25.8.2007 | 16:12
Komin heim aftur. Smá ferðablogg.
Jæja þá er þessari yndælis dvöl í Fljótavík búin. Það var góður tími og veðrið lék við okkur. Það er verið að taka upp úr töskum og hægt nokkurnveginn að ganga um heimilið aftur eftir heimkomu og upppökkun.
En fyrsta sem maður þarf að gera til undirbúnings svona ferðar er að fara yfir búnaðin og gönguskórnir eru stór hluti af því, hér fær afi góða hjálp við að bursta skóna, því allir eiga jú að hjálpast að ekki satt.
Það var dálítil bið eftir að báturinn yrði klár, svo það var ákveðið að fá sér pizzu fyrir ferðina, sem tekur 2,5 tíma og svo er eftir landdaka og flutningur vist upp i bústað.
Sumir voru líka að gera sig fína fyrir ferðina.
en loks var hægt að leggja af stað.
Veðrið var mjög gott og fyrir þá sem eru frekar sjóveikir er gott að sitja úti við. Og allt klárt. Lítil prinsessa sofnuð í kerrunni sinni, afi ræðir við stóru systur um hafið.
Tvær sætar systur, önnur er að fara í fyrsta sinn í Fljótavík.
Þetta er tími veiðibjöllunnar, það er gaman að fylgjast með hvernig fuglin þýtur eftir haffletinum til að skoða æti. Og hann fylgir bátunum í von um æti þaðan.
En hafflöturinn er líka fallegur, með sólarlagið svona í baksýn.
Hundurinn er besti vinur mannsins, og hér ræðast þeir við Skafti og Zorró.
Og lítil stubba tilbúin að takast á við sjóinn og landtöku.
Jafnvel himnavættirnir vöktu yfir okkur.
Það er eithvað kyngimagnað við hafið, himininn og skýinn, og þegar fjöllin bætast við, verður heildarmyndin ægiþrunginn.
Og þessi mátti auðvitað ekki gleymast, þegar maður er fjögurra ára, þá er gott að hafa bangsann sinn.
Meðan þeir sem eru aðeins eldri og reyndari fá að stýra bátnum. Í umsjón afa auðvitað.
Og stóri frændi systir sinni með börnin, því allir eiga jú að hjálpast að ekki satt ?
Zorró var svolítið kalt, og þá var gott að fara í peysu, hann er að tékka á bangsakút.
Jamm það er allt í lagi með hann.
en úti rann dagurinn á enda með öllum sínum fallegu litbrigðum, og himin og haf nánast rennur út í eitt.
Allt verður svo fagurt og á sama tíma dulúðugt, og maður finnur að við erum að fara á vit náttúruvætta og nánast ósnortins landslagt.
Og það er tími til að fara í bátana, allir klárir að taka land í Fljótavík.
Öryggið fyrir öllu og hér eru vanir menn á ferð, sem fumlaust koma öllum heilu og höldnu í fyrirheitna landið.
Þetta gengur allt eins og í sögu.
AH og komin upp í bústað og látið fara vel um sig.
Næsta morgun kom flugvél á nýja golfvöllinn sem þarna er. Flugmaðurinn og frúin hans komu í kaffi þau voru að koma frá Látrum í Aðalvík.
Hér ræða þeir saman flugmaðurinn og ekki síðri flugkappi Hörður Ingólfsson frambjóðandi Ílista með meiru. Gamalreyndur Pólsflugmaður.
Notalegt að sitja í góða veðrinu og fá sér kaffisopa. Reynder eru flugbrautirnar í Fljótavík í einkaeign, og það er öllum bannað að veiða þarna nema með leyfi landeigenda, það er ágætt að það komi skírt fram hér.
Þessi litla dama er með leyfi, og hún ætlar ekki að láta sitt eftir liggja
Aðrir láta sér vel líka að sulla í vatninu þeir eru í blautbúningum, þó þess þurfi ekki, því hitinn var yfir 20 °.
Þessi eru líka að fara í göngutúr og veiðistöngin er höfð með, ef menn verða varir.
En sandurinn fer allstaðar og afi verður að smúla sönduga kroppa.
Meðan sumir fóru í pissikeppni hehehehe...
Og svo var leikið í hvönninni.
Smá varðeldur, aðallega kveikt í rusli, þar sem ekki var mikill eldiviður, en nóg til að krakkarnir voru alsæl.
Einn daginn fóru þau yfir vatnið yfir í Julluborgir svokallaðar, en það eru miklir sandflákar.
Og þar var stokkið og skemmt sér VÚBBBS !!!!
Jibbý !!!
Og fleiri þetta var gaman.
Þeir stóru vildu líka prufa.
Jamm og þetta smitaðu út frá sér heldur betur.
Já ekki satt, hann er í háu stökki þessi sonur minn.
Já það vildu allir prófa.
Sumir settlegri en aðrir.
En við munum að við þurfum alltaf að hjálpast að ekki satt, líka þeir stóru.
En svo var eldaður dýrindis matur lambasteik, hún beið eftir Julluborgarförum, þegar þau komu heim með sand upp fyrir haus.
Og það var tekið hraustlega til matarins.
Meira að segja all hraustlega, en það má alveg í Fljótavík.
Alþjóðlegur flugvöllur ? nei en hér er miðpunktur alheimsins.
Sætar saman þessar frænkur.
Og þessar tvær undu hag sínum mjög vel.
Og gamla brýnið var talin besti flakarinn heheheh..
Enginn tölva, enginn play station, þá er notað það sem hendi er næst, og gert meira úr því. Enda miklu heilbrigðara.
Einu sinni á dag a.m.k. var farið með ungviðið niður að ósi til að rasa út fyrir nóttina.
Fallegt ekki satt.
Allir fara yfir lækinn.
Og ofan í flæðarmálið.
Þar sem krakkar elska að leika sér.
Það er bara svo gaman að leika sér í öldunum.
Í kotinu ganga þau líka sjálfala blessuð börnin lille.
Meðan aðrir lesa undir háskólann, þá rabba þær minnstu svolítið saman.
Eða bara í bað.
Svo er lesið fyrir ungana líka.
Nú eða spilað.
Ásthildur Bára Ásthildur, þrír ættliðir
Evíta og pabbi.
Svo þarf að kíkja dálítið vel á umhverfið.
Og meðan rökkrið fellur á, er notalegt inni við kertaljós, sögur, söng og spil.
En svo kom að því að þurfa að fara. Við hefðum viljað vera viku í viðbót.
Allir klárir í bátana.
Saman í fjörunni.
Aftur um borð.
Flott ferð á enda.
Bless bless Straumnesfjall
Mig minnir að það hafi verið Goðafoss sem rak hér upp í fjöruna. Það var sagt að skipperinn hafi verið upptekinn við dodo á einni þernunni, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti, flakið er þarna allavega ennþá.
Bless Hornstrandir.
Smá skýjalistaverk.
Og litatilbrigði almættisins.
Svo er bara að fara að hlakka til næsta sumars. En nú er mál að linni, heyrumst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
16.8.2007 | 23:01
Snúrublogg, vöflur og Fjótavík.
Ég var hjá þýsku vinum okkar í vöfflupartýi. Nammi namm með rjóma flórsykri eplamauki og kanelsykri. Þau gera hlutina aðeins öðruvísi en aðrir. Þetta var ljómandi skemmtileg kvöldstund sem við áttum, húsbóndinn og unginn þurftu að fara fyrr, því stubbnum tókst að plata afa í bíó.
En við hin, dóttir mín og fjölskylda áttu góðar stundir með þeim. Enda gott og skemmtilegt fólk.
En það má segja að kúlan hafi verið alþjóðleg í dag, þegar Mirna frá El Salvador var að kveðja og fara heim, en Birgit og fjölskylda voru að koma frá Látrabjargi, dóttir mín lánaði þeim bílinn sinn, og þau fóru á Látrabjarg og gistu hjá bloggvinkonu minni henni Birnu Mjöll í Breiðuvík.
Hér er svo mynd af Ísafirði, sem fóstrar okkur öll, fólkið sem hér býr. Fjöllinn eru kraftmikil og þess vegna erum við svona eins og við erum öll, orkuboltar upp til hópa
En ég talaði um snúrublogg. Það er í anda vinkonu minnar hennar Jennýjar, ég get líka verið með snúrublogg hehehe.. en það lítur svona út hjá mér;
Þarna náði ég þér Jenný
En nú verður bið á bloggi frá mér, því ég fer á morgun í langþráða ferð til Fljótavíkur. Ég fer með fjölskylduna einu sinni á ári, í vikuferð þangað til að slaka á og njóta þess að vera til. Reyndar er það svo að börnin geta ekki beðið eftir að komast þangað. Að vísu óvenju seint í ár, en það er bara meira rómó svona þegar skyggja tekur, því þar er ekkert rafmagn, svo það eru bara kertaljós sem duga þar.
En þau kunna að hafa ofan af fyrir sér þar blessuð.
Svo er haldið á veiðar.
Með allar græjur.
Svo er að gera að..... og
Steikja hann, grafa'nn
Eða grilla'nn.
Nei þetta er rangt til getið hjá ykkur..... Karlarnir fyrir vestan kunna líka að steikja fiskinn Sumir að minnsta kosti. Í Fljótavík er settur sykur yfir hann, þegar hann er tekin af pönnunni, gamall siður sem allir fylgja.
Svo er auðvitað vaskað upp, hér eru allir jafnir.
Þegar kvöldar þá eru auðvitað sagðar draugasögur en ekki hvað, við kertaljós og niðamyrkur úti.
Börn og dýr elska Hornstrandir, enda er þetta paradís.
Alltaf frekar leiðinlegt að halda heim, og þó.... maður lifir í minningunni.
Þangað til maður kemur næsta sumar.
Ég kíki við á morgun, en annars hafið það gott. Og ekki gleyma mér meðan ég er að njóta mín í óbyggðum, ég hugsa að ég gleymi ykkur ekki. Ætla reyndar að hafa með mér krossgátur og einhverja spennusögu, annars bara njóta þess að vera til og innan um fjölskylduna mína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
16.8.2007 | 08:06
Börn í bala, berjaferð, skemmtiferðaskip og uppgröftur.
Já, það er gaman í kúlunni. Hér iðar allt af lífi daginn út og inn.
Það er tekist á um hitt og þetta.
Farið í bað saman.
Þá er að halda sér í formi og gera nokkrar armbeygjur.
Svo er farið í berjamó, að vísu þeir sem aðeins eru orðnir dulítið eldri og reyndari.
Og ráðsettari.
Og enn koma skemmtiferðaskipinn og setja svip sinn á bæjarlífið og svo náttúrulega höfnina.
Reyndar voru þau tvö í gær. Og nú koma þau flest alveg upp að hafnarkantinum, í stað þess að hanga fyrir utan og skutla fólkinu í land á smábátum. Og það eru auðvitað ísfirsku hetjurnar okkar sem sigla þessum risum inn í höfnina af alkunnri snilld. Þar á ég meðal annars við Papa Mugison, Guðmund Kristjánsson hafnarstjóra.
Og þeir eru byrjaðir að grafa eftir fornminjum í bæjarhólinn, þar sem Eyrarbærinn stóð. Þar eru merkar fornminjar. Eins og segir í göngukorti sem við Elísabet Gunnars gerðum fyrir nokkrum árum síðan;
Bæjarhóllinn.
Eyri hefur löngum verið talinn landnámsjörð. þar var höfukirkja sveitarinnar, og þar voru háð hreppaþing. Kirkjur voru í bernsku kristindómsins á Íslandi yfirleitt reistar af höfðingjum. Mjög oft af afkomendum landnámsmanna, sem þá sátu bestu jarðirnar.
Fyrsti prestur sem nafngreindur er á Eyri hér Þórarinn Tómasson. Frægastur presta sem sat Eyri var efalaust síra Jón Magnússon, sá sem kallaður var þumall. (Píslasaga síra Jóns Magnússonar). Hann sat frá 1643 til 1689. (Hann fyrirskipaði síðustu galdrabrennu á Vestfjörðum, þegar hann lét brenna feðgana á Kirkjubóli. En dóttirinn flúði vestur í Arnarfjörð og slapp við eldinn).
Gamla kirkjan sem var byggð 1863, á grunni eldri kirkju, að því er talið er skemmdist af eldi árið 1987. Kirkjan var rifinn 1993 og komið í geymslu í Engidal og voru mjög skiptar skoðanir meðal bæjarbúa um þá aðgerð. Gamli torfbærinn var rifinn seint á síðustu öld, en rústir eru enn í bæjarhólnum.
Í samabandi við þennan kirkjubruna og allt í kring um byggingu nýju kirkjunnar, þá vil ég segja að þessi atburður varð til þess að ég sagði mig úr þjóðkirkjunni. Og ég veit að það gerðu margir fleiri í kjölfarið. Það var valdníðsla og hroki þáverandi sóknarnefndar sem gerði útslagið með það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.8.2007 | 14:49
Sokkabandið.
Ég ákvað að setja hér inn lögin á sokkabandsplötunni. Það hérna til hliðar opna fyrir lagaspilun.
Hún var tekinn upp 1985, en flest lögin eru saminn milli 1980 - 82 meðan sokkabandið starfaði.
Upptökustjóri er Helgi E. Kristjánsson
Platan var tekinn upp í Glóru hjá Ólafi Þórarinssyni.
Undirleikarar voru;
Ásgeir Óskarsson á trommur og ásláttarhljóðfæri.
Helgi E. Kristjánsson á rafbassa, hljóðgerfla, gítar og þríhorn.
Jon Kjell á píanó og hljóðgerfla og vocoderstjórn.
Þorsteinn Magnússon á rafgítar.
Tryggvi Hübner á rafgítar.
Bakraddir voru;
Anna Pálína Árnadóttir. Blessuð sé minning hennar.
Herdís Hallvarðsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir.
Þessi mynd er síðan þá.
Og svo nokkrar myndir síðan í morgun. Nú er reyndar komin glampandi sól.
Eigiði góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
14.8.2007 | 21:38
Tvær Cesiljar og smáblues.
Hér erum við Ásthildarnar á góðri stund.
Hæ amma mín
Ég er svooo lífsreynd og spái í svo marga hluti að enginn gerir sér grein fyrir því, nema ef til vill amma mín.
Sko ég get meira að segja staðið alveg sjálf.
Mystik í loftinu í kvöld.
Kallar þetta ekki bara á smáblues svona undir kvöldið ?
http://www.malefnin.com/mp3/CD_cesil/Of_seint.mp3
Heyrumst á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
13.8.2007 | 23:57
Ferð um þorpin þrjú og fiskisúpa.
Ég fór á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri í dag, til að skoða garða. Það var mjög fallegt veður og ég náði nokkrum skemmtilegum stemningsmyndum.
Þessi er tekinn í Dýrafirði, af Dýrafjarðarbrúnni.
Hér eru svo vöðin í Önundarfirði.
Við lón á Flateyri er áskorun um að smíða skipamódel. Hér er eitt glæsilegt eintak.
Við höfnina á Suðureyri var líka kyrrt og fallegt veður eins og sjá má.
Þarna er gæsapartý í gangi, hinar einu og sönnu sko !
Þessar voru á græna tippnum á Ísafirði, forvitnar mjög. En sóttu þarna í gras sem hafði verið losað á staðnum.
Hér eru svo börn og barnabörn í kúlunni. Hér var elduð dýrindis fiskisúpa í kvöld, þar var einn sonurinn við eldavélina. Hún smakkaðist alveg rosalega vel og allir voru ánægðir. En okkar kæru þýsku vinir voru með okkur í kvöld. Einn sonurinn er eins og indíánakona með barnið í fatla hehehe..
Hér er fjölskyldan og dóttir mín sem ræðir við þau á þýsku auðvita, þar sem hún var mörg á í Þýskalandi og dvelur núna í Austurríki.
Já ungviðið lætur ekki að sér hæða, í góðum föðmum.
Þetta er hún Ásthildur Cesil sem brosið hér fremst á myndinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
12.8.2007 | 22:36
Kvöldverður með góðu fólki.
Kvöldverðurinn gekk mjög vel og fólkið mitt át með bestu lyst. En málið er að ég komst að því, að þau hafa aldrei bragðað skyr í þau sex ár sem þau hafa verið hér. Ég bauð þeim upp á skyr, aðalbláber og rjóma í eftirrétt, og þá kom í ljós að þeim hafði aldrei dottið í hug að smakka skyrið, og mér hafði aldrei dottið í hug að bjóða þeim upp á skyr. En þau fengu sér öll þrisvar á diskinn, svo það var greinilegt að skyrið sló í gegn í kvöld.
Aðalbláber nammi namm.
Og krækiber nammi namm.
Ketið skorið. Pabbi gamli var í góðum félagsskap.
Jamm það var margt spjallað á spænsku og íslensku og svo bara fingramáli.
Tengslin liggja víða.
tími til að kveðja, ég vona að Mirna fari með góðar minningar heim og huggun til fjölskyldunnar úti í El Salvador um að fjölskyldan hennar hafi það gott uppi á hinu kalda Íslandi. Hún sagði að mest hafi komið á óvart hve innilega gott fólkið er á Íslandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
12.8.2007 | 17:08
Vil benda ykkur á auglýsingu.
Sem ég sá í Fréttablaðinu í dag. Þetta er eina auglýsingin á minni ævi sem hefur komið kökki upp í hálsinn á mér af hrifningu. Þvílík hetja hér á ferð. En auglýsingin hljóða svona:
Aðstoðarfólk óskast!
Ég er 21 árs ung kona með hreyfihömlun sem leitar eftir aðstoðarfólki sem fyrst til að gera notið sjálfstæðs lífs.
Ég bý eins og er í foreldrahúsum í Garðabæ.
Ég þarfnast aðstoðar við allar athafnir daglegs lífs, m.a. við hreinlæti, klæðnað, keyrslu, tiltekt, vinnu, skóla og fl. Einnig til að auka og viðhalda lífsgæðum mínum svo ég geti lifað eins og hver önnur ung manneskja í íslensku samfélagi.
Ég sækist eftir því ða hverjum degi að láta drauma mína rætast, gera vel úr því sem ég hef í höndunum og njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Þar getur þú komið sterk til leiks.
Á allan hátt mun fjölbreytileiki einkenna starfið, enginn dagur er eins hjá mér, frekar en hjá þér.
Umsækjandi þarf að vera á aldreinum 20 30 ára, reyklaus og með bílpróf sem er nauðsyn. Jákvæðni, virðing og samvinna er lykill að farsæld í starfi sem þessu því með þér hef ég tækifæri til að lifa með reisn.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband á netfangið; freyja@forrettindi.is eða í síma 6912722.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist einnig á freyja@forrettindi.is
Ráðningardagsetning:Sem allra fyrst.
Vinnutímabil:
Framtíðarstarf.
Vinnuhlutfall:Fullt starf, sveigjanlegur vinnutími.
Laun:Góð laun í boði.
Forréttindi:Aðstoð frelsi lífsgæði.
Fötlun þarf ekki að vera hindrun.
Ég vil hvetja fólk til að lesa þetta og ef þarna er einhver úti sem vill takast á við kvenhetju, þá er hér framtíðarstarf í boði. Ég hef svo sem grun um að hér sé á ferð sú unga stúlka sem fór fræðsluferð um landið í vor. En ég vil óska henni alls hins besta og óska henni þess að hún finni förunaut sem verður henni hægri hönd á komandi tímum. Þvílík hetja. Og þvílík afstaða til lífsins. Ég segi nú ekki margt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.8.2007 | 12:00
Nýtt líf, himnagallerí og Vínarfyrirsæta.
Eitt af þeim lögum sem mér þykir vænst um af plötunni minni er Nýtt líf. Það er um meðgönguna.
http://www.malefnin.com/mp3/CD_cesil/Nytt_lif.mp3
En svo eru hér myndir síðan í gær af skýjum og undursamlegri litasamsetningu alheimsljóssins.
Svo er það lítil Vínardama, hún er smá feimin en alveg yndisleg litla Hanna Sól. Takið eftir írisblóminu í barminum. Þú mátt ekki slíta upp blómin hennar ömmu, sagði afi. En í þetta sinn er það allt í lagi, ég set það í barminn, þá verður amma glöð yfir því hve þú ert fín.
Vonandi eigið þið góðan sunnudag. Fólki mitt frá El Salvador kemur í mat í kvöld, þau fóru reyndar á súpudaginn á Dalvík, en ég ætla að gefa þeim ekta íslenskt lambalæri, það er eitt af því besta sem þau fá, en elda ekki sjálf. Ein dóttir þeirra er í heimsókn frá El Salvador, og ég hlakka til að gefa henni að smakka.
Svo er ég farin út í sólina, ætla að hunskast til að reita smá arfa.
Bloggar | Breytt 13.8.2007 kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.8.2007 | 16:07
Tími rósanna....
Í garðinum mínum er tími rósanna núna.
Dornrósin er bæði falleg og harðgerð.
Það er Hyrdalsrósin reyndar líka.
Hvíta Hansarósin það er bjart yfir henni.
Búin að týna nafninu á þessari en hún er stammrós sem kölluð er, þ.e. á háum stöngli.
Þessi brosir líka fallega.
Þetta er Hawairós trjákennd en hún er í garðskálanum.
Hvítþinurinn minn er með myndarlega köngla. Glæsilegur.
Gallerí himin leit svona út í gær, hann er svipaður í dag reyndar.
Þessar elskur fylgja líka blómunum, þó eru þær mest vitlausar í varablómin hjá mér, til dæmis kattarblómin nepeda, og silfurtvítönn. meðan hungangsflugan vill heldur knautía eða systrablómið.
Sumar velja líka mig hehehe... við horfumst í augu og gerum samning um engar stungur takk. gegn því að enginn innrás verði gerð í búin þeirra af minni hálfu.
Hér eru svo þýsku vinir okkar Britt og Leon að byggja úr Geomic uppáhalds leikföngum hér Hanna Sólin talar auðvitað reiprennandi þýsku að vísu með Austurrískum hreim. En þau geta svo vel skeggrætt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar