13.8.2008 | 00:26
Nokkrar góðviðrismyndir frá Ísafirði og góða nótt.
Þessi færsla er bara til að sýna ykkur að góða veðrið er hér ennþá. Ég er að fara að halla mér, var að horfa á inspecktor Frost. Og er alveg tilbúin til að kúra hjá mínum elskulega, sem ekki gat haldið út þáttin til enda.
Himnagalleríið opið.
Það er samt einhver tignarleg ró yfir fjöllunum, og samspili skýja og sjávar.
Sólin er farin að stytta göngu sína, svona undir haustið. En haustið er líka minn tími.
Ég er að vona að þetta sé dalalæða frekar en mengun frá Funa.
Og börnin koma í heimsókn. Ólöf Dagmar var í berjamó, og er öll blá í framan, þau hlæja berjablá.
Svo langar mig til að segja, vegna fréttanna í kvöld um fölsun kínverja í beinu útsendingunni af setningunni. Að ég sá hana, reyndar í endursýningu, og ég verð að segja að ég fylltist sorg. Það sem ég sá var yfirdrifinn sýndarmennska, blóð sviti og tár, jafnvel dauði, hvað munar um einn þarna í mergðinni. Þetta var svo sem nógu flott og fínt. En einhvernveginn steindautt, þá á ég við gleðina og frumkraftinn, sem er nauðsynlegur til að heilla áhorfendurna. Jafnvel smámistök. Hlaupinn í allskonar hringi og form, minntu mig mest á maura. Þegar svo ofan á þetta bætist að þeir fölsuðu hluta af sýningunni, þá var mér nóg boðið. Kínverjar, og eflaust fleiri þjóðir, hafa ekki hugmynd um hvað frumkraftur þýðir. Þetta spontant sem getur farið á þennan eða hinn veginn. Nei ef eitthvað klikkar, þá er þeim hent út. Þetta er svona svipað og fegurðarsamkeppni, þar sem allt er lagt upp úr útlitinu og svokallaðri "fegurð", sem er í rauninni ekki hægt að skilgreina. Það er ekki hægt að dæma í fegurð, því hin raunverulega fegurð kemur innan frá. Það er heldur ekki hægt að höndla frumkraftinn, því hann kemur líka innan frá, og er ekki hægt að ná fram með kúgun, þjálfun eða neinu öðru. Hann bara ER, og ef hann fær ekki að brjótast fram af sjálfsdaðum, verður allt svona fínpússað ef til vill óaðfinnanlegt og fullkomið. En er það virkilega það sem maðurinn vill ? Ekki ég allavega. Ég vil sjá að fólk sé mannlegt, að það hafi sínar takmarkanir, tilfinningar, og ófullkomleika. Aðeins þannig get ég látið mér þykja vænt um einhvern. Af því að þá finn ég að þetta er raunveruleg manneskja eins og ég.
En annars góða nótt sofið rótt, og knús á ykkur öll inn í þessa yndislegu nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
10.8.2008 | 20:52
Lubbinn 2008 á Alviðru. Aldeilis frábær skemmtun.
Jæja þá er það Lubbinn 2008. Þetta verður dálítið maraþonmyndasýning, því ég einfaldlega get ekki gert upp á milli mynda, og mér fannst svo gaman og mikil stemning að það hálfa væri nóg.
Við lögðum af stað í glampandi sólskini og blíðu. Þegar við vorum að leggja af stað kom þýsk fjölskylda, og eins og svo margir aðrir stoppuðu þau og héldu að þetta væri blómabúð. Eruð þið að loka ? spurði maðurinn, þegar hann sá að við gerðum okkur líkleg til a leggja af stað. Þetta er heimili okkar, sagði ég. Og þá kemur þessi venjulegi undrunarsvipur, Ó ég hélt að þetta væri blómabúð. Mikið er þetta flott, og svo framvegis. Þetta var yndælis fólk og gaman að hitta þau. En svona er lífið.
Það er um klukkustundarakstur til Alviðru héðan. Og þegar við komum voru nokkrir þá þegar komnir og gerðu sér notalega stund í sólinni og blíðunni.
Matthildur fór svo og sýndi okkur húsnæðið. Sem reyndar er alveg frábært, og mikið og flott safn allskonar hluta, það er svo gaman að koma hér og skoða. Enginn verður svikinn af því.
Sjáið til dæmis þessa nýstárlegu ljósakrónu ?
Barinn náttúrulega á sínum stað. Til að forðast misskilning, þá var ekkert selt á þessum bar. Enda hér um að ræða tómar flöskur.
Sumt var náttúrulega dálítið ógnvænlegt á að líta. Þessi gæti verið beint úr Hringadróttinssögu.
Og Gunna genginn út, að vísu er karlinn mesti eintrjáningur Takið efir skiltinu Hætta sprengingar.
Já þarna var margt skemmtilegt að skoða. Gamli presturinn okkar hann séra Sigurður, líkti einmitt gamla og nýja testamentinu við gamla kola eldavél, og svo ....
Nýmóðins rafmagnseldavél.
Hannibal Lector ?? Nei Elías minn, með eitthvert áhald, sem talið er að sé gamalt kúfiskveiðitæki.
Já þetta er svona til heiðurs Gay Pride. Gunna búin að dekka Barbiebleikt borð.
Hér eru svo Matta Gummi og fjölskyldan hans að snæða.
Elli og Gummi, takið eftir bleika glasinu sem Gummi heldur á, þetta og á myndinni fyrir ofan er líka til heiðurs Hinsegin daga.
Grillað í góða veðrinu.
Hér er börnunum ekki gleymt. Þau fá sína skemmtun.
Mér fannst þetta mjög tilkomumikið, takið eftir rauðvinsglasinu mínu, til samanburðar
Hér grilluðu svo gestirnir. Hér voru um 160 manns, svo þetta var enginn smáveisla.
Gróðurinn auðvitað upp á sitt besta, reyndar er búið að vera dálítið þurrt í sumar
Hér er hún Matthildur með Írskt kaffi. það er svo merkilegt við hana Matthildi, að hún hefur lag á að gera allt í kring um sig svo afslappað. Hvort heldur sem það er stórveisla og keppni í Óbeislaðri fegurð, eða 160 manna grillveisla á sínu æskuheimili. Þá er hún bara ljúf og afslöppuð, og öllum líður vel í kring um hana. Þetta er eiginleiki sem ekki er öllum gefið.
en bóndinn á næsta bæ var bara að heyja í rólegheitum, og ætlaði örugglega að koma í kaffi á eftir, ef til vill Írskt kaffi
Já stemningin var frábær, rólegheit og gleði í yndislegu veðri.
tvær flottar.
Og gleðin var ríkjandi. Bara allt svo skemmtilegt og gaman.
Hér voru líka allra þjóða manneskjur. Hér voru veraldarvinir, sem voru að vinna á Þingeyri, og líka alþjóðlegir nemendur sem voru að læra íslensku á Núpi. Og svo eru heimamenn hér allstaðar að líka, meðal annars frá Perú og Kúpu. Svo þetta var alþjóðleg veisla.
Og sumir eins og bara beint úr tískunni frá París.
Sú dökkhærða hefur Veraldarvinina á sinni könnu, ljóskan er hún Helga frá Þýskalandi, sem vinnur hér við Grunnskólan og er að gera frábæra hluti með óstýriláta nemandur. Ég þekki það alveg frá mér. Hún er alveg frábær.
Og Gummi með gítariinn það var mikið sungið.
Hér er faðir að leggja syni sínum lífsreglurnar. Ég stóðst ekki mátið, því umhverfið er gjörsamlega dásamlegt. Sjáið hvað sonurinn hlustar vel eftir því sem pabbi segir ?
Hér sitja menn til borðs.
Gummi og Gló magnaða eiga hér heiminn sýnist mér.
Amma áttu ekki einhverjar litsterkar kúlur, sem hægt er að skreyta með? spurði Birta Möttudóttir, jú amma átti jú jólakúlurnar
Gvendur á Eyrinni kominn upp á svið með hljómsveitina.
Þessi fallega stúlka er frá Perú.
en gestirnir komu víða að, eins og ég gat um áðan.
Möttu fannst svo þurfa aðeins að lífga upp á selskapinn
hún sagði líka að hún hefði verið alveg viss um að í salnum var ákveðin manneskja sem myndi taka slaginn með henni Alltaf til í smáfíflagang.
Það sem ég vissi ekki, var að einhver hafði tekið það upp hjá sér að taka myndir af þessum skemmtilega leik Hrútasýningunni okkar.
ég held bara svei mér þá að hinir erlendu gestir hafi verið ánægðir með íslenska bjórinn.
en gamli eintrjáningurinn stóð vaktina fyrir utan, hálf leiður samt að fá ekki að taka þátt í gleðinni fyrir innan.
Þar var nefnilega heilmikið fjör. Gummi og hljómsveitinn sem samanstóð af nokkrum einstaklingum, sem komu og fóru var rosalega góð og setti fútt í hlutina.
Og stelpurnar tóku lagið. Þær voru flottar, hér er Gló hin magnaða að taka lagið.
Það var dansað fram eftir nóttu.
Allir í svaka stuði.
Svo þurfti að ganga frá í morgun. Og allir voru boðnir í kaffi heim að Alviðru, þar sem frú Jóna bauð gestum af sinni alkunnu gestrisni.
Við hjónin ákváðum að halda áfram og fara allaleið á Ingjaldsand. Flottur staður, og ótrúlegt að þarna skuli bara búa einn ábúandi, ung kona. Því það virtist fullt af lífi þarna.
en hrikaleg fegurð Vestfiskra fjalla er ótrúleg. Krafturinn sem maður finnur fyrir svo nálægur og sterkur að maður fyllist orku.
Hér erum við svo að verða komin heim. Elli að lesa um Gísla Súrsson, með Þingeyri í bakgrunni og Vestfirsku Alpana. Hrikaleg fegurð.
Og víkingarnir horfa hvössum augum í átt til Þingeyrar, þar sem þeir eiga sinn tilverustað.
Ég er rosalega ánægð með þessa ferð, og það var svo gaman. Elsku Matta mín og fjölskylda, mikið innilega takk fyrir mig. Það er ógleymanlegt að fá tækifæri til að skoða það sem þarna er upp á að bjóða. Og ég ráðlegg fólki að láta þetta ekki framhjá sér fara, ef það á leið um. Það er margt að skoða og gleðjast yfir.
Hjartansþökk fyrir mig.
Svona smá í lokin. Í tilefni af hinsegin dögum.
Ég vil auðvitað óska hommum og lesbíum til hamingju með þessa hinsegin daga. Ég las í Fréttablaðinu ágætis grein í dag, eftir Þórunni El´lisabetu Bogadóttur, þar sem hún segir svo;
Þessi ganga er tilefni fyrir okkur öll til þess að fagna mannréttingum. Til þess að gleðjast yfir því hversu langt við Íslendingar höfum náð í þessum málum og til þess að rifja upp hvað við eigum eftir. Til að heiðra þá sem ruddu brautina fyrir þá sem á eftir komu. (tilvitnun lokið)
En ég er hugsandi yfir þessum orðum. Og ég spyr. Hvar er viðtalið við manninn sem opnaði þessa umræðu upp á gátt ? hvar eru lögin hans í spiluninni í útvarpinu yfir þessa helgi. Hvar er umfjöllunin um það sem hann gerði, m.a. að stofna samtökin 78. Eða var það ekki Hörður Torfason sem opnaði sig fyrstur manna, og varð að flýja land, vegna ofsókna í kjölfarið. Þeir sem á eftir honum komu, hafa örugglega átt erfitt. En það sem hann gerði, var stórkostlegt. Og ég segi bara, ef þið virkilega viljið heiðra þá sem ruddu brautina. Þá ekki gleyma þeim sem fyrstur stóð upp og opinberaði kynhneygð sína. Hann á allan heiður skilið, ekkert síður en þeir sem á eftir honum komu. Þið eigið held ég töluvert mikið honum að þakka.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
9.8.2008 | 11:55
Hið daglega veður og ýmislegt smálegt annað.
Jæja þá er það Lubbinn. Það lítur vel út með veður. Bjart yfir.
Himnagalleríið opið.
Vonandi fáum við samt rigningu eftir helgina, það er allt að skrælna.
Stubburinn að gera sig kláran í útileguna. Hann fékk að fara með systur minni til Aðalvíkur.
Hér er svo falleg rós handa ykkur. Þessi heitir Harrison Yellow, og er mjög falleg í sumar, eins og flestar rósir eru reyndar.
Hér er svo ein mynd enn frá Siglufirði.
Sjáiðið drifhvíta þvottinn bak við hana. þetta er örugglega allt þvegið í höndum.
Hér er ég og bróðir minn inn í Djúpi. fyrir svona cirka 60 árum hehehehe..
Og her er ég. Veit ekki hvaða kona þetta er, en hún gæti verið frá Laugalandi eða Skjaldfönn.
Og Nonni bróðir minn. Við kindakofann hans Haraldar Stígssonar.
En nú þarf ég að drífa mig og gera eitthvað af viti áður en ég fer í helgarferð til hennar Matthildar vinkonu minnar. eigið yndislega helgi elskurnar mínar. Og ég segi bara Góða helgi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.8.2008 | 20:24
Hið daglega veður og gróska.
Það er bara endalaust sól og sumar hér á Ísafirði þessa dagana.
Það var að vísu svolítið skýjað í morgun.
en létti þegar á daginn leið.
Himnagalleríið auðvitað opið.
Og núna bara heiður og tær himininn. er ekki lífið dásamlegt.?
Ömmustubbur kíkti við með pabba sínum í gær.
Ársvöxtur í grenitrjánum mínum er rosalega mikill eins og sjá má.
Hvítþinurinn minn þakinn könglum.
Eins og sjá má.
Og Matta Helgadóttir hringdi í dag og bauð mér á Lubbann, sem er hátíð á Alviðru hennar æskustöðum. Ég er rosalega ánægð með það, svo við hjónin förum þangað á morgun og munum örugglega eiga góðar stundir með því góða fólki á helginni. Og auðvitað verður myndavélin með.
Knús á ykkur inn í kvöldið elskurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
7.8.2008 | 23:33
Myndir frá Síldarvertíð á Siglufirði, kannast einhver við fólkið ?
Ég komst yfir gamalt myndaalbúm frá ömmu minni. Ég ætla að skanna inn myndirnar og setja þær svo hér inn. Hér koma svo fyrstu myndirnar úr þeirri seríu. Þessar myndir eru frá Siglufirði, síldarævintýrið, amma mín fór alltaf á vertíð á Sigló, þegar ég var barn að aldri, og nú kemur í ljós að til eru myndir frá þessum tíma. En hér koma myndirnar. Ég vil biðja þá sem þekkja fólkið um að hafa samband, annað hvort að svara hér, eða inn á gestabókina.
Föngulegar konur, amma mín er þarna sú þriðja frá vinstri.
Mér finnst eins og þessi kona til vinstri á myndinni geti verið kona sem kölluð var hér Jóka stóra. Veit ekki hvað hún hét. En vænt þætti mér um að fá nöfnin á þessum konum.
Hér er líka fólk sem gaman væri ef einhver þekkti.
Og hér.
ég á eftir að setja inn fleiri. En ef þið þekkið einhverja af þessu unga fólki, þá endilega sendið mér eitthvað um það.
Síldarævintýrin a Sigló.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
6.8.2008 | 21:41
Bara hitt og þetta í máli og myndum.
Ég hef verið rosalega upptekin undanfarna daga. Bæði af afmæli pabba, og svo fjölskyldunni almennt og bara að vera til, sem einstaklingur i samfélagi manna. Það tekur allt sinn tíma. En það gleðilega er, að hingað hafa komið manneskjur í heimsókn, bloggvinir og málverjavinir, sem ég þekki sem netvini, en hef fengið að kynnast þeim í raunheimum. Og ég get svo svarið það, að hversu yndislegt þetta fólk er á netinu, þá er það ennþá flottara í raunveruleikanum. Þess vegna var svo gaman að fá að hitta það og kynnast.
en fyrst aðeins að fjölskyldunni minni, hér er Bára mín og Hanna Sólin á góðri stund.
Knúsírófur.
Hér er svo Kay, hann er rosalega góður við stelpurnar, og passar þær fyrir Báru.
Litla skottið mitt. Þær verða báða hjá mér í vetur. Það var mitt boð til móður þeirra, mín lausn á að aðstoða hana við lærdómin. Ég elska þessar litlu stelpur, og ég elska barnið mitt hana Báru. Og þess vegna vil ég gera það sem hægt er til að hjálpa henni gegnum námið. Það er bara þannig.
Afi og Hanna Sólin, þau eru að fara aftur heim á Hellu.
Knúsa stóra bróður, eins og hún kallar Úlfinn.
Alltaf er nú erfiðast að segja bless. Þannig er það nú. Í hvert sinn sem þú kveður deyr eitthvað.
Hér er eitt dæmi um eitthvað svoleiðis. Þetta er betrekk frá minni barnæsku. Systir mín keypti hús föður míns, á efri hæðinni var æskuheimili mitt, en ég bjó hjá ömmu og afa. Það er búið að taka alla íbúð æsku minnar í burtu, alla veggi og allt, nema skápinn sem var í svefnherberginu sem við sváfum í öll þrjú. Einhverra hluta vegna, stendur skápurinn ennþá þar, og betrekkið eins og ég man frá því að ég man eftir mér. Í þessum skáp voru allskyns spennandi hlutir, sem mér þótti gaman að skoða. Þegar ég var lítill var hann risastór. Núna með alla innveggi horfna, þá er hann svo pínulítill. En betrekkið er þarna ennþá.
ein gleðin enn, elskulega Huld mín frá Akureyri kom við hjá mér, og við áttum yndislega stund saman. Þau eru flott hjónin, og hundarnir fengu aðeins að fá sér sprett. Ég hefði viljað hafa þau hér yfir nóttina, en þau voru búin að ákveða að fara út í Bolungarvík. Og Huld er algjörlega frábær, meira að segja ennþá frábærari en ég hafði gert mér í hugarlund, og var þó stórt áætlað. Takk Huld mín.
Önnur yndisleg kona kom í heimsókn til mín Anna Svartfugl. Við áttum gott spjall saman, og hún er alveg frábær.
Hún sagði líka svo margt sem skiptir máli. Meðal annars spurði hún mig; hvað er fjölmenning?
Mér var svarafátt. Mitt í allri umræðu um útlendinga, og fólk sem kemur hingað til að setjast að. Hún sagði, ég er íslendingur og er stolt af því, en ég ef af serbneskum ættum og íslenskum. Sonur minn er líka íslendingur, en hann er með tyrkneskt blóð í æðum líka Hollenskt, serbneskt og íslenskt. Hún segir það er ekkert til sem heitir fjölmenning. Heldur er það þannig, að það fólk sem hingað kemur til að setjast hér að, og kemur með sína siði og venjur, eru íslendingar, þar með eru þessir siðir og venjur íslenskir. Þannig breytist umhverfið. Þannig þurfum við að taka afstöðu til þeirra sem hingað koma. Þeir eru íslenskir, og þeirra siðir og venjur verða þar með íslensk. Okkar hefðir verða umfangsmeiri. Við verðum að taka við fólkinu af hjartans einlægni, og taka þeim eins og þeir eru. Það fólk sem hingað kemur þarf auðvitað að vilja aðlaga sig að íslensku þjóðfélagi, en á sama tíma, þurfum við að viðurkenna að þeirra arfleifð verður ósjálfrátt íslensk. Þegar fólk tala um fjölmenningarsamfélag, segir Anna, þá eru menn að skipta fólki upp í mismunandi þjóðfélög. Þeir sem hinga vilja koma og setjast að, eru einfaldlega íslendingar, og þeirra menning þar með íslensk. Mér finnst Anna hafa mikið til síns máls.
Þeir féllu saman eins og flís við rass þessir tveir, Úlfur og Tómas.
Knúsírófurna hennar ömmu, Júlíana Lind og Óðinn Freyr sváfu hjá ömmu í nótt.
Og reyndar Alejandra ömmustelpa líka.
Þau voru öll á leið í heita pottinn.
Það var gaman hjá þeim.
Himnagalleríið er reyndar opið oftast hér í góða veðrinu, sem ekki má tala um á Ísafirði.
Og ég komst að því í morgun þegar ég loksins fór í að höggva eina risahvönnina, að hún er ekki bara skaðræði við mannfólkið, heldur eru þessir svörtu blettir dauðar flugur sem hún hefur tælt til sín og drepið. Það var fjöldinn allur af geitungum og slíkum flugum dauð föst í ógnvaldinum.
Systir mín sem býr í Danmörku sagði mér líka að Bjarnarklóin væri þvílíkur skaðvaldur í Danmörku að það væri markvisst verið að útrýma henni þar. Og það væri hreinlega bannað að hafa hana á opinberum stöðum. Fólk væri hvatt til að útrýma henni í görðum sínum. Og sveitarfélög færu til fólks og útrýmdu henni, þar sem hún væri. Því hún væri algjör skaðvaldur þar sem hún væri. Þetta er líka að gerast hér, því miður. ALgjör risaeðla... eða þannig.
ég bauð systursonum mínum í mat í kvöld, og við áttum yndislega stund saman. Elli bauð þeim síðan með sér á Kajak. Pollurinn er sléttur og veðrið er yndislegt. Og ég hef þar með tíma til að spjalla við ykkur elsku bloggvinir mínir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
4.8.2008 | 21:03
Mýrarbolti, golfmót, Queen Elisabet og gott veður á Ísafirði.
Ég verð enn og aftur að þakka ykkur fyrir hlý orð í mín garð og föður míns. Ég lofaði að setja inn mynd af orðunni.
á henni er mynd af erni, og aftan á stendur, Arnarorðan 4. ágúst 2008.
Þetta er sko alvöru.
Litlu skotturnar mínar fóru heim í gærkvöldi, en þær voru mikið að athafna sig, allan tímann. Ég mun hitta þær aftur 16. ágúst, þegar við förum öll saman í sumarbústað, fjölskyldan.
Hér er afi á kajak, þeim gula, og Kaj sá í rauða, hann er frá Austurríki, og kom með Báru minni til landsins, og hefur verið duglegur við að hjálpa henni með börnin.
Þjóðverjarnir vinir okkar eru komnir til landsins, og við fengum okkur morgunverð saman í gær.
Vatnaliljurnar mínar í skemmtilegu sólarljósi.
Svo er það Mýrarboltinn. Það var hvergi minnst á það í neinum fréttum, að þessi árlegi boltaslagur fór fram hér.
http://www.bb.is/?PageID=26&NewsID=119177
En þetta er gífurlega skemmtileg keppni, og eins og segir fjölmörg lið sem keppa.
Það þarf mikinn undirbúning til að gera keppnisvellina hæfa í drulluna.
Margir eru ansi skrautlegir. Ég veit að einn keppandinn var í danska landsliðinu fyrir nokkrum árum. og annar hermaður úr danska hernum, svo keppendur komu víða að.
Já það voru margir ansi drullugir upp fyrir haus. En veðrið var gott eins og allir sjá.
Hér er í gangi úrslitaleikur karlaliða, og allt lagt í slaginn. En það var gífurleg stemning og baráttan hörð.
Þetta hlýtur að taka vel á.
Hér er hitt markið. Spennan í hámarki.
Og fagnaðarlætinn mikil, þegar gerð voru mörk.
Já hér blífur drullann, drulludómarar og drulluleikmenn
Svo þarf að skola af sér í lækjarsprænum,
Nú eða bara í ánni.
Já ég hef grun um að keppendur hafi verið víða að.
Þarna var líka kominn saman múgur og marmenni, og stemningin eins og best verður á kosið. Gleðin mikil, og allir í góðu skapi. Enda sólskin og gott veður.
Sumarbústaðaeigendur eru örugglega flestir í sínum húsum í skóginum, grilla og hafa það gott, kvöldið áður var mesta skemmtunin hjá þeim, eða skógarbrennan, þar sem þeir koma saman við brennu og skemmta sér við leik og söng.
Það var líka golfmót í gangi, Birgir Jónsson kokkur, átti sextugsafmæli, og bauð til þriggja daga golfveislu, þar sem allir voru velkomnir. Enda var fjölmennt á golfvellinum.
Já það þarf að hreinsa af sér ýmislegt í svona leik hehehehe...
Og sumir ekki háir í loftinu, þessir eru spilamenn framtíðarinnar.
Gleðin hefur örugglega sumstaðar farið úr skorðum. En það var ekkert vesen samt eða leiðindi.
Og svo þarf að labba heim. Mikið held ég samt að sumir hafi verið glaðir að komast heim til sín í bað.
Þó þessar tvær íþróttir hafi verið hlið við hlið þarna í Tunguskógi, þá held ég að himin og haf skilji þær að, hér allt svo fínt og flott, snyrtilegt, meðan hitt er ekkert nema drulla.
Já sveiflan tekinn.
Með tilþrifum.
Hér er svo afmælisbarnið, í köflóttu peysunni.
Með vinum sínum. Innilega til hamingju með sextíu árin Birgir.
Í morgun kom svo Queen Elísabeth, hún breytti áætlun sinni og kom við hér. Talandi um viðmið, ég var að ræða það um daginn, með stóru húsin á Eyrinni, en þessi bátur slær öllu við. Hér eru það fjöllin sem blikna við stærð hennar. Þetta er hennar síðasta ferð, hún hefur verið seld einhverjum olíufursta held ég, sem ætlar að nota hana sem hótel.
Eins og þið sjáið hér, þá hefur ýmislegt verið að gerast hér þessa helgi. En ekki eitt orð heyrði ég um það í útvarpi eða fjölmiðlum. Heldur ekki um góða veðrið, samt voru taldar upp allar samkomur landsins, og tíundaðar vel og vendilega. En ekki orð um Mýrarbolta, golfmót, skógarbrennu, né neitt annað. Sennilega eru Vestfirðir best geymda leyndarmál landsins. Það er allavega þagað vel og vendilega um það sem þar gerist, að öllu jöfnu.
ein mynd í lokin af litlu Hönnu Sólinni minni. En hér getið þið allavega séð að eitthvað hefur nú verið gert hér á þessu krummaskuði, sem alveg væri vert að minnast á. Knús á ykkur öll elskulegust.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
3.8.2008 | 22:44
Þórður Júlíusson níræður.
Þð var mikið um að vera að dag, mýrarbolti, goflmót og fleira. En núna ætla ég bara að setja inn myndir frá afmælinu hans pabba míns.
Afmælisbarnið og litla systir hans. Falleg og flott.
Guðjón Arnar hélt aðalræðu kvöldisins, að minni beiðni, enda er hann uppalinn í Stakkaneshverfinu sem svo er nefnt, nágranni frá barnæsku.
Gunnar bróðir minn hélt svo skemmtilega ræðu óundirbúin og blaðalaust, enda frábær ræðumaður.
Hér er hún frú Matthildur Helga, óbeisluð, og í peysufötum. það eru margar konu hér sem eiga slíkan grip í dag, þökk sé þeim stöllum óbeisluðum að halda hér saumanámskeið til að sauma íslenska þjóðbúninga. Og það að auki gera þær sjálfar meira og minna þá skartgripi sem heyra búningnum til. Ég dáist að þeim, og er alvarlega að hugsa um að fá að vera með næst.
ég verð sennilega skorin í spað og tekin í karphúsið af systrum mínum fyrir að setja þessa mynd inn, en hér erum við systkinin með pápa mínum.
Og hér með mökum.
Hér er hún Sigga litla systir mín, með drengina sína, þeir hafa allir þjónað í danska hernum, og sá elsti með fullt af heiðursmerkjum frá stríðinu í Írak. Það var ekki auðvelt líf.
Þarna voru mættir margir sem vildu votta honum virðingu sína, þar á meðal sjávarútvegsráðherra vor.
Hér er föðursystir mín yndislega Judith Friðrikka, og Gunnar Friðriksson, sá mæti maður.
Ýmsir máttarstólpar samfélagsins hér voru mættir
Og svo alþingismenn.
m.a Guðjón Arnar með Barböru sína elskulegu pólsku eiginkonu.
Hehehe hver segir að það sé ekki hægt að bretta eitthvað annað en servíettur
Spúkí tengdadætur hehehehe
Pabbi naut sín vel þetta kvöld, hér er Ásthildur Cesil aðeins að hvíla sig
En sú gamla bara að hafa ánægju af öllu saman.
eða eins og sjá má, þá skemmti ég mér konunglega líka.
Já við fengum svona tjald utan við húsið til að gefa kost á því að vera utan dyra, og veðrið lék reyndar við okkur.
Það voru hnallþórur
Og rosalega flottar brauðtertur skreyttar af systur minni. Svo annað eins hefur varla sést. Hún hefur þetta frá móður okkar. meiri hátta, og þær voru líka bara svo góðar.
Hafið bara séð svona flottar brauðtertur?
Tekið áður en gestirnir komu, en mér telst til að hér hafi verið um 150 manns í það minnsta.
já hingað mættu margir. Meðal annars frá Sandgerði.
Og pabbi sker fyrstu kökuna.
Hér er svo lítið skott, sem fannst flott að borða í hillunni hennar ömmu
Og litlar prinsessur með pabba sínum.
En ég ætla að enda þennan pistil á að setja hér inn ræðuna mína.
Við komum hér saman í dag til að fagna með föður mínum Ingólfi Þórði Júlíusyni. Tilefnið er jú að hann er um það bil að vera níræður, eða næst komandi mánudag þann 4. ágúst. Pabbi minn hefur skilið eftir sig stórt spor í atvinnulífi Ísfirðinga. Eins og allir hér vita. Við erum hér líka 7 systkini sem værum ekki til ef hans hefði ekki notið við. Ég er nú eiginlega þakklátust fyrir það, svona persónulega. Allavega er ég ánægð með að foreldrar mínir áttu a.m.k. eitt barn. Pabbi tók það skýrt fram strax að hann vildi ekki þiggja neinar gjafir. Enda á maðurinn allt sem hann þarf og meira til. Það er samt ein gjöf sem ég ætla að færa honum. Sú gjöf er vegna þess að ég vil þakka honum fyrir svo margt. Fyrir það fyrsta, þá var hann mér góð fyrirmynd í heiðarleika, vinnusemi og alþýðlegri hegðun. Hann kenndi okkur börnunum sínum, að skorast ekki undan vinnunni, eða vera með hroka gagnvart öðrum. Pabbi gekk í öll þau verk sem unnin voru, meðan hann rak sín fyrirtæki, hvort sem það var skreiðarverkunin, rækjuverksmiðjan eða litla íshúsið sem hann byrjaði á í skúrinni ofan við húsið. Það getur verið að ég hafi fengið meira að njóta samvistanna við hann, því þegar tíminn leið, urðu börnin fleiri, og minni tími gafst til að sinna þeim. Pabbi vann alltaf manna mest, fór fyrstur út, og kom síðastur inn. Aldrei kvartaði hann yfir þreytu eða vinnuálagi. Hann kenndi okkur líka að meta það smáa í lífinu. Til dæmis spurði ég hann einhvertíman hvað hann langaði í í jólagjöf. Þú getur teiknað fyrir mig mynd, sagði pabbi. Og ég var hæstánægð með þá lausn. Það var líka pabbi sem kenndi okkur Nonna kvöldbænirnar. Ég minnist þess þegar við vorum að læra vertu nú yfir og allt um kring með einlægri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Önnur bæn sem ég var lengi að spá í, en það er bæninn Vertu Guð faðir faðir minnÍ frelsaran Jesú nafni, Hönd þín leiði mig út og inn.Svo allri synd ég hafni. Mér fannst þetta vera eitthvað um að allir væru að synda í höfninni. Sú mynd sveif svo alltaf fyrir hugskotsjónum mínum. Hvað var allt þetta fólk að gera að synda í höfninni og hvað kom það eiginlega Guði og Jésú við.
Ljóð:
Ungur lagði upp frá æskuströndum
Ekkert átti nema kjark og þor.
Verkin öll svo vann með tveimur höndum,
víða hér má sjá þau hraustu spor.
Svo komu börnin, sín á hverjum tíma,
krakkahópur átti altlot hans.
Kennslustund í kurteisi að sýna,
hann ætlaði að koma þeim til manns.
Sorgin kom og vont þá er að vera
viðkvæmur í þrautum svartnættis,
Þungt er sporið barnið sitt að bera,
bjargarlaus í faðminn almættis.
Sárt er líka maka sinn að missa,
maður verður stundum eins og leir.
Förunaut, sem var manns trú og vissa,
en verður örsnöggt þarna ekki meir.
Þú fagnað þessum fjársjóði nú getur,
föngulegum stórum barnaher.
Heimsins enginn gæði hæfa betur,
hér við gleðjumst öll saman með þér.
Níræður nú ertu klári kappinn.
Við komum saman til að fagna um sinn.
Og ég tel að ég sé heldur heppinn,
að hafa átt þig elsku pabbi minn.
Á hverju ári veitir forseti Íslands fjölda manns fálkaorðu, flestum bara fyrir að mæta í vinnuna sína, þetta er að verða einhverskonar snobbsamkoma, og það er sjaldgæft að alþýðan njóti þeirrar upphefðar. Þá á ég við þá sem puða í sveita síns andlitis, eignast peninga, og láta gott af sér leiða í sínu bæjarfélagi. Pabbi minn hefur aldrei fengið slíka orðu, þó hann hefði verið betur að henni komin en margur sem nú skartar slíkum grip. Hann er eiginlega of stór fyrir fálkaorðu. Þess vegna ætla ég að sæma föður minn orðu sem er stærri en fálka orðan. Ég ætla að biðja hann að koma hér upp og þiggja af mér Arnarorðuna þá fyrstu sem er gefinn út, hér á Ísafirði allavega. Og er hún gerð honum til heiðurs sérstaklega.
Bloggar | Breytt 4.8.2008 kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
2.8.2008 | 02:24
Það er bara svona !!
Jamms eins og þið eflaust hafið tekið eftir þá er ég ekki mjög virk í dag. Málið er að það þarf mikinn undirbúning með afmælið hans pabba míns, og hann er nú ekki neinn svona venjulegur normal maður. Enda hafa koma í veisluna allavega einn ráðherra, og tveir þingmenn, annar þeirra Guðjón Arnar æskuvinur minn sem mun halda ræðu honum til heiðurs. Enda hefur pabbi minn verið virkur í atvinnumálum hér á Ísafirði til margra ára. En það munu koma myndir af amælinu á morgun eða hinn.
ég get sagt ykku að veðrið hefur verið hreint út sagt unaðslegt undanfarna daga.
Og himnagalleríið opið.
Fallegt ekki satt ?
Ég get sagt ykkur að sumir eru afskaplega einlægir i að vera snyrtilegir og gera sitt besta, eins og í þessi tilfelli, starfsmenn........................... nei ég má ekki segja hvaða fyrirtæki. En þeir þurftu sem sagt að gera ákveðna hluti í ákveðinni lóð, og þar á lóðinni voru stórir og stæðilegir skógartoppar, nokkuð gamlir og stálpaðir. Þessum ágætu iðnaðarmönnum fannst við hæfi að passa nú vel upp á plönturnar og þar sem þeir þurftu að taka upp beðið, tóku ræturnar og bundu þær snyrtilega upp eins og sjá má. Til að þær skemmdust nú örugglega ekki Þeir gleymdu bara þessar elskur, að rætur þurfa að vera ofan í moldinni, eða að minnsta kosti í raka og mold. því fór sem fór. Stundum villjum við gleyma aðalatriðunum í lífinu, eða um hvað lífið snýst. Þannig er það bara.
Amma sögðu stubbarnir mínir Daníel og Úlfur, hér er kartöflumús.. heheheh þeir gerður reyndar sitt hvora , en ég gat ekki sett inn nema aðra. Því það var ekki hægt að segja kartöflumýs En einhver listamaður sagði einhverntímann við mig, þegar ég var að hneykslast á fáránleika listanna, eins og að setja upp einhvern hvítan ramma, og segja það list. Að það væri hugsunin sem gilti og einföldunin, og svo að láta sér detta hluturinn i hug... Þá gildir það sama hér ekki satt ? að láta sér detta i hug að búa til kartöflumús með þessum hætti
Bara hrein og tær list.
Hér er Daníel "on the edge"
Amen og halelúja hver er svo hér ? Nema Hanna Sólin hennar ömmu lifandi komin, jamm þær komu í heimsókn i bili.
litla perludýrið hennar ömmu sín. Og alt það
Og fyrir Sigrúnu bloggvinkonu mína, myndir af húfunum sem hún sendi mér, og stelpurnar harðánægðar með þær svo sannarlega.
ef þetta er ekki mynd friðar og kyrrðar, þá veit ég ekki hvað
Kær vinkona mín Laufey bað mig um að setja inn mynd af nykurrósinni þegar hún blómstraði, hér er fyrsta rósin komin falleg ekki satt ?
Og það er margt í kúlunni þessa helgina, sofið í hverju skúmaskoti eða þannig og svo allir hinir sem bara kíkja við
Ömmuskotta.
Og ömmuprakkari.
en ég segi bara góða nótt, og elskurnar mínar, ég er svo mikið á kafi í að undirbúa afmæli elskulega pabba míns, og svo hefur góða veðrið dregir úr manni kraftin og dregið mann út í sólina, að ég hef ekki gefið mér tíma til að kíkja við. En mér þykir rosalega vænt um ykkur öll mín kæru. Á morgun verður dagurinn hans pabba mín, það eru allir velkomnir sem komast. Það verða góðar veitingar og örugglega góð stemning. Gjörið svo vel allir velkomnir. En ég segi bara góða nótt, og takk fyrir að vera vinir mínir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar