Ísafjarðarveður, litlu andarungarnir, lítill ökumaður og minnsta listgallerí hér allavega, og þó víðar væri leitað, plús mjög sérstök listsýning.

Já veðrið hér hefur verið dálítið dumbungslegt svona á morgnana, en þó rofar til þegar á daginn líður.

IMG_9147

Svona var þetta fyrst í gærmorgun.

IMG_9148

Svo fór að rofa til.

IMG_9151

Og svo skein sólin.

En þessir litlu ungar voru í reiðuleysi upp á Seljalandsvegi alla leið, hvar var mammann.

IMG_9143

Og kötturinn lá bak við tré og sleikti út um.

IMG_9145

en sem betur fer kom mamma og leiddi ungana sína í burtu frá hættunni, og hún var ekki árennileg fyrir feitan latan kött, eins og Brand.

IMG_9149

Niður á Torgi var önnur ungaamma, með sinn unga, sem vildi prófa að aka þessum gamla bíl.

IMG_9150

Bjarndís, með sinn unga. Heart Þetta var nú aldeilis sport að fá aðeins að setjast upp í bílinn hans Árna bakara.

En í dag kl. 4. verður opnuð ansi skemmtileg og óvenjuleg listsýning, niður við tjöruhús.  Í litlu fiskabúri.  Þar mun sonur minn Júlíus opna sýningun kl. 4.  Hann á reyndar líka afmæli í dag þessi elska, ég er alveg rosalega hrifinn af þessum steinfiskum, sem hann gerir svo fallega.

IMG_9152

Þeir eru líka tilvaldir í allskonar gjafir.

IMG_9154

en sjón er sögu ríkari, svo ég hvet fólk til að leggja leið sína niður í gömlu safnahúsin og skoða þessa einstöku sýningu.

IMG_9157

Innilega til hamingju með þetta Júlli minn.  Og til hamingju með afmælið.  Heart


Dýrafjarðardagar.

HeartÞað fór fyrir mér eins og kerlingunni, sem fór út í búð til að kaupa brauð, og kom svo heim með allt nema brauðið. W00t

Ég fór á Þingeyri, til að sjá einleik, það var fólk að bíða við félgsheimilið, og þegar ég leit inn, voru menn að gera klárt fyrir sýninguna.

IMG_9099

Og fólkið beið fyrir utan eftir sýningunni.

IMG_9097

Þar á meðal einn flottur víkingur

IMG_9100

Í fullu skrúða. 

En svo ætlaði ég rétt að skjótast niður í bæ til að drepa, eyða, klára, vinna tímann hehehehehe, og þegar ég kom til baka, var bara allt yfirstaðið.  Ég vona að mér fyrirgefist það.  En ég er ákveðnari nú en nokkru sinni að fylgjast betur með þessu frábæra fyrirbæri Act alone á næsta ári. 

IMG_9070

Svona var veðrið í morgun, dálítið dularfullt og þoka.

IMG_9071

Hitinn dregur þokuna inn til landsins, og svo er spurning um hve duglegt sólin er að hrekja þokuna burtu.

IMG_9072

Þessi prinsessa kom til mín í gær að kaupa blóm, hún var einmitt að dansa á Act alone hátíðinni. Náttúrubarnið Anna Sigga.

IMG_9073

Flottust, og í prinsessukjól, þar sem hún kom beint úr dansinum, til mín. Heart

IMG_9076

Og lyngrósin mín, Catavbiens Grandiflora er að blómstra, ég get svo svarið það, hún er líka flott og fíin.

IMG_9084

Brandur er líka svona í einleik.  Elvar Logi heldurðu að hann fái ekki hlutverk í næstu hátíð ?LoL

IMG_9087

Þetta gerir náttúrulega endanlega út um hve mikill skapgerðarleikari hann Brandur er sko Happy

IMG_9088

En skemmtiferðaskipin eru byrjuð að koma, og ég hugsa að farþegar og áhöfn á þessu skipi, nálgist að var sama tala og íbúarnir hér. Smile

IMG_9089

Svona var útlitið fyrst í morgun.

IMG_9091

Og hér liggur óvættur yfir húsunum á Ísafirði, hann breiðir út sína köldu vængi, og þyrmir yfir íbúana.  Svona þarf að særa í burtu sem fyrst.

IMG_9092

Sjáið svo hvað er að gerast hér í Hnífsdal, þarna eiga göngin að koma til Bolungarvíkur, og það er bókstaflega verið að ryðja niður öllum jarðvegi á svæðinu, þetta eru hrikalegar gjörðir.

IMG_9094

Ekki kæmi mér það neitt á óvart, þó þessi bíll stæði í beinu sambandi við Act alone hátíðina.  Flottur er hann.

IMG_9095

Hér blasa vestfirsku alparni við.  Hrikaleg fegurð, og þarna kúrir Þingeyri undir Sandafellinu.

IMG_9096

Já við erum nefnilega komin á Dýrafjarðardaga.

IMG_9102

Þar er náttúrlega mikið um dýrðir og hoppikastalar fyrir börnin, sem ekki létu sitt eftir liggja.

IMG_9104

Og hér erum við komin í Víkingabúðir.  En hér eru þeir staðsettir.

IMG_9105

Best að fara að þeim með gát.  Reyndar eru þeir elskulegt fólk, þegar nánar er að gáð.

IMG_9109

Hér er verið að baka klatta upp á gamla móðinn.

IMG_9113

Og járnsmiður að berja til járn, með fýsibelg, þessi ungi maður var til þess ráðinn að pumpa belginn.

IMG_9115

Margir fallegir gripir voru hér á boðstólum, meðal annar rúnir og verndargripir.  Allt heimagert og fallegt.

IMG_9116

Svo og prjónales og slíkt.

IMG_9124

Mitt í öllu þessu frábæra íslenska efni, var svona suðræn rós, með ljúfan blæ frá fjarlægu landi.

IMG_9126

Flott stelpa, með flottar peysur.

IMG_9128

Allt heimagert og handskorið.  Maður fyllist aðdáun á verklagni og listfengi þessara ágætu kvenna, sem hér voru með sínar vörur.

IMG_9129

Alveg sama hvar borið er niður.  Það er virkilega gaman að þessu.

IMG_9130

Hér var sko verið að baka vöfflur, og ekki var betur séð en að menn kynnu vel að meta afturðirnar.  Þær eru flottastar.. Heart

IMG_9131

Og svo kvenfélagið að selja kökur.

IMG_9134

Já Dýrfirðingar tóku allir þátt, og það var virkilega gaman að koma þarna við og skoða það sem á boðstólum var.  Ég sá lika fullt af ísfirðingum, sem þarna voru að sækja heim Dýrafjörð, og upplifa skemmtunina með heimafólki.

IMG_9135

Varð að setja þessa mynd inn, eitthvað svo þríeykisleg. LoL

IMG_9136

Ef mér skjátlast ekki því meir, ætti margir að kannast við þessa fallegu stúlku.

IMG_9139

Og sumir vildu einfaldlega bara fara á hestbak, það er gott að riða út á þessu svæði.  Enda nóg um reiðleiðir.

IMG_9140

Þá var komin tími til að yfirgefa Þingeyri og Dýrfirðinga.  Það var virkilega gaman að líta við. Kæra þakkir fyrir mig elskulega fólk.  Og til hamingju með þessa Dýrafjarðardaga. Heart

IMG_9141

Og maran hvílir ennþá yfir Ísafirði, svei mér þá.

IMG_9142

Mitt í allri þenslunni og erfiðleikunum, er hér að rísa stórbyggð.  Þar ríkir stórhugur og enga áhyggjur af lánum, eða vaxtavöxtum.  Hér ríkir gleðin ein.  Bara að við lærðum að lifa eins og börnin, að láta hverjum degi nægja sína þjáningu.  Segir ekki einhversstaðar; verið eins og fuglar himinsins, ekki safna í kornhlöður, heldur látið hverjum degi nægja sína þjáningu.  Allt það sem þið eigið hér á jörðínni getið þið ekki farið með ykkur yfir á hinar endalausu veiðilendur. Þangað farið þið bara með ykkur sjálf....... eða þannig var inntakið, og hugsunin.  Elskuleg mín, ég átti yndislegan dag, og það var svo gaman að fara og sjá og upplifa þetta frábæra fólk og það sem það var að gera.  Ég segi bara takk fyrir mig.  Það er svo margt sem er að gerast allstaðar kring um landið, hugvit, verksvit, kærleikur og samfélög sem virka.  Það gefur manni trú á mannkynið að upplifa það.  Takk fyrir mig.


Act alone.

Ég er næstum búin að missa af þessari einstöku hátíð, sem bloggvinur minn Elvar Logi Hannesson stendur fyrir. 

Hér eru nokkrar uppákomur sem hafa lifað lengi, og fengið sinn sess á Ísafirði.  Þar skal fyrst nefna Skíðavikuna, sem var og er í höndum skíðafélags Ísafjarðar, svo voru hér lengi siglingadagar, hjá Sæfara, en hafa því miður lagst af, þar voru allskonar sjóíþróttir í hávegum hafðar. Vonandi byrja þeir aftur á þeim af krafti.  Svo er Óshlíðarhlaup, sem var held ég á síðustu helgi, á vegum HSV held ég.  Aldrei fór ég Suður hátíðin, sem Mugison og faðir hans hafa staðið fyrir ásamt dyggum stuðningsmönnum. Hliðarvegspúkamót er líka skemmtun sem haldinn er árlega, og var startað af fólki sem ólst upp á Hlíðarveginum, Upphafsmaður þar held ég var Bjarndís Friðriksdóttir orkubolti.

 Act alone hátíðin er mjög merkilegt fyrirbrigði, því hún er einsdæmi á Íslandi.  Vika einleikja, leiklistarveisla.  Elvar Logi á heiður skilinn fyrir að koma þessu verkefni á koppinn.  En það er bara þannig að það er ekki nóg að hefja veisluna, gestirnir þurfa að sýna það, að þeir vilji mæta í partýið.  Ég vona svo sannarlega að vel hafi verið mætt á sýningarnar. Ég bara var svo þreytt og illa fyrirkölluð, að minn tími fór í allt annað.  En ég ætla að bæta úr því, ég er ákveðin í að fara til Þingeyrar og horfa á sýningu sem þar verður í félagsheimilinu.  http://www.actalone.net/index.phtml?t=news&a=show&id=95 Sjá hér.  Ég ætla líka að lofa sjálfri mér það, að taka meira þátt í þessu á næsta ári.  Því svo sannarlega vona ég að þessi frábæra skemmtun haldi áfram. 

Nú standa yfir Dýrafjarðardagar, í Dýrafirði, glæsilegt framtak Dýrfirðinga, markaðsdagar í Bolungarvík, þeir hafa líka sína ástarviku í ágúst, næstu helgi verður svo Sæluhelgin á Suðureyri, þar er alltaf mikið um dýrðir, og svo er hátíð á Flateyri.  Þeir hafa haft grænlenska daga, og grilldag, sem var á síðust helgi.   

Elvar Logi, hafðu þökk fyrir þitt frábæra framtak.  Ég set ef til vill inn myndir hér seinna í dag. 

Knús á ykkur inn í daginn.  Það er velkomið að bæta við ef ég hef gleymt einhverju. SmileHeart

 


Ungverjaland - ferðalok.

Ungverjaland, síðasta færsla lokadagur.

IMG_7697

Lokadagurinn rann upp bjartur og fagur.  Allt tekur enda um síðir, líka ferðalög.  En minningin situr eftir og yljar.  Það er líka gaman að hitta samferðafólkið, skiptast á þakkarorðum, og rifja upp ýmislegt skemmtilegt sem gerðist.  Það er líka partur af svona ferð.

IMG_7698

Þessar myndir voru teknar af svölum herbergisins sem við dvöldum á í Szeget.

IMG_7700

Búið að pakka niður, og allir að gera sig klára.  Ég sá að sumir keyptu sér aukatöskur í Coru hehehe... Þannig að einhverjir hafa keypt sér meira en þeir ætluðu.  Hef grun um að þar séu dúkar og aðrar hannyrðir flottar sem hafa átt sinn þátt í því.

IMG_7704

Þeir sem voru tilbúnir á undan, gátu slakað á í góða veðrinu, og haft það náðugt, meðan þeir sem voru á síðasta snúning við að loka töskunum, bisuðu við það.  Svona er þetta í stórum hópi, sumir eru fyrstir og aðrir síðastir.

IMG_7705

Hér er Vilberg Viggósson og Agata Jo, þau búa að hluta til hér í Szeget, en eru heima á veturna.

IMG_7711

Við erum lögð af stað út á sléttuna miklu, þangað sem Ungverjar komu fyrst til frá Mesópótamíu, og settust að, hröktu heimamennina burtu.  Sem er aðal ástæðan fyrir því, að þeir eru málfarslega einangraðir á þessu svæði, eða mál þeirra ekki skylt neinu tungumáli nema Finnsku.

Hér er leiðbeiningarprestur á Paprikusafnið þeirra, ég komst að vísu ekki þangað.  En þeir eru miklir paprikuræktendur, og paprikan þeirra alveg sérstök, ég keypti mér eina dollu, sem ég spara og nota bara í sérstökum tilfellum.

IMG_7714

Tók þessar götumyndir út um bílrúðuna.  Það eru mörg falleg hús hér.

IMG_7717

Skreytt á ýmsan hátt, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu LoL

IMG_7721

Hér eru erfðir frá Sovét tímanum, þá var hrúgað upp svona blokkum, sumar þeirra halda hvorki vindi né vatni, allir áttu að eiga þak yfir höfuðið, en þar var ef til vill hvorki vatn né klósett.  Maður heyrir á Ungverjum að þeir vilja helst gleyma þessum tíma, og þeir hugsa ekki hlýlega til rússa, svo mikið er víst.

IMG_7725

Hugsið ykkur fyrir svona 15 til 20 árum, hefði svona skilti ekki verið hér.  Þá tók fleiri mánuði að panta sér bíl.

IMG_7727

Við erum komin út á sléttuna miklu, út úr borgarysi og þysi.

IMG_7728

Vörufluttningabílar mega ekki aka um hraðbrautirnar frá föstudagskvöldi til mánudagsmorguns. Þá verða þeir bara að stoppa og bíða við vegastoppistöðvar. 

IMG_7730

Hér úti í sveitinni býr Jóna Guðvarðardóttir keramiklistamaður, þau hjónin reka hér listaskóla, sem fólk sækir allstaðar að út heiminum. 

IMG_7742

Ég er ekki viss um hvort þið trúið mér eða ekki, en kantar hraðbrautarinnar hér, sem er aðalæðin gegnum Ungverjaland, er sleginn beggja vegna, og það handsleginn og rökuð. Það eru að mestu sígaunar sem sjá um þetta, og er einskonar atvinnubótaviinna.

IMG_7743

Það eru sumstaðar engir smáfletir.  Og hér eru líka ávaxtatré, sem þarf að slá kringum. Sem eykur enn á vinnuna.  Þetta er allt slegið  með orfum.

IMG_77271

Þetta er ekki geimskip, heldur vatnstankur, það kom fram að þetta er ungversk uppfinning, sennilega er borað niður á vatn og svo hárpípukrafturinn látinn draga vatnið upp í kúluna.  En unverjar eru miklir uppfinningamenn, vissuð þið að það var ungverji sem fann upp tölvuna ?

IMG_7749

En við erum komin á hestabúgarð.  Það sem við ætlum að sjá knapa sýna listir sínar.  En Ungverjar eru miklir hestamenn.

IMG_7750

Hér erum við boðin velkomin. Þessi blái litur er þýðingarmikill á þessu svæði.  Liturinn þeirra.

IMG_7755

Það er byrjað á snafsi.  Örugglega rótsterkum W00t og einskonar skonsum, nýbökuðu brauði.

IMG_7759

Fallegir búningarnir þeirra.  Dæmigerður túristastaður ef til vill ???

IMG_7762

Glæsilegir bæði knapi og hestur.  Hvað ætli þeir kunni svo fyrir sér, sem er þess virði að stoppa við og skoða ?

IMG_7767

Jú það var byrjað á ökuferð.

IMG_7771

Upp á gamla móðinn.

IMG_7774

Áfram veginn í vagninum ek ég!!!, ef þið haldið að ökumennirnir hafi eingöngu verið karlkyns, get ég upplýst að okkar ökumaður var kona.

IMG_7776

Í þessum vagni eru sko engar smástjörnur, skal ég segja ykkur hér eru mama og papa Mugison, Kristján tíundi konungurinn, og svo Finnbogi Ósvarargoði. 

IMG_7780

Hér eru nokkrir af samferðamönnunum í sínum vagni.

IMG_7786

Síðan sýndu þeir hestarekstur.  En hitinn var svo mikill að við vorum sveitt undir sjálfum okkur, hvað þá svona hasar og læti.

IMG_7792

Þetta voru heldur engar truntur, heldur skapmiklir hestar, þessi reyndar bakkaði einn félaga okkar niður bóndann úr botni.  Sem betur fer meiddst hann ekki, og myndavél og filma slapp líka ósködduð.

IMG_7802

Ég var að tala um hita. Hvar fá þessi menn orku til að hlaupa svona.  Þeir klæða ef til vill af sér hitan með þessum fatnaði.  Ætli þessi blái litur hrindi svona vel fré sér hitanum ?

IMG_7805

Þetta er forn listgrein hjá Ungverjum.  Það var sannarlega glæsilegt að sjá hann standa svona á þeysireið um völlinn.

IMG_7808

Það var líka sýndur gamaldags ferðamáti.  Ætli þeir hafi ekki komið svona búnir út á sléttuna miklu.

IMG_7809

Jamm ég er nú bara asni, en ég fær að vera með.  Ég er ef til vill ekki eins glæsilegur og þessar truntur, en ég stend þó undir nafni sem asni. Cool

IMG_7890

Og það sem asni þarf að leggja á sig til að fá að vera með, ÚFF!

IMG_7816

Enginn smá ferð á þessum gaur, úff það mætti borga mér mikið til að þora bara að standa svona með hestana kyrra.

IMG_7825

Svona ferðuðust menn í gamal daga, og geta ennþá farið í smáhesta reiðtúr, en oftast með bara tveimur hestum.  Í flestum borgum, Vín, Budapest, Kraká, Manhattan og mörgum fleiri stöðum hef ég séð glæsilega hesta og kerrur, sem manni býðst að láta aka sér. 

IMG_7829

Þeir eru með þessi svakalegu keyri, sem þeir láta smella aldeilis hátt í, rétt við nefið á hestunum, það er alveg ótrúlegt hvað skepnurnar kippa sér lítið upp við þessa háu smelli, rétt við eyrun á þeim.  Ég er farin að hallast að því að þetta sé enginin venjulegur túristastaður, heldur ekta mannlíf og mikil þjálfun.

IMG_7832

Já ég hafði rétt fyrir mér.  Leggstu góði minn.

IMG_7836

Ég ætla aðeins að tylla mér.

IMG_7837

Og standa svolítið hehehehe.

IMG_7842

Og svo að rúlla !!

IMG_7843

Já rúlla aðeins meira.

IMG_7846

Svona karlinn og svo sitja pent.

IMG_7848

Góður strákur !!

IMG_7849

Og þetta var ekki bara einn hestur, heldur hópsýning, því þeir gerðu þetta allir.  Og takið eftir þeir ríða berbakt, og það var stundum alveg þeysireið. Flottir knapar, og þeir þurfa greinilega að þekkja hestana sína út og inn.

IMG_7867

Hér sýnar þeir keyrin, og það smellur hátt.

IMG_7875

Ég sagði ykkur það, ég get líka. Ég er ef til vill ekki jafn glæsilegur og trunturnar, en ég er samt flottastur.

IMG_7877

Ligg alveg grafkyrr. Bannað að horfa á magan á mér.

IMG_7878

Sko ég get þetta allt saman.

IMG_7879

Sjáiði bara hvað ég er klár... nei ég meina asni... nei ég meina.... var ég ekki að banna ykkur að horfa á magan á mér !!!LoLHeart

IMG_7883

Áhorfendur fengu svo að prófa að smella keyrinu, og snerta flösku svo hún detti, geti þeir það, fá þeir vínflösku að verðlaunum.  Nokkrir gátu þetta reyndar, hér er hún Ása Gríms að spreyta sig, en aðalatriðið er að þora og vera með.

IMG_7887

Takið eftir uxunum, þetta er kúakynið sem er upprunalegt í Ungverjalandi.  Þeirra kýr og uxar.

 

IMG_7896

Svo bar boðið upp á Ungverska Gúllassúpu svona ekta, með mikilli úngverskri papriku, sem gerir rétta bragðið, og svo sígaunamúsik.

IMG_7897

Það var tekið hraustlega til matarins, enda verður maður fljótt bæði þyrstur og svangur í svona hita. aðallega þyrstur þó Wink

IMG_7903

Svo átti Anton heilbrigðis.. afmæli og það var sungið fyrir hann afmælissöngurinn og skálaði við piltinn.

IMG_7906

Og Sigga Lúlla elskuleg mín átti líka afmæli, og það dugði ekkert minna en að karlakórinn færi allur upp og syngi fyrir hana.

IMG_7905

Þeir tóku svo nokkur fleiri lög.  Við mikinn fögnuð annara hópa sem þarna voru líka.

Tóku meðal annars Viva tutte le vezzose.

IMG_7909

Og hér eru viðbrögð ítalanna.  Eins og ég sagði hér fyrr.  Fólk verður alltaf svo hrifið, þegar sönghópar og aðrir syngja á þeirra máli, eða lög frá þeirra þjóðum. Þar talar söngurinn sitt eigið tungumál.

IMG_7910

Ég er ekki viss um að við gætum haft svona sumarblómabeð hjá okkur, ekki ennþá allavega, það kemur ef til vill að því, með hækkandi hitastigi. Ég er þar aðallega að tala um colusana. Begoníurnar duga sennilega hér yfir sumarið.

En þá var komin tími til að yfirgefa þennan fallega stað, og halda áfram til flugvallarins.  Dýrðarinnar ferðalagi var um það bil að ljúka.

IMG_7913

Á flugvöllum tekur alltaf þetta sama við, biðraðir innskráningar og svo tékk.

IMG_7914

Svo er hægt að slaka á og fá sér bjór, eða rauðvín.

IMG_7915

Allt undir kontról, og allir klárir í flugvélina.

IMG_7916

Þetta er dæmigerð flugvallarmynd ekki satt.

IMG_7917

Og hver tekur svo á móti okkur brosandi og sætur, ekki inn í skáp og ekki í svörtum fötum ? Og þjónaði okkur alla leiðina heim, svo yndislegur og flottur, ásamt samflugfreyjum sínum.  Ætli hann hafi verið látin fjúka ?

IMG_7919

Dálítið öðruvísi landslag og gróðurfar.  En þetta er Ísland, meira að segja Vestfirðir, meira að segja Ísafjarðardjúp, og turnarnir tveir, eru kranar sem halda ég veit ekki hvað mörgum tugum tonna, og eru notaði við að byggja brúna yfir Mjóafjörðin, til að stytta leiðina út í Reykjanes perluna okkar.  En ég hef ekkert minnst á heita vatnið í Ungverjalandi, þeir hafa nefnilega heitt vatn eins og við, og elsta borhola eftir heitu vatni er einmitt í Bútapest, og böðin þeirra eru fræg.  Það er margt sameiginlegt með þessum tveimur löndum og íbúum þeirra, þó þau liggi ekki saman, sagan, heita vatnið og jafnvel fólkið.

En hér með lýkur þessari ferðasögu, ég vona að þið hafið haft gaman af henni og jafnvel einhvern froðleik. 

Eigið góðan dag elskurnar og takk fyrir hvað þið eruð elskuleg alltaf hreint við mig.  Knús á ykkur inn í daginn. Heart 


Kveðjustund í bili, og ung hæfileikarík hannyrðakona verður á vegi mínu.

Jæja hér sit ég með trega í hjarta, og stelpulaus.  Strákarnir farnir í sund.  Þær fóru til pabba síns í dag.  Jurga fór suður, ætlar að fara heim og sækja dóttur sína, en miðinn hennar rennur út þann 7. júlí.  Það var því afráðið til að bjarga málum að telpurnar færu til pabba síns í nokkra daga, eða þangað til mamma kemur heim með Norrænu.  Svo koma þær heim aftur. 

En það er hálf tómlegt í kotinu.  En friðsælt.  Og ég þarf aðeins að venjast frelsinu.   Ætla að vera dugleg meðan þær eru í burtu, að gera það sem gera þarf, bæði í vinnunni og hér heima.  Heart

Svo verður pabbi minn níræður þann 4. ágúst, og við börnin hans ætlum að sjá um að gera honum daginn sem glæsilegastan.  Hann á allt gott skilið hann pabbi minn. 

En veðrið leikur við okkur núna, það var 24 stiga hiti, plús á Suðureyri í gærdag, veit ekki hér réttu töluna, en hún var svipuð.  Það var líka hlýtt og yndislegt hér í dag. 

IMG_9057

Svona var veðrið í morgun.  Gamalkunnug mynd ekki satt ?

En ég hef afskaplega lítið haft orku til að taka myndir, hvað þá gera neitt annað.  Svona veikindi barna taka frá manni alla orku, og allt sem er umfram, en það gefur manni samt svo mikið, því ég finn hvernig kærleikurinn til þeirra túttnar út, og umvefur þær.  Heart

Vonandi líður þeim vel hjá pabba sínum, hinni ömmunni og afanum.

IMG_9040

Þessi mynd var tekinn daginn áður en Hanna Sól veiktist.

IMG_9041

Hér er svo Óðinn Freyr í heimsókn, hann er fjörkálfur hinn mesti, en er nú líka orðin lasinn eins og Þær.

IMG_9046

Upp með hendur, varist hryðjuverkamanninn Óðinn Frey... hann er sko hættulegur.

IMG_9052

Best að fara út og skjóta eitthvað hehehehe.... Búin að fá nóg af veikindunum.

IMG_9059

Búin að greiða sér fyrir ferðalagið til pabba. 

IMG_9064

Æ æ æ erfitt líf, þegar maður er svona lasinn. Heart

IMG_9065

Stúrin og nývöknuð, rétt áður en halda skal út á flugvöll. Heart

En ég fékk líka góða gesti.  Vinkona mín frá Þingeyri kíkti við í kaffi, fékk reyndar bara vatn, þar sem ég sat með litla stýrið föst.   Og svo hann Samson, sem líka er frá Þingeyri, Samson er garðyrkjumaður og kennari við Garðyrkuháskóla ríkisins.  Hann kemur oft hér við og við spjöllum um plöntur, og hann skoðar garðinn minn og tekur myndir af áhugaverðum plöntum.  Það er gott að fá kollegana í heimsókn og spjalla um plöntur.

 IMG_9061

Málið er að dóttir hans var með í för, og hún, þessi 12 ára stúlka sat og heklaði, meðan við töluðum saman.  Mér fannst það svo sérstakt.  Hún er mikil hannyrðakona, sagði hinn stolti faðir, og hún prjónar líka húfur og töskur, hún ætlar að selja nokkrar á Þingeyrardögum, ef einhver vill kaupa.

Endilega sýndu mér það sem þú ert að gera, sagði ég.  Og jú viti menn, þetta er aldeilis frábært af 12 ára stelpu ekki satt. Hér fyrir ofan er hún með trefil sem hún er að hekla.

IMG_9063

Skemmtilegur ekki satt ?

IMG_9066

Hér er hún svo með húfur sem hún hefur sjálf prjónað.  Flottar finnst mér.

IMG_9068

Hér er svo taska sem hún hefur gert.  Það er virkilega gaman að hitta svona unglinga, sem eru svona frábær og gera svona skemmtilega hluti.  Þetta er frá ömmu hennar, sagði Samson.  En enginn amma í heiminum gæti kennt einhverjum, ef hún væri ekki svona frábær sjálf, og áhugasöm.

En enn og aftur takk fyrir mig.  Ég vona að ég geti á einhvern hátt endurgoldið ykkur það góða sem þið hafið gefið mér.  Það er ómetanlegt að finna hve þið hugsið til mín og hafið jafnvel áhyggjur af mér.  Það gefur mér alveg heilmikið.  Og núna ætti ég að geta farið að fara minn blogghring og huga að ykkur.  Það gefst allavega meira næði, meðan litlu trillurnar mínar eru í annara manna höndum.  Knús á ykkur öll og takk fyrir mig enn og aftur. Heart


Tíminn er afstæður, bara spurning um hvernig maður eyðir honum. Það er ekki hægt að spara hann.

Þakka ykku öllum innlitið og kveðjurnar.  Ég hef ekki komist eitt eða neitt, undanfarna daga, því litla skottið mitt hún Ásthildur hefur verið svo lasinn.  Ég fór með hana til læknis í gær, og það kom í ljós að hún hefur fengið strectocokkasýkingu, eða hvernig sem það er nú annars skrifað.  Við erum búnar að vera eins og samlokur núna í þrjá daga.  Ég má helst ekki fara frá henni, og hún finnur á sér ef ég ætla að læðast fram úr eftir að hún er sofnuð.  Enda eftir þessar andvökunætur, hef ég reyndar ekki orku í að læðast eitt eða neitt InLove

Það er því lítið um myndir og svoleiðis.  En samt smá, svona þegar maður hefur haft smátækifæri.

IMG_9030

Þessi var tekinn fyrir fáeinum dögum, síðasti alvöru sólardagurinn í bili, svo fór að rigna, en það kom sólarglæta í dag.  Það spáir svo bongóblíðu seinnipart vikunnar.

IMG_9019

Við Hanna Sól fórum í leikskólann í morgun, bara við tvær, því Ásthildur komst ekki.

IMG_9020

Hér stendur hún fyrir utan dyrnar á stofunni sinni.  Hún er í lambahópnum, segir hún.

IMG_9023

Sæt og fín, eins og venjulega.

IMG_9022

Þessi elska aftur á móti hefur verið sárlasinn og ég hef orðið að sitja með hana meiri partinn úr deginum.  Sem betur fer hefur Jorgu stundum tekist að létta mér lífið, og svo afi.  En maður er hræðilega bundinn með svona lítið lasið krýli. Heart

IMG_9029

Hún hefur ekkert gerað borðað nú í þrjá daga, bara drukkið vatn, og djús.  En hana langar í mat.  Enda matkona mikil, þessi elska.  Og svo verður hún svo pirruð, þegar henni líður svona illa, en hvað ég skil hana vel.

IMG_9037

Þetta er óttalega leiðinlegt og vont, að fá svona síkingu í munn og háls.  Sem betur fer er hún með rétt meðöl, en henni finnst vont að taka þau inn.  Og svo fær hún stíla, til að hvílast. Við höfum vakað saman, mestmegnis síðustu þrjár nætur.

IMG_9039

Ég held samt að við séum komnar yfir það versta, nú fara meðölin að virka. Smile

Þessar tvær myndir tók Hanna Sól, hún þarf dálítla athygli, svona þegar litla systir þarf svo mikla umönnun, þá verður maður líka lítill, maður er bara fjögra ára, eða ein meter, eins og hún sagði hér áður en hún átti fjögura ára afmælið.

IMG_9025

Þessa tók hún af ömmu og Ásthildi, báðar frekar klesstar í framan, amma með varaþurrk og Ásthildur með þessa streptococcasýkingu.

IMG_9026

Og hér er afi, ég átti smávegis við myndina, gerði hann bleikann hehehehe....

IMG_9028

Við kveðjum svo í kúlunni, ég stalst bara niður til að kasta á ykkur kveðju, og sú stutta vaknaði auðvitað í millitíðinni.  En ég segi bara Góða nótt elskurnar. Heart


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband