Nokkrar myndir.

Já datt í hug að setja hér inn nokkrar myndir.

IMG_4025

Himnagalleríið hefur verið opið undanfarið sumar.  Enda veðrið algjörlega yndislegt í allt sumar.

IMG_4026

Veðrið er reyndar best geymda leyndarmál Vestfjarða, því það er vandlega þagað yfir því í okkar ríkismiðlum, en um leið og sést til sólar á Akureyri og fyrir austan þá er allt tíundað og sagt frá á tíumínútna fresti að þeir eigi nú góða veðrið.  Jamm svoleiðis er það bara.  En fólk er að uppgötva það núna hve veðrið er jafngott hér fyrir vestan og það er vel. 

IMG_4030

Hér eru líka sögurnar um álfa og tröll rótföst og naglföst.

IMG_4027

Það er samt ekki allt fallegt hérna skal ég segja ykkur, mengunin frá Funa er hrikaleg og ég hef þá grunaða um að kynda ótæpilega allt krappið meðan við sofum og þegar ég kem út á morgnanna fyrir kl. 7 má sjá mengunina um allan pollinn, og jafnvel hefur það verið svo svakalegt að Funi sorpbrennslustöðin sjálf hefur ekki sést fyrir mekkinum.  Nú er hafin undirskriftasöfnun meðal almennings um að stöðva þessa mengun og þó fyrr hefði verið.

IMG_4028

Það er eitthvað mikið að þegar til dæmis plöntur verða jafn aflagaðar og ég hef sýnt myndir af hér fyrr, og þessi bláa mengun legst yfir allt.  En þetta er sennilega tapú.

IMG_4037

ég vil þessa sjónmengun burt og þar sem hefur komið í ljós að þetta er ekki bara sjónmengun heldur raunveruleg hættumörk vil ég láta færa stöðina annað. Þessi er hvort sem er úr sér gengin og úrelt og biluð.

IMG_4038

Ísafjörður er samt sem áður vaxandi ferðamannabær enda fallegur og veðursæll með afbrigðum.

IMG_4040

Hér er verið að undirbúa Evrópukeppni í Mýrarbolta.  Það var ekki mikið rætt um það í sjónvarpinu í kvöld.  Það hefði einhversstaðar verið talið fréttnæmt.  En ég veit ekki hvað það er þessi tregða fjölmiðla til að segja frá því merkilega sem hér gerist.  Þó eigum við fullt af fólki sem vinnur á fjölmiðlum, dugir bara ekki til.  Enda lögðu þeir niður Rúvvest og tóku upp einhverskonar landsúrvarp í klukkutíma, sem á að þjóna allri langsbyggðinni en er mest frá Akureyri enda keyr þaðan.  Og þó við teljum okkur afskipt þá held ég að við séum samt sem áður hátíð miðað við aðra landsbyggðahluta.  Svei þér Páll Magnússon, þú og þinn jeppi ættu að víkja á undan svæðisútvörpum landsins.  En við hverju býst maður með hvern 101 menntamálaráðherran á fætur öðrum, sem heldur að lífið hefjist og endi í Austurstræti. 

IMG_4043

Ekki vera með þetta raus Ásthildur mín.  Þú bara móðgar fullt af fólki.  En svona er ég bara.  Ég vil eiginlega helst af öllu að við Vestfirðingar segjum okkur úr lögum við Ísland.  Verðum sjálfstjórnarsvæði eða sjálfstætt ríki, með öllum okkar gögnum og gæðum, myndum við lifa vel og vera sjálfum okkur meira en nóg og aflögufær þar að auki.  Fyrir utan mannauðgina, slagkraftinn og andlegt atgerfi og þrautsegju sem við eigum, þá er þar svo margt margt fleira.

IMG_4046

Aron Máni og Kristján Logi komu í heimsókn, þeir eru staddir á Íslandi, einnig Sóley Ebba.  Hún er hjá ömmu og afa núna, þeir fengu að gista eina nótt.  Þessi unga dama er barnabarn æskuvinkonu minnar Dísu, og kippir svo sannarlega í krakkakynið sem hingað kemur.

IMG_4049

Eins og sjá má, gefur Hönnu Sól ekkert eftir LoL

IMG_4054

Obbobb obb flott og kúl!

IMG_4052

Þessi lætu sér samt fátt um finnast og er hvorki kúl né kaldur, bara mjúkur og krúttlegur.  Annars var dýralæknirinn minn að hrekkja hann.  Klippti af honum neglur og setti á hann bjöllu til að forða fuglunum frá honum.  Hann er nefnilega ekki svona letilegur ef hann sér fugl, þá er hann rosalega snöggur og ef ég skamma hann, hleypur hann bara að heiman og leggst upp á fólk í nágrenninu.  Ekkert svona góða, hugsar hann.

IMG_4068

ég held að Aron Máni verði musikstjarna.  Hann er rosalega flottur, semur lög og flytur, þó hann hafi aldrei lært neitt gerir þetta samt af snilld og ekki á hefðbundin hljómahátt.  Nei hann kemur með nýja takta á gítarinn.

IMG_4071

Æ það er notalegt að hafa aftur húsið fullt af krökkum, og líka frekar hljóðlátt og þægilegt þegar þau eru farin þessar elskur.

IMG_4073

Amma settu í mig slaufu, sagði stubbur, en það er afskaplega spennandi að fara í fatakistuna hjá ömmu og klæða sig upp.

IMG_4076

Og bóndinn gaf mér nýja peysu, prjónaða af nöfnu minni í Súðavík, falleg og hlý peysa.

IMG_4077

Hún prjónaði líka þessa fallegu peysu á hann og gaf honum.  Svona á fólk að vera Takk fyrir okkur Ásta mínHeart

IMG_4085

Og svo stóð ferðalag fyrir dyrum, Elli minn og unglingarnir fóru inn í Seyðisfjörð í kvöld og þá þurfti að setja pallhúsið upp á pallinn.  En það fauk fyrir nokkrum árum og brotnuðu undan því fætur og ýmislegt fleira, en við notum það nú samt, því það veitir skjól og ýmislegt annað notalegt.

IMG_4088

Og litli stubbur þvældist svo fyrir að gröfukarlinn tók hann bara inn í gröfuna, þá veit ég hvar hann er, sagði Jói og hló.

Svoleiðis er það nú.  En ég vil óska öllum mínum vinum og samferðafólki gleðilegrar verslunarmannahelgi.  Megi allir góðir vættir vera með ykkur og vernda. Heart


Hótunin í kastljósinu.

Jamm það er alveg óþarfi að breiða yfir hver sendi hana eða hilma yfir hvers vegna.  Hér er hún einfaldlega.

 

Ágæti Sölvi, mér hefur verið bent á viðtal sem tekið var við Jónínu Benediktsdóttur varðandi nýju bókina sem mér skilst að hún sé að semja með þinni aðstoð.   Í þessu viðtali kom þetta m.a. fram:

Jónína á Útvarpi Sögu 23. júlí 2010:
"Svo sitja 6-7 einstaklingar heima á blogginu að níða mig niður fyrir það að namedroppa. Ég er með nöfnin á öllum þessum gaurum af því ég náði í ip-númerin hjá malefnin.com. Það er nú til dæmis ein sagan. Er það ekki mál að vita......
Guðmundur Franklín: "Hver á malefnin.com?"
Jónína: "Nákvæmlega. Það færðu að vita í bókinni."
Sölvi Tryggvason: "Þetta er allt skýrt."
Jónína: "Þetta er allt skýrt. Þetta er malefnin.com. Þeir stjórnuðu samfélagsumræðunni hérna
mjög lengi þó að ákveðnir aðilar neiti að viðurkenna það.
Sverrir Stormsker: "Var þetta ekki spyrt við DV á sínum tíma?"
Jónína: "Það kemur í ljós."

 
Mér finnst hið besta mál að Jónína gefi út bók og ekkert verra ef hún getur flett ofan af spillingu í þjóðfélaginu.  En hér er hún á villigötum.  Ég er ábyrgðarmaður Málefnanna.com og stjórna vefnum alfarið, ásamt nokkrum öðrum meðstjórnendum sem ég þekki alla vel.  Núverandi eigandi Málefnanna er Guðmundur Ingi Hjartarsson.  Við höfum átt gott samstarf að því marki að taka á ýmsum tilfallandi uppákomum, þar sem kvartað hefur verið við hann um nafngreinda íslendinga með slúðri og hótunum um lögsókn.  Aldrei hefur komið þar upp nein tilmæli eða beiðni um að sérmeðferðar gæti við Bónusfeðga.  Þeir hafa þó sennilega verið rakkaðir manna mest niður á Málefnunum.com. 
Að þeir stjórni umræðunni þar er bull út í loftið, og ég vona að Jónína hafi meira fyrir sér í öðrum þeim málum sem hún hyggst setja fram í bókinni. 
 
Ef hún svo ætlar að gefa upp IPtölur málverja, sem hún fékk með hótunum upp úr fyrri eiganda, mun ég kæra hana umsvifalaust til Persónuverndar og krefjast þess að stopp verði sett á útgáfu bókarinnar. 
 
Hún getur einfaldlega ekki opinberað slíkar tölur, og ekkert sem réttlætir þann gjörning, þar sem umræðan á Málefnunum.com var einungis eins og aðrar umræður og stjórnað af mér og mínum meðstjórnendum og engum öðrum.  Þetta er allt saman hægt að sanna og ég mun ekki gefa neitt eftir í því sambandi.   Þar er sannleikurinn sagna bestur. 
 
Svo það sé á hreinu þá rekur núverandi eigandi vefinn gegnum sitt fyrirtæki Netheim.is þ.e. sér um tæknihliðina, en ég og mitt fólk sjáum um stjórnunina og enginn getur vænt mig eða þau um að vera handbendi eins eða neins. 
Þetta vil ég láta þig vita áður en þið farið út í einhverskonar krossferð á hendur Málefnunum á vitlausum forsendum. 
Vil gjarnarn heyra frá þér um þetta mál frekar.
 
Óska ykkur að öðru leiti alls þess besta með kveðju Ásthildur Cesil Þórðardóttir.
 

 

Já svo mörg voru þau orð.  Það getur svo sem vel verið að ég hefði átt að vera diplómatískari og tala undir rós.  En ég er bara í fyrsta lagi vestfirðingur og í öðru lagi tala hreint út. 

Svarið sem ég fékk er þetta:

Sæl Ásthildur.

Ég ber ekki ábyrgð á orðum Jónínu í umræddu viðtali, því að hún er stundum heldur hvöss.
Ég veit vel að Bagusfeðgar stjórna ekki umræðunni þar. Hins vegar var brotið freklega á
friðhelgi einkalífs Jónínu á sínum tíma og þeir sem bera ábyrgð á því verða að beina reiði sinni
að sínu eigin siðferði en ekki að mér.

Þú þekkir hins vegar umræðuna um IP tölurnar, sem var í fréttum á sínum tíma. Ég hef unnið
sem blaðamaður í 6 ár og unnið mér traust gríðarlega margra, enda aldrei unnið
óheiðarlega og mun ekki byrja á því nú.

Þess vegna finnst mér heldur verra að þú kjósir að hóta lögbanni á bókina án þess að hafa hugmynd
um hvað þar kemur fram. Mitt markmið er ekki að koma höggi á neinn. Mér leiðast svona hótanir og
þoli illa að talað sé við mig með þessum hætti.

Jamm og svo;

Og ég svara:


Heldur tekurðu nú orð mín of nærri þér Sölvi.  Ég er ekki að hóta þér alls ekki, ég var að spyrja þig um það sem kemur fram í viðtali við Jónína varðandi IP tölurnar.   Ég er nefnilega eins og Jónína stundum hvöss.  Málið er að hún hefur verið lengi með þessar grillur um Málefnin og bendlað marga þar innanborðs við Baug og eins og kemur fram í viðtalinu sagt að Baugur stjórnaði umræðunum þar.
Ekki ætla ég mér að fara að skipta mér af hvernig þú skrifar söguna, skil ekki alveg hvernig þú færð það út.  Ég hins vegar segi það alveg satt að ef spurning er um birtingu á þessum IP tölum mun ég beita mér.  Það hefur reyndar ekkert með annað að gera en ábyrgð mína á Málefnunum.com og málverjum sjálfum.

 

Það er það EINA sem ég set út á þetta allt saman, og Jónína segir jú beinlínis í viðtalinu að það sé það sem hún ætli sér að gera.  Þess vegna hafði ég samband við þig.  Nú hefur þú staðfest að svo muni ekki verða og eins og ég sagði áður það nægir mér alveg.

Óska þér svo enn og aftur alls góðs með Jónínu, bókina og allt annað.  Með bestu kveðjum Ásthildur Cesil Þórðardóttir.

Svar:

Sæl aftur

Ég hef ekki staðfest eitt né neitt. Bara sagt að ég muni vinna þetta heiðarlega og ekki gera neitt sem
stríðir gegn siðferði mínu.

Þú sagðist ætla að krefjast stopps á bókina. Það er hótun um lögbann Ásthildur.  Ég tek þetta engan vegin nærri mér og er alveg nógu harður í ,,alvöru umræður", enda fjallað um handrukkara, dópsala og ofbeldismenn
og fengið alls konar hótanir. En ég þoli ekki tilraunir til ritskoðunar og svara þeim af fullri hörku.

bestu kveðjur
Sölvi

 

Og ég:

Efni: Re: Frá Ásthildi Cesil Þórðardóttur.


Eftir sem áður stendur að birting IP talna er samkvæmt lögum um persónuvernd ólögleg nema gegn dómsúrskurði að því ég best veit.  Og þá í þessu tilfelli með mínu samþykki.  Ég hef annars undir höndum á hvern hátt Jónína fékk þessar tölur.  Hafa ber það í huga líka.  Með bestu kveðjum Ásthildur Cesil.

Og hann:

Ég veit líka hvernig hún varð sér úti um þessar IP tölur og myndi að sjálfsögðu segja
frá því líka ef ég fjalla um málið í bókinni.

Ég;

En Sölvi þú ert ekki alveg að skilja pointið;  birting IP talna er ekki leyfileg nema með dómsúrskurði.  Samkvæmt lögum um vefmiðla og persónuvernd.  Með kveðju Ásthildur Cesil.

Hann.

Ég skil þetta 100%.


bestu kveðjur
Sölvi

Já svona var þetta.  Óþarfi að flæka þetta í einhverjar samsæristrakteringar. 


Mér líður vel með að lesa svona grein.

http://www.dv.is/blogg/eimreidin/2010/7/25/spryngur-stjorinin/

Hér er talað af krafti og beint frá hjartanu.  Ég fyllist trú á mannkynið eftir svona lestur.  Tiltrú á að þarna úti sé fólk sem hugsar eins og ég og vill breytingar í samfélaginu.  Ég er líka ánægð með marga fleiri eins og Láru Hönnu, Marínó G. Njálsson og marga fleiri sem tjá sig um þjóðmálin.   Ég vildi að við fyndum leið til að standa saman sem þannig hugsum og koma á starfhæfri ríkisstjórn sem getur tekist á við það sem brennur á þjóðinni og þorir að taka á erfiðum málum. 

Geymum þetta ESB kjaftæði og förum að vinna í að koma á því nýja Íslandi sem við þráum svo mjög.  Það verður ekki gert með núverandi né fyrrverandi valdhafa við stjórnvölin.   Hér þurfa ferskir vindar að blása, vindar sem eru ekki rígnegldir niður í skotgrafir pólitískra hugsana og hlekki hugarfars og spillingar eins og við horfum upp á nánast daglega og höfum gert nú í áratug eða meira. 

Burt með pólitíkina og pólitíkusana, inn með fagfólkið og þá sem þekkja, vita og þora að standa í brjóstvörninni fyrir okkur.  Við verðum líka sjálf að fara að gera kröfur og hafa kjark til að fylkja okkur um það fólk sem við treystum og viljum sá í framvarðarlínunni.  'Astandið er alltof mikið okkur sjálfum að kenna, því við höfum líka verið sofandi og leyft þessum spillingaröflum að hreiðra um sig í dúnmjúkum stólum og undir hlýjum teppum, algjörlega varin fyrir kuldanum og trosinu sem við megum láta bjóða okkur, enda skilur það fólk ekkert hvað er í gangi, bara meðan þau geta setið í stólunum og spókað sig um heiminn. 

Takk Teitur fyrir þessa grein, og þið hin sem hafið rætt tæpitungulaust um ástandið.  Einhvers staðar þurfum við að byrja og núna er eins gott og hver annar tími. 

Tek því undir þessi orð;  Þetta þarf að stoppa!

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981


The birds and the bees og vasps og bara hitt og þetta um lífið í myndum að hætti kúlubúa.

Jamm set inn dagskammtinn af myndum. 

Hér er veðrið heil dýrð, það var örugglega yfir 26°hiti í gær og sól, mælir sýndi um fimm leytið 22° í fjarðarbotninum.

Hér eru tvö skemmtiferðaskip núna og allar rútur aka fram hjá kúlunni og stoppa hér svo fólk geti tekið myndir.  Það truflar mig ekkert.  En það er inn í rúntinum um hið áhugaverða á Ísafirði, og ég tek þátt í því.

IMG_4007

Hér eru vinir mínir geitungarnir, einn stakk mig í dag, en það var mér að kenna, ég óð inn í gróðurhúsið vopnuð illgresiseitri, hvað gátu þeir haldið annað en að ég ætlaði að drepa þá greyin.  En það var vont.  Í gær settist einn aftan á hálsinn á mér og vappaði lengi um háls og axlir, ég reyndi að vera alveg róleg og var ekki með neinar snöggar hreyfingar en hélt samt áfram að vinna við plönturnar.  Dálítið óþægileg tilhugsun, en ég er sennilega áhættufíkill.  Sennilega þarf ég að loka dyrunum að gróðurhúsinu sem snúa að vinnusvæðinu í ágúst þegar þeir gerast árásargjarnari.  En þetta er mjög áhugavert að fylgjast með og flott bygging.

IMG_4009

Silver Cross vagninn hennar Möttu minnar, ætlaði að sýna kóngulóarvef sem er þarna í horninu en hann kemur ekki fram á myndum, hér eru vefir út um allt og stórar kóngulær.

IMG_4012

Þessi elska flaug ofan í tjörnina, ég reyndi að bjarga honum en hann bara dó.  'Eg get svarið það ég bjarga hunangsflugum upp úr tjörninni eftir marga tíma og þær hjarna við, en þessi dó a nokkrum mínútum, sennilega ofkólnun.  Kettlingurinn náði einum um daginn sem ég var að reyna að hjálpa út, en ég náði bróður hans í morgun og kom heilum og höldnum út í frelsið, svona er lífið.  Veit ekki hvaða tegund þetta er mér finnst fuglalíf vera farið að aukast mikið hér með hækkandi hitastigi.

IMG_4013

Ekki hefur komið dropi úr lofti núna í fleiri vikur, og á morgun er ég búin að panta slökkviliðið til að vökva beðin í miðbænum.  Því allt er að skrælna.

IMG_4010

Þetta risaskip var hér í gær.

IMG_4018

Þetta er hér svo ennþá síðan í morgun.

IMG_4019

Og líka þetta.

IMG_4014

Upplagt að grilla í góða veðrinu.

IMG_4017

Nykurrósirnar njóta sín vel og líka fiskarnir.

IMG_4015

Sumir fljúga svo um loftin blá. Þetta er flugfélag Fljótavíkur.

IMG_4021

Hér eru þrjú mismunandi farartæki.

IMG_4023

Og þessi bangsi og töffari leit við og ég fékk mörg knús.  Takk fyrir knúsin Dísa mín. Heart

IMG_4024

Og þar sem ég var að róta í beðunum mínum í dag, brá mér heldur betur að finna þetta..  Hún lá á hvolfi og ég hélt fyrst að það væri steinn.  En Guð minn góður dauðagríma sonar míns er þetta og ekkert annað.  Elsku karlinn minn það sem þér hefur dottið í hug að gera.  Sem betur fer tók ég þessu bara vel, ætla að geyma hana á góðum stað.  En þetta er ekki það þægilegasta sem maður finnur miðað við allt, get ég sagt ykkur.  Ég held að hann sé að reyna mig, hve langt ég sé komin á þroskabrautinni.  Júlli minn ég elska þig. Heart

En nú ætla ég að fara að spjalla við minn elskulega eiginmann, þeir Úlfur fóru út að róa og eru komnir heim aftur og veðrið er yndislegt til að sitja úti og njóta með rauðvínsglasi.  Ykkur sendi ég öllum knús og kærleika. Heart

 


Stundum þarf að útskýra hluti.

Ég er nú ekki vön að útskýra það sem ég set hér niður.  En svo virðist sem einhverjir hafi talið að ég væri að gera lítið út umhverfisfulltrúanum okkar hér á þessari síðu.  Það  er bara ekki þannig.  Ég kann afskaplega vel við þann dreng, og finnst hann bæði ljúfur skemmtilegur og fyndinn. Við höfum afskaplega ólík viðhorf til garðyrkju það er alveg rétt, og var ég að gera létt grín að því.

Ég er hér reyndar að tala um allt annan hlut sem er gegnumgangandi í okkar íslenska samfélagi.

Ef menn hlusta á viðtalið og síðan það sem ég skrifa, sérstaklega það sem er undirliggjandi í tekstanum þá sjá menn hvað ég á við.  Til dæmis finnst spyrlinum ekkert athugavert við það að eftir 32 ára veru garðyrkjustjóra á Ísafirði skuli fyrst núna vera farið að rannsaka hvaða plöntur þrífast við Pollgötuna. 

Sama með Víðivellina, það er afskaplega merkilegt framtak, og væri verðugt verkefni fyrir sagnfræðinga að fara að rita gróðursögu Ísafjarðar og þá yrði það eitt af fyrstu verkefnum að ræða við þær góðu konur sem gróðursettu fyrstu plönturnar þar MEÐ JÁRNKARLI því annað dugði ekki.  Það er líka merkileg barátta tveggja kvenna að verja Austurvöll fyrir því að vera gerður að skólalóð í stað þess að vera skrúðgarður.  Eða þegar átti að koma í veg fyrir að minnisvarði yrði reistur í Jónsgarði til heiðurs þeim hjónum Jóni Jónssyni klæðskera og Karlinnu konu hans, og að garðurinn yrði nefndur eftir honum.   Það má líka tala um þegar vegagerðin og bærinn ákváðu að gera göngustíg inn með Skutulsfjarðarbrautinni sem er hið besta  mál, en ætluðu svo að byrja á því að rífa niður öll stóru grenitrén sem þar eru, af því að þau voru fyrir beinni línu göngustígsins. 

Það sem ég var að hugsa var einmitt þetta.  Að bak við alla hluti eru manneskjur sem hlú að og vernda.  Það er bara oftast sem enginn tekur eftir því sem gert er.  Því það er gert í kyrrþey. 

Sú sem hér dansar á lyklaborðinu hefur oft þurft að verja grænu svæðin hér með kjafti og klóm, bæði í og UTAN vinnutíma. Því það virðist alltaf vera það fyrsta sem hugsað er um að rífa niður gróður til að gera eitthvað annað.  Það er dálítið merkilegt þar sem hafa þarf fyrir gróðri að menn skuli ekki hafa hann framar í forgangsröðinni.

Menn verða bara að hafa sína skoðun á því sem ég hef sett hér niður, en málið er að við sjáum ekki það sem er næst okkur og kring um okkur.  En rekum helst augun í það sem kemur að.  Einhvernveginn finnst mér að við verðum að breyta þessum hugsunarhætti.  Fara að hlú meira að því sem við eigum og höfum og halda í það góða sem er í kring um okkur.  Það gildir alla leið. 

Eigið góðan dag elskurnar. Heart

IMG_3432


Að finna upp hjólið..... og útbreiða til annara.

Við þurfum að hlusta á það sem fólkið sem kemur að, segir okkur, er ekki sagt að glöggt sé gestsaugað?

Ég hlustaði á viðtal við umhverfisfulltrúan okkar hér í hádegisútvarpinu, eða mér var bent á þetta viðtal, þar sem ég hlusta yfirleitt ekki á hádegisútvarp Akureyri... eða þannig.  Umhverfisfulltrúinn okkar kemur alla leið frá Sviss og hann er með ýmsar hugmyndir um hvernig spara megi í fegrun bæjarins.  Þetta þarf auðvitað að fara sem víðast og við verðum í forystu með að kenna bæjarfélögum að spara í umhverfinu.  Eða eins og spyrillinn sagði svo listilega, þetta er auðvitað bara spurning um viðhorf.

 

http://dagskra.ruv.is/ras1/4525881/2010/07/22/2/

En ég er búin að starfa við fegrun bæjarins okkar nú í yfir 30 ár, eða frá árinu 1978, þegar Bolli bæjarstjóri hringdi í mig í frystihúsið og spurði  hvort ég vildi ekki taka að mér þessa tvo skrúðgarða í bænum sem báðir voru í mikilli niðurníðslu að hans mati.  Það hefði auðvitað sparað bæjarfélaginu margar milljónir ef ég hefði haft hinn framsýna umhverfisfulltrúa að leiðarljósi og bara hlúð að þeim plöntum sem uxu svo vel í beðum garðanna, þ.e. njólann, fíflana, sóleyjarnar, haugarfan, blóðarfan, hjartaarfan, hlaðkolluna, lambaklukkuna.  Því þetta er náttúrulega bara spurning um hugarfar og svo þurfa þessar plöntur ekki mikla umhirðu.  En aðalmálið er auðvitað sem ég vissi ekki, að ég hefði átt að setja upp skilti með latneskum nöfnum þessara eðalplantna, og allir hefðu dáðst að beðunum.  Ég verð því að biðja ísfirðinga afsökunar á því að hafa bruðlað svona mikið gegnum árin með almanna fé, því þó ég hafi potað niður mörgum græðlingnum og komið með blóm úr eigin garði ókeypis gegnum tíðina, þá hef ég líka keypt sumarblóm af því að ég hélt að það væri fallegt.  Einnig hef ég vogað mér að kaupa túlípana á hverju hausti og sett niður með Pollgötunni.

En nú veit ég betur.  Nú verður þetta allt gert miklu ódýrara og umhirðufrírra en hingað til.

IMG_3989

Eins og fólk sér, þá er þetta bara spurning um hugarfar og hvað sé fallegt eins og spyrillinn sagði svo listilega.

IMG_3990

Bara að endurmeta hvað er fallegt og svoleiðis.

IMG_3991

Þetta er auðvitað tilraunabeð svona til að sjá hvað þrífst best.  Því auðvitað hefur ekkert slíkt verið gert þau 32 ár sem ég hef séð um beðin.

IMG_3993

Það hefur allavega enginn fjömiðlamaður haft áhuga á því að spyrja mig um hvort yfirleitt hafi nokkuð þrifist hér við þessar erfiðu aðstæður undanfarna áratugi.

IMG_3994

En ég er náttúrlega ekki af erlendu bergi brotinn né hafði látið mér detta í hug að setja upp skilti.

IMG_3996

Reyndar tilkynnti yfirmaðurinn mér í gær að það hefði verið kvartað yfir þessu beði, það stendur við hlið fallega beðsins sem ég sýndi hér áður.  Hér hef ég notað mér í nokkur ár að leyfa baldursbrá og fjólum að leika lausum hala.  En silly mí ég hef gert þau hrikalegu mistök að týna burtu njólana, fíflana og sóleyjarnar, plús lambaklukku og hlaðkollu.  Og svo gleymdi ég að setja upp skilti og segja frá því að þetta væri tilraun.

IMG_3997

En auðvitað er svona ekki tilraun, þar sem þess er ekki getið.  Þó slíkt hafi staðið í nokkur ár, eða löngu áður en umhverfisfulltrúinn fluttist til Ísafjarðar.

IMG_4000

Þetta er heldur ekki tilraun, þar sem hér er verið að nýta apablóm, sem breiðir úr sér hratt og vel, bæði í lækjum og í beðum.  En sorrý ég gerði þau mistök að reita arfann og það sem ég hélt að væri illgresi en eru nýjustu eðalplönturnar.

IMG_4001

Enginn fjölmiðill hefur heldur sýnt áhuga á að spyrja um þetta svæði.  Þar var fyrir 25 árum síðan eða svo búið að ýta mold upp í stóra hauga og átti að flytja burt.  Ég var svo mikill bjáni að fá leyfi hjá bæjarstjóranum að láta þetta standa og planta út í það.  Mest græðlingum en líka fjölæringum úr garðinum mínum og svo flutti ég þangað tré og runna sem þurfti að rýma annarsstaðar.  Ég kalla þetta svæði Víðivelli.  Bæjarstjórinn Haraldur L. Haraldsson var sennilega jafn mikill asni og ég að leyfa þetta.   En þetta er heldur ekki tilraun, því hér er ekkert skilti né er hér listi með latneskum heitum.  Bara áhugi á að fegra og bæta umhverfið.   Það er samt rosalega halló samkvæmt nýjustu tískunni í fegrun sýnist mér.

IMG_4002

Það hafa samt einhverjir kjánar eins og skrúðgarðyrkjumenn og landslagsarkitektar veitt þessu fyrirbæri eftirtekt og jafnvel háls nef og eyrnalæknar, allavega einn sem tók mit inn síðasta af sjúklingunum og baðst afsökunar á því, en hann langaði svo að labba með mér út á þetta svæði og spyrjast fyrir, og hafði heyrt að það væri kjáninn ég sem stæði fyrir þessu.

IMG_4003

Þetta er hvorki sjálfbært né huggulegt af því að hér er verið að mismuna plöntum.  Fjarlægja njólann, sóleyna, fíflana, hlaðkolluna og slík. 

IMG_4005

Eins og sagt er, þetta bara varð svona af sjálfu sér.  Og fólk hefur ekki tekið eftir því einu sinni.  En nú veit ég betur.  Maður gerir ekki tilraunir svona þegjandi og hljóðalaust.  Maður setur niður skilti og talar við fréttamenn og allir gapa af andagt yfir fegurðinni, sparnaðinum sem af hlýst og umhirðuleysinu.

Þetta er auðvitað frábær stefna og miklu ódýrari en mín.  Mér finnst að það eigi að útvíkka þessa stefnu og leigja Umhverfisfulltrúan til annara bæjarfélaga svo hann geti messað yfir hallærislegum garðyrkjustjórum þessa lands, kristnað þá og hjálpað til að sjá ljósið. 

Það getur líka verið verðugt hlutverk fyrir útvarpsmanninn ráðagóða sem setti strax puttan á aðalatriðin í fegrun bæjarins að fylgja starfsmanninum út um landið og sýna fram á hve frábært þetta er allt saman.

Okkar maður er líka með ýmsar fleiri hugmyndir um sparnað.  Eins og til dæmis að minnka vinnu við slátt.  Þá fær maður rollu og bindur hana við staur á miðju hringtorgi, svo étur hún sig sjálf inn að staurnum og til baka aftur eftir því sem grasið vex.  Verst er að kindur eiga það til að eiga lömb á þeim tíma sem vinnan stendur yfir, og ekki er hægt að binda þau við rolluna, svo annað hvort er að setja á hana getnaðarvörn eða halda frá hrútunum á vorin.  Nú eða bara fá lánaðan hrút, hann vill hvort sem er, að mati okkar elskulega umhverfisfulltrúa, bara sofa ríða og éta. 

 

Ég sé að þessi mynd á miklu betur við hér.  Smile

IMG_3880

Eigið góðan dag elskurnar hér er sól og blíða.  Ég er búin að panta slökkviliðið til að vökva fyrir mig ef það hefur ekki rignt fyrir mánudaginn.  


Má bjóða ykkur rúnt um Djúpið að kvöldlagi?

Við hjónin skruppum inn í Heydal í vikunni, vorum að sækja Úlf sem hafði dvalið þar í góðu yfirlæti nokkra daga, Júlíana og Alejandra komu með.

Mig langar að bjóða ykkur í sólsetursferðalag um Djúpið.

IMG_3740

En fyrst þetta, grill með fjölskyldunni, þ.e. systrum mínum.

IMG_3744

Og svo vinur minn Jón Steinar prakkarinn.

IMG_3745

Við erum rosalega sæt saman.

IMG_3751

Stelpurnar mínar Júlíana og Alejandra.

IMG_3886

Og Úlfur og Júlíana.

IMG_3880

Ég held að þessi kerling sé stórhættuleg, Hells Angels eða eitthvað álíka LoL

IMG_3888

Hér er svo SelaPétur vinur minn ásamt sinni ekta spúsu, við átum þennan forláta kvöldverð inn í Heydal.  þar var mikið um að vera og maturinn var góður.  Í forrétt var grænmetissúpa eða reiktur lundi, svo var lax í aðalrétt og kaka með rjóma.  Allt smakkaðist þetta forláta vel í höndunum á Stellu vinkonu okkar. Takk fyrir okkur Stella mín.

IMG_3928

Hinn eini sanni eftirréttur var svo ferðalagi heim um Djúpið, þetta fallega svæði og veðursæla.

IMG_3932

Þvílík fegurð, þetta er auðvitað ís og eldur.  Og allt tekið út um bílgluggan á ferð ég er orðin sérfræðingur í því.

IMG_3933

Já það þarf ekki orð hér.

IMG_3938

Heldur bara njóta þessa dásamlega sjónarspils.

IMG_3939

Fegurð engu lík.

IMG_3947

Paradísin slík.

IMG_3961

Allt sama kvöldið.

IMG_3964

Eigum við ekki yndislegt land?

IMG_3973

Sem okkur ber að vernda og verja.

IMG_3975

Gegn illri vá og græðgi.

IMG_3978

eiturgufur og spúandi stóriðjur eyðileggja svona litadýrð fljótlega.

IMG_3983

get svo ekki stillt mig, þetta bú er inn í öðru gróðurhúsinu mínu, svo flott og flugurnar hamast við að laga breyta og bæta allan daginn, enda nóg af blómum og gróðri til efnistöku.

IMG_3986

Hér eru svo hænurnar mínar þær eru tvær saman um að passa 10 unga, sem þær gæta eins og sjáaldurs augna sinna, við lokuðum hanann úti með unglingnum síðan í vor, og nú er hann hættur að gogga í hana og þau bestu vinir, enda hænur frekar bráðþroska ..... eða þannig. InLove

En njótið vel mín kæru Heart


Geitungar eru komnir til að vera, fólk verður bara að læra að lifa með þeim.

Ég skil að fólk sé hrædd við sum dýr, eins og til dæmis kyrkislöngur, týgrisdýr og ljón, meira að segja moskító sem ber með sér ólæknandi sjúkdóma, eða önnur dýr sem skríða undir hún eða neglur til að verpa.

En ég get ekki skilið að fólk sé dauðhrætt við kóngulær, hunangsflugur eða geitunga.

fyrir mér eru þetta skemmtileg og falleg dýr.  Þau eru líka nytsöm þar sem þau éta í sumum tilfellum lýs og önnur leiðindakvikindi. 

Núna í tvígang hef ég þurft að skipta mér af geitungabúum í einum skrúðgarðinum.  Í öðru tilfellinu neyddist ég til að láta drepa íbúana, þar sem ég var að láta fólkið mitt gera við og mála hvalbeinið í Jónsgarði og þeir höfðu búið um sig upp í kjálkanum á beininu, og þarf þurfti að mála og fylla í.

Í hinu tilvellinu var geitunabú rétt hjá þar sem stelpurnar mínar .þurftu að gróðursetja blóm. Ég bjargaði því við með því að gróðursetja sjálf blómin, allir voru glaðir, stelpurnar að sleppa við flugurnar, flugurnar að fá blómin nær heimaslóðum og ég að bjarga þessu við.

Þær bentu mér svo á enn eitt búið, sem er virkilega flott og gaman að fylgjast með þessum tignarlegu flugum við iðju sína.

Það sem ég skil ekki er þessi ofsalega hræðsla við geitunga, bíflugur og kóngulær eins og áður sagði. Það er auðviðtað til að geitungar verði aggressífir að hausti, en allt sumarið eru þeir sauðmeinlausir og bara að hugsa um sig og sína, eins og flestir aðrir. 

Ég veit að sumir hafa ofnæmi fyrir flugnabiti, en það hlýtur þá að vera við allskonar flugnabiti mýflugna og hungangsflugna líka.   Svo við komandi verður að hafa við hendina eitthvað sem hjálpar til, því ekki er hægt að drepa allt sem í kring um mann er.

Geitungarnir eru komnir til að vera.  Eitranir hér og þar breyta litlu.  Miklu betra er að sætta sig við þessi dýr og hætta að eyðileggja góða daga af hræðslu við þau. 

eo_geitungabu01_800

Vilð erum miklu stærri og sterkari en þeir.

eo_Vespvulg060912_800

Vilð verðum bara að sætta okkur við að þeir eru komnir til að vera, nema aftur kólni og verði þannig veðurfar að þeir þrífast ekki. 

07_05_29 Geitungur 004

Svo eru þeir algjör krútt.

eo_Dolinorw030715_800

Og búa auðvitað í flottum kúluhúsum.

Það er miklu nær að læra að lifa með þessum fallegu dýrum, og hætta að vera hrædd, því hræðslan ein og sér getur eyðilegt daginn fyrir manni.  Svo má gróðursetja runna sem þær sækja í fjærsta horn garðsins, svo þeir séu ekki að þvælast alveg í grillhornunu.  Það er nefnilega pláss fyrir okkur öll og ef út í það er farið, eigum við engan álærðisrétt á náttúrunni og tilverunni... eða þannig.


Fjármögnun, fjárnám, fjárdráttur???? Hvað þýða þessi orð?

Ég hef verið í greiðsluþjónustu hjá Íslandsbanka - Glitni- og svo Íslandsbanka.  Undanfarið hef ég trassað að borga inn á reikningin sem greitt er frá, það er bara svoleiðis að eitthvað þarf undan að láta, þega rmaður er að þjösnast þetta daginn út og inn.

 

Nema hvað veltur ekki inn um bréfalúguna bréf frá Tollstjóranum í Reykjavík.  En því embætti hefur verið greitt Bifreiða og úrvinnslugjald sem tekið hefur verið út af mínum reikningi í 3 ár. 

 En bíðum nú við!  Reikningurinn er stílaður á SP fjármögnun, en beinist til mín.  Þetta er svo sem ekki há upphæð eða um 10 þúsund kall.  En ég fór að hugsa ég las nefnilega á bakhliðina á seðlinum.  Þar stendur:

Bifreiða og úrvinnslugjald:

Greiða skal til ríkisstjóðs bifreiðagjald og úrvinnslugjald af bifreiðum sem skráðar eru hér á landi.  Gjöldin skal sá greiða sem skráður er eigandi á gjalddaga.  Upplýsingar um álagningu gjalddaganna veitir ríkisskattstjóri. Upplýsingar um greiðslustöðu og innheimtu veitir Tollstjórinn í Reykjavík, en sýslumenn utan Reykjavíkur.

Þetta vekur upp ýmsar spurningar.  Ekki það að auðivitað á ég að greiða þetta.  En í fyrsta lagi getur verið að ég borgi þetta gjald tvisvar?  Þ.e. að fyrirtækið rukki mig líka um þetta gjald innifalið í afborgunum.    Í annan stað hvernig getur ríkisstofnun látið taka út af reikningnum mínum eitthvað sem er skráð á annann aðila?

 

Ætli það þurfi ekki að fara að taka til í pappírsskóginum, og skoða allar hliðar á fjármögnunarfyrirtækjum og starfssemi þeirra.  Þar gætu legið nokkar þúsund millur, sem kæmu sér vel í ríkiskassann, eða eru fjármögnunarfyrirtæki heilagar kýr sem ekki má hrófla við.

 Hvað er í gagni, meðan gengið er að síðasta aur verkamannsins, þá er ekkert gert í að skoða svona lagað. 

Og að lokum fróðlegt blogg um starfsemi fjármögnunarfyrirtækja.

Er ekki komin tími til að skoða fleiri hluti en hvort einhverjir atvinnuleysingjar starfi svart, eða hvort iðnaðarmenn fari fram hjá kerfinu?  Það er endalaust goggað í Litla Jón og Gunnu, en þeim stóru leyft að fara sínu fram. Það er von að fólk sé orðið reitt og pirrað.

http://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/1054379/

En nú er ég farin út í banka að leggja inn á reikningin svo einhverjir aðilar út í bæ geti tekið peningana mína út og greitt einhverjum öðrum......... eða þannig.  


Nokkrar myndir undir svefninn.

Hér koma nokkrar myndir frá heimsókn Arnar Milos, pabba hans og mömmu. 

IMG_2639

Tjörnin er auðvitað málið, eins og alltaf.

IMG_2648

Faðir og sonur áhugasamir um bjórframleiðslu, svona eðaldrykk.

IMG_2654

Og himnadísin lítur yfir hópin og sér að allt er í lagi hjá okkur.

IMG_2659

Næstmest spennandi er auðvitað mölin sem afi setti við uppganginn, af því að hann ÆTLAÐI að helluleggja og setja tröppur hrmm...

IMG_2662

Skottið á pabbabíl getur líka verið spennandi kostur ef stóri frændi er með í leiknum

IMG_2667

Já maður gerir eiginlega allt eins og stóri frændi.

IMG_2670

Sitja í grasinu.

IMG_2677

Gera við reiðhjólið.

IMG_2713

Alveg á bólakafi í læknum og svona.

IMG_2738

Ræða málin við Snúð.

IMG_2755

Að fara í sund á Suðureyri er líka algjört must.

IMG_2767

Afi þarf að reyna kraftana.

IMG_2764

Líka stóri stubbur

IMG_2770

Og auðvitað litli stubbur.

IMG_2780

Svo var ákveðið að gera holusteik, og þá þurfti að grafa nýja holu, sú gamla er löngu yfirvaxin af gróðri.

 

ég get örugglega gert þetta miklu betur.

IMG_2785

Ekki málið.

IMG_2739

Þessi mynd var tekin fyrir mánuði síðan og enn er sama blíðan.

IMG_2790

Afi átti afmæli 18. júní og auðvitað fékk hann gjöf og aðstoð við að pakka henni upp.

IMG_2794

Ætli holan sé orðin nógu stór?

IMG_2801

Brandur telur að best sé að vera "on the save site"

IMG_2807

Hér eru Júlíana og Alejandra við buðum þeim og fjölskyldunni frá El Salvador í mat.

IMG_2818

Þessi yndislega fjölskylda mín er afar trúrækinn og hér er beðin borðbæn.

IMG_2821

Og síðan sest að snæðingi. 

IMG_2826

Sigurjón Dagur og Arnar Milos voru góðir saman.

IMG_2833

Gamla brýnið ykkar einlæg, með Arnar Milos og Júlíönu.

IMG_2838

Elskulega tengdadóttirin okkar og litli kúlubúinn, sá næsti í heiminn.

IMG_2839

Þetta er ekki í myrkum skógum El Salvador heldur íslensk heimkynni og fósturjörðin þeirra í dag.

IMG_2848

Svo kemur að kveðjustund.  Júlíana var að fara suður.

IMG_2858

Og þær kveðjast frænkurnar og vinkonurnar.  Reyndar eru þær hér hjá mér í nótt báðar tvær.

IMG_2863

Fallegu börnin okkar og lítill kúlubúi.

IMG_2869

Öll fjölskyldan.

IMG_2884

Her er svo stubbur með tvo afa.

IMG_2890

Ísbíllinn kemur annan hvern laugardag, og hann kom einmitt í dag, en hér fær Arnar Milos að kaupa ísinn.

IMG_2892

Nammi namm.

IMG_2899

Snúður lætur sér vel líka að fá athygli.

IMG_2903

Við fórum svo auðvitað í Neðsta Kaupstað til að smakka hinn landsfræga fisk hjá Magga og Rönku.

IMG_2908

Meiriháttar matur hjá þeim sumarlangt.  Fólk kemur fá öllum heimshornum að smakka matinn, og við fengum ekki einu sinni að borga matinn.  Það var allt í boði Júlla míns, blessuð sé minning hans.  En þarna átti hann sínar bestu stundir.

IMG_2909

Innilega takk fyrir okkur.

IMG_2911

Ég held að þessi staður eigi sér fáa líka, af gæðum og yndislegu fólki sem er í senn afslappað og sérlega góðir kokkar.

IMG_2924

Og svo afi og stubbur.

IMG_2878

Hér er hún Lóa, ég hef tekið eftir því að nú eru hér stærri kóngulær.  Með stærri vefi allt vegna þess hve miklu betra veðurfar er hér meiri hiti og meiri sól en áður.

En ég læt þessari myndasýningu lokið í kvöld.  Eigið góðan dag framundan á morgun, og ég á eftir að setja inn myndir fra tveimur ættarmótum og fleiru.

En mér líður vel í dag, þó mér líði öðruvísi en áður.  Það hefur eitthvað breyst inn í mér, sem gerir mér bæði kleyft að taka á fleiri málum, og hugsa meira um sjálfa mig en ég gerði áður.  Skrýtið hvernig sorgin breytir manni.  Ég er svona að átta mig á því hvað það þýðir að læra að lifa með.......

Segi svo bara góða nótt. Heart


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2010
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband