa verið teknir úr meðferð til að vista í fangelsi.
Málið snýst um að rjúfa vítahringinn. Og það gerir fíkillinn ekki sjálfur af eigin rammleik, þegar hann er orðin forfallinn. Það gera heldur ekki aðstandendur, því þeir hafa enginn úrræði. Meðferðarstofnanir taka ekki inn fólk sem er í neyslu, og alls ekki ef fíkillinn neitar eða gefst upp. Geðdeild Landspítala tekur ekki inn fólk, nema með ráðleggingum læknis, og ekki ef fíkillinn vill ekki eða gefst upp. Í öllum tilfellum geta menn labbað sig út úr meðferð.
Fíkill í neyslu hefur enga stjórn á lífi sínu, en þar sem ég þekki til, þá er viljinn til að hætta, en getan enginn.
Lokaðar meðferðarstofnanir. Svo hvað er til ráða ?Á hinum norðurlöndunum eru til lokaðar meðferðarstofnanir, þar sem fíklar eru dæmdir í meðferð. Í Danmörku veit ég að er/eða var starfandi á vegum fangelsismálastofnunarinnar afbrotafræðingur/ félagsfræðingur, sem hefur það verk með höndum að yfirheyra viðkomandi og skoða hvort líkur séu á að hægt sé að laga ástandið. Þá er hann dæmdur í lokaða meðferðarstofnun. Á þessar stofnanir er líka hægt að koma fólki, sem ekki á yfir höfði sér fangelsi. En það er dýrt fyrir einstakling. Ég skoðaði það dæmi fyrir nokkrum árum og það voru nokkrar milljónir sem það kostaði. Á þessum stofnunum er unnið eftir 12 sporakerfinu. En menn þurfa ekki að vera motiveraðir eins og það er kallað. Og ef þeir strjúka eru þeir leitaðir uppi og verða að byrja upp á nýtt.
Hvað um Krýsuvík ?Ég tel að hér á landi sé orðin nauðsyn á því að koma á legg svona stofnun. Það væri til dæmis hægt að auka starfsemi Krýsuvíkursamtakanna, auka þar við starfsfólk og jafnvel byggja nýtt húsnæði, sem hentaði. Krýsuvík er góður staður, fallegur rólegur og hefur allt það góða að bjóða upp á sem hægt er að hugsa sér.
Þarna þyrfti að vera öll aðstaða til að takast á við fíknina, fagfólk og eftirlit.
Við getum ekki lengur beðið eftir því að eitthvað gerist. Hér verður að grípa inn í og fara að vinna að málunum. Hvert og eitt líf er ómetanlegt, og það er hægt að hjálpa flestum upp úr þessu víti.
Ráðstefna um málefni fíkla og aðstandenda þeirra.Svo vil ég koma á framfæri þeirri ósk minni, sem ég hef talað um lengi, að koma á ráðstefnu um málefni fíkla. Ráðstefnu þar sem allir hlutaðeigandi tækju þátt.
Þeir sem þurfa að koma að slíkri ráðstefnu eru; Dóms- og kirkju málaráðuneytið, og aðilar tilheyrandi þeim, lögreglan, fangelsisyfirvöld, dómarar. Landlæknisembættið, og þar undir læknar og hjúkrunarfólk. Meðferðarstofnanir. Afbrotafræðingar, sálfræðingar og geðlæknar. Lögmannafélagið. Félgasmálaráðuneytið, þar undir félagsmálayfirvöld og barnaverndarsamtök. Tryggingafélög. Aðstandendur fíkla og fíklar.
Menn sjá á þessari upptalningu að vandamálið teygir sig mjög víða í samfélaginu. En allir þessir aðilar hafa að einhverju leyti með vandamálið að gera. Hver og einn í þessum upptöldum aðilum kemur að málinu á einhvern hátt. Saman geta þeir gert stórátak í því að skilgreina vandann, og athuga hvort ekki er hægt að vinna betur að þessum málefnum. Hver í sínu horni með sína vitneskju er ekki nógu gott, því það vantar sjónarhorn hinna. Það má gjarnan bæta sjoppu- og verslunareigendum og almenningi þarna inn, því ferill fíkla snertir alla mannlega þætti samfélagsins.
Það eru flestir sammála um að ástandið í okkar litla samfélagi sé orðið óþolandi. Sífellt fleiri ánetjast, og alltaf yngist hópurinn. Hvernig þetta má vera í ekki stærra samfélagi en hjá okkur er mér óskiljanlegt. En við þessu þarf að bregðast. Auðvitað er forvörnin nauðsynlegust af öllu. En hún ein og sér er bara ekki nóg. Það vantar svo mikið á að hitt sé í lagi. Ég er foreldri sem hef kallað út í tómið. Ég hef upplifað það varnarleysi sem maður fyllist, þegar allstaðar eru luktar dyr, og ekkert til ráða. Það vantar eitthvað svo mikið upp á að við foreldrar getum einhversstaðar fengið aðstoð, þegar allt er gengið svo langt að vonin er varla til ennþá. Verst er þó skeytingarleysið og undirtónninn sem gefinn er að fíklar bara megi eta það sem úti frýs, þau séu til óþurftar. Einhvern tíma voru þetta börn með drauma um góða framtíð. Einhversstaðar á þeirri leið gerðist eitthvað í þeirra lífi sem svipti þá þeim draumi. Þau villtust af leið. En þau eru fólk eins og við, og þau eiga sín réttindi eins og aðrir. Þau eiga rétt á því að við setjumst niður og reynum að leysa úr þeirri flækju sem nú er. Það verður ekki gert, nema vilji sé til þess, og að við áttum okkur á því að þau koma okkur öllum við.
Meðan þau eru á götunni, eru þau gangandi hætta fyrir alla, og sjálfum sér verst. En við sem samfélag eigum og verðum að fara að hugsa okkar gang. Hvort við viljum óbreytt ástand, eða hvort við viljum gera eitthvað róttækt til að breyta ástandinu.
Mig langar til að biðja þá sem þetta lesa, og eiga í svipuðum sporum, eða þekkja vel til að leggja inn sitt álit á málinu. Hér verða allir að leggjast á eitt að koma þessu ástandi á betri veg. Hér má enginn skorast undan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
28.8.2007 | 13:29
Enn er dálítil von.
![]() |
Leitað á ný á Svínafellsjökli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.8.2007 | 10:07
Lystisnekkja, umsókn um ríkisborgararétt og gott veður.
Já hér var í gær alveg meiriháttar flott lystisnekkja, amerískur auðjöfur á ferð þar.
Snekkjan er þriggja hæða með 12 manna áhöfn. Hún heitir Turmoil, eftir sögu um danska skistjórann Henrik Kurt Carlsen sem varð heimsfrægur þegar hann hélt til í sökkvandi skipi sínu í þretttán daga i janúar 1952. Það sökk síðan sextíu kílómetra fyrir utan hafnarmynnið í Cornwall á Bretlandi, eftir því sem kemur fram í BB. Auðkýfingurinn varð svo heillaður af sögunni að hann hefur nefnt fjögur skip sem hann hefur átt öll Turmoil.
Algjört beauti ekki satt ?
Þið sjáið líka að gerfigrasvöllurinn er mikið notaður.
Flott skip. Vonandi hefur fólkið átt góðan tíma á Ísafirði.
Hér er svo kúlan mín hún er orðin ansi innilukt í gróðri.
Þessi var tekin núna rétt áðan, það fara að koma haustlitir bráðum.
En í gærkveldi kom El Salvadorska fjölskyldan mín hingað, og við hjálpuðumst að, að fylla út umsögn um íslenskan ríkisborgararétt. Það verður sannarlega frábært fyrir okkar þjóð að eignast svona yndislegar og duglegar manneskjur í okkar raðir.
Ég mun segja frá því ferli hér eftir því sem það vindur upp á sig.
'I skírnarveislunni í sumar.
Pabbi hefur tekið þau inn í fjölskylduna líka.
En svo er að vona það besta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.8.2007 | 08:25
Daglegt líf og afmæli Orkubús.
Gærdagurinn var bjartur, hlýr og fagur.
Fjölskyldan spókaði sig í góða veðrinu. Við áttum saman góða stund í gær, grilluðum saman.
Afi gantaðist svolítið með börnin, þetta eru hjólbörubörnin.
Hún Ásthildur er alveg að ná þessu. Það er ekki langt í að hún komist úr sporunum.
Úbbs þar fór það. Plómur geta verið dálítið subbulegar, en rosalega góðar.
Og þetta er stubbaknús.
En Orkubú Vestfjarða varð 30 ára í gær, að vísu höfum við misst eignarhald á fyrirtækinu til ríkisins, en þetta er gott og framsækið fyrirtæki sem á framtíðina fyrir sér, og fólk hér er bjartsýnt á hag þess eftir ágæta ræðu Iðnaðarráðherra í gær, þegar hann opnaði formlega Tunguárvirkjun, virkjun sem verið er að taka í notkun frá vatni sem kemur út göngunum.
Hér er kappinn að heilsa manni og öðrum. Lúðrasveit tólistaskólans lék við það tækifæri, ektamakinn er í þeirri hljómsveit.
Þetta er snyrtilegt hús og allur frágangur kring um virkjunina Orkubúinu til sóma.
Þarna var múgur og margmenni, hér talar orkubússtjórinn Kristján Haraldsson, sem stýrt hefur fyrirtækinu af miklum myndarskap um ára bil.
Hér má svo sjá Össur flytja sínu ræðu. Honum mæltist vel, að mati vestfirðinga. Ég notaði tækifærið og ræddi lítillega við hann um málefni Alejöndru litlu og fjölskyldu. Og ég er viss um að Össur mun taka á þeim málum af myndarskap.
Hver sem á mig trúir hehehehe..........................................
En í dag skín sólin eins og flesta aðra daga í sumar. Maður finnur samt haustið sem nálgast. Við eigum samt örugglega eftir góðan september. Mánuðurinn minn er oft bjartur og hlýr. Þá ætla ég að nota tækifærið og ganga frá plöntum eftir sumarið, bjarga þeim og undirbúa undir veturinn. Það geri ég alltaf í þeim mánuði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
26.8.2007 | 11:53
Frá móður til móður.

Sonur minn
Þú flýtur sofandi að feigðarósi
og vilt ekki vakna.
Ég stend álengdar, en næ ekki til þín.
Þó elska ég þig svo mikið.
Ég kalla til þín með hjartanu - en þú heyrir ekki.
Ég kalla til þín með skynseminni - en þú skilur ekki.
Ég kalla til þín með örvæntingu - en þú aðeins flýtur framhjá.
Hvað á ég að gera.
Ég get ekki varið þig fyrir áföllunum,
ekki hlíft þér við miskunnarleysi mannanna.
Þú ert fastur í víti - þar sem ég næ ekki til þín.
En ég elska þig.
Kannski nær ástúðin að bræða burt kalið í hjartanu þínu,
Svo Ísdrottningin vonda haldi þér ekki að eilífu.
Mamma.
Guð hefur tekið drenginn þinn og geymir hann þar sem ekkert illt getur hent hann framar. Hann er öruggur fyrir öllu því vonda, hann er frjáls.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar